Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2006, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 9 Eftir Guðjón Guðmundsson gugu@mbl.is N ýja málverkið var andóf upp- rennandi kynslóðar mynd- listarmanna við hug- myndalistinni sem hafði ráðið ríkjum síðan á sjöunda áratugnum og hafði að margra mati fjarlægst um of listneytendur og listamennina sjálfa vegna hreinnar og kaldrar hugmyndahyggju. Nýja málverkið var ekki einangrað fyrirbrigði á Íslandi heldur átti sér samsvörun erlendis. Nú er í fyrsta sinn gefið sögulegt yfirlit um þá hreyfingu sem fæddist í raun í kringum pönktónlistina og starfsemi listamanna í JL-húsinu á Hringbraut þar sem Gullströndin andaði og Svart og sykurlaust æfði gjörninga sem framdir voru á götum úti. Sýningin heitir Málverkið eftir 1980 og er sett upp í fjórum sölum í Listasafni Íslands. Í fyrsta salnum er brugðið ljósi á fyrstu árin eft- ir 1980, í sal 2 eru teikningar, bókverk og graf- íkmyndir og tengsl við hugmyndalistina, í þriðja salnum eru flestir þeir listamenn sem eiga verk í fyrsta salnum ásamt þeim sem hafa bæst við. Sýna verkin þar þróunina í list þeirra frá 1980. Í fjórða salnum er síðan yngsta kyn- slóðin, nútíminn. Heiðurinn af uppsetningunni og söfnun listaverka inn á sýninguna eiga list- fræðingarnir Halldór Björn Runólfsson og Laufey Helgadóttir. „Þetta er tímabil sem mjög lítið hefur verið fjallað um. Það hafa verið settar upp litlar sýn- ingar um tímabilið en engin stór úttekt verið gerð. Þetta er tilraun til þess að gera úttekt á tímabilinu með Nýja málverkið sem útgangs- punkt,“ segir Laufey. Pönkið og Nýja málverkið Mjög afgerandi skil urðu einmitt í myndlistinni upp úr 1980. Fram að þessum tíma höfðu margir slegið því fram að málverkið væri dautt og hugmyndalistin tekin yfir. „Allt í einu kem- ur þessi kynslóð, sem er undir áhrifum frá því sem er að gerast úti í heimi. Menn byrjuðu að mála af fullum krafti. Skilin eru svo skörp fyrir og eftir 1980,“ segir Halldór. Laufey segir að margir hafi bent á að þessi hreyfing hafi verið í beinni andstöðu við kons- eptlistina. Listamennirnir hafi margir sjálfir verið orðnir þreyttir á þessu harða og kalda konsepti. Málverkinu hafði verið ýtt til hliðar og það hafði jafnvel þótt örlítið hallærislegt að mála. „Á þessum tíma varð vakning alls staðar í heiminum, Bandaríkjunum, Ítalíu, Frakk- landi og Þýskalandi, og hún smitaði út frá sér. Hér heima springur þetta út um 1982 en hafði verið að gerjast alveg frá 1980,“ segir Laufey. Halldór segir að breytingin hafi falið í sér afturhvarf til handverksins og gagnrýni á hina hreinu heimspeki hugmyndalistarinnar og hafi haldist í hendur við pönkið. „Það var mjög mikill samgangur á milli myndlistarmanna og tónlistarmanna, þ.e.a.s. pönkara. Andi pönks- ins endurspeglast mjög mikið í myndlistinni á þessum fyrstu árum eftir 1980.