Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.2006, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 29.07.2006, Qupperneq 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. júlí 2006 Guy Ritchie hefur samþykkt aðleikstýra nýrri kvikmynd. Myndin heitir Static og ku fjalla um glæpamann sem er ranglega stungið í steininn fyrir tilstuðlan siðspilltra laganna varða. Glæponinn sá er staðráðinn í að koma fram hefnd- um á óvild- armönnum sínum en þarf á leið sinni til réttlætis að kljást við fjöldann allan af spilltum lögreglumönnum og glæpahyski sem svífst einskis til að þagga niður í honum. Auk þess að leikstýra mun Ritchie endurskrifa handritið að myndinni, sem nýsjálenski leikstjórinn Brad McGann skrifaði árið 2001. Static verður fjórða glæponamynd Ritchies sem áður hefur leikstýrt Lock, Stock and Two Smoking Bar- rels, Snatch og Revolver. Það er ef til vill ekki að furða að Ritchie leiti aftur í smiðju glæp- onafrásagna, en rómantíska gamanmyndin Swept Away frá 2002 fékk hræðileg- ar viðtökur jafnt gagnrýnenda sem almennings. Static verður fyrsta mynd Richies síðan Revolver leit dagsins ljós en hún fjallaði einmitt einnig um glæpon í hefndarhug eftir að hafa verið kom- ið fyrir bak við lás og slá fyrir glæp sem hann framdi ekki.    Þrátt fyrir að hafa ekki staðið und-ir væntingum eru teikn á lofti um að Hulk muni snúa aftur á hvíta tjaldið. Þetta kemur fram í The Guardian. „Fólk vill sjá græna gæjann aftur,“ fullyrti framleið- andinn Ari Arad við blaðamann breska blaðsins. Aðstandendur framhaldsmynd- arinnar lofa breyttu yfirbragði frá fyrstu myndinni, sem óskars- verðlaunaleikstjórinn Ang Lee stóð á bak við. „Mér fannst myndin alveg frábær en hún náði ekki alveg að fanga anda hasarblaðanna,“ útskýrði Arad. „Við viljum gera mynd sem er meira í þeim anda.“ Framhaldsmyndin, sem mun heita Hinn ótrúlegi Hulk (e. The Incredible Hulk), verður í leikstjórn Lois Later- rier sem hefur m.a. leikstýrt Tran- sporter og Unleashed. „Myndirnar hans búa yfir húmor og dýpt ásamt frábærum hasar,“ er haft eftir Kevin Fiege, forseta Marvel Studios. „Þess- ir eiginleikar verða nýttir til hins ýtr- asta í Hulk.“ Ekki hefur verið tilkynnt hverjir fara með aðalhlutverkin í myndinni.    Þrátt fyrir að hinn nýi James Bondhafi ekki einu sinni fengið sér hristan Martini ennþá er nú þegar búið að úthluta honum nýju verkefni. Fram- leiðendur nýj- ustu mynd- arinnar um njósnara hennar hátignar sem frumsýnd verður í haust, Casion Royale, hafa til- kynnt að Daniel Craig muni fara með hlutverk hins kvensama njósnara í annarri James Bond-mynd sem ráð- gert er að verði frumsýnd í maí 2008. „Við gætum ekki verið spenntari fyrir þeirri stefnu sem Daniel Craig hefur tekið njósnarann í,“ sögðu framleiðendurnir Michael G. Wilson og Barbara Broccoli á fréttamanna- fundi á vegum Sony Pictures. „Daniel sótti í uppruna James Bonds og hefur gert hann margslunginn tilfinn- ingalega, dimmari og uppstökkari 007.“ Myndin sem stefnt er að 2008 verð- ur sú 22. í röðinni um ofurnjósnarann sem vill fá Martini-inn sinn hristan, ekki hrærðan. Vefútgáfa The Daily News sagði frá. Erlendar kvikmyndir Guy Ritchie Hulk Daniel Craig Örðugt er að merkja upphaf listastefnueða listforms og óhætt er að segja að ís-lensk kvikmyndagerð sé engin und-antekning þegar að vandasömum skil- greiningum og tímasetningum kemur. Sjálft hugtakið „íslensk kvikmynd“ kann jafnvel að reyn- ast vandmeðfarnara en maður skyldi í fyrstu ætla, ekki síst ef spurt er hvernig best sé að skilgreina það og fella að þjóðarhugtakinu án þess að umræð- an týni sér í flækjum og útúrdúrum. Nauðsynlegt er þó að spyrja þessarar spurningar