Morgunblaðið - 20.02.2006, Side 60
hún komist í
lungun, þar er
hennar uppá-
haldsstaður og
þar getur hún
látið til sín taka
svo um munar.
Staðreyndin er
sem sagt þessi;
þó hún fari í
maga með vatni
má hún sín
einskis, en ef hún fer með and-
ardrætti í lungun er hætta á ferð-
um. En það er ástæða fyrir því að
enn og aftur er fjallað um legíó-
nellu hér er að sí og æ er verið að
finna nýjar varnir gegn henni, ekki
síst í þeim löndum þar sem hún er
skæðust. Og það kanna að virka
sem þversögn þegar sagt er að hún
er skæðust á sjúkrahúsum, þar
þarf helst að varast hana. Hún tek-
ur sér oft bústað í heita vatninu,
eða réttara sagt í leiðslunum og
getur dafnað þar og fjölgað sér við
viss skilyrði. Tæplega þarf að ótt-
ast hana í heimahúsum vegna þess
hvað heita vatnið hjá okkur er
heitt, nánast alltaf yfir 70°C. Þó er
þar að verða breyting á því þeim
fjölgar sem ekki vilja hafa krana-
vatnið svo heitt og talsvert er um
að húsbyggjendur láti setja varma-
skipta í sín hús til að fá ekki hita-
veituvatn í kranana. Þá er kalt vatn
hitað upp með hitaveituvatni,
stundum ekki meira en upp í 50 –
60°C og þá fer það að nálgast að
vera lífvænlegt fyrir legíónellu-
.Hennar kjörhiti er 37°C en hún
getur sem best lifað og jafnvel
fjölgað sér í vatni frá 20°C upp í
50°C.
En hvernig kemst hún í lungun
og af hverju er hún varasömust á
sjúkrahúsum? Hún kemst helst í
lungun þegar farið er í sturtu ef
menn anda að sér fínum vatnsúða.
Vegna þessarar hættu hafa fram-
Hvarvetna í iðnvæddumlöndum eru menn ávarðbergi gegn bakteríunokkurri sem almennt
er kölluð legíónella. Í flestum lönd-
um Vestur- Evrópu verða þó nokk-
ur dauðsföll á ári hverju af hennar
völdum og á síðasta ári varð a. m.
k. eitt dauðafall hér á landi, líklega
vegna smits erlendis. Fleiri áttu í
höggi við þessa bakteríu, þó menn
lifi af getur það tekið nokkuð lang-
an tíma að vinna bug á veikinni.
Ekki er þó þessi baktería á nokk-
urn hátt lík hinni mjög svo skelfi-
legu fuglaflensubakteríu, sem virð-
ist eiga að skelfa landslýð með í
hverjum fréttatíma, einkanlega í
sjónvarpi. Ekki loku fyrir það skot-
ið að í þessum fréttum finni sjón-
varpsmenn svo mikið af krassandi
myndum þar sem hvít- og grímu-
búnir menn ganga hraustlega fram
í því að troða lifandi fiðurfé í poka
og æða síðan um með sótthreins-
andi sprautur, úðandi yfir allt og
alla.
Legíónellan er af allt öðru sauða-
húsi, hefur tryggan þegnrétt á Ís-
landi og er enginn nýbúi. Hún
finnst í lækjum, vötnum og mýrum
hérlendis og það er engin áhætta
að leggjast flatur út í náttúrunni og
teyga tært og kalt vatn úr lækjar-
sprænu eða tjörn. Þó nokkrar
legíónellur fylgi með skaðar það
engan, efalaust hafa margir hér-
lendis svolgrað fjölmargar legíó-
nellur.
