Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.2006, Side 11
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 20. maí 2006 | 11
Ísamantekt í blaðinu fyrir stuttu kom framað árlega berast hingað til lands um 40.900pakkar frá Amazon og sú ályktun dregin aðí þeim pökkum væru um 100.000 erlendar
bækur. Vera má að í einhverjum hluta þessara
pakka séu plötur, nú eða raftæki, fatnaður, hljóð-
færi, snyrtivörur eða eitthvað enn annað af þeim
33 vöruflokkum sem Amazon selur. Líklegt þó að
obbinn hafi verið bækur.
Í greininni var bókabúðin mærð,
svona rétt eins og menn syrgðu
mjólkurbúðir þegar þær lögðust af,
eða fiskbúðir, enda algengt að menn
villist á formi og inntaki. (Gott dæmi
um það er Dagur pappírsins sem haldinn er hátíð-
legur ár hvert. Reyndar kallaður „Dagur bókar-
innar“, en það er önnur saga.)
Bókabúðir eru gagnlegar, þarfaþing jafnvel, en
engin ástæða til þess að hafa þær innpakkaðar í
steypu eða gler. Vissulega er gott að geta gengið
inn í bókabúð, sest niður og fengið sér kaffi eins
og í góðum slíkum verslunum í útlöndum og í
þeirri ágætu bókabúð Máls og menningar á
Laugaveginum. Sú bókabúð er þó ekkert betri
(eða verri) en hver önnur bókabúð á netinu hvort
sem maður er að kaupa innbundinn áprentaðan
pappír eða runu af rafboðum. Hví skyldum við
syrgja steinsteypubókabúðir eða pappírsbækur?
Bókabúðir eru eins ólíkar og þær eru margar.
Það fer til að mynda ekki á milli mála þegar rölt
er um Tottenham Court Road í Lundúnum að
búðirnar þar eru ótrúlega ólíkar, Blackwells,
hentar og sækja sér fróðleik og ráðleggingar til
jafningja sinna, til þeirra sem skrifa um bækur
sem þeir hafa lesið án þess að vera með háskóla-
próf í bóklestri. Fróðleikur sá og ráðgjöf sem fæst
í bókabúðum er ekkert endilega betri eða sannari
en það sem sækja má á Amazon. Hvað segja tug-
þúsundir íslenskra viðskiptavina Amazon annars
um það?
Við sem lesum, víst færri og færri en lesum
meira og meira, kaupum bækur í bókabúðum, en
ekki bara steinsteyptum bókabúðum. Við kaupum
bækur á pappír og bækur á skjá. Allir þeir sem
lesa reglulega lenda fyrr eða síðar í því að bókin
sem þá langaði að lesa er ekki til í bókabúðinni
(uppseld eða aldrei fengist) og þá leita þeir til
Amazon. Eða Abebooks. Eða Powells. Eða Black-
wells. Eða jafnvel á eBay, heimsins stærsta bóka-
markað. Hví skyldum við syrgja bókabúðina sér-
staklega? Bókabúðir munu lifa áfram og ekki
ástæða til að ætla annað en þær bókabúðir sem
stýrt er af festu og sveigjanleika muni vaxa og
dafna. Skyndilega höfum við frelsið til að kaupa
bækur hvar sem er hvenær sem er. Tökum því
fegins hendi, nema hvað.
Foyles, Waterstones og Borders. Í götunni er líka
grúi af fornbókaverslunum og ýmsum sérversl-
unum með bækur. Samt sem áður finnur maður
ekki allt – hvar er ljóðasafnið hans Seferis? (Fann
það á Amazon, ekki á Tottenham Court Road
þrátt fyrir mikla leit.) Hvar er Casablancabréfið
hans Tabucchis? (Fann það á Abebooks, ekki á
Tottenham Court Road þrátt fyrir mikla leit.
Kostaði líka bara 100 kall.)
Álíka þróun hefur gengið yfir áður og menn
kveinkað sér, en þá var það menningarelíta að
barma sér yfir útgáfu á ódýrum bókum, kiljum,
sem voru seldar í sjoppum, matvörubúðum, lyfja-
verslunum eða þá í pósti – bókaklúbbar. Áður
tengdust bækur æðri listum, voru viðfang manna
sem voru með pappír upp á að þeir væru mennt-
aðir (Menntaðir) og vísir, sátu á kaffihúsum og
ræddu spekingslega um listir og menningu. Kilj-
an frelsaði bókina, gerði hana að almenningseign,
gerði milljónum kleift að lesa. Aðallega fyrir það
þó að hún komst í sjálfsala, kjörbúðir, stórmark-
aði, bensínstöðvar. Eiginlega út um allt.
Bókabúðir verða áfram til en fólk kýs frelsið,
kýs að kaupa bækur þegar því hentar þar sem því
Hví skyldum við syrgja bókabúðir?
’Við sem lesum, víst færri og færri en lesum meira ogmeira, kaupum bækur í bókabúðum, en ekki bara stein-
steyptum bókabúðum.‘
Erindi
Eftir Árna
Matthíasson
arnim.blog.is
En sú þögn.
