Morgunblaðið - 23.01.2006, Page 30
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ERTU AÐ SEGJA AÐ ÉG SÉ
LEIÐINLEGUR?
ÉG?...LEIÐINLEGUR? HEYRÐU NÚ MIG, ELLA. LEYFÐU
MÉR AÐ SEGJA ÞÉR SÖGU
ÞAÐ VAR UM
DIMMA OG
STORMASAMA
NÓTT...
ERTU AÐ
SKRIFA NÝJA
SÖGU?
ÉG ER
GÓÐUR
TEIKNARI EF
ÞIG VANTAR
EINHVERN TIL
AÐ GERA
KÁPUNA
KÁPAN? HVAÐ MEÐ
BARDAGA Á MILLI
SJÓRÆNINGJA, KÚREKA OG
ÚTLENDINGAHERSVEITAR-
INNAR. ÁSAMT LJÓNUM OG
STELPU SEM ER BUNDIN VIÐ
KAFBÁT?
ÉG
ÆTLA AÐ
FÁ SMÁ-
KÖKUR
ÞETTA ER
EKKI AKTU
TAKTU. FARÐU
MEÐ HJÓLIÐ
FRAM!
ANDVARP! HELGA HELDUR AÐ ÞAÐ
SÉ EKKERT TÖFRANDI VIÐ
HJÓNABANDIÐ OKKKAR
Á ÉG AÐ KENNA ÞÉR NOKKRA
SPILAGALDRA?
SVONA NÚ, VIÐ
SKULUM REYNA AÐ
BURSTA AFTUR
LÆKNIR, ÞAÐ
KOM UPP SMÁ
VANDAMÁL!
HANN ER SVO
ANDFÚLL AÐ
HANN BRÆDDI
GÚMMIHANSKANA
PABBI
GISTI HJÁ
OKKUR Í
NÓTT
JÁ, ÉG
VEIT, ENDA
BARA EINS
GOTT
ÉG HÉLT VEISLU TIL
STUÐNINNGS KERRY Í
GÆR. VIÐ SÖFNUÐUM
300.000 KR.
ÞAÐ ER GOTT OG
BLESSAÐ EN ÉG HELD AÐ
ÞIÐ ÆTTUÐ AÐ TALA SAMAN
JÁ, RÉTTU
HONUM
SÍMANN
VIÐ SÖFNUÐUM
300.000 KR. HVAÐ
FINNST ÞÉR UM ÞAÐ,
KALLINN!?!
BÍDDU
BARA KELLA!
VEFURINN MINN HÆGÐI
NÆGILEGA Á HONUM TIL
ÞESSA AÐ ÉG GÆTI SLOPPIÐ
ÉG KANN
EKKI VIÐ AÐ
FLÝJA AF
HÓLMI...
...EN ÉG VERÐ
LÍTA Á M.J.
ÁFRAM! LEYFÐU MÉR
BARA AÐ TAKA
VESKIÐ MITT
Á MEÐAN...
Dagbók
Í dag er mánudagur 23. janúar, 23. dagur ársins 2006
Víkverji sat yfirsjónvarpinu á
laugardagskvöld. Á
meðan RÚV sýndi
heldur óspennandi
myndir með Söndru
Bullock og Jennifer
Lopez var sænska
sjónvarpið, SVT1,
með Roman Polanski-
kvöld; sýndi nokkrar
af bestu myndum
hans, Repulsion,
Cul-de-Sac, Knife in
the Water.
Allar eru þessar
myndir frá því í upp-
hafi ferils Polanskis
og allar eru þær fjarska sterkar
kvikmyndir, þó að þær séu kannski
ekki hans frægustu (myndirnar sem
hann gerði síðar í Bandaríkjunum
eru vitaskuld frægari; Rosemary’s
Baby, Chinatown... og svo hlaut Pol-
anski óskar 2002 fyrir Píanistann).
En spurningin er þessi: hvers vegna
gerir RÚV aldrei neitt svona þema-
tengt, hvers vegna eru menn þar á
bænum alltaf að rembast við að vera
„týpísk“ afþreyingarstöð? Að sýna
úrval mynda Romans Polanskis, svo
dæmi séu tekin, gæti vel flokkast
sem liður í margumtöluðu menning-
arhlutverki Ríkisútvarpsins. Að
sýna myndir með Söndru Bullock og
Jennifer Lopez gerir
það hins vegar seint.
x x x
Víkverji furðar siglíka á því hversu
RÚV gerir lítið af því
að kaupa erlenda
heimildarþætti. Ein-
staka Panorama-
þáttur frá BBC er að
vísu sýndur á RÚV en
mættu vera fleiri. Vík-
verji var síðan um
daginn að horfa á
þætti á einhverri nor-
rænu stöðvanna, man
ekki hverri, sem sann-
arlega hefðu mátt vera á dagskrá
RÚV. Þar var um arabíska þátt-
argerð að ræða, fjallaði um Saddam
Hussein og stjórnartíð hans í Írak.
Byggt var á viðtölum við ýmsa menn
sem stóðu Hussein og fjölskyldu
hans nærri en ekki síst á myndefni
sem aldrei nokkurn tímann hefur
komið fyrir sjónir Víkverja og fylgist
hann þó sæmilega með. Sennilega
var það sú staðreynd, að þættir þessi
voru arabískir (þulur talaði á arab-
ísku) sem hér skiptir sköpum. Arab-
ískir þáttagerðarmenn hafa líklega
aðgang að myndefni og að heimild-
armönnum, sem ekki alla jafna
verða á vegi bandarískra og breskra.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Sjanghaí | Hundur og maður mætast er yfirskrift myndlistarsýningar sem
opnuð var í Sjanghaí um helgina. Þar gat að líta þessa innsetningu sem sýnir
hjörð glansandi og prúðra leikfangahunda.
Um þessar mundir fagna Kínverjar vorhátíð, en hápunktur hennar er í
vikulok, þegar nýárið gengur í garð, ár hundsins.
Reuters
Ár hundsins að ganga í garð
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Allt sé hjá yður í kærleika gjört. (I.Kor. 16, 14.)