Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2006, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.2006, Side 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 4. mars 2006 F réttir af fölsuðum niðurstöðum rannsókna suðurkóreska vís- indamannsins Hwang Woo-suk hafa verið áberandi í fjöl- miðlum, en hann var fyrir skemmstu í fremstu röð þeirra vísindamanna sem starfa á sviði líftækni og gaf glæstar yfirlýsingar um hraðar framfarir sínar á sviði stofnfrumurannsókna, sem síðan gáfu góðar vonir um lækningamöguleika ýmsa. Þegar aðrir vísindamenn höfðu yfirfarið rannsóknir Hwang Woo-suk stóð ekki steinn yfir steini í þessum yfirlýsingum; eina fullyrð- ingin sem hægt var að staðfesta var að suð- urkóreski vísindamað- urinn hefði í raun og veru klónað hund. Þegar ég las þessar fréttir skaut stöðugt upp í huga mínum skáld- verkum ýmiskonar, kvikmyndum, myndasög- um, smásögum og skáldsögum, sem segja frá vísindamönnum sem ætla sér um of og falsa niðurstöður, alltaf með skelfilegum afleið- ingum. Frankenstein er auðvitað þekktasta dæmið um vísindamanninn sem ætlar sér um of, en af öðrum má nefna ungu vísindakonuna Dr. Susan McCallister í Deep Blue Sea (1999) sem ætlaði sér að finna lækningu á Alzheimer- sjúkdómnum með því að rannsaka heila há- karla. Rannsóknin gekk of hægt fyrir fjárfesta og því ákvað hún að falsa niðurstöður sínar og erfðabætti stórfiskinn með erfðaefni manna með þeim afleiðingum að þeir urðu ofurgáfaðir og réðust til atlögu við rannsóknarstofuna, sem var staðsett í yfirgefnum olíuborpalli úti á rúmsjó, með katastrófískum afleiðingum. Önnur kona, Dr. Tiptree í kvikmyndinni Carnosaur (1993), lýgur líka að fjárfestum sín- um, en rannsóknin heppnast reyndar – frá hennar bæjardyrum séð. Markmið Dr. Tiptree var nefnilega að láta risaeðlur ríkja yfir jörð- inni á ný, svona í eins konar náttúruvernd- arskyni, og því klónaði hún steingert erfðaefni risaeðla og blandaði mennskum genum með þeim afleiðingum að risaeðlurnar urðu ofur- gáfaðar og drápu allt lifandi. (Það er merkilegt hvað vísindaskáldskapur setur ósjálfrátt samasemmerki milli (mennskra) gáfna og of- beldis.) Og Dr. Tiptree á sér fyrirmynd og ‘mentor’, Dr. Moreau í skáldsögu Herberts Georges Wells, The Island of Dr. Moreau, eða Eyja Dr. Moreau, frá árinu 1896. Moreau er nefnilega upptekinn af því að gera manneskjur úr dýr- um, ekki bara sér til skemmtunar, heldur er hann að „rannsaka möguleikann á því að móta lifandi líkama“ (72). Sem er auðvitað það sem líftæknivísindamenn á borð við Hwang Woo-suk eru líka að kanna, hversu mótanlegur mannslíkaminn sé og hvort hægt sé að um- forma hann án sjúkdóma. Spámaðurinn H.G. Wells fæddist í Englandi árið 1866. Þrátt fyrir að vera af frekar fátæku fólki kominn, og því ekki menntaður sem skyldi, tókst honum að ná sér í styrk til að stunda nám í raunvís- indum. En hugur hans stóð til skrifta og árið 1895 sló hann í gegn með skáldsögunni The Time Machine (Tímavélin) og gat eftir það helgað sig skriftum að mestu leyti. Hans þekktustu verk eru sögur eins og The In- visible Man eða Ósýnilegi maðurinn (1987), The War of the Worlds eða Innrásin frá Mars (1898) og The First Men on the Moon eða Fyrstu mennirnir sem fóru til Tunglsins (1901). Þrátt fyrir að hafa helgað sig vísinda- og framtíðarskáldskap var Wells virtur höf- undur og bækur hans nutu vinsælda sem fag- urbókmenntir, auk þess að vera álitnar eins- konar forspár um framtíðina. Sjálfur var Wells framan af mikill bjartsýnismaður á framþróun í krafti vísinda, en síðar á ævinni tapaði hann