þar sem engin menningarafurð verður til á jafnóljósum þjóðern- ismörkum og kvikmyndin. Þegar svara er leitað má ætla að fyrst þurfi að skilgreina þjóðar- og þjóð- ernishugtakið nánar en þar næst að skýra með hvaða aðferðum hinu þjóðlega skal blandað saman við kvikmyndahugtakið. Að lokum þarf svo að finna leið að niðurstöðu sem virðir og tekur tillit til þess flókna ferlis sem umlykur kvik- myndagerð. Ekki reynist, með öðrum orðum, mögulegt að forðast útúrdúra og flækjur. Stund- um er því reyndar svo farið, ímyndar maður sér, að um tiltölulega auðleyst verkefni er að ræða – hver deilir um þjóðerni Magnúsar? Dregur ein- hver í efa þjóðlegt mikilvægi hrafnsins fljúgandi? Sænskir peningar koma kannski við sögu í ákveðnum tilvikum en hvað tengir okkur nánar við lifandi kviku íslensks þjóðernis en víkingar, hval- reki og Helgi Skúlason með hjálm og boga? Þó er ráð að staldra við og spyrja frekari spurn- inga. Hvað er hægt að segja um þær nýlegu kvik- myndir sem við fyrstu sýn virðast bera harla lítinn þjóðarbrag, myndir sem skarta jafnvel erlendum leikurum í aðalhlutverkum, líkt og nýjasta mynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven? Pen- ingarnir, líkt og aðalleikararnir, koma úr öllum áttum en leikstjóri, tónlistarhöfundur og sumir aukaleikarar eru íslenskir. Á móti kemur að myndin á sér stað erlendis (enda þótt hið erlenda umhverfi sé í raun íslenskt) og tal er á ensku. Erf- itt er að festa hendur á veigamiklum íslenskum skírskotunum í framrás myndarinnar. Hvað gerir myndina þá íslenska? Það að Baltasar Kormákur, leikstjóri myndarinnar, er íslenskur? Ég er hædd- ur um að þau rök að leikstjóranum skuli eignuð kvikmyndaverk, líkt og um rithöfund eða mynd- listarmann sé að ræða, dugi skammt almennt séð og alls ekki þegar rætt er um þjóðlegan uppruna tiltekinna verka. Þá skyldi heldur ekki látið ótalið að frásagn- arformgerð myndarinnar fellur að bandarískri fyrirmynd og myndin á því að mörgu leyti lítið skylt við þá íslensku kvikmyndahefð sem fyrir stendur. Hvaða hefð er nú það, má reyndar spyrja. Einhver gæti verið fljótur til svars, jú, slík hefð miðast við íslenskan veruleika og myndir sem um hann fjalla. En ef þetta er hefðin, kvikmyndagerð sem gerir þjóðfélagsmál, söguna eða þjóð- armyndir, sum sé hinn íslenska veruleika, að við- fangsefni og skilgreinir sig þannig sem íslenska, þá má spyrja hvort frelsi sé til staðar til að gera kvikmyndir sem ekki sýna séríslenskum viðfangs- efnum áhuga en teljast samt til þjóðlegrar kvik- myndagerðar. Svarið er augljóst. Að sjálfsögðu. Hvað er hægt að segja um þau alvöruþrungnu verk sem Friðrik Þór Friðriksson hefur sent frá sér undanfarin ár, Fálka og Niceland, annað en að hér séu á ferðinni mikilvæg sýnidæmi um íslenska kvikmyndagerð, enda þótt þjóðarbragurinn sem við eigum að venjast í íslenskum myndum sé víðs fjarri? Kannski var það einmitt sú staðreynd að ekki er um hefðbundna íslenska kvikmyndagerð að ræða sem olli því að áðurnefndar myndir hlutu fálátar viðtökur hér á landi. Aðrir annmarkar á áð- urnefndri skilgreiningu blasa við. Hvað verður, innan ramma slíkrar skilgreiningar, um erlendar myndir sem taka íslenskan veruleika til umfjöll- unar? Enn frekari efasemdir hljóta reyndar að gera vart við sig. Hver er þessi „íslenski veruleiki“ sem íslenskar myndir eiga að gera skil og fjalla um; jafnvel varpa ljósi á? Er það landsbyggð- arsagan sem Nói albinói lýsir eða sá borgarlegi veruleiki sem er sagt frá í Óskabörnum þjóð- arinnar? Hvað með þann sérkennilega samslátt af hvorutveggja sem myndir á borð við Veggfóður og Nei er ekkert svar bjóða upp á? Staðreyndin er sú að maður kemst skammt ef