“ Margir þeirra sem kvöddu sér hljóðs á þess- um tíma höfðu vinnustofur í JL-húsinu. Þar var haldin stór sýning árið 1983 sem hét Gull- ströndin andar og var einn af upphafspunktum Nýja málverksins hér á landi. Þar höfðu líka aðrir hópar listamanna aðstöðu, eins og götu- leikhúsið Svart og sykurlaust sem Guðjón Ped- ersen, núverandi leikhússtjóri í Borgarleik- húsinu, var í forsvari fyrir, og hljómsveitin Oxmá. Þar höfðu ennfremur Georg Guðni, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Guðrún Tryggva- dóttir og fleiri listamenn vinnustofur. „Það hafði verið ákveðið að hafa stóra sýn- ingu á Kjarvalsstöðum um þetta leyti þar sem átti að sýna myndlist ungu kynslóðarinnar. Ekki voru allir valdir á þá sýningu sem myndlistarmennirnir sjálfir hefðu kosið og ákvað þá hópurinn í JL-húsinu að halda sína eigin sýningu,“ segir Laufey. Nýja málverkið var uppreisn gegn hug- myndalistinni og um leið gegn broddborg- aramálverki og stofumálverki. Um leið var Nýja málverkið andóf gegn samfélaginu, alveg eins og pönkið. Halldór Björn segir að með Nýja málverk- inu hafi komið fram ný nálgun sem margir höfðu talið að ætti ekki afturkvæmt í myndlist. „Menn töldu að svona fígúratíf málverk ættu ekki eftir að sjást aftur. Það þótti furðulegt að menn skyldu aftur fara að nota fígúruna.“ Laufey bendir á aðra staðreynd, sem blasir reyndar við þegar málverk frá upphafsskeiði Nýja málverksins eru skoðuð. Það er hve áber- andi fáar konur gáfu sig að Nýja málverkinu, ekki einungis á Íslandi heldur líka erlendis. Þess vegna sé oft á tíðum talað um Nýja málverkið sem karlalist. Oftast er líka karllík- ami í myndverkum listamanna frá þessum tíma en mun síður kvenlíkami. Markaðsvæðing málverksins „Kannski var það vegna þess að það ríkti ofsi í kringum Nýja málverkið. Allt þurfti að gerast svo hratt og í núinu. Þeir máluðu mörg mál- verk, jafnvel eru dæmi um tíu málverk á einum degi. Það hefur verið talað um það að mark- aðurinn hafi kallað á þessi nýju verk því það er þægilegra að selja málverk en hugmyndalist. Erlendis var talað um það að Nýja mál- verkið hefði komið mjög snöggt fram á sjón- arsviðið og markaðurinn hefði brugðist jafn- hratt við. Málarar þessa tíma urðu hálfgerðar popp- stjörnur og voru með sýningar úti um allan heim. Verkin margfölduðust í verði á einu til tveimur árum,“ segir Laufey og bætir við að margir af þessum stjörnulistamönnum heyrist varla nefndir á nafn lengur. Aðrir hafi samt þróast áfram og átt farsælan feril. Mikil umræða var um markaðshyggjuna í kringum Nýja málverkið og voru gallerí jafn- vel sökuð um að hafa komið þessari stefnu á koppinn til að uppfylla þarfir markaðarins fyr- ir nýja list. „En hvað sem hver segir eru það listamennirnir sjálfir sem alltaf ráða ferðinni. Þar eru straumar sem enginn stöðvar og markaðurinn bregst síðan við,“ segir Halldór Björn. Hann bendir jafnframt á að þegar málin séu skoðuð í samhengi sé ekki undarlegt hve fáar konur tilheyrðu Nýja málverkinu í upphafi. „Það var svo stutt síðan konur komu inn í myndlistina. Rauðsokkuhreyfingin kom fram á sjöunda áratugnum og Róska var sýnilegust af listakonunum. Þeim fannst þær ekki eiga heima í málverkinu. Hefðbundin list var öll málverk og þar höfðu þær aldrei átt heima. Þeim fannst málverk ekki vera sinn miðill.“ Það er reyndar athyglisvert að skoða þróunina sem verður á þessum aldarfjórðungi og sýn- ingin leiðir í ljós. Í fjórða salnum í Listasafni Íslands eru yngstu listamennirnir og þar eru konur í meirihluta. „Þetta endurspeglar það sem er að gerast í dag. Nýlega voru Sjónlist- arverðlaunin veitt á Akureyri og þar voru það mestmegnis konur sem voru í sviðsljósinu.