Fréttablaðið - 30.03.2009, Blaðsíða 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Könnuna erfði ég eftir ömmu
mína Stefaníu og hún erfði hana
eftir Stefaníu ömmu sína. Þannig
að upprunalega átti langalang-
amma mín þessa könnu,“ segir
Stefanía Adolfsdóttir, forstöðu-
maður búningadeildar Borgarleik-
hússins, um fallega blómaskreytta
könnu sem hún heldur mikið upp
á.
„Ég man eftir því þegar ég
var lítil í eldhúsinu hjá ömmu og
starði á þessa fallegu könnu sem
stóð þar ásamt mörgum öðrum
könnum sem amma mín safnaði,“
segir Stefanía en kannan hefur
ekki verið notuð lengi enda var
hún aðeins stofustáss hjá ömmu
Stefaníu. „Þegar ég fékk hana
fyrst bað ég móður mína um að
geyma hana þar sem ég var með
lítil börn og engan góðan stað til
að geyma hana á. Þegar ég flutti á
Laufásveginn þar sem ég eignað-
ist fallegt eldhús með háum hillum
setti ég hana upp,“ segir Stefanía
og greinilegt að kannan er henni
hjartfólgin.
Þá er komið að því að spyrja
hana um litla tréborðið og stól-
ana sem hún er með á myndinni.
„Dóttir mín Klara smíðaði þetta
þegar hún var sjö ára og gaf mér
í fertugsafmælisgjöf,“ upplýsir
Stefanía stolt. „Hún gerði þetta á
verkstæðinu hjá afa sínum og bjó
fyrir utan borðið og stólana líka til
litla diska og könnur,“ segir Stef-
anía en Klara er fjórtán ára í dag
og að sögn Stefaníu leikur allt í
höndum hennar.
Stefaníu þykir gaman að safna
fallegum hlutum og leikur sér að
því að blanda saman gömlu og
nýju. „Ég bý í húsi sem var byggt
1890 og hefur verið gert upp. En
ég hef líka gaman af nýrri hönn-
un,“ segir Stefanía en það skiptir
hana miklu máli að hafa fallegt í
kringum sig.
Mikið er um að vera í vinnunni
hjá Stefaníu þessa dagana enda er
hún í óða önn að hanna búning-
ana í söngleikinn Söngvaseið sem
verður frumfluttur í Borgarleik-
húsinu þann 8. maí næstkomandi.
„Ég held mig við tímabilið sem
sagan gerist á sem er 1938,“ segir
Stefanía þegar hún er innt eftir
því hvort hún hafi hina frægu
kvikmynd til hliðsjónar við bún-
ingagerðina. „Kvikmyndin er gerð
árið 1965 og er með svolítið „fift-
ís“ tísku,“ segir Stefanía sem lofar
góðri skemmtun bæði fyrir auga
og eyra. solveig@frettabladid.is
Kanna þriggja Stefanía
Stefanía Adolfsdóttir búningahönnuður á könnu sem amma hennar og langalangamma áttu á undan
henni, en þær hétu líka Stefanía. Hún heldur einnig upp á afmælisgjöf sem dóttir hennar gaf henni.
Stefanía Adolfsdóttir búningahönnuður með tvo hluti sem standa hjarta hennar nærri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÍTIL ÍBÚÐ getur virðst stærri en hún raunverulega er máli
maður alla veggina í einum og sama litnum. Þá virkar hún
fremur eins og ein heild heldur en mörg lítil herbergi.
Meirapróf
Upplýsingar og innritun
í síma 5670300
NÆSTA NÁMSKEIÐ BYRJAR 03. APRÍL 2009
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Langar þig að breyta
mataræðinu til batnaðar?
Inga Kristjánsdóttir, næringarþerapisti D.E.T.
leiðir ykkur í allan sannleikann um hversu auðvelt
það er í raun að breyta mataræðinu til batnaðar.
Þriðjudaginn 31. mars í Heilsuhúsinu
Lágmúla kl. 20-22
Þriðjudaginn 21. apríl í Heilsuhúsinu
Lágmúla kl. 20-22
Verð kr. 3.500.- Upplýsingar og skráning í s 899-5020 eða á eig@heima.is
Hvað á ég að gefa litla
barninu mínu að borða?
Ebba Guðný kennir hvernig má búa til hollan og
góðan mat fyrir börn frá 6 mánaða aldri.
Miðvikudaginn 8.apríl eða fimmtudaginn
16. apríl í Heilsuhúsinu Lágmúla kl: 20-22.
Verð kr. 3500 kr. Upplýsingar og skráning í síma
694 6386 og ebbagudny@internet.is
Námskeið um ræktun matjurta og
kryddjurta til heimilisnota
Heiður Björnsdóttir kennir hvernig rækta á
grænmeti og kryddjurtir sér til gagns og ánægju.
Miðvikudaginn 15. apríl eða 22. apríl
í Heilsuhúsinu Lágmúla kl: 20-22
Verð kr.3.500.- Námskeiðið er opið öllum en
áhugasamir skrái sig á lagmuli@heilsuhusid.is
eða í síma 578 0300 milli kl:10-18 alla virka daga.
Sjá nánari upplýsingar um námskeiðin á
heimasíðu Heilsuhússins www.heilsuhusid.is