þeirri trú, sérstaklega eftir að hafa horft upp á hörmungar heimsstyrjaldarinnar fyrri, ekki skánaði ástandið svo eftir þá síðari en um hana mun hann hafa sagt að þar hefði raunveruleik- anum tekist að skapa mun verri heim en hann hefði nokkurn tíma getað ímyndað sér í sínum myrkustu fantasíum. Wells er iðulega nefndur faðir vísindaskáldskapar (líkt og reyndar hinn franski Jules Verne og Mary Shelley, höfund- ur Frankenstein), skáldsögur hans hafa notið mikilla vinsælda og verið kvikmyndaðar í bak og fyrir. Á þann undarlega hátt sem nútíma- samfélagi er svo lagið hafa kvikmyndanirnar ekki endilega orðið til að vekja áhuga á skrif- um Wells, ef þau á annað borð gleymast ekki er tilhneigingin sú að líta á þau sem fremur einfeldningslegar sögur, þægilega uppsprettu hugmynda frá hinum naíva tíma fyrstu vís- indaskáldsagnanna. Í umfjöllunum um hina skelfilega vondu kvikmynd Stevens Spiel- bergs, War of the Worlds (2005), með Tom Cruise í aðalhlutverki, sá ég aðeins einn gagn- rýnanda fjalla um samnefnda bók Wells sem vitræna skáldsögu með tilheyrandi þjóðfélags- gagnrýni á heimsvaldastefnu vesturveldanna. Sagan og sársaukinn Eyja Dr. Moreau er stutt skáldsaga eða eins konar nóvella. Sögumaður er Edward Prendick, skipsfarþegi sem lendir í þeim hremmingum að skipið ferst og hann rekur um hafið á vistalausum björgunarbát með tveimur mönnum, sjómanni og samfarþega. Eftir nokkurra daga hungur kemur upp hugmyndin um mannát – sem er aldrei nefnt í sögunni, bara gefið í skyn. Það er hinn farþeginn sem stingur upp á þessari lausn en þegar sjómað- urinn dregur stutta stráið neitar hann að fórna sér og eftir nokkur átök við farþegann detta þeir báðir útbyrðis og Prendick verður einn eftir í bátnum. Hér er strax gefinn tónninn fyrir söguna sem fjallar einmitt um mennsku, og þá sérstaklega mörk mennsku og dýra. Einnig er eftirtektarvert að sjá að Wells lætur hinn menntaða farþega stinga upp á hinu ósegjanlega, en ekki sjómannsrustann. En Wells var, eins og áður hefur komið fram, á sinn hátt nokkuð róttækur þjóðfélagsrýnir. Prendick er bjargað um borð í farmskip og hittir þar Montgomery, sem er læknismennt- aður og hlúir að honum. Með Montgomery eru nokkrir fremur sérstæðir blökkumenn, auk ýmissa dýra í búrum, þar á meðal er púma. Það verður fljótlega ljóst að skipsáhöfninni er illa við farþega sína og farminn og svo fer að lokum að þegar Montgomery, félögum hans og farmi er skilað til eyjarinnar nafnlausu er Prendick einnig hent fyrir borð. Montgomery er ekki ánægður með þá niðurstöðu en við þessu er ekkert að gera svo hann býður Prendick húsaskjól og kynnir hann fyrir aðalmanninum, Dr. Moreau. Fljót- lega kemur í ljós að á eynni eru ýmis leyndar- mál, en fyrst í stað er Prendick hvað mest undrandi yfir íbúum eyjarinnar sem eru hver öðrum sérstæðari. Þeir virðast af ólíkum kyn- þáttum og eru fremur þöglir, auk þess að virka bæði bæklaðir og afmyndaðir á einhvern hátt, ef ekki beinlínis dýrslegir. Það rifjast upp fyrir Prendick að hann þekkir nafn Moreau, en hann hafði verið þekktur metnaðargjarn lækn- ir sem var ásakaður fyrir að stunda kvikskurði á dýrum og varð að flýja land. Og svo byrjar Prendick að heyra púmuna öskra. Honum líkar það illa en þó enn verr þegar hann getur ekki betur heyrt en að öskr- in komi úr mannsbarka; hann brýst inn á rannsóknarstofu Moreau og finnur þar sjálfan lækninn, blóðugan upp yfir haus, og púmuna, kvikskorna, vafða sárabindum, umformaða yfir í eitthvað annað. Prendick flýr inn í skóg- inn og hittir þar fyrir undarlegt samfélag íbúa eyjarinnar sem virðist stjórnað af einskonar apa-manni (þó ekki Tarzan), sá er lögmaður að hætti hinna fornu lögmanna Íslendinga: hann fer með lögin yfir hinum íbúunum til að minna þá á að halda þau. Lögin ganga út á að ekki má borða kjöt, ekki ganga á fjórum fótum, ekki klifra í tré, ekki róta í jörðinni – í stuttu máli er öll dýrsleg hegðun bönnuð. Lagaþulan endar svo á ákalli til ‘hans’: „Hans er Hús sársauk- ans. Hans er Höndin sem skapar. Hans er Höndin sem særir. Hans er Höndin sem læknar.