Fréttablaðið - 07.03.2009, Page 98
7. mars 2009 LAUGARDAGUR
Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa standa fyrir kynningu á styrkja-
og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kjörið tækifæri fyrir einstaklinga,
skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á fl estum sviðum
menntunar, menningar og atvinnulífs
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
●
M
enntaáæ
tlun ESB
●
7. rannsóknaáæ
tlun ESB
●
Evrópa unga fólksins
●
M
enningaráæ
tlun ESB
●
EURES - Evrópsk vinnum
iðlun
●
Sam
keppnis- og nýsköpunaráæ
tlun ESB - CIP
●
N
orðurslóðaáæ
tlun
●
Euroguidance
●
eTw
inning - rafræ
nt skólasam
starf
●
PROGRESS - jafnrétti og vinnum
ál
●
Daphne III - gegn ofbeldi á konum
og börnum
●
Alm
annavarnaáæ
tlunin
●
COST
Áætlanir sem kynntar verða:
www.evropusamvinna.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Allir velkomnir!
Egilsstaðir 9. mars kl. 13-15 Höfn 10. mars kl. 10-13
Vík 11. mars kl. 10-12 Selfoss 11. mars kl. 15-18
Sauðárkrókur 18. mars kl. 10-13 Akureyri 18. mars kl. 16-18
Húsavík 19. mars kl. 10-14 Ísafjörður 23. mars
Reykjanesbær 24. mars Vestmannaeyjar 25. mars
Popparinn Michael Jackson gæti
þénað rúma 45 milljarða króna
fyrir endurkomu sína í sviðs-
ljósið. Um yrði að ræða tekjur af
nýrri tónlist, tónleikum og kvik-
mynd á næstu árum.
Jackson ætlar að halda tíu
tónleika í O2-höllinni í London í
sumar, sem verða hans síðustu í
Bretlandi. Hugsanlega fer hann í
tónleikaferð um heiminn í fram-
haldinu auk þess sem til stendur
að búa til kvikmynd í þrívídd
byggða á laginu Thriller. Jack-
son myndi fara þar með aðalhlut-
verkið.
„Ég elska ykkur svo mikið,“
sagði popparinn þegar hann til-
kynnti um tónleikaröðina í Lond-
on. „Þetta verða síðustu tónleik-
arnir. Þegar ég segi að þetta verði
þeir síðustu þá verða þeir það. Ég
ætla að syngja lögin sem aðdáend-
ur mínir vilja heyra,“ sagði hann.
Tónleikarnir í London eru þeir
einu sem hafa verið staðfestir enn
sem komið er. Aðdáendur hans
víða um heim bíða því spenntir
eftir nýjum tíðindum af tónleika-
ferð, sem yrði sú fyrsta í tólf ár,
eða síðan HIStory-túrinn var far-
inn. Það yrði jafnframt síðasta
tónleikaferðin hans á ferlinum.
Fyrstu tónleikarnir í O2-höll-
inni verða 8. júlí og verða tuttugu
þúsund miðar í boði.
45 milljarða endurkoma
MICHAEL JACKSON Jackson á blaðamannafundinum í London þar sem hann tilkynnti
um tónleikaröðina. NORDICPHOTOS/GETTY
Poppstjarnan Lily Allen er nýj-
asta fórnarlamb kreppunnar sem
skekur heiminn. Fólk skal þó ekki
halda að það sé vegna fjárfestinga
eða slíks. Nei, Lily greyið fær ekki
lengur yfirdrátt eða lán í bankan-
um sínum til að halda áfram að
eyða peningum í föt og skemmt-
anahald.
„Ég hef lent illa í því vegna láns-
fjárkrísunnar. Ég varð að selja
bílinn minn því ég er svo blönk,“
segir Lily sem segist einnig hafa
eytt miklu í föt. Hún kveðst ekki
geta notað krítarkort sín og fær
ekki lán í bankanum. „Ég er að bíða
eftir að höfundarréttargreiðslurn-
ar fyrir plötuna mína skili sér og
greiðslur fyrir útvarpsspilun en
það tekur um það bil ár. Ég get
ekki einu sinni notað kreditkortin
mín. Bankarnir lána manni venju-
lega peninga við slíkar aðstæður
en þeir eru bara ekkert að lána
núna. Þetta eru erfiðir tímar.“
Lily er staurblönk
BLÖNK Lily Allen fær ekki lán.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hannes Ingi Geirsson geng-
ur í hjónaband á morgun.
Hann vaknaði upp við það
í gærmorgun að vinir hans
höfðu sett smáauglýsingu í
Fréttablaðið þar sem brúð-
guminn bauð upp á erótískt
nudd.
„Nuddstofan“, heyrist hinum megin
á línunni. Hannes Ingi Geirsson er
í símanum en hann ætlar að kvæn-
ast Karenu Dröfn Kjartansdóttur
blaðamanni á morgun.
Í Fréttablaðinu í gær birtist
smáauglýsing með mynd af Hann-
esi þar sem boðið er upp á nudd
fyrir karlmenn með „góðum endi“.
Blaðamann grunar að verið sé að
steggja og það reynist rétt. „Ég átti
ekki von á þessu en ég hef mjög
gaman af þessu. Ég spila jafnvel
með í símtölunum þangað til það
er komið í óefni,“ segir hann um
grikkinn. Snemma í gær hafði
hann tekið á móti hátt í fimmtán
símtölum og hafði varla undan að
svara. „Ég hef grun um að félag-
arnir hafi verið að hnippa í ein-
hverja vinnufélaga og biðja þá um
að hringja,“ segir hann. „Ég gæti
alveg átt von á því að það sé meira
í vændum. Ég bíð bara spenntur.“
Hannes hefur sjálfur tekið þátt í
að steggja vini sína og vissi því að
hann gæti átt von á hefndaraðgerð-
um. „Einhverjir þeirra halda lík-
lega að þeir eigi eitthvað inni hjá
mér. Svo eru fleiri sem eru að fara
að gifta sig en þeir eru kannski að
halda aftur af sér af því að þeir
eru eftir.“ freyr@frettabladid.is
KYNFERÐISLEGT
NUDD Í STEGGJUN
HANNES INGI EINARSSON Smáauglýsingin í Fréttablaðinu var liður í steggjun Hann-
esar, sem gengur upp að altarinu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA