Morgunblaðið - 20.02.2006, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 F 35
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Kári Fanndal Guðbrandsson,
Sigrún Sigurpálsdóttir,
lögg. fasteignasali.
S. 562 1200 F. 562 1251
TRAUST
ÞJÓNUSTA Í
ÁRATUGI
ÞÓRÐARSVEIGUR
2ja herb., 71,1 fm íbúð á 2. hæð. Íbúðin er
stofa, opið eldhús, gott svefnherb., baðherb.,
þvottaherb. og forstofa. Fullbúin, falleg íbúð.
Verð 16,5 millj.
LOGAFOLD
Höfum í einkasölu glæsilegt ca 340 fm
einbýlishús á frábærum stað í Loga-
foldinni. Húsið er tvílyft. Á efri hæð er
stofa með flottum arni, stórglæsilegt
eldhús/borðstofa, svefnherb.gangur
með þremur svefnherb. og baðherb.,
eitt forstofuherb., snyrting og forstofa.
Innaf eldhúsi er gott þvottaherb. og
búr. Gengið er úr stofu, hjónaherb. og
þvottaherb. út í garð. Á neðri hæð er stórt hol/fjölskylduherb., sjónvarpsherb. og
stórt frístundaherb. Stór innb. bílskúr og innaf honum geymsla. Eldhúsið er end-
urnýjað á mjög glæsilegan máta með fallegri og vandaðri innréttingu ásamt
vönduðum tækjum. Á gólfum er gegnheilt parket og flísar. Mikil lofthæð. Falleg-
ur og skjólgóður garður. Hús fyrir vandláta kaupendur. Verð 64,0 millj.
NÝTT EINBÝLISHÚS VIÐ REYKJAHVOL
Dreymir þig um: Glæsilegt, vel skipu-
lagt einbýlishús? Tvöfaldan bílskúr?
Víðáttumikið og fagurt útsýni? Að vera í
einbýlishúsahverfi þar sem engin hætta
er á að stórar blokkir taki af útsýni?
Vera á einstaklega veðursælum og ró-
legum stað á mörkum borgar og sveit-
ar? Allt þetta og meira til býðst þér
með kaupum á þessu einbýlishúsi,
sem er 252 fm, til afhendingar strax, fokhelt, fullgert utan og lóð mikið unnin. All-
ur frágangur mjög vandaður. Hafðu samband við okkur og við segjum þér meira
og sýnum þér eignina.
GAUKSHÓLAR - MEÐ BÍLSKÚR
Höfum í einkasölu 5 herb. endaíbúð, 128,5
fm og 25,8 fm bílskúr. Íbúðin er á 4. hæð með
miklu útsýni. Skiptist í stofu, 4 svefnherb.,
eldhús og innaf þvi er vinnuherbergi og
geymsla, baðherb., snyrtingu, gang og hol.
Þrennar svalir. Nýlegar, fallegar innréttingar
og góð gólfefni. Tvær lyftur. Góð sameign.
Frábær eign fyrir barnafólkið eða aðra sem
þurfa rúmgóða íbúð á sanngjörnu verði.
Verð 23,7 millj.
FREYJUGATA
Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3. hæð. Eignin er
77,4 fm og skiptist í 2 bjartar saml. stofur,
rúmg. hjónaherb., eldhús, baðherb. og hol.
Nýlegt gott eldhús og endurnýjað baðherb.
Parket. Þetta er gullfalleg íbúð á mjög eftir-
sóttum stað. Algjör draumaíbúð unga
fólksins. Verð 18,8 millj.
VANTAR ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR
FASTEIGNA Á SÖLUSKRÁ
MET var sett í sölu eldri fasteigna í
Kanada á nýliðnu ári, samkvæmt
upplýsingum frá Húsnæðisstofnun
Kanada.