En sú dauðaþögn.
Þetta getur ekki verið
heilbrigð þögn.
Þannig hljóðar síðasti textinn í nýrri bók Braga
Ólafssonar, sem kom út 12. maí síðastliðinn. Titill
bókarinnar er Fjórar línur og titill sem skírskotar
til forms textanna sem er titill og fjórar línur, sem
sé mjög knappt og iðulega njörvað niður af svo
naumu efni að það nálgast þögnina. Það þýðir samt
ekki að textarnir segi okkur
eitthvað minna en aðrir textar,
en þeir gera það kannski með
öðrum hætti en flestir textar og þá helst með því
að skapa mikið rými fyrir lesandann á milli lín-
anna, en stundum eru þetta svo blátt áfram at-
hugasemdir um hversdagsleikann að lesandinn
getur ekki annað en hváð eins og þegar hann heyr-
ir út undan sér tilkynningalestur í útvarpinu og
finnst hann hafa misst af einhverju mikilvægu og
spyr: Hvað var hann að segja? En það kemur aldr-
ei neitt svar.
Fuglinn sem hefur sig á loft
af gráum kúpli götulampans
vekur athygli hinna einkennisklæddu
í ræstum bílnum við Einarsnesið.
Titill þessa texta er Morgunvakt í Skerjafirði.
Titill textans, sem vitnað var í fremst í greininni, er
Einn um nótt sem setur dramatík hans í húmorískt
samhengi. Titill og texti vinna þannig oft saman að
því að setja eitthvert atvik í óvænt samhengi:
Endurreisn helvítis
eftir Leo Tolstoj.
Verð: 25 aurar.
Útgefin á Akureyri nítján hundruð og fjögur.
Kostnaðarmaður og prentari Oddur Björnsson.
Ráð og ljóð
Sama dag og bók Braga kom út sendi Óskar Árni
Óskarsson frá sér bókina Ráð við hversdagslegum
uppákomum. Báðir eiga þessir höfundar tuttugu
ára útgáfuafmæli um þessar mundir – eða reyndar
í haust – og er það eins konar tilefni útgáfunnar.
En þó að þeir séu búnir að vera að gefa út bækur í
tuttugu ár og báðir lifað mörg önnur ár þá eru þeir
eins og kálfar að vori í þessum bókum.
Ráð við hversdagslegum uppákomum eftir Ósk-
ar Árna er konseptbók eins og bók Braga, snúið er
upp á húsráðahefðina og aðrar leiðbeiningavenjur
sem varðeittar eru í alls konar handbókum og víð-
ar. Hér eru því ekki aðeins að finna ráð til þeirra
stendur til 7. júní í samstarfi við Listahátíð í
Reykjavík.
Handhægar bækur
Bækurnar tvær eru gefnar út í 299 eintökum hvor
og þar af eru 99 tölusett og árituð af höfundum
hvorrar þeirra. Þetta eru litlar og handhægar
bækur, kannski eins og bækur þurfa að vera nú um
stundir, bækur til að hafa í vasanum og grípa til
þegar hversdagsleikinn verður yfirþyrmandi, þá
getur til að mynda komið sér vel að lesa Heilræði
handa fólki sem hefur lent illa í því:
Við sjáum fyrir okkur strönd, pálmatré og kókóshnetur á
víð og dreif í gullnum sandi, og sól yfir safírbláu hafi. En
það reynist blekking. Þetta er bara mynd á upplituðu
póstkorti sem hangir á ísskápnum. Ekki bugast því að í
grænmetisskúffunni eru fjórar kartöflur. Smjörklípa og
svolítið salt getur gert gæfumuninn. Og þó að búið sé að
loka fyrir rafmagnið er enn gas á prímusnum. Eðlilega
hringir enginn sími og líttu á það sem fríðindi. Þegar þeir
koma að sækja þig haltu þá fullri reisn og berðu þig í alla
staði eins og þú værir á leiðinni með blómavasa í brúð-
kaup til góðra vina.
sem halda heimili eða ala upp börn heldur einnig til
dæmis Heilræði handa fólki sem hefur lent illa í
því, Leiðbeiningar fyrir lágvaxna kennara, Drög
að leiðarvísi fyrir sveimhuga, Leiðarvísir fyrir fót-
stigin tunglför og Ráð til að velgja alþingis-
mönnum undir uggum, sem gæti reyndar tilheyrt
húsráðahefðinni:
Takið fram stóran pott. Hálffyllið hann af vatni. Bætið
lárviðarlaufi og fjórum bollum af salti útí. Afklæðið með-
alstóran alþingismann og leggið í vatnið. Setjið pottinn á
eldavélarhelluna, látið suðuna koma upp og sjóðið við
hægan hita fram eftir degi.
