Morgunblaðið - 23.01.2006, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 2006 31
DAGBÓK
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
KÓPAVOGUR
HÚSNÆÐI OG BYGGINGARÉTTUR
Höfum fengið í sölu atv. húsnæði á
efri hæð alls um 400 fm, eigninni
fylgir byggingaréttur. Húsið er vel
staðsett með miklu útsýni sem
gefur möguleika á breytingu í
12-18 íbúðir. Aðalskipulagi hefur
verið breytt til að opna fyrir þennan
möguleika. Allar nánari uppl. veita
Hákon og Ellert á skrifstofu Gimli.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Lærum allar tungur en gleymum ekkiokkar eigin,“ er yfirskrift málþingssem Stofnun Vigdísar Finnbogadótt-ur í erlendum tungumálum og Náms-
leið í viðskiptatungumálum við Háskólann í
Reykjavík standa fyrir í Hátíðasal Háskóla Ís-
lands, miðvikudaginn 25. janúar, klukkan 15.30
til 17.30, og er það öllum opið.
„Tilefni málþingsins eru námskrárdrög í er-
lendum tungumálum fyrir grunn- og fram-
haldsskóla sem menntamálaráðuneytið hefur
óskað eftir viðbrögðum við,“ segir Auður
Hauksdóttir, dósent í dönsku við Háskóla Ís-
lands og forstöðumaður Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur. „Við höfum kynnt okkur ít-
arlega námskrárdrögin og höfum áhyggjur af
ákveðnum þáttum, ekki síst skerðingu þriðja
máls og tilfærslu á dönsku, eins og fram kemur
í skýrslu sem kynnt verður á málþinginu.“
Auður verður frummælandi á málþinginu
ásamt Oddnýju G. Sverrisdóttur, dósent í
þýsku og deildarforseta hugvísindadeildar Há-
skóla Íslands, og Margréti Jónsdóttur, dósent í
spænsku og umsjónarmanni tungumálaáherslu
Háskólans í Reykjavík. Þá mun Aðalsteinn
Leifsson, aðjúnkt í viðskiptadeild HR, flytja er-
indi undir yfirskriftinni: „Tungumálakunnátta:
Samkeppnisforskot í viðskiptum“. Og Ragnar
Sigurðsson, prófessor í stærðfræði við HÍ, talar
um „Tungumál, stærðfræði og raunvísindi“. Að
því loknu verða almennar umræður.
„Við höfum unnið skýrslu þar sem við förum
mjög ítarlega yfir námskrárdrögin og komum
með tillögur að annarri útfærslu, sem við telj-
um líklegri til að tryggja áframhaldandi góða
kunnáttu í erlendum tungumálum. Við teljum
brýnt að viðhalda þeirri sérstöðu Íslendinga að
kunna tiltölulega mörg tungumál, þrjú til fjög-
ur, nægilega vel til þess að geta t.d. stundað
nám við erlenda háskóla. Tungumálakunnátta
er nauðsynleg í atvinnulífinu og hún er óend-
anleg uppspretta menningarlegs margbreyti-
leika“.
Auður segir að mjög hafi dregið úr þeim
tíma sem varið sé til tungumálakennslu í skóla-
kerfinu í öðrum málum en ensku og sé það að
vissu leyti þvert á það sem aðrar þjóðir séu að
gera og gangi á svig við forsendur nám-
skránna. „Við höfum áhyggjur af því að færri
nemendur á framhaldsskólastigi stunda nám í
þriðja og fjórða tungumáli en undanfarna ára-
tugi,“ segir hún. „Íslendingar hafa einnig mikla
hagsmuni af því að kunna Norðurlandatungu-
mál. Það sést meðal annars á þeim gífurlega
fjölda íslenskra námsmanna, sem er við nám í
Danmörku, en þeir telja um 1.800 samkvæmt
upplýsingum frá Lánasjóði íslenskra náms-
manna. Þá er danska lykill að öllum sam-
skiptum við Norðurlandabúa. Við teljum það
einnig mikið hagsmunamál að íslenskir náms-
menn fái nægilegan undirbúning til þess að
geta lagt stund á háskólanám annars staðar í
Evrópu og í því sambandi hefur þriðja málið
verið lykillinn.“
Auður segir áberandi í námskrárdrögunum
mikla takmörkun þriðja máls á náttúrufræði-
brautum.
