Fréttablaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 6
6 30. mars 2009 MÁNUDAGUR
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Skíðabogar
BETRA START MEÐ
EXIDE-RAFGEYMUM
15%
afsláttur
Upplýsingar í síma 515 1100
Sendið pantanir á pontun@olis.is
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval rafgeyma frá Exide, ýmsar
stærðir og gerðir fyrir bíla, báta og önnur tæki. Gæðafram-
leiðsla sem reynst hefur afar vel við íslenskar aðstæður.
STJÓRNMÁL Nýtt fólk var valið til forystu í Samfylk-
ingunni á landsfundi flokksins um helgina. Jóhanna
Sigurðardóttir, sem ein sóttist eftir formennsku,
hlaut 97 prósent atkvæða í formannskjörinu á
laugardag.
Tók hún við embættinu af Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur, sem var formaður í fjögur ár, og sagð-
ist við það tilefni ekki vera formaður til bráðabirgða
heldur til framtíðar.
Kosið var á milli Árna Páls Árnasonar þing-
manns og Dags B. Eggertssonar borgarfulltrúa í
embætti varaformanns. Hlaut Dagur tæp 66 prósent
atkvæða en Árni Páll tæp 34 prósent. Tekur Dagur
við af Ágústi Ólafi Ágústssyni sem sóttist ekki eftir
endurkjöri. Árni Páll tók úrslitunum vel og sagði
að ef hann hefði ekki sjálfur verið í framboði hefði
hann greitt Degi atkvæði sitt.
Margrét Björnsdóttir hafði betur í kosningu milli
hennar og Ara Skúlasonar í embætti formanns
framkvæmdastjórar Samfylkingarinnar og Mar-
grét Sverrisdóttir varð efst í kjöri til framkvæmda-
stjórnar. Þá var Helena Karlsdóttir kjörin ritari og
Magnús Norðdahl gjaldkeri flokksins. - bþs
Nýtt fólk var kjörið í helstu embætti Samfylkingarinnar á landsfundinum:
Jóhanna og Dagur í forystu
DAGUR OG JÓHANNA Ný forysta Samfylkingarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Á að banna nektardans með
lögum?
Já 44,3%
Nei 55,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu ánægð/ánægður með
nýjan formann Sjálfstæðis-
flokksins?
Segðu skoðun þína á vísir.is
STJÓRNMÁL „Við viljum sambæri-
leg kjör fyrir íslenskan almenning
og þar sem best gerist í Evrópu.
Besta leiðin að þessu markmiði er
að leita samninga við Evrópusam-
bandið um fulla aðild og upptöku
evru eins fljótt og kostur er.“
Þetta sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir, formaður Samfylkingar-
innar, við lok landsfundar flokks-
ins í gær.
Jóhanna sagði mikilvægt að
evran verði framtíðargjaldmið-
ill enda hafi reynslan af íslensku
krónunni ekki verið góð. Þá auð-
veldi Evrópusambandsaðild afnám
verðtryggingar. Helsta verkefnið á
næstu misserum sé þó að styrkja
og koma á stöðugleika krónunnar.
En um leið þurfi að gefa umheim-
inum til kynna á hvaða leið Íslend-
ingar eru. Það eitt og sér muni
hjálpa til við endurreisn efnahags-
og atvinnulífsins.
Jóhanna sagði vanda heimilanna
mikinn en þó viðráðanlegan. Rakti
hún aðgerðir ríkisstjórnarinnar
og sagði þær duga til að bregðast
við vanda langflestra. Þá varaði
hún við tillögum um flatan niður-
skurð skulda og sagði Samfylk-
inguna ekki munu blekkja þjóðina
með tálsýn og óábyrgum tillögum
í þeim efnum.
Jóhanna sagði að taka þyrfti til í
ríkisfjármálunum og sýna aðhald
og forgangsröðun sem byggði á
réttlæti og velferð fyrir alla en
ekki suma. „Skattahækkanir munu
ekki leysa vandann,“ sagði hún
og kvað nauðsynlegt að draga úr
útgjöldum eins og mögulegt væri.
Í stjórnmálaályktun Samfylk-
ingarinnar er lögð áhersla á að
jafnaðarstefnan verði leiðarljós
við efnahagsstjórn næstu ára.
