Morgunblaðið - 20.02.2006, Page 20

Morgunblaðið - 20.02.2006, Page 20
20 F MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar íbúðir til sölu Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200 Eingöngu örfáar stórglæsilegar íbúðir eftir við Sóltún. Fjölbýlishúsin eru frábærlega staðsett og nútímalega hönnuð. Húsin eru á 4–7 hæðum. Tvær íbúðir á hæð í hverjum stigagangi og innangengt er úr sameiginlegu bílageymsluhúsi beint í stigagang og lyftu. Íbúðirnar eru bjartar, með stórum gluggum sem sums staðar ná niður í gólf. Lofthæð er meiri en almennt er og flestar íbúðirnar hafa tvennar svalir. Sérstök áhersla er lögð á þægindi. Hljóðeinangrun er eins og best verður á kosið og gólfhiti er í íbúðunum. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergjum og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Innréttingar eru mjög vandaðar og hægt er að velja á milli þriggja viðartegunda í innréttingum og innihurðum. Íbúðirnar eru 2ja–3ja herbergja, 97–130 fm. Verð frá 34,4 millj. með sérstæði í bílageymslu. SÓLTÚN – REYKJAVÍK 2–3ja herbergja 3ja herbergja Aðeins ein falleg 108 fm íbúð eftir í Klapparhlíð. Íbúðin verður afhent fullbúin án gólfefna að undanskildu þvottahúsgólfi og baðherbergi sem verða flísalögð. Húsið er með lyftu og þarfnast lítils viðhalds. Það er staðsett í fallegu umhverfi með skjólgóðu útivistarsvæði. Verð 25,1 millj. 2ja herbergja Aðeins ein falleg 90 fm íbúð eftir. Íbúðin verður afhent fullbúin án gólfefna að undanskildu þvottahúsgólfi og baðherbergi sem verður flísalagt. Húsið er með lyftu og þarfnast lítils viðhalds. Það er staðsett í fallegu umhverfi með skjólgóðu útivistarsvæði. Verð 21,7 millj. KLAPPARHLÍÐ – MOSFELLSBÆ fyrir 50 ára og eldri NORÐURTÚN – EGILSSTÖÐUM 4ra herbergja Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is 5 herbergja Aðeins ein glæsileg tæplega 140 fm íbúð eftir í fjögurra íbúða húsi. Húsið er einangrað að utan og klætt með flísum og harðviði. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna en baðherbergi og þvottahúsgólf eru flísalögð. Skóli og leikskóli í næsta nágrenni. Verð 32,9 millj. 4ra herbergja Glæsilegar 108–122 fm íbúðir í 3ja hæða stigahúsi. Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergi og þvottahús- gólf eru flísalögð. Skóli og leikskóli í næsta nágrenni. Verð frá 23,8 millj. 3ja herbergja Glæsilegar 97–103 fm íbúðir í 3ja hæða stigahúsi. Íbúðir afhendast fullbúnar án gólfefna en baðherbergi og þvottahús- gólf eru flísalögð. Skóli og leikskóli í næsta nágrenni. Verð frá 19,7 millj. Í Norðurtúni eru til sölu stórskemmtileg einbýlishús. Húsin eru sérbýli á einni hæð með bílskúr. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með litaðri bárumálmklæðningu og að hluta með litaðri viðarklæðningu. Þakið er klætt með krossvið og bárumálmklæðningu. Húsunum er skilað frágengnum að utan og rúmlega fokheldum að innan. Lokið er við gangstíg að anddyrum íbúða og framan við bílskúr er jarðvegsskiptum lokið. Húsin eru af stærðinni 172–194 fm. Afhending er samkomulag. Verð frá 22,1 millj.ÞRASTARHÖFÐI – MOSFELLSBÆ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.