Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2006, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2006, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 3 Þ ór rekur sögu árekstra róttækl- inga og yfirvalda megnið af tuttugustu öld – en það er ef til vill ein sönnun þess hve friðsamlegt var hér á þessum ófriðartíma í heiminum að hægt sé í stuttri tímaritsgrein að rekja næstum öll meiri háttar átök sem hér urðu á öldinni. Hann byrjar á hreyfingu komm- únista á 3. og 4. áratug aldarinnar og segir að 25–30 Íslendingar hafi á 4. áratugnum stundað nám í skólum í Moskvu „sem áttu að ala upp einvalalið byltingarforingja í stal- ínskum anda“ (56). Þeir hafi lagt stund á „bókleg byltingarfræði“, verið „æfðir í vopnaburði“, fengið „tilsögn í launráðum (konspirasjón) og hernaðarlist“. Þessir menn áttu að vera kjarni byltingarliðs innan kommúnistaflokkanna að sögn Þórs. Þetta er afar skrautleg lýsing á mun hversdagslegri veruleika. Skólarnir tveir sem vitað er með vissu að 19 Íslendingar sóttu (þó ekki sé ólíklegt að þeir hafi verið fleiri, jafnvel allt að 30 eins og Þór heldur fram) voru skólar fyrir verðandi starfsmenn kommúnistaflokkanna („funksjónera“). Slíkir menn þurftu fyrst og fremst kunna línudans réttrar útleggingar á hinum síbreytilega boðskap Sovéska kommúnistaflokksins og geta agað félaga sína til að fylgja hinni réttu línu hverju sinni. Hlutverk þeirra var með öðrum orðum pólitískt, en í þeim rann- sóknum sem ég hef gert á þessari sögu (sjá bók mína Kæru félagar, 1999) hef ég engar heimildir fundið sem benda til þess að þjálf- un þeirra í Moskvu hafi lotið að öðru en póli- tísku starfi í aðildarflokki Alþjóðasambands kommúnista, Komintern. Íslenski kommúnistaflokkurinn var, eins og bræðraflokkar hans í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, löglegur flokkur og starfaði í umhverfi sem var tiltölulega friðsamlegt miðað við það sem gekk á víða annars staðar í álfunni á sama tíma. Íslendingarnir fengu að því er mér hefur virst enga beina „bylt- ingarþjálfun“ í Moskvu, þótt vafalaust hafi þeir lært meðferð skotvopna, þar sem slíkt var nánast hluti sovésks barnaskólalærdóms á þessum tíma. Verkefni þeirra var að skipu- leggja og vinna í kommúnistaflokki innan friðsamlegs stjórnmálaumhverfis og því fer fjarri að Komintern hafi gefið Íslending- unum ráð eða fyrirmæli um að beita ofbeldi. „Launráð“ þeirra voru einkum í því fólgin að halda fundum sínum og ráðagerðum leynd- um fyrir pólitískum andstæðingum heima á Íslandi, en þegar til Moskvu kom að leyna nöfnum sínum fyrir skólafélögunum og verj- ast njósnurum sem talið var að leyndust í hverju skúmaskoti. Þór tengir meinta byltingarþjálfun ís- lensku kommúnistanna í Moskvu við óeirðir sem hér urðu oftar en einu sinni á kreppuár- unum og gefur þannig í skyn að slíkar uppá- komur hafi í raun verið verk þjálfaðra bylt- ingarmanna, frekar en fyrirsjáanlegur fylgifiskur kreppu og atvinnuleysis. Sömu- leiðis heldur hann því fram að kommúnistar hafi stofnað vopnaða sveit eftir fyrirmælum frá Komintern („Komintern ætlaðist til að kommúnistaflokkar hefðu slíkum liðssveitum á að skipa“ (58)). Fyrst hafi sveitin verið leynileg en síðar verið gerð opinber sem Varnarlið verkalýðsins og hafi haft 60–80 fé- laga þegar mest var en þeir hafi meðal ann- ars stundað „japanska glímu“. Þetta lið hafi svo leikið lykilhlutverk í Gúttóslagnum svo- nefnda, 9. nóvember 1932. Þannig getur les- andinn dregið þá ályktun að annaðhvort hafi þessi slagsmál orðið fyrir beinan tilverknað Kominterns eða óbeint með því að þar hafi kommúnistar nýtt sér hina nýfengnu bylt- ingarþjálfun félaganna. Staðreyndin er sú að einu heimildirnar sem um þetta hafa fundist í skjalasöfnum Sovétríkjanna sálugu eru varnaðarorð og jafnvel bein mótmæli við hvers kyns vopnuðum sveitum. Þór nefnir meira að segja eina slíka heimild en túlkar hana svo að um nokkurs konar taktískar mótbárur hafi verið að ræða (58). Þannig sé ég ekki betur en Þór dragi víða rangar ályktanir af þeim heimildum sem hann nýtir sér í grein sinni og geri miklu meira úr fáeinum tilvísunum til skotþjálf- unar og vopnaðrar baráttu en ástæða er til. