Fréttablaðið - 07.03.2009, Síða 77
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Osló gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
OSLÓMÍN
Það sem ég elska við Osló er að þar eru svo
margir möguleikar á afþreyingu fyrir alla
fjölskylduna. Við förum á ströndina, út í eyjarnar,
tínum sveppi í skóginum, förum á gönguskíði,
svigskíði og njótum almenningsgarða í
miðborginni. Ekki sakar að veðráttan er oftast
nær eins og best verður á kosið.
VIGELANDSPARKEN
Þetta er einn af mínum uppáhaldsstöðum í
Osló. Hér er að finna 212 skúlptúra eftir
listamanninn Gustav Vigeland. Garðurinn er stór
og nóg pláss fyrir alla til að taka með sér nesti,
bolta til að leika með eða bara rölta um og njóta
trjánna og listaverkanna. Hingað komum við
fjölskyldan reglulega allt árið um kring.
ÓPERAN
Stolt Norðmanna. Óperan var opnuð í apríl
2008 og er glæsileg bygging, bæði að innan og
utan. Hún er virkilega þess virði að skoða hana,
að ég tali nú ekki um að njóta þess sem þar fer
fram. Hægt er að ganga um á þakinu og njóta
útsýnisins en hafið með ykkur sólgleraugu ef
það er sólskin. Ef þið náið í miða þá er hljóm-
burðurinn í húsinu hreint óviðjafnanlegur.
EYJARNAR
Á góðum degi er yndislegt að yfirgefa eril
borgarinnar og sigla út í eyjarnar. Við tökum
með okkur nesti, teppi, baðföt og góða skapið.
Á kvöldin er fínt að taka með sér grill og njóta
sælunnar á meðan sólin sest. Ekki gleyma
síðasta bát í land. Bátarnir frá Osló fara frá
Vippetangen.
TRYVANN SKISENTER
Svigskíði, bretti og Telemark. Að geta skotist á
skíði eftir erilsaman vinnudag er næstum því
eins og að fara í laugarnar og hlaða batteríin.
NORDMARKA
Stærsti hluti Oslóborgar er skógi vaxinn og
heitir Nordmarka. Upplagt er að taka lest til
Frognerseteren og fara í göngutúr, dagsferð
eða tjaldútilegu í Nordmarka. Það gerum við
reglulega.
GRÜNERLØKKA
Hér er mikið af kaffihúsum, verslunum og fólki
og mikið líf og fjör á kvöldin.
Skaugum – Palace Grill
Skemmtilegur staður með veitingastað,
bar og skreyttum bakgarði. Góð tónlist,
góð stemning. Hér er gaman að tjútta!
Mono
Rokkaður bar með góðri tónlist. Stundum
tónleikar.
Kampen Bistro
Veitingastaður á Kampen nálægt Tøyen.
Virkilega góður matur, góð vín og verðið lágt.
Sjarmerandi staður, afslappaður og notalegur.
Kirkeristen
Þetta svæðið í kringum Dómkirkjuna er í miklu
uppáhaldi. Hér er Cafe Bacchus, gamaldags og
sjarmerandi kaffihús með góðum mat, kökum og
kaffi. Ýmsir listamenn sýna verk sín og hér er
einnig bæjarins besti veitingstaður utandyra,
Trattoria Cappuccino. Ítalskur matur, ekta
ítalskar pizzur og rósavín. Æðislegt á heitum
sumardegi. Cappucino er einungis opið á
sumrin.
Baltazar
Flottur ítalskur veitingastaður í Kirkeristen. Einn
sá besti í Osló. Hin íslenska Ólína stjórnar
staðnum af röggsemi og alúð.
Ekebergrestauranten
Tvískiptur staður með „brasserí“ og flottum
veitingastað. Hér má njóta þess að fá glæsilega
eða einfalda máltíð eða bara fá sér hressingu
úti á veröndinni. Héðan er flottasta útsýnið í
Osló. Sporvagn númer 17 stoppar rétt hjá.
Glæsilegt!
VEITINGASTAÐIR
Flug og gisting í 2 nætur
frá 48.900 kr.
á mann í tvíbýli á Thon Hotel Europa ***
Innifalið: Flug báðar leiðir,
flugvallarskattar, gisting og morgunverður.
Reykjavík – Osló frá 14.900 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er allt að 9 sinnum í viku.
Brynhildur Ólafsdóttir,
sölu- og markaðsstjóri