Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 68
7. MARS 2009 LAUGARDAGUR8 ● fréttablaðið ● karlmenn og krabbamein
Alcoa Fjarðaál er aðalstyrktaraðili
átaksins Karlmenn og krabbamein
sem Krabbameinsfélag Íslands
stendur fyrir, en í fyrra keypti
fyrirtækið 225 bleikar slaufur til
styrktar leit á brjóstakrabbameini
hjá konum. „Okkur þykir ekki
síður mikilvægt að styrkja við-
leitni Krabbameinsfélagsins við að
vekja athygli karla á krabbameini
en á síðustu árum hefur sjónum
meira verið beint að konum, enda
fer fram skipuleg leit að krabba-
meini meðal þeirra,“ segir Tómas
Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á
Íslandi.
Samstarf Alcoa Fjarðaáls við
Krabbameinsfélag Íslands hófst
með kaupum á bleiku slaufunni
en þá kviknaði hugmyndin að því
að Fjarðarál yrði aðalstyrktarað-
ili átaksins Karlmenn og krabba-
mein. „Að þessu sinni er álnæla
seld til styrktar átakinu. Fjarðaál
leggur mikla áherslu á heilbrigði
og forvarnir en í fyrirtækinu fer
fram heilmikil vinna sem teng-
ist því. Við höfum hvatt fólk til að
taka upp holla lifnaðarhætti og í
fyrirtækinu er starfandi heilsu-
gæsla sem hefur meðal annars lagt
hönd á plóginn,“ segir Tómas Már
og nefnir að í næstu viku verði for-
varnarátak í álverinu á Reyðarfirði
til að vekja athygli á átakinu Karl-
menn og krabbamein.
„Auðvitað er sérstaklega
ánægjulegt að vera í samstarfi við
Krabbameinsfélagið sem hefur
unnið stórmerkilegt starf á sviði
krabbameinsleitar og rannsókna,“
segir Tómas Már. „Eitt helsta gildi
Alcoa Fjarðaáls er virðing fyrir
einstaklingnum og lögð er áhersla
á velferð starfsmanna. Okkar
starfsmenn njóta að sjálfsögðu
sömu veikindaréttinda og aðrir en
auk þess höfum við reynt að vera
sveigjanleg og koma til móts við þá
sem veikjast eins og kostur er.“ - hs
Áhersla á velferð starfsfólks
Ófeigur Gústafsson lætur ekki
deigan síga þrátt fyrir að hafa
greinst með krabbamein og
nýtur þar ómetanlegs stuðn-
ings aðstandenda.
„Ég greindist 17. júní 2008 og hafði
fundið fyrir þessu lengi en leitaði
mér því miður ekki hjálpar við því
strax,“ segir Ófeigur Gústafsson,
29 ára fjölskyldufaðir sem starf-
ar hjá Alcoa Fjarðaáli, en hann er
með ólæknandi krabbamein. „Ég
fann fyrir miklum kviðverkjum og
greindist með krabbamein í gall-
göngum, sem er mjög sjaldgæft. Ég
tók þeim fregnum hins vegar með
jafnaðargeði og bjartsýni þar sem
í raun var ekkert annað að gera en
að taka í hornin á nautinu,“ segir
hann einlægur og hvetur karlmenn
til að láta skoða sig ef þeir kenna sér
meins. Ófeigur gat hins vegar ekki
hafið meðferð fyrr en þremur mán-
uðum síðar þar sem hann glímdi við
lifrarbilun. „Horfurnar þetta sumar
voru vægast sagt slæmar en fyrir
eitthvert kraftaverk og frábæra
lækna komst ég í gegnum þetta og
gat þá hafið meðferð.“
Krabbameinsmeðferð er langt
og strangt ferli og þá er dýrmætt
að mæta skilningi í samfélaginu.
Ófeigur starfaði hjá Alcoa Fjarða-
áli þegar hann greindist og gerir
enn. Þar hefur hann notið mikils
stuðnings. „Fjarðaál hefur staðið á
bak við mig eins og klettur og í raun
mun meira en ég bjóst við. Maður
hefur heyrt sögusagnir um að fyrir-
tæki reyni að losa sig við starfsfólk
sem lendir í svona en annað er upp
á teningnum á mínum vinnustað.