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að raunveruleg byltingarþjálfun krafðist miklu meira trausts en nokkur Íslendinganna naut í Moskvu (að einum ef til vill undanskildum) og aðeins það hlýtur að vekja miklar efa- semdir um að þeir hafi fengið slíka þjálfun. Annað einkenni á grein Þórs vekur ekki síður athygli en áhersla hans á að tengja átök og óeirðir á Íslandi við þjálfun í Moskvu. Honum tekst (hvort sem það er vís- vitandi eða ekki ) að blanda markvisst saman annars vegar mælsku um áform og hins veg- ar raunverulegum áformum. Þannig telur hann að digurbarkalegt tal kommúnista um aðgerðir í óeirðum og verkföllum sé til sann- indamerkis um að þeir hafi beðið færis að taka völdin og ætlað sér að taka andstæð- inga sína af lífi, ef af valdatöku þeirra yrði. Þessi bókstafstúlkun á mælsku er oft æði barnaleg. Þannig túlkar Þór orð Brynjólfs Bjarnasonar í umræðum um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu 1949 svo að hann hafi hótað pólitískum andstæðingum sínum lífláti, með því að segja þá „kvislinga“ og „landráðamenn“ (66). Á sama hátt túlkar hann allar yfirlýsingar um valdbeitingu sem áþreifanlega ógnun við öryggi samfélagsins og þannig verður hið svokallaða Varnarlið verkalýðsins „vísir að Rauðum her, og stríðsyfirlýsing KFÍ [Kommúnistaflokks Ís- lands] við „ríkisvald borgaranna““ (58). Nú er erfitt að sakast við þau yfirvöld sem hverju sinni þurfa að meta ógnun af þessu tagi, þó að stöku sinnum hneigist þau til að ofmeta hættuna, ekki síst ef málflutningur er grófur og ofbeldiskenndur. En það er ekki þar með sagt að þau hafi rétt fyrir sér og eitt af því mikilvægasta í starfi sagnfræð- inga sem fást við sögu síðustu áratuga er einmitt að gera greinarmun á mælsku og raunveruleika. Það er ekki sannfærandi að- ferðafræði sem Þór beitir að túlka alla mælsku bókstaflega. Yfirvofandi landráð sovétvina Óeirðirnar við Alþingishúsið 30. mars 1949 marka þáttaskil í skilningi ríkjandi yfirvalda á þeirri hættu sem kunni að stafa af komm- únistum og sósíalistum og eru upphafið að þeirri leyniþjónustustarfsemi sem Þór segir frá í grein sinni. Sú túlkun á mögulegri ógn, ræðst sem fyrr að miklu leyti af meintum tengslum sósíalista við Sovétríkin, ekki síst af þeirri hugmynd að annaðhvort bylting- arþjálfun í Moskvu eða bein fyrirmæli þaðan hafi strax á fjórða áratugnum mótað allt flokksstarf sósíalista og ráðið nokkru, jafnvel mestu, um stefnu þeirra og aðgerðir eftir það. En það er rík ástæða til að efast um að tengslin hafi í raun haft slík áhrif. Sovétríkin höfðu strax árið 1943 afskrifað Ísland og gef- ið sér að það yrði um næstu framtíð á „áhrifasvæði“ Bandaríkjamanna. Þetta þýddi til dæmis að Sovétstjórnin hafði litlar at- hugasemdir við aðild Íslands að Atlantshafs- bandalaginu og við Varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna og taldi hvorttveggja rök- rétt framhald af hersetu Bandaríkjamanna hér á stríðsárunum. Ljóst er að Sovétmenn héldu uppi umtalsverðri njósnastarfsemi í tengslum við herstöðina, og vafalaust hafa einhverjir Íslendingar blandast inn í þá starfsemi. Einnig var töluvert kapp lagt á að halda tengslum við Sósíalistaflokkinn eins og mikill fjöldi trúnaðarsamtala sendimanna Sovétstjórnarinnar á Íslandi við for- ystumenn í Sósíalistaflokknum sýnir glögg- lega. En þær heimildir duga engan veginn til að réttlæta þá umfangsmiklu upplýsinga- starfsemi sem virðist hafa farið fram af hálfu íslenskra yfirvalda og þaðan af síður, ef rétt reynist að íslenskir embættismenn hafi deilt upplýsingum sem safnað var um einstaklinga á Íslandi með bandarískum yfirvöldum. Af grein Þórs að dæma hefur ótti við að liðsmenn Sósíalistaflokksins gripu til hermd- arverka verið það afl sem knúði starfsemi Öryggisþjónustunnar áfram og skapað þá sannfæringu