Nú kann að vera að sumir les-
endur hafi svo gott minni að þeir
muni eftir því að áður hefur verið
fjallað í þessum pistlum um þetta
sama litla kvikindi, legíónellu pneu-
mophila eins og hún heitir fullu
nafni. Í íslenskri þýðingu mætti
kalla þessa bakteríu „lítinn her sem
elskar lungu“. Þar erum við einmitt
komin að kjarna málsins, þessi
baktería gerir engan skaða nema
leiðendur sturtubúnaðar dregið úr
eða hætt framleiðslu á örfínum
sturtuhausum sem sundra baðvatn-
inu í örsmáa dropa, þess vegna er
„ömmuhausinn“ grófi orðinn vin-
sælastur aftur. Á sjúkrahúsum er
reynt að halda vatnshita frekar lág-
um til að fólk skaði sig ekki og þar
eru að sjálfsögðu þeir sem eru
veikastir fyrir, það getur skipt
sköpum.
En þetta allt er nú aðeins formáli
að því sem hér átti að kynna. Það
merka fyrirtæki Tour & Andersson
í Svíþjóð þekkja flestir lagnamenn,
þaðan hefur komið úrvalsvara, að-
allega ventlar og mælitæki. Nú er
komið þaðan nýtt tæki, legíónellu-
bani. Þetta er tæki sem er sett á
inntak neysluvatns og vinnur ekki
beint á bakteríunni heldur eyði-
leggur „hagann“ og drepur hana úr
hor. Í öllu vatni eru margskonar
efni og í öllum leiðslum myndast líf-
ræn himna innan í rör og rörahluta.
Það er vitað að þetta gerist enn
frekar í plastleiðslum en þó í málm-
leiðslum einnig. Þetta nýja tæki frá
T & A vinnur þannig á vatninu að
þessi lífræna himna myndast ekki í
rörunum. Og þar með er ekki leng-
ur um tún og engi að ræða fyrir
legíónelluna, bakteríur þurfa svo
sannarlega að afla sér ætis eins og
aðrar lifandi verur. Hafi hún kom-
ist inn í kerfið verður henni ekki
langra lífdaga auðið og getur hún
þar með ekki aukið kyn sitt.
Þetta tæki er kjörið til að setja á
vatnsinntök sjúkrahúsa og stofnana
þar sem hætta er á að þetta kvik-
indi geti komist inn og fjölgað sér
og þar sem fjölmargt fólk með
skert ónæmiskerfi getur orðið fórn-
arlömb.
Tækið er til í tveimur stærðum,
annars vegar stóra tækið fyrir
stofnanir, það getur afkastað 25
rúmmetrum af vatni á klukkustund,
og hinsvegar það litla sem afkastar
5 rúmmetrum.
Veikindi af völdum legíónellu
voru fyrst skilgreind í Fíladelfíu í
Bandaríkjunum árið 1976, en legíó-
nella hefur eflaust valdið mörgum
dauðsföllum áður og þá hefur það
verið skilgreint sem einhverskonar
inflúensa. Í Fíladelfíu sýktust á
einu bretti 182 einstaklingar, flestir
uppgjafahermenn á ráðstefnu á
hóteli, en þó nokkrir veiktust einnig
sem í sakleysi sínu gengu fram hjá
hótelinu. Þess vegna var þessi veiki
í upphafi kölluð hermannaveiki og
um 15% þeirra sem þarna veiktust
dóu.
En hvers vegna veiktust ein-
hverjir sem gengu eftir gangstétt-
inni fyrir framan hótelið? Það kom
í ljós að bakterían lifði í loftræsi-
kerfinu sem var með rakagjafa. Þar
fann legíónellan kjöraðstæður til
lífs og tímgunar. Tók sér síðan far
með loftinu sem úr kerfinu kom og
í lungu viðstaddra. Útblástur kerf-
isins var beint yfir gangstéttinni
þar sem fólk kom og fór eða gekk
framhjá og það andaði að sér loft-
inu og því sem það flutti, þessum
örsmáu kvikindum sem elska lungu.
Legíónella gerði strandhögg hérlendis
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is
Sigurður Grétar
Guðmundsson
Legíónellubanann frá T&A er auðvelt að tengja við hvaða vatnsinntak sem er. Hann þarf einnig að raftengja.
60 F MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