“ (59) Prendick líst ekki á félagsskapinn og flýr og eftir nokkrar hremmingar er hann aftur kom- inn í öruggt skjól þeirra Moreau og Montgom- ery og fær loks skýringar á því sem fram hefur farið: rannsókn á mótun lifandi líkama. Vís- indamaðurinn þylur upp þær margvíslegu að- ferðir sem reyndar hafa verið á líkömum, allt frá læknisfræðilegum aðgerðum og tilraunum til hundaræktunar, til þess athæfis sirk- usstjóra að skapa ‘frík’ til sýningar í ferðaleik- húsum sínum. Moreau lýsir því svo að lokum yfir að það sé hægt að gerbreyta líkamanum, ekki bara útliti hans heldur og einnig efna- starfsemi – og það er þar sem líftækni- tengingin kemur inn í myndina. Sársauki er lykilatriði í rannsóknum Moreau, en hann álítur að sársauki sé nauð- synlegur til að viðhalda mennskunni. Og þetta viðhald mennskunnar, það er einmitt það sem er málið, því þrátt fyrir góðan vilja Moreau hörfar mennskan smátt og smátt úr dýr-mennum hans, þau gera uppreisn og drepa hann og Montgomery, Prendick sleppur lifandi og býr lengi vel einn á eyjunni með mann-skepnunum og fær því kjörið tækifæri til að fylgjast með hvernig þær hverfa aftur til síns dýrslega upphafs. Þegar björgunarbát rekur að eyjunni fær Prendick loks tækifæri til að flýja, honum er bjargað um borð í skip og álitinn geðsjúkur þegar hann segir sögu sína. Hann lærir fljótt að þegja um ævintýri sín, en á hins vegar öllu erfiðara með að læra að venj- ast mannfólki á ný: „Ég gat ekki sannfært sjálfan mig um að þeir karlar og konur sem ég mætti væru ekki eins konar dýrmenni, sem þrátt fyrir að líta út eins og mannskjur væru í raun umformaðar skepnur sem bæru yfir- bragð mennsku, og að þau myndu fljótlega byrja að breytast og sýna í fyrstu eitt dýrslegt einkenni og síðan annað.“ (136) Prendick hefur tapað traustinu á hið mennska form, og það sem meira er, hann efast um sjálfan sig líka. Nýjasta tækni og vísindi Ég vísaði hér í upphafi til vangaveltna um stöðu vísinda í dag, en það er óneitanlega at- hyglisvert að eina sannanlega verk hins suð- urkóreska Moreau skuli hafa verið að klóna hund. En saga Wells var auðvitað skrifuð á nítjándu öldinni, þegar þróunarkenningin var að kollvarpa hugmyndum vestrænna manna um sjálfa sig. Það er ‘engin tilviljun’ að fyrsta tilraunadýr Moreau hafi verið api. Nútíma- líftækni-rannsóknir hljóta að knýja okkur til vangaveltna um stöðu mennskunnar. Hver er þessi mennska og hvaða hlutverki gegnir hún fyrir mannkynið? Hvernig skilgreinum við hana, það er, hvar liggja mörkin á milli mennsku og ómennsku, á hvaða stigi aðgerða á líkömum okkar hættum við að vera mennsk? Er manneskja sem knúin er áfram með gang- ráði enn mennsk, þegar það er svo ljóslega vél- búnaður sem tryggir líf hennar og tilveru? Álíka spurningar blöstu við samtímamönn- um Wells í kjölfar skrifa Darwins. En þá var vandamálið ekki vél- eða erfðatækni, heldur spurningin um dýrið, skepnuna sem skyndi- lega var orðin óþarflega nálæg manninum. Á þeim tíma stefndum við ekki í átt til þeirrar of- urmennsku sem Hwang Woo-suk lofaði – og sveik – heldur