í innsta kjarna kerfisins að sósíalistar kynnu, með fulltingi Moskvu- valdsins, að skipuleggja hryðjuverka- starfsemi þegar réttar aðstæður sköpuðust. Enn þá hafa engar heimildir fundist sem sýnt geti fram á að þessi ótti hafi verið rétt- mætur. Það eina sem er nýtt í grein Þórs eru heimildir hans um íslensku Öryggisþjón- ustuna, einkum minnisblað Péturs Krist- inssonar lögregluvarðstjóra sem fannst í fór- um nágranna hans. Í þessu minnisblaði er að finna drög að aðgerðaáætlun sem miða að því að verjast, eða draga úr hættu af „inn- lendum sovétvinum“. Að menn hafi borið slíkan ugg í brjósti segir þó auðvitað ekkert um réttmæti hans. Nú er mjög líklegt að Sovétmenn hafi haft innlenda njósnara á sínum vegum sem gátu veitt upplýsingar úr innsta hring. Allt er hins vegar á huldu um hverjir slíkir njósn- arar gætu hafa verið. Það eru viss vonbrigði að Þór skuli ekki hafa neitt meira um slíka starfsemi uppi í erminni en hina margtuggnu sögu af Ragnari Gunnarssyni sem sovéskir leyniþjónustumenn reyndu að fá til starfa fyrir sig snemma á sjöunda áratugnum. Það er mikilvægt að hafa í huga, að ólíkt því sem Þór gefur í skyn, er engin ástæða til að ætla að KGB eða GRU (leyniþjónusta hersins) hafi fremur sóst eftir kommúnistum til starfa fyrir sig en öðrum. Það er reyndar af- ar líklegt að reynt hafi verið að ráða fólk sem tengdist ekki vinstrihreyfingunni af þeirri augljósu ástæðu að slíkt fólk vekti síð- ur grunsemdir. Eins og vel er þekkt úr njósnasögu kaldastríðsins er mestu njósn- arana oft að finna meðal þeirra sem fæstum dettur í hug að gruna um græsku. Ég vona að mér hafi tekist að gera kjarna málsins ljósan í þessari grein: Hvað sem líð- ur vafstri einstaklinga þá höfum við engar heimildir sem leyfa okkur að draga þá álykt- un sem Þór dregur í grein sinni, að íslenskir kommúnistar hafi verið þjálfaðir í Moskvu til ofbeldisverka. Ef til vill er hægt að fyrirgefa mönnum að hafa á sínum tíma fyllst hræðslu gagnvart stórveldinu í austri og óttast að það væri í óðaönn að heilaþvo unga Íslend- inga og gera úr þeim ofbeldismenn. En það sama gildir ekki um sagnfræðinga nútímans sem geta kynnt sér heimildir og dregið eigin ályktanir. Við hljótum að búast við meiri rökvísi af þeim. Það er alltaf mikilvægt að huga að sam- hengi hlutanna. Þór byrjar grein sína á að gagnrýna þá sem reyni að „koma höggi“ á dómsmálaráðherra fyrir að vilja búa til „með löglegum hætti stofnun, sem flestum þykir jafnsjálfsögð og umferðarlögregla eða slökkvilið í öðrum ríkjum Evrópu“ (55). Þessi „sjálfsagða“ stofnun er íslensk leyni- eða öryggisþjónusta. En slík starfsemi býður upp á fleiri hættur en slökkviliðið. Var- hugaverðast við innlenda öryggisþjónustu er að í staðinn fyrir að einblína á raunverulegar hættur, fari hún að ofmeta þá hættu sem kunni að vera af ýmsum hópum innanlands og mikla fyrir sér möguleg tengsl þeirra við erlend myrkraöfl. Það sem afhjúpanir Þórs Whitehead nú gera ljóst er ekki að íslensk yfirvöld hafi metið hættu af róttækum hreyf- ingum hér á kreppu- og kaldastríðsárunum rétt, heldur einmitt að íslensk yfirvöld féllu í þá gryfju að ofmeta þessa hættu stórlega og leiddust því út í vafasamar og hugsanlega glæpsamlegar aðgerðir gegn saklausu fólki. Íslensk stjórnvöld ættu að láta sér það að kenningu verða og reyna eftir megni að forð- ast að gera sömu mistök aftur. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Átök Á útifundi herstöðvaandstæðinga 20. september 1979. Fundurinn varð frægur fyrir að hesthaus úr plasti var komið fyrir á níðstöng. Voru íslenskir kommúnistar hættulegir? Höfundur er prófessor í heimspeki við Háskólann á Bifröst. » Þessi bókstafstúlkun á mælsku er oft æði barnaleg. Þannig túlkar Þór orð Brynj- ólfs Bjarnasonar í umræðum um aðild Íslands að Atlants- hafsbandalaginu 1949 svo að hann hafi hótað pólitískum andstæðingum sínum lífláti, með því að segja þá „kvislinga“ og „landráðamenn“ (66).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.