Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2006, Page 16
16 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Jón Val Jensson
ollajon@ismennt.is
Þ
egar æsingurinn í kringum
Benedikt páfa og íslam fór að
hjaðna, áttaði fólk sig á því, að
páfinn hafði verið grátt leikinn,
orð hans tekin úr samhengi og
viðbrögðin viljandi mögnuð
upp.“ Svo segir í nýlegri frétt Páfagarðs
(Zenit.org). Í fyrirlestri sínum við háskólann
í Regensburg var páfinn í raun að hvetja til
samræðna og rökræðu um trúarbrögð í stað
þess að útiloka þau frá alvarlegri umræðu,
eins og oft á sér stað í samtíð okkar, þar
sem trúnni á Guð er vísað á afmarkaðan bás
ætlaðan vissum menningarafkima sem að
öðru leyti sé lokaður frá menningu og sam-
félagi Vesturlandaþjóða. Átti menn sig á
þessu samhengi páfaræðunnar, „hafa fylg-
ismenn vantrúarinnar í samtíð okkar miklu
meiri ástæðu til að gremjast páfanum en
nokkrir aðrir. Sú staðreynd kann að skýra
þá stæku andúð gegn páfa sem birtist í leið-
ara New York Times 16. sept.,“ segir enn í
sömu frétt.
Umgjörð setningarinnar, sem páfinn tí-
undaði úr orðræðu Manúels II keisara í
Konstantínópel í lok 14. aldar, var ágætlega
rakin í grein í Lesbók Mbl. 23/9, sbr. einnig
Reykjavíkurbréf 24/9. Vissulega voru um-
mæli keisarans ekki kjarninn í fyrirlestri
páfans. Engu að síður er vert að skoða þau
nánar.
Missagnir íslenzkra fréttamiðla og
raunverulegt inntak orða Manúels II
Fyrst er þess að geta, að nánast allir ís-
lenzkir fréttamiðlar, m.a. Rúv, fóru rangt
með það sem stóð skýrum stöfum í ræðu
páfans. Keisarinn Manúel sagði EKKI, „að
Múhameð spámaður hefði aðeins fært heim-
inum illsku og miskunnarleysi,“ eins og Nýja
fréttastöðin orðaði þetta 22/9. Morgunblaðið
hefur staðið sig fjölmiðla bezt við að gera
grein fyrir tilvitnun páfans í keisarann, t.d. í
fréttaskýringu 26/9, á meðan Fréttablaðið
endurtekur þann sama dag orðalag NFS-
stöðvarinnar.
Það, sem Manúel 2. sagði í raun, var að
það nýja, sem Múhameð hefði fært (was Mo-
hammed Neues gebracht hat, eins og segir í
fyrirlestri páfa), hefði aðeins verið slæmir
hlutir og ómannúðlegir (Schlechtes und In-
humanes) á borð við fyrirmæli hans um, að
trúna, sem hann boðaði, ætti að útbreiða
með sverði. Gegn þessu lagði keisarinn
áherzlu á skynsemiseðli trúarinnar, hún sé
ávöxtur sálarinnar, ekki líkamans. Því þurfi
að beita hæfileikanum til að tala og hugsa
rétt til þess að sannfæra skynsemisverur og
leiða þær til trúar, en ekki nota ytri vald-
beitingu og hótanir. Guð vilji engar blóðs-
úthellingar, og það sé í andstöðu við sjálft
eðli Guðs að breyta í ósamræmi við skyn-
semina. Nútímamönnum veitist sennilega
auðvelt að vera sammála þessari röksemd.
Keisaranum, sem átti þarna í díalóg við
lærðan, persneskan guðfræðing, málsvara
íslams, var vel ljóst, að sú trú hafði tekið við
miklum, dýrmætum arfi úr Gyðingdómi og
kristinni trú. Hið kristna stórveldi Eþíópía
náði á 6. öld inn á Arabíuskagann; þannig
bárust þangað kristin áhrif. Kaupmenn Gyð-
inga báru og með sér trúaráhrif, og Múham-
eð átti ennfremur samneyti við kristna menn
á ferð sinni um Sýrland. Þannig kynntist
hann eingyðistrúnni, sem var (vel að merkja)
ekki regla í heiminum um daga Krists, held-
ur undantekning. Mörgu háleitu og góðu í
kenningunni um kærleiks- og mikilfengleika-
eðli Guðs tók Múhameð við frá hinum gyð-
ing-kristna arfi. En það nýja, sem íslam
færði svo kristnum mönnum við Miðjarð-
arhaf, fólst ekki sízt í útbreiðslu trúarinnar
með sverðsins mætti, oft með allsherjarupp-
gjöf íbúanna, en stundum með vörn borga og
miklu blóðbaði eftir töku þeirra (dæmi: Cæs-
area árið 640).