“ Laufey og Halldór Björn eru sammála um að þróunin hafi verið í átt til meiri fágunar og fínleika. Það blasi strax við í þriðja salnum. „Þetta er kannski eðli listarinnar. Þegar menn koma ungir fram leyfa þeir sér ákveðinn groddaskap og svo þroskast þeir og fara meira í sína eigin átt. Jafnframt varð þróunin sú að ekki var nándar nærri eins mikið hópefli og var í myndsköpuninni,“ segir Laufey. Hún bætir því við að hið klassíska íslenska málverk, landslagsmálverkið, hafi gengið í gegnum endurnýjun fyrir tilstilli Nýja mál- verksins. Nokkrir af forsprökkunum, eins og Georg Guðni, hafi breytt ásýnd þess svo um munaði. Svipaður andi núna og sveif yfir vötnum í byrjun níunda áratugarins Laufeyju og Halldóri Birni er tíðrætt um þá miklu grósku sem var í listalífinu upp úr 1980 á öllum sviðum. Talað var um bílskúrsmálverkið á þessum árum og ekki voru alltaf notaðir dýr- ir litir heldur stundum traktoramálning og málað var á sængurfatnað, eins og dæmi er um á sýningunni. Málverkið var brotið upp með alls kyns aðskotahlutum, eins og bókum og jafnvel koddum. Margir urðu líka fyrir miklum áhrifum af sínu nánasta umhverfi. Dæmi um það eru myndir af bar og staupum og á sýning- unni er að finna málverk sem heitir Sjálfs- mynd eftir meðferð og er eftir Magnús Kjart- ansson. „Nýja málverkið tengdist mjög mikið daglegu lífi listamannanna, sorgum þeirra og gleði,“ segir Halldór Björn. Er líklegt að gróskutímar eins og þessir eigi eftir að koma á ný í myndlistinni hérlendis? „Já, ég held að það gerist alltaf. Listin end- urnýjar sig alltaf. Við erum inni í mjög grósku- miklu tímabili núna og það er spennandi að sjá hvað ungir myndlistarmenn eru að gera núna, eins og sjá má í Pakkhúsi postulanna. Það er svipaður andi sem svífur yfir vötnum núna og gerðist upp úr 1980, en þetta leitar ekki í sama farið. Þeir listamenn sem riðu á vaðið í Nýja málverkinu hafa flestir ákveðna fortíðarþrá til þessa tíma,“ segir Laufey. Halldór bendir á að ákveðin samsvörun eigi sér stað í listinni núna við það sem var að ger- ast við fæðingu Nýja málverksins. „Það er til dæmis mjög áberandi núna að í Pakkhúsi post- ulanna er tónlistin og myndlistin komin saman á ný. Ragnar Kjartansson og Gabríela Frið- riksdóttir, sem notar allt í sínu verki, tónlist, vídeó, málverk og innsetningu, eru góð dæmi um þetta. Miðlarnir eru líka miklu fleiri í dag. Þar kemur inn tölvutæknin og myndbandið, sem opnar alveg nýja möguleika,“ segir Hall- dór. Hann segir að það einkenni yngstu kyn- slóð listamanna að þeir noti marga miðla við listsköpunina. Frumkvöðlar Nýja málverksins hafi verið handgengnir myndasögum og þess megi sjá stað í verkum þeirra en yngsta kyn- slóðin sé enn frekar undir áhrifum frá þeim. „Þetta er kynslóðin sem er alin upp við Tinna og Ástrík og þessi áhrif eru auðgrein- anleg í fjórða salnum hér á Listasafninu.