Textar Óskars Árna eru ekki jafn rígnegldir í
formið og hjá Braga en samt veltur allt á því að
textarnir séu meitlaðir, tálgaðir, nákvæmir eins og
góð leiðbeining þarf að vera, það má ekkert fara á
milli mála. Og það þarf heldur ekki að hafa neinar
efasemdir um þessa texta.
Eða ljóð. Við getum allt eins litið á þessar bækur
sem ljóðabækur enda koma þær út á opnunardegi
fjölljóðahátíðar Smekkleysu Orðið tónlist sem
Bragi Ólafsson og Óskar Árni Óskarsson sendu
frá sér bækur 12. maí síðastliðinn. Báðir eiga
þessir höfundar tuttugu ára útgáfuafmæli um
þessar mundir – eða reyndar í haust – og er það
eins konar tilefni útgáfunnar. En þó að þeir séu
búnir að vera að gefa út bækur í tuttugu ár og
báðir lifað mörg önnur ár þá eru þeir eins og
kálfar að vori í þessum bókum.
Morgunblaðið/Einar FalurÓskar Árni og Bragi Báðir eru þeir búsettir í Vesturbæ
Reykjavíkur og bækur þeirra fjalla reyndar báðar
nokkuð um Reykjavík.
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Konseptbækur fyrir
hvunndaginn
Nýjasta bók Marks Bowden,Guests of the Ayatollah, lítur
til baka til þess tíma er Bandaríkja-
menn áttu því ekki að venjast að
vera kenndir við ill öfl af ýmsum
andstæðingum í Mið-Austurlönd-
um. Þess tíma þegar
utanríkisstefna
Bandaríkjamanna í
Mið-Austurlöndum
var aðeins einn fjölmargra annarra
mögulegra framtíðarvandamála.
„Bandaríkjamenn nutu lengi þess
munaðar að vita
hvorki um né
hafa áhuga á
gremju smærri
erlendra ríkja,“
skrifar Bowden í
bók sinni og tek-
ur til umfjöllunar
gísladeiluna í Ír-
an sem hófst árið
1979 og stóð í 444
daga. Rekur
hann deiluna lið fyrir lið og byggir
skrif sín á ítarlegum rannsóknum
sem leiða að áhugaverðri niður-
stöðu.
Tvær fjölskyldur bíða spenntar áflugvellinum í Baltimore eftir
kóresku börnunum sem þær hafa
ættleitt og móttökurnar minna á
veglega afmælisveislu – blöðrur,
myndbandsvélar
og öll ættin á
staðnum. Þessi
nýjasta bók Anne
Tyler, Digging to
America, en
margir kannast
e.t.v. við höfund-
inn fyrir Accid-
ental Tourist
sem einnig var
kvikmynduð, er
að mati Daily Telegraph eins konar
svar við þeim óvinsældum sem
Bandaríkin virðast sæta á stjórn-
artíð George W. Bush Bandaríkja-
forseta. Segir gagnrýnandi blaðsins
Tyler hér virðast reyna að koma
samlöndum sínum til varnar – þeir
séu jú aðeins mannlegir eins og við
hin. Bókin fær engu að síður ágætis
dóma, hún einkennist af húmor og
hlýju og sýni að jafnvel þrjóskustu
karakterar séu færir um að breyt-
ast.
Nýjasta spennubók Lee Child,The Hard Way fær góða
dóma hjá gagnrýnanda New York
Times sem segir höfundinn ná að
fanga athygli lesandans frá byrjun
án þess að virð-
ast þurfa að
reyna nokkuð á
sig. Enn á ný er
það fyrrum her-
lögreglumaður-
inn Jack Reacher
sem fæst við mál-
ið og að þessu
sinni er hann
fenginn til að
leita uppi eigin-
konu skuggalegs karakters, sem
rænt hefur verið og krafist er
lausnargjalds fyrir.
Enginn kann að búa til neitt full-komlega frá grunni. Þetta er
ein uppáhaldssetninga þeirrar
skrýtnu stéttar sem hagfræðingar
eru, segir gagnrýnandi Daily Tele-
graph og dregur fram eina af
dæmisögum Tims Harfords í The
Undercover Economist. Sagan sú
fjallar um bolla af cappuccino-kaffi.
Enginn einn einstaklingur hefur
fulla kunnáttu á ferlinu eins og það
leggur sig – hvernig baunirnar eru
ræktaðar, brenndar, malaðar, kaffið
lagað, kýrin mjólkuð, vörunum
komið á markað, byggingarnar sem
þær eru seldar og unnar í reistar
eða vélarnar gerðar sem fram-
leiðslan fer fram í. En samt er þetta
eitthvað sem virkar svo einfalt og
flest okkar taka sem sjálfsagðan
hlut. Með sögum á borð við þessa
nær Harford að mati blaðsins að
fjalla um hagfræði á mjög svo að-
gengilegan og ófræðimannslegan
hátt og sýnir að hagfræðingar
hugsa raunverulega öðru vísi en við
hin – og þessi bók sé frábær kynn-
ing á því hvers vegna.
Mark Bowden
Anne Tyler
Lee Child
Erlendar
bækur