Enda þótt múslimar reyndust að sumu
leyti vægir stjórnendur eftir landvinninga
sína, – sem gaf þeim sjálfum tækifæri til að
þiggja margt gott úr persneskri, sýrlenzkri
og hellenskri menningararfleifð sem þar var
fyrir, m.a. á sviði ljóðlistar, myndlistar,
raunvísinda, læknisfræði, heimspeki og guð-
fræði – þá beittu þeir kristna menn þving-
unum, m.a. með sérstökum kvaðarskatti, ji-
zya, banni við því að þeir gengju í skóm,
stigju á bak hesti eða verðu sig fyrir árás,
banni við byggingu kirkna og klaustra,
hringingu kirkjuklukkna og við því að út-
breiða og vitna um trú sína (krossfesting og
guðlegt eðli Krists voru bannfærð viðhorf).
Þetta ásamt einstöku ofsóknum o.fl. leiddi til
þess að kristin trú þurrkaðist næstum út í
Norður-Afríku og víðar á nokkrum öldum.
Eins og fram kemur í nýlegri bók próf.
Richards Fletcher, The Cross and the Cres-
cent (Penguin 2003, s. 36–37), er talið að nál.
75–90% af kristnum mönnum á hinum þétt-
býlli yfirráðasvæðum múslima hafi snúizt til
íslamstrúar. Það gerðist reyndar takmarkað
fyrstu öldina eftir landvinningana, en megnið
af þessum trúskiptum átti sér stað næstu
tvær aldirnar. Af fimm leiðandi höf-
uðkirkjum fornaldar urðu þrjár, Alexandría í
Egyptalandi, Antíokkía í Sýrlandi og Jerú-
salem, sem lamaðar, einangraðar og úr leik í
kristinni orðræðu heimsins, svo að Róm og
Konstantínopel urðu einar um hituna (R.W.
Southern).
Keisarinn Manúel var eðlilega að tala í
sínum aðstæðum – í því litla sem eftir var af
Austrómverska keisaradæminu í lok 14. ald-
ar, en það hafði áður teygt sig yfir geysilegt
landflæmi við austan- og sunnanvert Mið-
jarðarhaf og nánast allar eyjarnar þar, hluta
Ítalíu, allt Grikkland og miklu meira til. Og
þeir, sem höfðu rúið býzanska ríkið löndum
sínum, voru vitaskuld múslimar, sem reynd-
ar höfðu gengið miklu lengra en svo, því að
réttum 100 árum eftir lát Múhameðs var
framsókn herja þeirra komin svo langt, að
þeir höfðu bæði yfirunnið meirihluta Spánar
og áttu í orrustu við kristna menn í Poitiers
nálægt Tours í miðju Vestur-Frakklandi (ár-
ið 732). Þar og í fleiri orrustum tókst Frönk-
um undir forystu Karls Martels (afa Karla-
magnúsar keisara) að stöðva útþenslustefnu
múslima í Vestur-Evrópu. Aðeins 62 árum
eftir ummæli Manúels keisara unnu Tyrkir
síðustu leifarnar af Býzanz-ríkinu með töku
Konstantínópel 1453. Þeir lögðu undir sig
allan Balkanskagann (héldu Grikkjum her-
numdum til 1829), réðust á Ungverjaland og
sátu tvisvar um Vínarborg (1529 og 1683) –
þvílíkur var framgangur múslima, sem á
margar hliðar þrengdi þannig að hinum
kristnu þjóðum.
Þegar Reykjavíkurbréf Mbl. hefur það eft-
ir Der Spiegel, að í hugum margra sé rætur
heilags stríðs gegn vestrinu að finna í kross-
ferðunum (sem stóðu yfir 1096–1291), þá er
það sögulega rangt; hugmynd Kóransins um
jihad var að baki útbreiðslustríðum múslima
(m.a. gegn kristnum) mörgum öldum fyrir
krossferðirnar; hið fyrsta þeirra landvinn-
ingastríða gegn kristnum byggðum hófst um
634 (Landið helga). Síðar varð arabíska yf-
irstéttin værukær til útþenslu og trúarboð-
unar í allri sinni velmegun og glæstu menn-
ingu. En þá kom upp endurnýjaður
trúareldmóður og hernaðarþróttur meðal
yngri þjóða í íslamstrú, Berba, Mamelúka og
Selsjúka (Tyrkja), sem leiddi til nýrrar
framsóknar múslima og upphafs krossferð-
anna í lok 11. aldar og síðar til falls kross-
fararíkjanna á 13. öld og Miklagarðs 1453.
