Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.2006, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.2006, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 5. ágúst 2006 | 15 HANDOFINN málarastrigi, texti úr Snorra- Eddu og fílaöskubakki eru meðal þess sem nú ber fyrir augu í Nýlistasafninu við Laugaveg (inngangur Grettisgötumegin) á sýningum þriggja íslenskra myndlistarmanna. Hér er í raun um þrjár einkasýningar að ræða sem sam- an mynda ýmis hugmyndatengsl. Hildur Bjarnadóttir, sem var nýlega tilnefnd til íslensku myndlistarverðlaunanna, sýnir sex verk sem hún hefur ofið úr hör undir yfirskrift- inni „Fletir“. Verkin eru mismunandi að stærð, áferð og lit og unnið er markvisst með mismun- andi grófleika hörþráðanna. Þau mynda und- irstöðu hefðbundins málverks – sem hörstrigi strekktur á blindramma – en eru í framsetn- ingu Hildar fullkláruð listaverk í sjálfum sér. Fagurfræðilega má skoða verkin á for- sendum naumhyggjunnar, svo sem smáatriði í vefnaðarmynstrinu, innbyrðis samspil verk- anna og rúmfræðilegt samspil. Við nánari at- hugun kemur í ljós margræð merking sem tengist ýmsum þáttum mannlegrar sköpunar og er liður í markvissri rannsókn listamannsins undanfarin ár. Sýning hennar nú er öflugt framlag til þeirr- ar samræðu sem hún hefur vakið milli ólíkra listmiðla og -hefða og við hið karllæga sjón- arhorn á listasöguna þar sem málverkið er sett í öndvegi en handverkshefðir kvenna taldar annars flokks. Auður Ólafsdóttir listfræðingur ræðir m.a. um þetta í umfjöllun í sýningarskrá Hildar. „Tilfæringar“ Bjarkar Guðnadóttur fela einnig í sér skírskotun í listasöguna og þá eink- um hina módernísku áherslu á liti, línu og form verka. Líkt og klæðskeri sníður hún samhverf form úr filtefnum sem eru í grunnlitunum. Formin og efnin, sem klippt hefur verið úr, ým- ist hanga á veggjum eða liggja á gólfinu í laus- bundinni „kompósisjón“ eða myndbyggingu sem minnir á klippimyndirnar sem móderníski risinn og listmálarinn Henri Matisse vann í lok ferils síns. Form Matisse eru lífræn og tengjast náttúrunni og mannslíkamanum, myndbygg- ingin markviss. Form Bjarkar eru hins vegar óræð þótt þau minni á mannslíkamann eða t.d. ávexti. Texti á einblöðungi segir frá tilurð fjötursins Gleipnis í Snorra-Eddu. Gleipnir, sem ætlað var að binda Fenrisúlf, var búinn til úr sex hlut- um sem ekki er auðvelt að nálgast nema með skáldlegum eða huglægum hætti. Björk virðist hér á svipuðum slóðum og Hildur í vangavelt- um um sköpunina og þau mörk sem henni eru sett, m.a. í skilgreiningum. Það er ef til vill hin listræna óreiða – sköpunarkrafturinn – and- spænis öguðum vinnubrögðum, sem Björk er hugleikin. Þá mætti ímynda sér að Gleipn- isþráðurinn hafi á táknrænan hátt fundið sér farveg í sex verkum Hildar, í hinu geómetríska skipulagi. Daníel Magnússon fer um víðan völl í verkum sínum, líkt og titill sýningarinnar gefur til kynna: „Ferð mín til Drogíó, Íkaríu og Frisland 1. hluti.“ Í ljósmyndaverkum af íslensku lands- lagi eru tölvuunnir textar sem fjalla m.a. um viðhorf þjóðarinnar til sjálfrar sín í tengslum við þá mynd sem aðrir hafa hugsanlega af henni. Myndbandsverkið Fundementum sýnir mann lesa upphátt latneskan texta og er íslensk þýðing á upphengdu blaði. Þar er m.a. fjallað um viðeigandi og réttan verknað. Lesarinn sit- ur í stofu þar sem sjást blúndur í glugga. Mynd- römmum af ýmsum skrautmunum á heimilinu í nærmynd er skotið inn með reglulegu millibili, svo sem af styttum í glugga eða á flísalögðu kaffiborði og af landslagsmálverki á vegg. Slík- ir hlutir eru algengir á heimilum fólks og teljast margir hverjir hreint „kits“ og leika á mörkum smekkleysunnar. Í nærmynd Daníels kitla þeir hláturtaugarnar en vekja um leið aðdáun: hug- myndafluginu virðast þar engin takmörk sett í undarlegri blöndu raunsæis og fantasíu. Þá eru slíkir munir hluti af ríkjandi hugmyndum um heimilið og tengjast sjálfsmynd fólks nánum böndum. Ætla mætti að Daníel fjalli hér um þau bönd sem komið er á óreiðuna – úlfinn – með röð og reglu hins borgaralega heimilis, á „viðeigandi og réttan hátt“. Morgunblaðið/Eggert Frá sýningunni í Nýlistasafninu. Henni lýkur nú um helgina. Anna Jóa MYNDLIST Nýlistasafnið Stendur til 6. ágúst. Björk Guðnadóttir, Daníel Magnússon og Hildur Bjarnadóttir Þræðir, snið og heimilisprýði Lesbók mælir með… Tónlist Nú eru síðustu forvöð að sækja Sum-artónleika í Skálholti, og dagskrá loka- helgarinnar er sérstaklega forvitnileg. Þar ber fyrst að nefna leik ungverska gömbuleikarans Balaz Kakuk með Bachsveitinni í