Fréttablaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er mánudagurinn 30. mars, 89. dagur ársins. 6.52 13.32 20.13 6.34 13.17 20.01 með ánægju Gatwick Bandaríkin Ísland Mið-Ameríka Karíbahafið Afríka Asía Evrópa London Gatwick til allra átta! Frá og með 1. maí flytjum við okkur frá Stansted yfir á Gatwick flugvöll (South terminal). Gatwick er þægilega staðsettur suður af London og þaðan fljúga flugfélög á borð við easyJet, British Airways og US Airways til allra heimshorna. Möguleikar á ódýru og fjölbreyttu tengiflugi verða þá enn fleiri fyrir hagsýna og ævintýragjarna ferðalanga. Kynntu þér Gatwick og bókaðu flug á frábæru verði á www.icelandexpress.is www.gatwickairport.com Bókaðu tengiflug! Frá 1. maí 2009 Opið 07 til 02 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is Árið 1975 fórum við pabbi á opnun myndlistarsýningar í Gallerí Súm eins og fínt fólk. Þar var margt um manninn og listaverkin breiddust yfir veggi eins og bergflétta. Svo sat þarna líka myndastytta í stól. Þetta var alhvít kona með hönd undir kinn og bærði ekki á sér frekar en stytt- ur yfirleitt. Og þó. Allt í einu greip fólk andann á lofti og skvaldrið þagnaði. Myndastyttan virtist hafa fengið nóg. Hún var staðin upp og gekk hikandi skrefum í átt að dyr- unum. Sýningargestir eltu auðvit- að forvitnir og fylgdust með henni hverfa sjónum úti í porti. Gjörn- ingurinn reyndist vera eftir Rúrí sem hafði ekki vílað fyrir sér að sitja þarna grafkyrr í um það bil 40 mínútur. MYNDARÖÐ af gjörningnum hangir uppi á sýningunni Nokkrir vinir sem stendur nú yfir í Lista- safni Íslands. Þar birtumst við pabbi á einni myndinni. Hann frakkaklæddur en ég í úlpu af eldri frænku minni og hef ekki hirt um að taka af mér hettuna. Buxurn- ar mínar eru úr köflóttu ullarefni sem stakk. Við horfum stóísk fram hjá styttunni. Hún vekur enga sér- staka athygli hjá okkur. Við tökum að minnsta kosti ekki eftir því að hún andar. Þetta er augnablikið áður en sýningargestum varð ljóst að leikið hafði verið á þá. Þetta er augnablikið áður en ég uppgötvaði endanlega hvílíkt lifandis fjör list getur verið. EKKI er þetta í fyrsta sinn sem ég sé myndirnar því ég man eftir að hafa rekist á þær að minnsta kosti tvisvar áður á sýningu. Á þeirri sem nú hangir uppi í Listasafninu lætur Rúrí aftur á móti stólinn sem styttan sat á fylgja með. Ég man að minnsta kosti ekki eftir því að hafa barið hann áður augum. Á stólnum hvílir líka blind og þögul gríman, auk hjúpsins sem var um annan fótinn og slæðunnar sem hvíldi á höfði styttunnar. NÚ þegar allur þessi tími er liðinn frá gjörningnum og myndirnar af honum eru sýndar í jafnhátíðlegu safni verða þessir hvítu munir að helgidómum. Það rennur fyrst núna upp fyrir mér að þetta var ekki myndastytta sem við eltum út í portið forðum daga, heldur sjálf María mey. Orðalaust stakk hún okkur af. Við stöndum eftir án nokkurra vegvísa eða skilaboða en þó svolítið meyr yfir því að hafa fengið að sjá hana þótt ekki væri nema í mýflugumynd. Hin helga mær

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.