Afstöðu Manúels II verður að skoða í
ofangreindu ljósi, sem og út frá því, að í eig-
inlegri trúarkenningu færði íslam þeim
kristnu ekkert nýtt og gott sem þeir áttu
ekki fyrir, en svipti hins vegar þá, sem tóku
Múhameðstrú, mörgum grundvallargildum
kristinnar trúar, einkum trúnni á Heilaga
Þrenningu, Guðssonareðli Krists og einstætt
endurlausnarverk hans.
Íslam færði SUMUM þjóðum betra sið-
ferði og betri trú en þær höfðu fyrir
Það er alrangt, ef menn telja íslam ekki hafa
fært neinum þjóðum framför í trúar- og sið-
ferðisefnum. Íslam ruddi brott fjölgyðistrú
og blóðfórnum bæði í Arabíu og hinu gamla
Persaveldi (sem var eitt stórríkið sem mús-
limir unnu strax upp úr miðri 7. öld) og síð-
ar enn austar í Asíu, en gerði það að veru-
legu leyti með valdbeitingar-þvingun, á
meðan Gyðingar, kristnir og Zaraþústra-
menn nutu vissrar tillitssemi, af því að þeir
töldust „fólk Bókarinnar“. En hjá mörgum
hinna heiðnu þjóða tíðkaðist lítil virðing fyrir
konum, og þrátt fyrir að múslimar njóti ekki
álits hér á Vesturlöndum fyrir ástandið á því
sviði, þá var boðun íslams í þeim efnum
hikstalaust ýmsum þeirra þjóða til góðs.
Þannig fordæmdi Múhameð þann sið að
grafa óvelkomin, nýfædd meybörn lifandi og
kenndi fylgismönnum sínum að stúlkur væru
Guðs gjöf eins og drengir. Eins predikaði
hann gegn takmarkalausu eiginkvennahaldi
bedúína, heimilaði þeim í mesta lagi fjórar
konur, ef þeir gætu meðhöndlað þær af
sanngirni, annars skyldu þeir láta sér eina
nægja.
Í báðum þessum tilvikum voru kristnir
menn á miðöldum með háar siðferðiskröfur,
ívið hærri en Múhameð: hjá kristnum og
Gyðingum var einkvæni reglan, og hvarvetna
sem kristnin breiddist út, var barnaútburður
bannaður, jafnt í löndum Norður-Afríku og
víðar í rómverska heimsveldinu sem hér á
Íslandi. Þannig sjáum við, að kristnu fólki
færði Múhameðstrúin enga framför í þessum
málefnum. Öðrum – eins og bedúínum – varð
íslam hins vegar siðbót í þessu efni og mörg-
um öðrum að auki. Páfinn Benedikt hefur
líka lýst því yfir, að hann „ber einlæga virð-
ingu fyrir íslamstrú“ eins og fram er komið í
fréttum. Páfagarður endurtekur þar að auki
orð 2. Vatíkanþingsins (1962–65) sem lúta að
trú múslima, þ.e. í kirkjusamþykktunum Lu-
men Gentium, 16. gr., og einkum í Nostra
ætate (3), þar sem segir m.a., að kirkjan líti
með virðingu til múslima, þeir tilbiðji einn
Guð, ævarandi, miskunnarfullan og almáttk-
an, leitist við af öllu hjarta sínu að gefa sig
undir hans órannsakanlegu úrskurði, virði
siðlegt líferni og stundi Guðsdýrkun með
bæn, ölmusugjöf og föstu (sjá nánar
Kirkju.net). Af þessu er ljóst, að því fer
fjarri, að kaþólska kirkjan óvirði trú músl-
ima.
Allt eru þetta staðreyndir máls, sem vert
er að hafa í huga sem bakgrunn þeirra um-
ræðna, sem fram hafa farið eftir fyrirlestur
páfans í Regensburg.
Rétt og rangt í máli
Manúels í Miklagarði
Bænastund Páfi hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir ummæli sín um Íslam. Hér er hann á bænastund í Castel Gandolfo, 1. október sl.
„Af þessu er ljóst, að því fer fjarri, að kaþ-
ólska kirkjan óvirði trú múslima,“ segir í
þessari grein sem skoðar sögulegt og trú-
fræðilegt samhengi umdeildra orða Bene-
dikts páfa um íslam.
Höfundur er guðfræðingur og lagði stund á mið-
aldafræði við Cambridge-háskóla 1980–83.
»En hjá mörgum hinna
heiðnu þjóða tíðkaðist lítil
virðing fyrir konum, og þrátt
fyrir að múslimar njóti ekki
álits hér á Vesturlöndum
fyrir ástandið á því sviði, þá
var boðun íslams í þeim
efnum hikstalaust ýmsum
þeirra þjóða til góðs.