sögufléttur og frá- sagnareinkenni eru notuð til að skorða og skil- greina þjóðernislegar rætur verka, hvort sem er á hvíta tjaldinu eða á prentaðri blaðsíðu. En eins og áður segir eiga flokkunarvandamál sér hvergi líf- legri tilvist en á sviði kvikmynda. Hvar byrjar maður? Í peningunum? Með starfsfólkinu? Hörfar maður í faðmlag frönsku höfundarkenning- arinnar? Leikstjóri tiltekinnar kvikmyndar er kannski rammíslenskur, hvað svo sem það nú þýð- ir, en peningarnir koma annars staðar frá. En á tímum Evrópusambandsins og hnattvæðingar þá koma þeir, þ.e. peningarnir, nær alltaf annars staðar frá. Hvað er íslensk kvikmynd? ’En hvað tengir okkur nánar við lifandi kviku íslensks þjóð-ernis en víkingar, hvalreki og Helgi Skúlason með hjálm og boga?‘ Sjónarhorn Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Þ að má ef til vill segja að akademí- an hafi verið fullfljót á sér að skipa Altman í þennan flokk eft- irlaunalistamanna, því aðeins þremur mánuðum síðar sendi leikstjórinn frá sér nýja kvikmynd sem hæglega má telja til hans bestu verka og sýnir svo ekki verður um villst að þessi merki kvikmyndagerðarmaður er enn upp á sitt besta, 81 árs að aldri. Þetta er tónlistarmyndin A Prairie Home Companion, sem kennd er við vinsælan samnefndan útvarpsþátt sem skipar sérstakan sess í bandarískri þjóðarsál. Þátt- urinn, sem stýrt hefur verið af útvarpsmann- inum, sagnamanninum og söng- fuglinum Garrison Keillor í rúmlega þrjátíu ár, er iðulega á dagskrá á almenningsútvarps- stöðvum á laugardagseftirmiðdögum, þegar margur Bandaríkjamaðurinn er að sýsla eitt- hvað með fjölskyldunni eftir vinnuvikuna. Hug- myndin á bakvið þáttinn er einstök og sama er að segja um stjórnanda hans sem býr yfir óvið- jafnanlegri sagna- og kímnigáfu og hefur rödd sem faðmar hlustandann og sefar. Þátturinn er ávallt tekinn upp á sviði fyrir fullum sal áhorf- enda og felur í sér blöndu af söng- og tónlistar- atriðum, bröndurum og spunakenndum kynn- ingum og innslögum Garrisons Keillors. Fast aðsetur þáttarins er gamalt leikhús kennt við F. Scott Fitzgerald í St. Paul í Minnesota, heima- fylki Garrisons Keillors, en hinn æðrulausi og kímni tónn þáttarins er sagður einkenni Mið- Vesturríkjabúa. Auk reglulegs flutnings í Fitz- gerald-leikúsinu flakkar Keillor með þáttinn og fastagesti hans um ólíka staði innan Bandaríkj- anna og stundum utan, en skemmst er að minn- ast þess er Keillor og föruneyti heimsóttu Ís- land í maí og tóku upp þátt í Þjóðleikhúsinu með íslenskum gestum og tónlistarmönnum. Útvarpsþáttur sem sögusvið Í kvikmyndinni A Prairie Home Companion sameina þeir Garrison Keillor og Robert Alt- man krafta sína og úr verður eitthvað alveg sérstakt – en fáir aðrir en Altman gætu fært útvarpsþátt yfir í kvikmyndalegt rými með svo áhugaverðum hætti. Þó svo að Garrison Keillor hafi skrifað handritið að kvikmyndinni einn var nálgunarleiðin mótuð í samvinnu Keillors og Altmans. Þannig mun Keillor í fyrstu hafa skrifað handrit að kvikmynd sem átti sér stað í smábænum Lake Wobegon, ímynduðum stað í Minnesota sem Keillor spinnur gjarnan sögur sínar út frá. Þegar Keillor lagði handritið fyrir Altman stakk leikstjórinn upp á því að þeir breyttu algerlega um stefnu og gerðu sjálfan útvarpsþáttinn að sögusviði. Keillor skrifaði þá nýtt handrit sem spannar lifandi flutning á A Prairie Home Companion-þætti frá upphafi til enda, og leiksviðið er að sjálfsögðu sviðið í Fitz- gerald-leikhúsinu með hljómsveit, sviðsmynd og öllu tilheyrandi. Þessi rammi er síðan stökk- pallur fyrir auðugt ímyndunarafl spunameist- arans Keillors, en í handritinu er búin til dramatísk saga í kringum þennan tiltekna þátt: