Fréttablaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 4
4 30. mars 2009 MÁNUDAGUR
íslenskur ríkisborgari
www.okkarsjodir.is
Jóhanna, nú hefur þú tækifæri til að standa við orð þín um að
velferð aldraðra gangi fyrir. Það er líka spilling í lífeyrissjóðakerfinu,
þar þarf að taka til.
Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 16.000
manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir
eru okkar eign!
Atkvæðin eru
okkar vopn!
Ljósmyndarinn sem tók mynd af
Noordin Alazawi í blaðinu á laugar-
dag heitir Steinþór G. Hafsteinsson.
LEIÐRÉTTING
GEIMFERÐIR Geimferjan Discov-
ery er komin aftur til jarðar eftir
vel heppnaðan þrettán daga leið-
angur til Alþjóðlegu geimstöðv-
arinnar. Ferjan lenti á Kennedy-
geimferðamiðstöðinni í Flórída
nokkrum klukkustundum eftir
áætlun, en heimferðinni hafði
verið frestað lítillega vegna
slæms veðurs.
Sjö meðlimir Discovery fóru
í leiðangurinn sem tengdist efl-
ingu sólarorkunnar sem geim-
stöðin notast við. Einn geimfari,
Sandra Magnús, sem hafði verið
í stöðinni í fjóra mánuði var á
meðal þeirra sem sneru aftur til
jarðar.
Á sama tíma og geimferjan
kom til jarðar lenti rússneskt
geimfar með bandarískan millj-
arðamæring á Alþjóðlegu geim-
stöðinni. Hann heitir Charles
Simonyi og var í sinni annarri
geimferð. - fb
Discovery komin til jarðar:
Vel heppnuð
geimferð
DISCOVERY Geimferjan er komin aftur til
jarðar eftir þrettán daga ferðalag.
SPÁNN, AP Spænskir dómstólar
íhuga að ákæra sex fyrrverandi
embættismenn í Bandaríkjunum
fyrir að hafa lagt fram skjöl sem
áttu að réttlæta pyntingarnar
sem eru sagðar hafa átt sér stað í
Guantanamo-fangabúðunum.
Það voru lögfræðingar á sviði
mannréttindamála sem ákærðu
mennina, sem störfuðu allir fyrir
Bandaríkjastjórn. Á meðal þeirra
er fyrrverandi starfsmaður
varnarmálaráðuneytisins, Dou-
glas Feith, sem hefur vísað ákær-
unum á bug.
Spænskir dómstólar geta dæmt
menn fyrir lögbrot á borð við
pyntingar og stríðsglæpi þótt
framin hafi verið í öðrum lönd-
um. - fb
Pyntingar í Guantanamo:
Spánverjar
íhuga ákærur
GUANTANAMO Fangabúðirnar í
Guantanamo-flóa hafa verið gríðarlega
umdeildar víða um heim.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
11°
12°
8°
10°
13°
6°
8°
8°
18°
11°
16°
13°
26°
2°
12°
19°
6°Á MORGUN
Norðaustan eða austan,
8-13 m/s, hvassast NV-til.
Hægast austan til.
ÞRIÐJUDAGUR
Fremur stíf austlæg átt,
hvassast S- og V-til.
-4
-5
-6
-4
-5
-2
-3
0
0
-1
-7
9
13
15
12
10
18
16
18
11
15
10
2
1
-5
-4
-2
3
5
1
0-1
STORMUR
NORÐAN- OG
AUSTANLANDS
Það verður ekkert
ferðaveður á Norð-
ur- og Austurlandi í
dag en búist er við
norðvestan hvass-
viðri eða stormi og
talsverðri ofankomu
fram eftir deginum.
Síðdegis mun taka
að lægja smám
saman og draga úr
ofankomu.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson alþingismaður var
í gær kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann
hlaut 990 atkvæði, 58,1 prósent, en Kristján Þór Júlí-
usson alþingismaður fékk 688 atkvæði, 40,4 prósent.
Bjarni tekur við embættinu af Geir H. Haarde sem
kjörinn var formaður 2005.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin
varaformaður flokksins. Hlaut hún rúmlega 80 pró-
sent atkvæða.
Bjarni er níundi formaður Sjálfstæðisflokksins
sem stofnaður var 1929. Kjörið í gær var hið fyrsta
síðan sjálfstæðismenn kusu á milli Davíðs Oddssonar
og Þorsteins Pálssonar 1991.
Bjarni er fæddur 1970, hann er lögfræðingur að
mennt og starfaði sem lögmaður áður en hann var
kjörinn á þing 2003. Flest atkvæði í kjöri til mið-
stjórnar hlutu Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, Ásthildur Sturludóttir kynningar-
stjóri, Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri, Elínbjörg
Magnúsdóttir fiskverkakona og Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins. - bþs
Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kjörin til forystustarfa:
Tæp 60 prósent kusu Bjarna
FORYSTAN Bjarni Benediktsson var kjörinn formaður og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir endurkjörin varaformaður á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VINNUMARKAÐUR Atvinnulausir
eiga engan rétt til atvinnuleysis-
bóta meðan þeir eru í fullu námi
þar sem reglur Vinnumálastofnun-
ar kveða á um að fólk á atvinnu-
leysisbótum verði að vera virkt
í atvinnuleit. Ef þeir eru í fullu
námi teljast þeir ekki virkir í
atvinnuleit. Atvinnulausir verða
því að sækja um námslán ætli þeir
að vera í fullu námi. Atvinnulaus-
ir geta hins vegar tekið eitt til tvö
námskeið meðan þeir eru á bótum
og eru þá virkir í atvinnuleit.