Vaktin mín og minn yfirmaður hafa
sérstaklega stutt mig,“ segir Ófeigur
hrærður og nefnir dæmi: „Fólk fékk
frí til að koma í dagsheimsóknir til
mín suður á sjúkrahúsið, yfirmaður
minn hringdi reglulega til að heyra
í mér og peppa mig upp, tekin var
hópmynd af vaktinni og hún send
með baráttukveðjum og fólk tók
sig saman og vann fyrir mig til að
styrkja mig. Oft var erfitt að tala
við vinnufélagana þar sem ég varð
klökkur yfir þeim gríðarlega sam-
hug og stuðningi sem þau sýndu
mér.“ Einnig þykir Ófeigi ómetan-
legt að þurfa ekki að hafa áhyggj-
ur af vinnunni á meðan hann berst
við sjúkdóminn. „Víst er um nóg að
hugsa þó áhyggjur af starfi og af-
komu bætist ekki við,“ segir hann
og heldur áfram: „Einnig er mikil-
vægt að hafa að einhverju að stefna
Tek þetta á bjartsýn
„Sonur minn greindist með
krabbamein 21. apríl 2008 og var
þá tólf ára. Breytingin frá því ég
fór með hann til læknis var afar
hröð. Hann hafði verið mjög
þreyttur og alltaf með blóðnasir
þannig ég fór með hann til heim-
ilislæknis. Um kvöldið fórum við
með hann suður og hann greind-
ist eftir miðnætti. Daginn eftir
var allur líkaminn þakinn húð-
blæðingum og hann varð bara
allt annað barn á einum sólar-
hring,“ segir Arnbjörg Kjart-
ansdóttir, starfsmaður hjá
Alcoa. Sonur hennar, Kjart-
an Freyr Hlöðversson, greind-
ist með beinmergshvítblæði og
var í stífri átta mánaða meðferð
við því. „Hann er mjög hress í
dag, eiginlega vonum framar,
en lífið tók eiginlega stakka-
skiptum þarna á einum degi,“
segir hún og bætir við: „Vissu-
lega var skelfilegt að fá þessar
fréttir en í raun áttaði ég mig
ekki almennilega á þessu fyrr en
seinna. Maður fer í einhvern gír
en Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna veitti mér og syni
mínum mikinn stuðning.“
Fyrirtækið Alcoa Fjarðaál
stóð einnig þétt við bakið á Arn-
björgu og fjölskyldu á þessum
tíma. „Ég og eiginmaður minn,
fósturfaðir Kjartans, vinnum
bæði hjá Fjarðaáli og var vinnu-
staðurinn mjög sveigjanlegur.
Um leið og ég fór suður fékk
maðurinn minn að breyta yfir
í dagvaktir því við eigum tvö
yngri börn sem eru í skóla og
leikskóla. Auk þess fékk ég fjár-
hagslega aðstoð og aðra hjálp
þannig að ég þurfti ekki að hafa
neinar áhyggjur af vinnumissi
eða öðru og veitti það mikið ör-
yggi að þurfa ekki að hugsa um
það líka,“ segir hún og nefnir
að hún hefði vart mátt til þess
hugsa að vera án þeirrar hjálp-
ar sem fyrirtækið veitti henni.
„Vinnustaðurinn er í raun eins
og fjölskylda,“ segir hún og
hvetur fólk í sömu sporum til að
þiggja alla hjálp sem býðst. - hs
Þakklát fyrir hjálpina
Kjartan Freyr og Arnbjörg, móðir hans, tókust saman á við erfið veikindi Kjart-
ans sem er orðinn mun hraustari í dag en er þó undir eftirliti. MYND/HELGI GARÐARSSON
Ófeigur í faðmi fjölskyldunnar. „Eitt það erfiðasta er
tilhugsunin um að kveðja börnin sín og því vil ég vera
til staðar fyrir dætur mínar eins lengi og ég get. Þó svo
líkamleg líðan sé ekki góð núna þá er andleg líðan mjög
góð. Planið er að komast yfir þennan hjalla og fara að
vinna aftur,“ segir hann.
Tómas Már Sigurðsson, for-
stjóri Alcoa, segir fyrirtækið
leggja mikla áherslu á að
hvetja starfsmenn til að
hreyfa sig, borða holla fæðu
og lifa almennt heilbrigðu
lífi í forvarnarskyni.
Auglýsingasími
– Mest lesið