„Við teljum það tímaskekkju, því að þeir sem
leggja fyrir sig tækni, vísindi og viðskipti þurfa
einmitt á víðtækri tungumálakunnáttu að
halda.“
Að lokum leggur hún áherslu á að með þess-
um viðbrögðum við námskrárdrögunum sé ver-
ið að bregðast við hvatningu menntamálaráð-
herra.
„Við erum fagaðilar sem látum okkur annt
um að samkeppnisstaða og gæði einstaklinga
og þjóðfélagsins í heild rýrni ekki. Við munum
kynna sjónarmið okkar á málþinginu og koma
þeim síðan til menntamálaráðuneytisins.“
Málþing | Skýrsla um námskrárdrög í erlendum málum fyrir grunn- og framhaldsskóla
Auður Hauksdóttir
fæddist í Reykjavík
1950. Hún lauk BA-
prófi í dönsku og heim-
speki frá Háskóla Ís-
lands vorið 1977,
meistaraprófi í dönsku
frá Hafnarháskóla og
doktorsprófi frá sama
skóla 1998. Auður er
dósent í dönsku við Há-
skóla Íslands og for-
stöðumaður Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur frá 2001. Auður hefur kennt
dönsku á öllum skólastigum.
Áhyggjur af tungumálamenntun
„600 út.“
Norður
♠--
♥DG62 N/Allir
♦ÁKD1084
♣1076
Vestur Austur
♠K73 ♠Á108542
♥Á83 ♥K104
♦6532 ♦G
♣DG4 ♣853
Suður
♠DG96
♥975
♦97
♣ÁK92
Spilið að ofan er frá 6. umferð
Reykjavíkurmótsins og 600 var algeng
tala í NS fyrir níu slagi í þremur
gröndum. En á einu borði fengu AV
600 – fyrir að taka þrjú grönd sex nið-
ur!
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull 2 spaðar Pass
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vörnin á fjóra toppslagi og getur
sótt sér einn til með laufdrottningu út,
en spaði er eðlilegt útspil og þá ætti
sagnhafi að hafa betur. Skoðum málið:
Spaði út upp á ás og lauf um hæl (besta
vörn). Suður drepur og spilar spaða-
drottningu, sem vestur tekur og spilar
laufi. Sagnhafi drepur, tekur slag á
spaðagosa og hirðir síðan sex slagi á
tígul. Einfalt, ekki satt?
Sagnhafinn sem fór sex niður fékk
engan slag á tígul – hann svínaði tíg-
ulníunni eftir að hafa tekið svörtu slag-
ina þrjá heima. Austur fékk á gosann
blankan og svo átti vörnin afganginn.
„Hvernig datt þér í hug að svína,
maður!“ Sveitarfélagarnir voru gramir
og hneykslaðir. En suður gaf sig
hvergi: „Ég hefði skammast mín fyrir
að vinna spilið – enginn segir tvo spaða
á hættunni með Á10 smátt sjötta og
jafna skiptingu. Það var bara óheppni
að einspilið í tígli skyldi vera gosinn.“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. a3 Bb7 5.
Rc3 g6 6. Dc2 Bxf3 7. exf3 Bg7 8. Bg5
h6 9. Be3 d5 10. 0–0–0 0–0 11. h4 Rc6
12. g4 dxc4 13. Bxc4 Ra5 14. Ba2 Rd5
15. Rxd5 exd5 16. f4 c5 17. dxc5 d4
Staðan kom upp á minningarmóti
Keresar sem lauk fyrir skömmu í Tall-
inn í Eistlandi. Hinn 18 ára Nikita
Vitiugov (2.538) frá Rússlandi hafði
hvítt gegn hinum heillum horfna of-
urstórmeistara Alexey Shirov (2.710).
18. Bxd4! Bxd4 19. Dxg6+ Kh8 20.
Dxh6+ Kg8 21. g5 Dc7 22. g6 Dxc5+
23. Kd2 Be3+ 24. fxe3 hér hefði verið
öflugra að leika 24. Ke1 Bxf2+ 25. Kf1
og svartur getur ekki forðast mát með
góðu móti. 24. … Rc4+ 25. Bxc4
Hfd8+ 26. Kc2 26. Kc3 var öflugra þar
sem eftir 26. … De3+ 27. Kc2 De4+
28. Kb3 hefur hvítur gjörunnið tafl.
26. … Dxc4+ 27. Kb1 De4+ 28. Ka1
fxg6?! 28. … Hxd1+ hefði veitt meira
viðnám. 29. Hdg1 Kf7 30. h5 og svart-
ur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Enn um Fréttablaðið
ÞAÐ væri gaman ef óháður aðili
eins og Gallup gerði könnun á
lestri og útburði Fréttablaðsins.
