Morgunblaðið - 23.01.2006, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 29
Atvinnuauglýsingar
Oddur bakari
Afgreiðslustarf
Okkur vantar fólk í afgreiðslu í bakaríum okkar.
Upplýsingar gefur Oddur í síma 699 3677 eða
588 8801.
Raðauglýsingar 569 1100
Kennsla
Kyrrðardagar
í Skálholti
Á kyrrðardögum gefst kostur á andlegri og
líkamlegri hvíld og uppbyggingu í kyrrð,
helgi og sögu Skálholtsstaðar.
Næstu kyrrðardagar verða
helgina 27.-29. janúar
Leiðsögn: Dr. Einar Sigurbjörnsson og
sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir.
Slökun: Jóhanna Sigurðardóttir sjúkraþjálfari.
Meginstef: Sálmar Lúters á okkar tíð.
Upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla,
sími 486 8870, netfang: skoli@skalholt.is .
Velkomin á kyrrðardaga.
Styrkir
Kirkjubyggingarsjóður
Reykjavíkurborgar
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr
Kirkjubyggingarsjóði Reykjavíkurborgar
Hlutverk sjóðsins er að styrkja byggingar kirkna
og safnaðarheimila sókna í Reykjavík. Þá má
veita styrki til endurbóta og meiriháttar við-
halds kirkna í Reykjavík.
Umsóknum, sem greini frá fyrirhuguðum verk-
framkvæmdum, kostnaðaráætlun og öðrum
upplýsingum sem skipta máli svo sem fjár-
mögnun verksins og ársreikningunum, skal
skilað til formanns sjóðstjórnar, Jónu Hrannar
Bolladóttur, Ráðhúsi Reykjavíkur, fyrir 23. fe-
brúar 2006 merktum „Kirkjubyggingarsjóður
Reykjavíkurborgar“. Frekari upplýsingar um
sjóðinn fást hjá formanni sjóðstjórnar, tölvu-
póstfang jonahronn@gardasokn.is.
Félagslíf
MÍMIR 6006012319 III
Þorrafundur
HELGAFELL 6006012319 IV/V
Heimsókn til Heklu
HEKLA 6006012319 IV/V
GIMLI 6006012319 II
Þorrafundur
I.O.O.F. 19 18601238 E.I.
I.O.O.F.10 1861238
N.K. / M.T.W.
Heimsókn til Heklu 6006012319
Á SKÁKÞINGI Reykjavíkur,
sem að þessu sinni ber nafnið Skelj-
ungsmótið, er teflt um nafnbótina
Skákmeistari Reykjavíkur og sá
Reykvíkingur sem fær flesta vinn-
inga á mótinu mun fá hina eftirsóttu
nafnbót. Alls taka 58 skákmenn þátt
í mótinu og eru þeir á öllum aldri.
Drjúgur hluti þátttakenda er ungir
skákmenn og margir þeirra eru
nokkuð efnilegir. Elsti keppandinn
á mótinu er hins vegar hinn 84 ára
Bjarni Magnússon. Bjarni hefur
tekið þátt í ófáum skákmótum í
gegnum tíðina og teflt við flesta ef
ekki alla bestu skákmenn landsins.
Ein fyrsta skákin í bók Friðrik
Ólafssonar ,,Við skákborðið í ald-
arfjórðung“ er sigurskák Friðriks
gegn Bjarna sem tefld var þegar
fyrsti stórmeistari Íslendinga var
enn táningur að aldri. Það er lofs-
vert að Bjarni sé enn að og sýni
ungviðinu fram á sannleiksgildi hins
fornkveðna að hvað ungur nemur,
gamall temur.
Nokkur óvænt úrslit hafa litið
dagsins ljós á Skeljungsmótinu. Það
kemur reyndar ekki lengur á óvart
að hinn 12 ára Hjörvar Steinn Grét-
arsson (2.040) geri sér eldri og
reyndari skákmönnum skráveifu en
hann hefur m.a. lagt Hrannar Bald-
ursson (2.174) að velli á mótinu.
Framganga Haukamannsins Þor-
varðs F. Ólafssonar (2.132) hefur
vakið mesta athygli en hann bar
sigur úr býtum í þriðju umferð
gegn Benedikt Jónassyni (2.293).
Gaflarinn lét hér ekki staðar numið
heldur mætti hann vígreifur til leiks
gegn Sigurði Daða Sigfússyni
(2.339) í næstu umferð.
Hvítt: Þorvarður F. Ólafsson
(2.132)
Svart: Sigurður Daði Sigfússon
(2.339)
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5
Rfd7 5. Bd3 c5 6. c3 Rc6 7. Re2
Db6 8. Rf3 cxd4 9. cxd4 f6 10. exf6
Rxf6 11. 0-0 Bd6 12. Bf4 Bxf4 13.
Rxf4 0-0 14. b3 Kh8?
Það er algengt hjá skákmönnum
að flagga ekki tapskákum sínum en
Sigurður Daði vék sem betur fer frá
því þegar hann rakti þessa skák á
Skákhorni skákmanna á Netinu og
hrósaði andstæðingi sínum í há-
stert. Í máli hans kom fram að hann
hafði aldrei fyrr teflt franska vörn
og að í skákinni hefði komið í ljós að
hann hefði haft litla tilfinningu fyrir
stöðutýpunni þó að hann hefði fyrir
skákina lært helstu afbrigðin utan-
bókar. Í fræðunum hefur textaleik-
urinn þótt varhugaverður vegna
sóknar hvíts á kóngsvæng og hefur
svartur því yfirleitt leikið 14. …Re4
í stöðunni.