Stórfyrirtæki hefur keypt útvarpsstöðina sem fjármagnað hefur þáttinn í 30 ár og hyggst leysa hann upp og rífa Fitzgerald-leikhúsið. Þátturinn sem áhorfendur fylgjast með er því sá síðasti sem fluttur verður áður en pen- ingamaðurinn sem fylgist með úr stúku skellir í lás. Ýmsar persónur koma við sögu í myndinni og eru margar þeirra byggðar á raunverulegum og uppspunnum fastagestum úr þáttunum. Einvala lið leikara fer með hlutverk skemmtikraftanna, en þeir skemmta og syngja í þættinum innan um tónlistarfólk sem komið hefur fram með Keillor í gegnum tíðina. Hér má m.a. telja Ke- vin Kline, Meryl Streep, Lily Tomlin, Woody Harrelson, John C. Reilly og Tommy Lee Jon- es, sem fara á kostum í hlutverkum sínum. Ke- vin Kline leikur hinn dularfulla einkaspæjara Guy Noir, en sá færir andrúmsloft bandarísku rökkurmyndarinnar inn í kvikmynd Altmans. Á meðan leikarar á borð við Kline, Harrelson og Reilly skila ískrandi skemmtilegum gamanleik (en þeir tveir síðarnefndu túlka kúrekana syngjandi Dusty og Lefty) lýsir Meryl Streep upp sviðið með englasöng og persónutöfrum í hlutverki söngdívunnar Yolanda Johnson. Og allir með tölu syngja eins og englar. Svanasöngur Prairie Home A Prairie Home Companion ber öll helstu einkenni Roberts Altmans sem kvikmyndahöf- undar, hún kallast í senn á við fyrri verk hans á borð við Nashville, MASH, The Player og Short Cuts og er áhugaverð viðbót við hans fyrri verk. Útvarpsþátturinn með sínum mörgu lit- ríku persónum er efniviður sem getur talist mjög í anda Altmans, en á sama tíma leitast leikstjórinn við að láta kvikmyndina enduróma og kallast á við það menningarfyrirbæri sem sjálfur þátturinn er. Þannig rímar hin fljótandi og skapandi kvikmyndataka, sem er aðalsmerki Altmans, við spunakennda byggingu útvarps- þáttar hins sagnaglaða Keillors. Leikstjórnin og þáttastjórnin vinna saman að því að galdra fram einstakt andrúmsloft á sviðinu sem er jafnframt svo lifandi að mörkin milli kvik- myndasalarins og áhorfendasalar Fitzgerald- leikhússins mást út. Sögusviðið er opið og fljót- andi rými, þar sem flakkað er frá dagskránni sem vindur fram á sviðinu til persónanna bak- sviðs sem bíða þess að stíga á svið eða hafa öðr- um skyldum að gegna. Samtöl og samtalsbútar koma og fara, fólk talar hvert ofan í annað eins og í lífinu frekar en í leikriti – sem er annað að- alsmerki kvikmynda Altmans. Þá þjónar hin dramatíska saga sem myndar umgjörð kvik- myndarinnar síður því hlutverki að búa til „plott“ eða spennuframvindu, en að gefa þessu tiltekna kvöldi með A Prairie Home Companion aukinn dramatískan þunga. Myndin fjallar um viðbrögð hinna margvíslegu listamanna og starfsmanna þáttarins við óumflýjanlegum endalokum þess sem þau eru öll hluti af, og sem verður líkt og „metafóra“ fyrir hverfulleika lífsins, og það tregafulla andartak er hið gam- algróna og skapandi lýtur í lægra haldi fyrir peningavaldi sem hvorki skeytir um hið sögu- lega né listræna. Þótt ólíklegt sé að kvikmyndin A Prairie Home Companion muni reynast svanasöngur hins aldraða meistara Altamans er ljóst að einhver blanda trega og yfirvofandi endaloka svífur þar yfir vötnum. Kvöldstund með Altman og Keillor Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is Robert Altman hlaut í marsmánuði síðastliðnum heiðursóskarsverðlaun Bandarísku kvikmynda- akademíunnar en þau verðlaun eru jafnan veitt framúrskarandi listamönnum á sviði kvikmynda sem ýmist eru komnir með annan fótinn (eða báða) í gröfina eða hafa lagt starfið nokkurn veginn á hilluna og tróna yfir fullbúnu æviverki saddir lífdaga. Reuters Bráðlifandi Robert Altman

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.