Atvinnulausir sem fara í fullt
nám geta sótt um námslán hjá LÍN
fyrir næsta vetur. Lægstu atvinnu-
leysisbætur eru tæplega 150 þús-
und krónur á mánuði en námslán
eru 100 þúsund krónur fyrir ein-
stakling. Framfærsla námsmanna
er svo lág þar sem gert er ráð fyrir
því að þeir vinni fjóra mánuði á
ári. Tekjurnar koma aðeins til
fimm prósenta skerðingar.
Fyrirsjáan-
legt er að margir
námsmenn eiga
á hættu að vera
atvinnulausir í
sumar og geta
því ekki unnið
til framfærslu
með námsláni.
Guðrún Ragn-
arsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
LÍN, segir að
verið sé að endurskoða reglurn-
ar. Tekjumörkin vegna greiðslu
fastrar afborgunar hafi þegar
verið hækkuð úr 2,1 milljón í fjór-
ar milljónir að uppfylltum ákveðn-
um skilyrðum. Útlánareglurnar
séu til endurskoðunar í ljósi þess
að rýmka möguleika til náms en
það myndi kosta LÍN minnst 155
milljónir að hækka grunnfram-
færslu í 150 þúsund.
„Fleiri ætla sér í nám og tekju-
möguleikarnir eru líka minni en
áður. Margir námsmenn fá sjálf-
sagt ekki vinnu í sumar,“ segir
hún. „Þetta er allt til skoðunar og
við stefnum að því að klára það í
apríl,“ segir hún og telur mögu-
leika til að fá viðbótarfjárfram-
lag frá ríkinu ekki mikla. Guðrún
segir að framfærslugrunnurinn sé
meðal þess sem sé til skoðunar.
Fyrirsjáanlegt er fleiri munu
sækja um námslán. Aukin eftir-
spurn verður eftir sumarnámi. Þá
telur Guðrún að fleiri fari í nám,
grunnháskólanám og sömuleiðis
framhaldsnám. „Það er verið að
fara í gegnum allt þetta og átta sig
á því hvað er raunhæft að gera en
að lokum stendur það og fellur með
pólitíkinni,“ segir hún.
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra segir að kannað sé
hvort hægt sé að hækka fram-
færslugrunninn hjá LÍN. Það verði
varla gert nema að auka tekjuteng-
ingu. „Auðvitað viljum við finna
leiðir til þess að þeir sem engar
aðrar tekjur hafa fái hækkun á
sinni framfærslu,“ segir hún.
ghs@frettabladid.is
Atvinnulausir fá
ekki bætur í námi
Þeir sem hafa greitt í atvinnuleysistryggingasjóð fá ekki atvinnuleysisbætur
ætli þeir að nota tíma sinn í fullt nám meðan á atvinnuleysinu stendur. Nemar
hafa 100 þúsund á mánuði en atvinnulausir 150 þúsund. Útlánareglur í skoðun.
EKKI Á BÓTUM Búast má við að margir atvinnulausir fari í nám í haust. Þeir geta ekki
stundað fullt nám á bótum. Samkvæmt reglunum er sá sem stundar fullt nám ekki
virkur í atvinnuleit og því getur hann ekki verið á atvinnuleysisbótum. Hann verður
að sækja um námslán. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
GENGIÐ 27.03.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
194,9157
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
119,35 119,91
170,75 171,59
160,07 160,97
21,486 21,612
18,180 18,288
14,758 14,844
1,2160 1,2232
178,78 179,84
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Formaður afþakkar þóknun
Valdimar Guðmannsson, formaður
bæjarráðs á Blönduósi, afsalar sér
greiðslu fyrir formennskuna og vill
hér eftir aðeins venjuleg laun bæjar-
fulltrúa. „Ég tek þessa ákvörðun í ljósi
þess að undanfarna mánuði hafa
mörg fyrirtæki og stofnanir ásamt
sveitarfélögum þurft að grípa til
aðhalds og niðurskurðar, meðal ann-
ars með lækkun launa starfsfólks,“
segir Valdimar í bókun.
BLÖNDUÓS
GLÆPIR Hópur tölvuþrjóta hefur
brotist inn í tölvur stjórnvalda
víða um heim og stolið þaðan við-
kvæmum upplýsingum. Flestir
meðlimir hópsins búa í Kína.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
frá kanadískri upplýsingastofnun
sem hefur eftirlit með hernaði.
Alls hakkaði hópurinn sig inn
í tæplega 1.300 tölvur í 103 lönd-
um. Á meðal þeirra eru tölvur
í eigu utanríkisráðuneyta og
sendiráða og tölvur sem tengjast
tíbetska friðarleiðtoganum Dalai
Lama. Engar sannanir eru fyrir
því að kínversk stjórnvöld séu á
bak við njósnirnar og hafa þau
neitað aðild að málinu. - fb
Umsvifamiklir tölvuþrjótar:
Kínverjar neita
allri aðild