Skálholti kl. 15 í dag, en Kakuk leikur á þann forna grip, baritongömbu, sem kunnugir segja að hafi ekki heyrst á tónleikum á Íslandi fyrr. Á efnis- skrá eru verk fyrir gömbu, horn og strengi, en hornleikarar verða Stefán Jón Bernharðsson og Emil Friðfinnsson. Franskt dúó, Bruno Cocset og Maude Gratton leika ítalska barrokkmúsík kl. 17 í dag, en kl. 21 í kvöld leikur Camerarctica verk eftir Sta- mitz Mozart og fleiri. Þar munu einnig hljóma sjaldheyrð tré: klassísk flauta, klassísk klarin- etta og náttúruhorn. Dagurinn í Skálholti ætti því að verða góður fyrir unnendur gamalla hljóðfæra. Morgunblaðið/Einar Falur Klassík Þessi hljóðfæri verða í Skálholti í dag. Myndlist Sýningu þriggja myndlistarmanna; þeirraBjarkar Guðnadóttur, Daníels Magn- ússonar og Hildar Bjarnadóttir, lýkur á Ný- listasafninu nú um helgina. Það er því ekki seinna vænna að mæla með henni. Hér er óneitanlega um að ræða listamenn sem vert er að veita athygli og eins og fram kemur í gagnrýni um sýninguna í Morgunblaðinu í dag, er „í raun um þrjár einkasýningar að ræða sem saman mynda ýmis hugmynda- tengsl“. Þeir sem ekki fara út úr bænum og á útihá- tíð um verslunarmannahelgina – og hafa í seinni tíð verið flokkaðir sem „innipúkar“ – geta sem sagt fengið sér ferskt loft og and- lega upplyftingu á Laugaveginum. Þess má geta að einn listamannanna, Hildur Bjarnadóttir, er tilnefnd til íslensku sjón- listaverðlaunanna í ár, svo þeir sem hafa áhuga á að skoða verk þeirra sem teljast mega fremstir meðal jafningja ættu ekki að missa af þessu framlagi hennar til myndlist- arlífsins í ár. Reuters Prairie Home Companion Woody Harrelson, Meryl Streep og Lindsay Lohan með Robert Altman. Lesarinn Breski heimspekingurinn John Graysprengdi upp heimsmynd mína um dag- inn með hugleiðingum sínum í bókinni Straw Dogs, thoughts on humans and other animals. Kallinn er fyrrum stuðningsmaður Margaret Thatcher, en hefur séð að sér og skrifar harð- orður um ofætlun kristilegrar, kapítalískrar og húmanískrar heimspeki, að setja mannkyn ofar öðrum dýrum. Jared Diamond hefur einn- ig breytt heimsmynd minni nýverið með bók sinni Col- lapse – how societies choose to fail or succeed. Hann olli mér miklum áhyggjum af framtíðinni um leið, en samt ekki jafn- harkalega og Richard Heinberg gerði með bók- inni Oil, War and the future of modern civilization. Ég svaf illa þá vikuna en létti mér lund með ævintýrum Neil Gaiman. Nýjasta bók hans Anansi Boys er afar skemmtileg lesning og fjarri drung- anum í American Gods. Í síðustu viku byrjaði ég síðan að lesa Stardust eftir hann samfara pólitískri mannfræði Pierre Clastres; Society Against the State. Góður lestur fyrir anarkist- ann. Sigurður Harðarson Sigurður Harðarson Dagbókarbrot Þórbergur Þórðarson skrifar Sólrúnu Jóns- dóttur. Bréf til Sólu, 1983. Um borð í Goðafossi, 24. júlí, 1922 Elsku hjartans Sólrún mín. Eg er þá kominn á leið aftur til Ísafjarðar. Ígærkvöldi lögðum við af stað frá Ak- ureyri og erum nú að sigla inn Skagafjörð. Annað kvöld býst eg við að verða kominn til Ísafjarðar. Eg geri ráð fyrir, að þú fáir ef til vill tvö bréf frá mér með Goðafossi. Eg skrif- aði þér sem sé stutt bréf rétt áður en eg fór frá Akureyri austur í Þingeyjarsýslu. Eg bjóst við, að það kæmist til þín með Lagarfossi, sem fór á stað í hringferð 10. júlí og átti að koma til Reykjavíkur þremur dögum á undan Goða- fossi; en nú er Lagarfoss orðinn svo á eftir áætlun, að hann verður sennilega seinni til Reykjavíkur en Goðafoss. Eg býst þess vegna við, að pósthúsið á Akureyri hafi sent bréfið með Goðafossi. Kvikmyndir Á Listahátíð í Reykjavík sem lauk í júnísíðastliðnum var forsýnd kvikmyndin A Prairie Home Companion í leikstjórn Ro- berts Altman. Myndin fjallar um sam- nefndan útvarpsþátt sem hefur notið mik- illar hylli í Bandaríkjunum í rúm þrjátíu ár. Umgjörð þáttarins er með gömlu sniði þar sem allt fer fram í beinni útsendingu, bæði lifandi tónlist og önnur skemmtiatriði. Garrison Kiellor heitir stjórnandi skemmt- uninnar en hann kom hingað til lands á Listahátíð og tók upp einn útvarpsþátt í Þjóðleikhúsinu þar sem Diddú og Karlakór- inn Fóstbræður komu fram ásamt föstum leikurum þáttarins. Núna eru hafnar sýningar á kvikmyndinni A Praire Home Companion en þar er fylgst með upptöku á einum útvarpsþætti. Myndin skartar ýmsum þekktum leikurum og má þar nefna Woody Harrelson, Kevin Kline og John C. Reilly. Garrison Kiellor leikur sjálfan sig í myndinni en hann skrifar jafn- framt handritið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.