Sjá stöðumynd 1.
15. Rg5!
Þorvarður er alveg með á nót-
unum í stöðunni og sækir fram af
afli. Hótunin er nú 16. Rxh7 og
skynsamlegast er fyrir svartan að
leika 15. … g6 þó að staða hans sé
vissulega ekki öfundsverð.
15. … e5? 16. Rxh7! Rxh7 17.
Dh5 e4 18. Rg6+ Kg8 19. Dxd5+
Hf7 20. Bc4 Rd8 21. Dxe4
Hvítur hefur þrjú peð fyrir
manninn og sókn hans er ekki í rén-
un þar eð nú hótar hann illþyrmi-
lega De4-De8+. Reyni svartur að
verjast því með að leika 21. … Rf6
kæmi 22. Dh4! og svartur væri
óverjandi mát. 21. … Dc6 gengi
ekki heldur upp vegna 22. Re7+ og
drottning svarts myndi falla í valin.
Sjá stöðumynd 2.
21. … Re6
Austurrískur skákmaður lék
21. … Be6 árið 1998 gegn Nikolettu
Lakos, sterkri ungverskri skák-
konu, en laut í lægra haldi eftir 22.
d5 Bf5 23. Re7+ og hvítur fékk
unnið tafl.
22. d5 Ref8 23. d6! Dxd6 24.
Re7+ Kh8 25. Bxf7 og svartur gafst
upp enda er hann skiptamuni undir
og tveimur peðum.
Í fimmtu umferð tefldi Þorvarður
við alþjóðlega meistarann Stefán
Kristjánsson (2.476) og brá Hauka-
maðurinn á það ráð að leika 1. d4 í
stað þess að leika kóngspeðinu fram
um tvo reiti í fyrsta leik. Upp kom
Nimzoindversk vörn þar sem Stefán
náði hægt og bítandi undirtökunum.
Þegar staða hvíts var komin í algjör
óefni reyndi Þorvarður að veiða
andstæðinginn í gildru:c
Sjá stöðumynd 3.
Þorvarður lék hér 43. Be4 í þeirri
von að svartur tæki biskupinn eða
riddarann en Stefán sá við honum
með því að leika 43. … Hc2! og hvít-
ur lagði niður vopnin eftir 44. Rb5+
Ke7 þar sem eftir 45. Hxc2 Bxe4+
verður hvítur manni undir.
Eins og við mátti búast fyrirfram
hefur Stefán Kristjánsson forystuna
á mótinu með fullt hús vinninga að
loknum fimm umferðum. Alþjóðlegu
meistararnir Jón Viktor Gunnars-
son (2.421) og Bragi Þorfinnsson
(2.367) koma þar skammt á eftir
með fjóra og hálfan vinning. Þegar
þessar línur eru ritaðar var skák
Stefáns og Jóns Viktors í sjöttu um-
ferð ekki lokið.
Anand er efstur á
Corus-mótinu
Taflmennskan í A-flokki Corus-
mótsins hefur verið fjörug og hart
barist í hverri skák. Veselin Topalov
(2.801) lét það ekki á sig fá þó að
hann biði í lægri hlut gegn Michael
Adams (2.707) í annarri í umferð
þar sem í næstu tveim skákum bar
hann sigur úr býtum gegn Etienne
Bacrot (2.717) og Loek Van Wely
(2.647). Indverjinn Vishy Anand
(2.792) lagði Vassily Ivansjúk
(2.729) að velli í þriðju umferð og
svo Peter Leko (2.740) í þeirri
fimmtu. Hann er efstur á mótinu
með fjóra vinninga af fimm mögu-
legum en næstir koma Topalov og
Ivansjúk með 3½ vinning. Gata
Kamsky (2.686) hefur ekki náð sér á
strik á mótinu en hann hefur 1 vinn-
ing og er í neðsta sæti. Þessi mikli
baráttujaxl hefur lítið teflt undan-
farin tíu ár en er nú aftur kominn
fram á sjónarsviðið.
Í B-flokknum heldur hinn 15 ára
norski stórmeistari Magnus Carlsen
(2.625) áfram að skjóta sér eldri og
reyndari meisturum ref fyrir rass.
Alexander Beljavsky (2.626), einn
fremsti stórmeistari í heimi sl. ald-
arfjórðung, gafst upp gegn undra-
barninu eftir tuttugu leiki í skák
þeirra í fimmtu umferð. Þessi sigur
Magnusar þýddi að hann komst í
forystusætið í flokknum ásamt hin-
um 19 ára Arkadij Naiditsch (2.657)
með 4 vinninga en alls koma fjórir
skákmenn þar á eftir með 3½
vinning. Hægt er að fylgjast með
skákum A- og B flokksins í beinni
útsendingu á skákþjóninum ICC
sem og á heimasíðu mótshaldara,
www.coruschess.com.
Stefán efstur á
Skeljungsmótinu
SKÁK
Taflfélag Reykjavíkur
8.–27. janúar 2006
SKELJUNGSMÓTIÐ 2006
HELGI ÁSS GRÉTARSSON
daggi@internet.is
Bjarni Magnússon (84 ára), t.h., lætur ekki deigan síga í skákiðkun sinni.
Stefán Segatta lék fyrsta leiknum í Skeljungsmótinu í skák Daníels Péturs-
sonar og Stefáns Kristjánssonar.
Stöðumynd 3
Stöðumynd 1 Stöðumynd 2