Lesbók Morgunblaðsins - 25.03.2006, Side 1
Laugardagur 25.3. | 2006
[ ]Ruben Gallego| Hann ólst upp á barnaheimili þar sem honum var ætlað að deyja | 6Hallmundarkviða | Hið dróttkvæða ljóð lýsir eldgosinu er Hallmundarhraun rann | 8Einar Pálsson | Hljóðbók með fyrirlestrum hans kemur út í dag | 16
Lesbók Morgunblaðsins
Þ
ú stökkst eiginlega fram á völlinn albú-
inn og hefur frá því haustið 2001 gefið
út eitt smásagnasafn, skrifað 5 leikrit
og eina skáldsögu. Fyrr í vetur var
leikrit þitt Brim tilnefnt af Íslands
hálfu til Leikskáldaverðlauna Norð-
urlanda. Fyrir Brim hlaustu Grímuna
sem leikskáld ársins árið 2004 og í
fyrrahaust var sýning Vesturports valin besta sýningin á
stórri leiklistarhátíð í Moskvu. Þú hefur sannarlega vakið
athygli og verið af kastamikill. Samt spyr fólk enn: Hver
er Jón Atli Jónasson?
„Er þetta fyrsta spurningin?“
Já, hver er maðurinn?
„Stundum þegar ég les eitthvað um sjálfan mig í blöð-
unum þá er eins og ég eigi að vera eitthvert óskabarn eða
svona upprennandi eftirlætissonur þjóð-
arinnar í listum. Það er hlutverk sem ein-
hver annar verður að taka að sér. Það
sem ég get sagt þér er að ég er bogmaður
og ef mér leiðist þá fer ég.“
Og eitthvað meira?
„Þegar fór að hilla undir þrítugsaldurinn fór mig að
langa til að skrifa. Þetta var ekki eitthvað sem ég hafði
meðvitað stefnt að. Ég var orðinn 28 ára þegar hugsaði
alvarlega út í það að skrifa. Áður hafði ég fengist við ým-
islegt, verið á sjó og stundað störf hér og þar.“
Hvað með nám?
„Ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð og fór til
Kaupmannahafnar að læra og lærði ýmislegt, listasögu
o.fl. en fann ekki alveg mína hillu. Það var svo fyrir hálf-
gerða slysni að ég fékk útgáfusamning hjá Eddu og
Kristján B. Jónasson útgáfustjóri tók dálítinn sjens þegar
hann ákvað að gefa út smásagnasafnið mitt eftir að ég
hafði látið hann hafa eina blaðsíðu til að lesa.“
Spennandi vinnustaður
Og þar rúllaði boltinn af stað.
„Já, en ég fann mig ekkert sérstaklega vel í hópi rit-
höfunda þó að ég væri búinn að gefa út bók með smásög-
um. Þetta var ekki minn vettvangur einhvern veginn en
um svipað leyti var efnt til leikritasamkeppni í Borg-
arleikhúsinu og ég sendi inn verk sem var svo valið til
uppsetningar. Þar fann ég spennandi vinnustað sem er
leikhúsið.“
Þetta var Draugalest, eitt af þremur leikritum sem sett
voru upp á Nýja sviðinu, hin tvö voru Sekt er kennd eftir
Þorvald Þorsteinsson og Belgíska Kongó eftir Braga
Ólafsson. Hafðirðu velt því fyrir þér að skrifa fyrir leik-
hús áður en að þessu kom? „Ég hafði kynnst leikritum í
gegn um að lesa verk Samuels Becketts og Pinters í kjöl-
farið og fannst það spennandi. Leiktexti er öðruvísi en
bókmenntatexti og mér fannst ég sjá möguleikana í leik-
húsinu eftir að lesa Beckett. Mig langaði að spreyta mig
á þessu. Mér fannst þetta mjög skemmtileg reynsla, Stef-
án Jónsson leikstýrði og við fengum Einar Örn og Curver
Thoroddsen, eins og Bibbi heitir núna, til að gera tónlist
og höfðum hana á allan tímann. Þetta var ekki sýning
sem áhorfendum fannst beinlínis skemmtileg og einhvern
veginn hitti ég þarna strax á afstöðu gagnvart leikhúsinu
og áhorfendum sem er mér mjög mikilvæg. Í stað þess að
skemmta áhorfandanum – sem er eiginlega hin íslenska
leikhúshefð, ef hún er á annað borð til – þá vildi ég draga
áhorfandann inn í debatt, umræðu um efnið. Skora hann
á hólm. Sýningin fór heldur misjafnlega ofan í fólk. En ég
kynntist Stebba og það var ómetanlegt.“
Fyrir þá sem hafa nasasjón af AA-samtökunum er al-
veg ljóst að höfundurinn er kunnugur því sem þar fer
fram.
„Já, ég gjörþekki AA-samtökin og boðskap þeirra. Og
það sem mér þótti áhugavert við að setja upp leikrit sem
AA fund er að þar hittist fólk sem er að kljást við
lífshættulegan sjúkdóm og er að reyna að tala sig
Spottarnir í fuglinum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Jón Atli Jónasson hefur á undanförnum árum haslað sér
völl sem eitt af okkar fremstu leikskáldum. Frá því hann
sendi frá sér smásagnasafn haustið 2001 hefur hann skrif-
að fimm leikrit, átt hlut í tveimur kvikmyndahandritum
og framundan er frumsýning á nýju leikriti.
Eftir Hávar
Sigurjónsson
havar@mbl.is
4