aftur á bak til hins frumstæða; ef við erum komin af dýrum, berum við þá ekki skepnuna með okkur? Þessar vangaveltur koma greinilega fram í Eyju Dr. Moreau, þótt þær séu ekki færðar beint í orð fyrr en undir lokin þegar Prendick uppgötvar varanleg áhrif samvistanna við mann-skepnurnar á sálarlíf sitt og hæfileika til að umgangast fólk. Eins og áður er komið að slær inngangurinn um björgunarbátinn strax tóninn: hið ónefnan- lega mannát vekur strax spurningar um mörk manna og skepna. Og þótt Prendick átti sig ekki á sannleika málsins, þá lýsir hann verum Moreau hvað eftir annað sem ómennskum og getur ómögulega annað en haft ógeð á þeim. Sömuleiðis kallar hann Montgomery skepnu, en Montgomery, sem hefur mikla samúð með dýr-mennunum, drekkur mikið til að friða samviskuna. Prendick hins vegar getur ómögulega haft samúð með þessum verum og því kallar Montgomery hann líka skepnu. Mesta skepnan er síðan auðvitað hinn kald- ranalegi og rökhugsandi vísindamaður, Dr. Moreau, sem með sínum skepnuskap gengur allhart á viðurkennd mörk mennskunnar. Samt er málið ekki svo einfalt í þessari margþættu og þétt unnu sögu Wells, því í bland við fyrirlitningu Prendicks á siðgæði Moreau er hann líka næsta fullur aðdáunar á honum og afrekum hans; þegar hann rifjar upp útlegð vísindamannsins getur hann ekki annað en hugsað með sér að þar hafi vísinda- samfélagið brugðist miklum og frumlegum hugsuði. Það eru því stöðug átök innan sög- unnar milli kristins siðgæðis (Wells var mjög kristinn) og þeirrar aðdáunar á vísindum og vísindamönnum sem ríkti í vestrænum sam- félögum á nítjándu öld, í kjölfar mikilla vís- indauppgötvana sem ollu því að raunvísindi styrktu stöðu sína mjög. En samhliða því að fylgja þessu viðhorfi að nokkru leyti er Wells greinilega einnig gagnrýninn á þá upphefð og göfgun vísindamannsins sem þarna kemur fram; senan þar sem mann-skepnurnar kyrja ákall sitt til ‘Hans’ er greinilega ádeila á þá hugmynd að vísindamaðurinn sé orðinn hinn nýi guð, hafinn yfir kristilegt siðgæði. Þessi togstreita innan sögunnar kemur þó ekki í veg fyrir að Eyja Dr. Moreau sé heil- steypt og þaulhugsað verk, því niðurstaðan er jú sú að þótt Prendick sé ómögulegt að öðlast samúð með ósköpnuðum Moreaus, þá er hon- um jafnómögulegt að treysta mannkyninu framar. Prendick er gerður að hinum dæmi- gerða óvirka menntamanni, hann er áhorfand- inn, utanaðkomandi og utanveltu, honum er ómögulegt að taka skýra afstöðu heldur verð- ur leiksoppur atburða sem hann hefur enga stjórn á. Sem slíkur er hann lítt jákvæð sögu- hetja í sögu Wells og lesandi hefur takmark- aða samúð með honum þar sem hann situr einn í húsi sínu langt utan þjóðvega, um- kringdur bókum sem hann sér sem sönnunar- gögn um hina mennsku sál og reynir þannig örvæntingarfullt að halda í trúna um göfgun mannsins. Kvikskurðir og mann-skepnur ReutersHwang Woo-suk „Moreau er nefnilega upptekinn af því að gera manneskjur úr dýrum, ekki bara sér til skemmtunar, heldur er hann að „rann- saka möguleikann á því að móta lifandi líkama“ (72). Sem er auðvitað það sem líftæknivísinda- menn á borð við Hwang Woo-suk eru líka að kanna, hversu mótanlegur mannslíkaminn sé og hvort hægt sé að umforma hann án sjúkdóma.“ Eyja Dr. Moreau eftir H.G. Wells kom út árið 1896 en hefur áhugaverðar tengingar við samtímann, einkum líftæknina sem hefur á 110 árum þróast svo hratt að skáldskapur Wells er ekki fjarri raunveruleikanum nú. Eftir Úlfhildi Dagsdóttur varulfur@centrum.is Höfundur er bókmenntafræðingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.