Fréttablaðið hefur ekki sést í
minni götu frá því í nóvember en
ég bý í Fossvogi. Fréttablaðið er
alltaf að gorta yfir því að það sé
mest lesna blaðið, hvað er að
marka það ef blaðið skilar sér ekki
til lesenda?
Eins stafar mikill sóðaskapur af
pökkum af Fréttablaðinu sem eru
rifnir upp út á götu og látnir rigna
niður og svo fýkur þetta út um allt
í hverfinu.
Eins er Sjónvarpsvísirinn hætt-
ur að koma og Birtu sér maður
ekki lengur.
Lesandi í Fossvogi.
Ábending
ÉG vil koma á framfæri áskorun
til ráðamanna sem ráða launa-
stefnunni í þjóðfélaginu. Þeir ættu
að leggja niður þessa prósentu-
hækkun á öll laun. Þó að láglauna-
maðurinn fái 10% þá fer það upp
allan stigann, þannig að há-
tekjufólkið fær einnig 10%, sem er
meiri hækkun í krónutölu en lág-
launamaðurinn fær.
Láglaunamaður.
Að græða peninga
ÉG hlustaði á útvarp sl. fimmtu-
dagsmorgun. Í þættinum var mað-
ur sem auglýsti að hann gæti af-
ruglað fólk þannig að það gæti
hætt að reykja – og kostaði við-
talið sem var 50 mínútur 16.500
kr. Mér blöskraði þetta því þarna
er verið að notfæra sér erfiðleika
annarra og græða á því peninga.
Elísabet.
Myndavél í óskilum
SONY-myndavél fannst í Þing-
holtsstræti í Reykjavík á móts við
gamla Borgarbókasafnið, laugar-
daginn 14. jan. sl. Upplýsingar í
síma 567 5967 eftir kl. 18.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Eldri borgarar spila brids (tvímenn-
ing) alla mánu- og fimmtudaga í fé-
lagsmiðstöðinni. Skráning kl. 12.45 á
hádegi. Spil hefst kl. 13. Þátttökugjald
kr. 200. Kaffi og meðlæti fáanlegt í
spilahléi.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínsmálun kl. 9, handavinnu-
stofan opin kl. 13, brids kl. 13, fé-
lagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45
og glerskurður kl. 13, í Kirkjuhvoli.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 sund og
leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Frá
hádegi spilasalur opinn. Kl. 13.30 kór-
æfing. Miðvikud. 25. jan. er farið á
listsýningar í Gerðarsafni í Kópavogi,
lagt af stað kl. 13.30. Föstud. 27. jan.
kl. 16 opnuð listmunasýning Sigrúnar
Björgvins., m.a.syngur Gerðubergs-
kórinn.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Perlusaumur,
almenn handavinna, kaffi, spjall, dag-
blöðin. Kl. 10 bænastund. Kl. 12 há-
degismatur. Kl. 15 kaffi.
Hraunbær 105 | Föstud. 27. jan.
verður þorrablót. Húsið opnar kl.
17.30 Þorrahlaðborð hefst kl. 18.
Verð kr. 3000. Skráning í síma
587 2888 og á skrifstofu fyrir 25.
janúar. Fjölmennið og takið með ykk-
ur gesti.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Pútt kl. 10. Ganga kl. 9.30. Tréskurður
kl. 13. Félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu kl. 9–16, mósaik, ull-
arþæfing og íkonagerð. Jóga kl. 9–11.
Frjáls spilamennska kl. 13–16. Böðun
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14. við-
talstími hjúkrunarfræðings kl. 9.30–
11. Leikfimi í dag kl. 9. Boccía kl. 10.
Vinnustofur opnar frá kl. 9–16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður
kl.9–16.30. Söngstund kl. 10.30. Fé-
lagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund,
fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Fastir liðir eins og
venjulega. Minnum á Tungubrjóta
mánudaga kl. 13.30, félagsvist þriðju-
daga kl. 14, söng fimmtudaga kl. 14.
