Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.2006, Síða 1
Laugardagur 29.7. | 2006 | 29. tölublað | 81. árgangur
[ ]Seamus Heaney | Ljóðið Höfn úr District and Circle og þýðing Karls J. Guðmundssonar | 3Umhverfismál | Illugi Gunnarsson er hægri grænn og svarar Guðna Elíssyni | 8Týnda geimfarið | Helvíti er bara orð, raunveruleikinn er miklu verri | 10
Lesbók Morgunblaðsins
„Suðar í takt við
sinn eigin takt“
Ljósmynd/Heimir Björgúlfsson
Heimir Björgúlfsson var í hópi útvalinna sem
boðið var á vinnustofusýningu Jasons Rhoa-
des í Los Angeles. Hér segir hann frá lista-
manninum sem er Íslendingum að góðu
kunnur frá sýningunni – sem Rhoades kallar
Black-Pussy Soiree Cabaret Macramé og
ræðir við hann um listina og Ísland – og ljós-
myndirnar eru frá þessum litríka kabarett.
M
yndlistarmaðurinn Jason
Rhoades fæddist árið
1965 í Newcastle í Kali-
forníu í Bandaríkjunum
og starfar í Los Angeles.
Hann hefur í rúman ára-
tug verið einn af framsæknustu myndlist-
armönnum Bandaríkjanna með gríðarstórum
innsetningum þar sem hann blandar saman
ólíkum efnum og efniviði sem taka alltaf á
einhvern hátt á amerísku neyslusamfélagi og
með stórum einkasýningum eins og til dæmis
í Deichtorhallen í Hamborg, Þýskalandi, Van
Abbe Museum í Eindhoven, Hollandi og á
Feneyjatvíæringnum hefur Jason Rhoades
áunnið sér jafnvel stærra nafn í Evrópu en
heimalandi sínu.
Árið 2004 sýndi Jason Rhoades hér á Ís-
landi í samvinnu við bandaríska myndlist-
armanninn Paul McCarthy, bæði í samsýn-
ingunni „Fantasy Island“ í
Hallormsstaðarskógi og innsetninguna
„Sheep Plug“ í Kling og Bang galleríi í
Reykjavík.
Undanfarna mánuði hefur Jason Rhoades
haldið allsérstaka myndlistarsýningu í sinni
eigin vinnustofu í Los Angeles sem hefur
verið umbreytt í sýningarrými. Sýningin er
nokkurs konar kabarett sem ber nafnið
„Black Pussy Soiree Cabaret Macramé“ og
er aðeins opin útvöldum boðsgestum á sér-
stökum kvöldsamkomum. Gestir eru valdir af
handahófi eftir ákveðinni pýramídareglu. Það
er að segja nokkuð breiðum hópi fólks er
raðað saman á hvert kvöld eins og til dæmis
úr tískuheiminum, kvikmyndaiðnaðinum og
ýmsu frægu fólki svo eitthvað sé nefnt. En
sérstaklega er passað upp á að aðeins örfáir
úr myndlistarheiminum séu á hverju ein-
stöku kvöldi. Umrædd sýning er lokahlutinn
af þríeyki sem samanstendur af sýningunum
„Meccatuna“ í David Zwirner Gallery í New
York árið 2003, „My Madinah“ í Sammlung
Hauser & Wirth í St.Gallen, Sviss árið 2004
og svo „Black Pussy“ sem var skipt í tvennt
milli Los Angeles og London. Þar sem fyrri
hlutinn af verkinu var sýndur í Hauser &
Wirth Gallery í London árið 2005.
Kokteilar úr leðurstígvéli
Þegar ég geng inn á sýninguna eitt kvöldið
lítur þar allt út eins og mig hafði grunað eft-
ir fyrri kynni af verkum Jason Rhoades,
hálfgerð sprenging af mismunandi aðkeypt-
um hlutum sem raðað er saman og útkoman
er yfirþyrmandi skrautleg.
Fyrst er gestum boðið í fordrykk í and-
dyrinu sem er kallað Johnny Cash Gallery
og nokkrir skúlptúrar standa þar á víð og
dreif. Barþjónn blandar „Black Pussy“-
kokteila eins og til dæmis kampavíni
saman við Guinness-bjór og ýmsar
Eftir Heimi Björgúlfsson | heimir@vacuumboys.com
4