“ Auk þess er yngsta kynslóð listamanna mjög handgengin tölvutækninni og dæmi eru um myndverk sem algjörlega eru unnin í tölv- um. Vaknar þá spurning hvort lengur sé nauð- synlegt að læra handverkið sem ávallt hefur fylgt því að vera myndlistarmaður. „Nú eru möguleikarnir fleiri og valið meira. Auðvitað eru sem betur margir sem frekar vilja nota pensla og málningu,“ segir Laufey og Halldór Björn bætir við að margir lista- menn segja að tæknin skipti engu máli. Það eina sem skipti máli sé augað og sýn lista- mannsins. „Listamaðurinn velur þá tækni sem þjónar best hugmyndinni sem hann vill koma á fram- færi. Það nægir ekki að kaupa tölvuforrit. Listamaðurinn verður að hafa auga og hafa eitthvað að segja. Grunnurinn er sá að hafa þörfina til þess að tjá sig. Þessi kynslóð hafði þá þörf í ríkum mæli. Hún beindi athyglinni að manninum aftur. Angistinni og tilvistinni en gleymdi heldur ekki að deila á þjóðfélagið.“ Sýningin Málverkið eftir 1980 rekur þróunina í málverkinu frá upphafi níunda áratug-arins fram til dagsins í dag. Með þessu yfirliti verka gefst í fyrsta sinn tækifæri til að skoða þetta nálæga tímabil í heild sinni með hliðsjón af því sem verið er að gera í dag og flokkað er undir merki málaralistarinnar. Á sýningunni verða á annað hundrað verk eftir 56 listamenn. Sýningarstjóri er Laufey Helgadóttir listfræðingur og aðstoðarsýning- arstjóri er Halldór B. Runólfsson. Sýningin stendur til 26. nóvember og mun fjöldi lista- manna og fræðimanna fjalla um sýninguna á sýningartímanum. Málþing um málverkið eftir 1980 verður haldið í safninu í sal 1 laugardaginn 14. október kl. 11. Verkin á sýningunni eru langflest í eigu listamannanna sjálfra eða í einkaeigu. Af þeim sökum er hægt að sjá 26 ára gömul verk á sýningunni sem ef til vill hafa einungis einu sinni verið sýnd áður eða jafnvel aldrei. Það kom líka Laufeyju og Halldóri Birni á óvart þegar þau sóttu heim listamennina hve mörg verkanna sem þau hugðust hafa á sýningunni voru ekki lengur til. „Þetta eru verk sem listamennirnir höfðu brennt, hent, málað yfir eða eyðilagt á annan hátt, sem segir okkur miklu meira um aðstæðurnar sem þeir bjuggu við en þá sjálfa,“ seg- ir Laufey. Halldór Björn segir að það sé erfitt fyrir listamenn að horfa til baka og það valdi mörg- um mikilli togstreitu. „Við fundum fyrir því að það var tilhneiging hjá listamönnunum að halda að okkur nýrri listaverkunum. Við þurftum að beita þeim rökum að hér væri um sögulegt yfirlit að ræða á sýningunni og við þyrftum á eldri verkum að halda. Þá spurðu þeir gjarnan hvort við vildum fá þetta gamla drasl. En svo þegar menn sjá verkin koma upp er eins og þeir hafi bara alls ekki áttað sig á því hvað þeir voru með í handraðanum. Þeir höfðu jafnvel á orði að verkin væru miklu betri en þeir héldu þegar búið er að hengja þau upp. Við höfum vanist því að heyra Björk syngja inn á plötur allt frá Debut. Núna ætl- ar hún að syngja með Sykurmolunum og þá um leið átta margir sig á því að það var margt fjári gott sem Sykurmolarnir voru að gera,“ segir Halldór Björn. Pönk og málverkið í eina sæng Marsipan „Listamaðurinn velur þá tækni sem þjónar best hugmyndinni sem hann vill koma á framfæri.“ Verkið er eftir Tuma Magnússon (1985). Listasafn Íslands opnar í dag sýninguna Mál- verkið eftir 1980 þar sem þróunin í málverk- inu frá upphafi níunda áratugar síðustu aldar fram á okkar daga er rakin. Blaðamaður rakti garnirnar úr Laufeyju Helgadóttur sýn- ingarstjóra og Halldóri B. Runólfssyni að- stoðarsýningarstjóra um strauma og stefnur þessa mikla gróskutíma í íslenskum listum. Málað yfir mörg verk- anna eða þau eyðilögð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.