Árið 2005 skiptu 481.900 fasteignir
utan nýbygginga um hendur í Kanada
og hafa aldrei fleiri sölur átt sér stað í
landinu. Um 460.700 fasteignir voru
seldar árið 2004 og um 435.000 árið
þar á undan, um 418.000 árið 2002 og
um 380.000 árið 2001.
Gert er ráð fyrir að salan dragist
saman í ár og fari niður í 461.500 íbúð-
ir. Árið 2007 er talið að um 444.000
íbúðir skipti um hendur.
Þetta á samt ekki við um eigenda-
skipti í Saskatchewan og Manitoba. Í
fyrrnefnda fylkinu er gert ráð fyrir að
sala á eldri íbúðum fari úr 8.500 í
fyrra í 8.800 í ár og 8.700 2007. Í Mani-
toba er því spáð að fasteignasala auk-
ist úr 12.750 eldri.
íbúðum í fyrra í 13.500 í ár og 14.500
næsta ár.
Samfara almennum samdrætti í
sölu er áætlað að fasteignaverð hækki
minna en að undanförnu eða um 5,5%
á þessu ári og um 3,8% á því næsta.
Met í sölu
eldri
fasteigna
Morgunblaðið/Steinþór
Talið er að verð á eldri íbúðum í Winnipeg haldi áfram að hækka í ár og 2007.
Á HÓLUM í Hjaltadal eru nú þrjú
hús í byggingu með alls 22 íbúðum.
Þessar íbúðir eru ætlaðar nemend-
um Háskólans á Hólum sem fjölgar
ár frá ári.
Þetta er þriðji áfangi í byggingu
nemendagarða skólans, en áður hafa
verið byggðar 43 íbúðir. Húsin sem
eru þriggja hæða standa öll sunn-
arlega í byggðakjarnanum á Hólum.
Bygging þeirra hófst í ágúst sl. og
uppsteypu lauk rétt fyrir jól. Ólafur
Friðriksson byggingameistari reikn-
ar með að skila einu húsinu á þessu
ári og tveimur á árinu 2007. Þeim er
skilað fullfrágengnum utan sem inn-
an ásamt frágenginni lóð.
Að sögn Skúla Skúlasonar rektors
Hólaskóla eru átta íbúðir liðlega
fimmtíu fermetrar að stærð og hinar
eru tæplega hundrað fermetra. Þar
sem til þessa hefur mest verið byggt
af litlum íbúðum er meirihlutinn nú
þriggja og fjögurra herbergja enda
er algengt að nemendur séu með
börn með sér meðan þeir eru í námi á
staðnum.
Skúli segir að stefnt sé á að halda
áfram byggingu nemendaíbúða á
Hólum því aðsókn að skólanum sé
mjög mikil. Ekki sé þó ákveðið enn
hvenær byrjað verði á fjórða áfanga.
Þegar byrjað var á byggingu hús-
næðis fyrir nemendagarðanna árið
2003 var gerður samningur við
Byggingafélagið Þrá ehf. Þrá er í
eigu Friðriks Jónssonar sf. á Sauð-
árkróki og Kaupfélags Skagfirðinga.
Samningurinn felur í sér að Þrá
byggir íbúðirnar og sér um fjár-
mögnun þeirra að 10% hluta en 90%
fást með láni frá íbúðalánasjóði.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Á Hólum í Hjaltadal eru nú þrjú hús í byggingu með alls 22 íbúðum, sem eru ætlaðar nemendum Háskólans á Hólum.
Tuttugu og tvær íbúðir í byggingu á Hólum
Eftir Örn Þórarinsson
ornalb@hvippinn.is
BJARNABORG var fyrsta eigin-
lega fjölbýlishúsið hér landi, en það
var reist 1902. Húsið byggði Bjarni
Jónsson sem bar viðurnefnið snikk-
ari og var húsið kennt við hann.
Bjarnaborg var í einkaeign til árs-
ins 1917 en þá keypti borgin það og
fékk fátækranefndin það til um-
ráða.
Morgunblaðið/Ásdís
Bjarnaborg