Skráning hafin á myndlistarnámskeið
sem hefst 31. jan. kl. 9–12. Þorrablót
3. feb. Dagskrá send heim sé þess
óskað. S. 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Opið hús kl. 13–16.
Vilborg leiðbeinir við handverk og sér
um kaffiveitingar. Akstur annast Auð-
ur og Lindi, s.565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í kvöld kl. 20.30 í Gullsmára.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids kl. 13. Kaffitár með ívafi kl.
13.30. Línudanskennsla kl. 18. Sam-
kvæmisdans, framh. kl. 19 og byrj-
endur kl. 20. Skemmtun og kynning á
FEB, haldin í félagsheimilinu á Sel-
tjarnarnesi miðvikud. 25. jan. kl. 16.
Fjölbreytt dagskrá. Veitingar. Nám-
skeið í framsögn 7. febr. Uppl. og
skáning í síma 588 2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9–12
handavinna, kl. 9.30 boccía, kl. 9.30
gler- og postulínsmálun, kl. 13.15
lomber, kl. 17 kóræfing, kl. 20.30
skapandi skrif. Ath: Enn er laust pláss
á námskeið í tréskurði.
fyrir hádegi. Fótaaðgerðir s.
588 2320.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir þeir
sömu. Námskeið í ljóðagerð hefst í
dag kl. 16. Framsagnarhópur þriðjud.,
opinn tími og miðvikud., framhalds-
hópur kl. 10–12. Tölvunámskeið kl. 13
laugard. Þorrablótið er 27. jan. Send-
um dagskrá í pósti eða netbréfi sé
þess óskað. Síminn er 568 3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogslaug kl. 9.30 á morgun.
Laugardalshópurinn Blik, Laug-
ardalshöll | Leikfimi fyrir eldri borg-
ara í Laugardalshöll kl. 12.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 11.30
upplestur, kl. 13–16.30 opin vinnu-
stofa.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9–12.30, bókband og bútasaumur kl.
9–13, hárgreiðsla og fótaaðgerð-
arstofur kl. 9, morgunstund kl. 9.30,
boccia kl. 10–11, handmennt almenn
kl. 13–16.30, glerbræðsla og frjáls
spilamennska kl. 13.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Bæna og helgistund
kl. 10 í félagsmiðstöðinni Hraunbæ
105. Umsjón sr. Þór Hauksson og
Kristina Kalló Szklenár.
Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8.
bekk í Hjallakirkju kl. 20–21.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2
kl. 19. Nýtt námskeið að hefjast. Það
er enn laust. Allir velkomnir. www.-
gospel.is - www.alfa.is
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut
58–60 miðvikud. 25. jan. kl. 20.
„Hann bjargar hinum snauða.“ Bjarni
Gíslason kristniboði talar. Nokkur orð:
Jarle Reiesen. Kaffi. Allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
OPNI listaháskólinn efnir til
tveggja fyrirlestra í dag og á
morgun í Listaháskóla Íslands.
Kl. 12.30 í dag fjallar Sigurjón
Haraldsson, markaðs- og þróun-
arstjóri hjá Ambia ehf., um það
hvernig hægt sé að gera hugverk
að markaðsvöru með skipulögðu
ferli og vinnubrögðum við ný-
sköpun, hugmynda-, rannsóknar-
og þróunarvinnu. Einnig hvernig
megi greina markaðsþarfir. Fyr-
irlesturinn verður í stofu 24 í
Laugarnesi.
Á morgun fjallar Ilmur Stef-
ánsdóttir myndlistarmaður um
verk sín síðustu fimm árin, í stofu
17 í Listaháskólanum, Skipholti
1, stofu 113. Ilmur sýnir vídeó-
verk og ljósmyndir. Verkin fjalla
um hluti í umhverfi okkar, hvern-
ig við nálgumst þá, hvaða virkni
þeir hafa og hvort skoða megi þá
út frá nýju sjónarhorni. Áhugi
Ilmar varðandi hluti beinist mest
að hegðun fólks í kringum þá og
þá kannski helst óvenjulegri
hegðun.
Fyrirlestrar í Opna listaháskólanum