Fréttablaðið - 07.03.2009, Side 90
50 7. mars 2009 LAUGARDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Er hún ekki
seiðmögn-
uð þessi?
Bóka-
útgáfan
Norna-
kokka-
bókin
Nú hefði
verið gott að
fá Nonnabita!
Gleymdu
því!
Ég tek
tímann á
þér!
Óboj! Heyrðu,
bíddu nú
aðeins...
Láttu ekki
svona, þú ert
svo fljótur að
hlaupa!
ÓKEI!
Hæ
Pétur.
Hvað
segirðu?
Rottan mín er á
gjörgæslu!
Af öllum þeim svörum sem
mér gat dottið í hug við
þessari spurningu, þá hefði
ég ekki búist við þessu.
Hvernig ætlarðu
að þrauka þessa
löngu bílferð í
ferðakassanum
Mjási?
Ég hef hugsað mér að
syngja „Fiskinn minn,
nammi nammi namm!“
Get ég
fengið
snakk og
salsa-
sósu fyrir
Hannes?
Hmm, við
skulum
orða þetta
öðruvísi.
Ég fæ aldrei það
sem ég vil þegar
ég endurorða
hlutina.
Hannesi finnst
salsa ekki góð,
hún brennir
tunguna á
honum.
Get ég fengið snakk og
salsasósu svo ég geti
platað Hannes til að
borða það með því að
segja honum að þetta
sé kekkjótt tómatsósa?
Þegar ég var að alast upp í afskekktri sveit norðan heiða var sjaldan farið í kaupstað. Þegar farið var voru því
gerð magninnkaup í vöruflokkum sem erf-
itt er að vera án þegar langt er í búð. Tann-
krem og sjampó var keypt í stórum umbúð-
um og aldrei minna en tvær einingar af
hverju. Þessi siður blundar enn í mér. Þó
ég hafi árum saman búið í göngufæri við
verslun á ég það til að kaupa tvær tann-
kremstúbur eða tvo sjampóbrúsa
þegar ég hleyp út í búð. Þvotta-
drengurinn hlær að mér fyrir
þennan sið og kallar mig sveita-
lubba. Sannleikurinn er samt sá
að hann hefur oft komið sér vel
þegar síðasti kreistingurinn
úr tannkremstúbunni hefur
verið nýttur og klukkan
orðin margt. Þá er gott
að aukatúba leynist inni
í skáp frá síðustu búðarferð sveitalubb-
ans. Þvottadrengurinn er líka gjarn á að
taka sjampóbrúsann með sér til einkanota
í sundi og annarri líkamsrækt og skilar
honum sjaldnast aftur á baðkarsbrúnina
eftir notkun. Ég lenti því í því um daginn
að grípa í tómt þegar ég teygði mig eftir
brúsanum í sturtunni. Ég vissi að sjampó-
ið var ekki búið, þvottadrengurinn hafði
enn eina ferðina tekið brúsann með sér
í sjósundið og týnt honum. Ég sótbölvaði
honum í huganum meðan ég nuddaði hárið
á mér með gamalli handsápu sem ég veiddi
upp úr niðurfallinu. Neyddist svo til að
fara út úr húsi með hárið eins og kleprað-
an ullarlagð. Sem fyrr þýddi ekkert að eiga
þetta við þvottadrenginn. Hann fríaði sig
allri ábyrgð, sagði félaga sína í sjósundinu
hljóta að hafa stolið brúsanum. Ullarklepr-
arnir færu mér líka bara vel, sveitalubban-
um sem ég væri.
Klepraðir lokkar sveitalubbans
NOKKUR ORÐ
Ragnheiður
Tryggvadóttir
Fjölskyldan á tímum breytinga
Umræðukvöld á vegum Reykjavíkurprófastsdæmis
eystra og Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.
Mánudaginn 9. mars kl. 20-22 í Grafarvogskirkju
Jákvæð gildi og farsælt líf:
Benedikt Jóhannsson, sálfræðingur.
Börn eru næm á líðan foreldra sinna:
Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur
Máttur samtalsins:
Elísabet Berta Bjarnadóttir og Rannveig Guðmundsdóttir,
félagsráðgjafar leiða umræður.
ATHUGIÐ!
Höfum áhuga á að kaupa notuð
gæðaúr frá eftirfarandi framleiðendum:
Rolex, Patek Philippe, IWC, Girard Perreguax,
Panerai, Oris, Bvlgari, Ulysse Nardin, Zenith o.fl .
Upprunalegir pappírar/skjöl, umbúðir o.s.frv. verða að fylgja.
Vinsamlegast sendið lýsingu, myndir
og verðhugmyndir á netfangið:
swissur@gmail.com og við svörum um hæl.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki