Morgunblaðið - 20.02.2006, Qupperneq 36
36 F MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
V
ið Þingholtsstræti 3 í Reykjavík rís
óðum 52 herbergja hótel sem sækir
innblástur sinn til íslenskrar nátt-
úru, huldufólks og íslenskra lista-
kvenna. Hótelið mun bera nafnið Hótel Þing-
holt og mun það vera nýtískulegt
„design“-hótel sem sækir innblástur sinn til ís-
lenskrar náttúru og býður upp á flest þau ver-
aldlegu gæði sem hægt er að óska sér á hóteli.
Það er Eik fasteignafélag, sem lætur byggja
hótelið, en Kristófer Olíversson, sem rekur
Centerhótel Reykjavík, leigir reksturinn.
Jafnframt því sem andi íslenskrar náttúru og
veraldlegra gæða mun svífa yfir vötnum er
ljóst að andi íslenskrar sjálfstæðisbaráttu mun
einnig sveipa ganga hótelsins ljóma. Af
hverju? Jú, Þingholtsstræti 3 hýsti áður Hið
íslenzka bókmenntafélag og Stofnun Jóns Sig-
urðssonar, en bæði bókmenntafélagið og
stofnunin mörkuðu spor í frelsisbaráttu Ís-
lendinga.
Til þess að ráðast í jafn vandasamt verkefni
réðu forsvarsmenn Eikar fasteignafélags til
sín einn af þekktari arkitektum landsins, Guð-
laugu Jónsdóttur. Guðlaug hefur undanfarin
ár starfað hjá Dodd Mitchell Design í Los
Angeles. Þar hefur hún m.a. tekið þátt í hönn-
un glæsihótela í Kaliforníu og víðar, á borð við
Crescent Hotel í Beverly Hills, Hollywood
Roosevelt í Hollywood og Hotel Valencia í
bæði San Jose og San Antonio.
„Hönnun Hótels Þingholts er nútímaleg en
jafnframt klassísk, þar sem notast er við nátt-
úruleg efni og jarðliti. Við inngang hótelsins er
svartur langur steinveggur með foss sem
rennur niður vegginn, ýmist undir eða yfir
svartar handunnar grímur af íslensku huldu-
fólki,“ segir Guðlaug Jónsdóttir aðspurð um
tilvonandi útlit hótelsins. Hún bætir því við að
ótilgreind íslensk listakona sé að skapa svörtu
glergrímurnar við innanginn.
Samstarf við íslenskar listakonur
„Mér hefur alltaf fundist áhugavert að leiða
saman arkitektúr og list og mér finnst íslensk-
ar listakonur svo frábærar að ég er að skoða
það að fá 52 íslenskar listakonur til liðs við
mig. Hótelið telur 52 herbergi og ég myndi
gjarnan vilja gefa hverri fyrir sig eitt herbergi
fyrir sína list. Þá verða líka engin tvö herbergi
eins – málverk, skúlptúrar hangandi úr loft-
inu, komandi út úr veggjunum og þar fram
eftir götunum,“ segir Guðlaug.
Þrátt fyrir að Norður-Ameríka, Norður-Atl-
antshafið og átta klukkustundir skilju vinnu-
stað Guðlaugar í Los Angeles að frá Eik í Sól-
túninu hófst hún handa við að teikna Hótel
Þingholt árið 2004 og framkvæmdir hófust í
lok ágúst 2005. Og strax í sumar mun Hótel
Þingholt opna dyr sínar fyrir fyrstu gestun-
um.
Auk þess sem Eik fasteignafélag óskaði eft-
ir því að Guðlaug teiknaði nýtískulegt „de-
sign“-hótel þurfti að gæta þess að byggingin
félli vel að umhverfinu. Teiknistofa Halldórs
Guðmundssonar (THG) var fengin til þess að
vera augu og eyru Guðlaugar á Íslandi, auk
þess sem þeim var falið að samræma hönn-
unina að íslenskum lögum og reglum. Þá var
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen (VST)
fengin til þess að sjá um aðra hönnun á borð
við burðarvirki. Fyrirtækin Alefli ehf. og Virki
ehf. voru ráðin sem byggingarverktakar.
Hljóðeinangraður skemmtistaður
Uppkomið mun Hótel Þingholt saman-
standa af Þingholtsstræti 3 og 5 og verða hús-
in tvö tengd með hurðum á hverri hæð. Eins
og áður segir mun hótelið alls hafa 52 herbergi
og gestamóttakan verður á jarðhæð Þing-
holtsstrætis 3, en gert er ráð fyrir veitingastað
og sérstaklega hljóðeinangruðum skemmti-
stað í kjallara Þingholtsstrætis 5.
Framkvæmdirnar hafa ekki gengið átaka-
laust fyrir sig, þar sem aðstæður í Þingholts-
stræti eru erfiðar. Gatan er þröng og aðliggj-
andi hús mjög nálægt framkvæmdasvæðinu.
„Þau vandamál sem upp hafa komið hefur
okkur undantekningalaust tekist að leysa með
farsælum hætti. Það kann að hljóma ótrúlega
en fjarlægðin í tíma og rúmi hefur ekki haft
nein áhrif á framgang verksins. Allar teikn-
ingar eru að sjálfsögðu tölvugerðar og sendar
í tölvupósti, auk þess sem símafundir eru
haldnir tvisvar í viku. Síðan skrepp ég að sjálf-
sögðu heim með reglulegu millibili,“ segir
Guðlaug.
Í anddyri hótelsins er þægilegt rými með svörtum leðurflísum á gólfi og veggirnir hafa rússkinskennda „venetian plaster“-áferð. Í anddyrinu mun einnig
vera lítill bar og leðursófar og borð með hvítum bólstruðum fiskiroðs-vegg í bakgrunninum.
Nýtt hótel rís við
Þingholtsstræti 3
„Við inngang hótelsins er svartur langur stein-
veggur með foss sem rennur niður vegginn, ým-
ist undir eða yfir svartar handunnar grímur af
íslensku huldufólki,“ segir Guðlaug Jónsdóttir
arkitekt um anddyri Hótels Þingholts. Hér gefur
að líta herbergi á Roosevelt-hótelinu í Los Ang-
eles, en herbergið ber nafn kvikmyndastjörn-
unnar þokkafullu Marilyn Monroe.
„Ég vil helst aldrei endurtaka það sem ég hef
gert áður, en þó vottar fyrir því að sömu efni séu
notuð með áberandi hætti í Hótel Þingholti og
notuð voru í hönnun Roosevelt-hótelsins í Los
Angeles, til dæmis hnotuviður, gler og steypa,“
segir Guðlaug Jónsdóttir arkitekt.
Morgunblaðið/Ómar
Horft eftir Þingholtsstræti. Framkvæmdir við hótelið standa nú sem hæst.
Guðlaug Jónsdóttir