Fyllsta réttlætis verði gætt við
uppbyggingu efnahagskerfis-
ins. Hagsmunum Íslendinga eftir
kosningar verði best borgið með
félagshyggjustjórn sem sæki um
aðild að ESB og leggi samning
í dóm þjóðarinnar. Í aðildarvið-
ræðum verði grundvallarhags-
munir atvinnuveganna, sérstak-
lega sjávar-útvegs og landbúnaðar,
tryggðir og vörður staðinn um
náttúruauðlindir. Áréttað er mik-
ilvægi þess að festa í stjórnarskrá
ákvæði um þjóðareign á auðlind-
um og áhersla lögð á að Alþingi
leysi þann eignarhaldsvanda sem
frjálst framsal aflaheimilda hefur
skapað.
Einnig segir í ályktuninni að
tryggja þurfi að rekstrarhæf
fyrirtæki fái nauðsynlegt fjár-
magn til rekstrar. Taka þurfi með
gagnsæjum hætti á skuldamálum
fyrirtækja og tryggja jafnræði í
meðferð sambærilegra mála.
bjorn@frettabladid.is
Samið verði við ESB
eins fljótt og hægt er
Formaður Samfylkingarinnar segir reynsluna af krónunni slæma og ítrekar
mikilvægi þess að taka upp evru. Hún segir efnahagsvandann viðráðanlegan og
að aðgerðir ríkisstjórnarinnar undanfarið dugi til að bregðast við vanda flestra.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR „Það er best fyrir íslenskt samfélag nú í uppbyggingar-
starfinu að Sjálfstæðisflokkurinn, sem stjórnað hefur hér í átján ár með þeim afleið-
ingum sem nú blasa við, verði áfram á stjórnarandstöðubekknum að loknum næstu
kosningum,“ sagði nýr formaður Samfylkingarinnar við lok landsfundar flokksins í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MENNTUN „Það er vinna í gangi á
öllum fræðasviðum og niðurstöð-
ur varðandi það hvað við getum
boðið stúdentum upp á í sumar
ættu að liggja fyrir í lok þessarar
viku,“ segir Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands (HÍ). Sam-
kvæmt könnun Stúdentaráðs HÍ
gætu þúsundir háskólanema verið
án atvinnu í sumar.
Könnun ráðsins var send til
allra háskólanema landsins. Hild-
ur Björnsdóttir, formaður ráðs-
ins, segir marga stúdenta orðna
örvæntingarfulla. „Könnunin sýndi
meðal annars að 75 prósent þeirra
sem svöruðu eru vonlitlir um að fá
vinnu í sumar. Það hlýtur að vera
ódýrara að setja upp sumarannir
fyrir þetta fólk en að það fari allt
á atvinnuleysisbætur eða eitthvað
slíkt. Við ætlum ekki að gefast
upp fyrr en við fáum þessu fram-
gengt.“
Kristín Ingólfsdóttir segir niður-
stöður könnunarinnar vissulega
áhyggjuefni, enda séu tölurnar
sláandi. „Þetta er gríðarlega mikil
breyting frá því sem hefur verið.
Við viljum gera allt sem við getum
til að koma til móts við þetta fólk,
en við erum mjög aðþrengd fjár-
hagslega,“ segir Kristín. Hún bætir
við að fjöldi nemenda hafi aukist
gríðarlega undanfarið um leið og
fjárveitingar til skólans hafi lækk-
að mikið. Jóhanna Gunnarsdóttir,
ráðgjafi hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna (LÍN), segir starfs-
fólki berast margar fyrirspurnir
um sumarlán þessa dagana. Farið
verður yfir formlegar umsóknir
þess efnis í lok apríl. „Okkur sýn-
ist að margir stefni á nám í sumar.
Það segir sig eiginlega sjálft þegar
atvinnuleysi og slíkt er tekið inn í
myndina,“ segir Jóhanna.
kjartan@frettabladid.is
Rektor HÍ segir niðurstöður könnunar Stúdentaráðs um atvinnuhorfur nemenda sláandi:
Ákvörðun um sumarannir í vikulokin
HÁSKÓLATORG Samkvæmt könnun
Stúdentaráðs gætu þúsundir háskóla-
nema verið án atvinnu í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KRISTÍN ING-
ÓLFSDÓTTIR
HILDUR BJÖRNS-
DÓTTIR
KJÖRKASSINN