Morgunblaðið - 20.02.2006, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 20.02.2006, Qupperneq 62
62 F MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fólk er alltaf að taka til, dytta aðeinhverju, bæta og mála. Áðurnotuðu menn einkum góða veðrið á vorin og sumrin til þessara verka, en nú, þegar liggur við að segja megi að það sé gott veður allan ársins hring, að minnsta kosti á höf- uðborgarsvæðinu, fellur mörgum aldrei verk úr hendi, jafnt úti sem inni. Jafnvel á miðjum þorra var málað sem aldrei fyrr. Fjölskyldufyrirtæki í 52 ár Fyrir rúmlega 50 árum kom Sig- urður Sigurðsson málari, Mál- arabúðinni við Vesturgötu á lagg- irnar. Oft var ys og þys í litlu fjölskylduversluninni þar til fjöl- skyldan hætti rekstri hennar 1987. Tímarnir voru breyttir og stórar verslanir tóku við hlutverki þeirra sem ruddu brautina á þessu sviði sem svo mörgum öðrum. Börn Sigurðar og makar þeirra hafa samt haldið uppteknum hætti að hluta og reka Rúllugerðina ehf. við Vatnagarða 14 í Reykjavík. Það- an hefur K. Richter hf. dreift máln- ingarrúllunum í verslanir eins og til dæmis stórverslanir Byko og Húsa- smiðjunnar. „Við framleiðum málningarrúllur og erum fyrst og fremst í samkeppni við innfluttar rúllur,“ segir Sigurður Sævar Sigurðsson. „Við erum einu innlendu framleiðendurnir sem eftir eru og teljum okkur vera með betri vöru en flutt er inn en samkeppnin er mikil. Allir vilja fá vörurnar sem ódýrastar og það er erfitt að keppa við fjöldaframleiðslu frá Asíu en við höldum áfram á meðan málararnir og almenningur vilja kaupa rúll- urnar okkar í öllum helstu bygginga- vöruverslunum og málningarverk- smiðjum.“ Sigurður Sigurðsson byrjaði með Málarabúðina 1954 og fljótlega hóf hann að framleiða málningarrúllur með dyggri aðstoð Egils Egilssonar. „Hann var málari og þurfti sjálfur málningarvörur en vegna hafta var ekki hægt að flytja þessar vörur inn og því hóf hann framleiðslu á máln- ingarrúllum um fjórum árum eftir að hann byrjaði með verslunina,“ segir Sigurður Sævar. „Til að byrja með var framleiðslan gerð af van- efnum enda erfitt með alla aðdrætti en fljótlega vatt hún upp á sig og nú kaupum við hráefni héðan og þaðan og setjum rúllurnar saman.“ Mörg handtök Töluverð vinna liggur að baki hverri rúllu. Áklæðið kemur í stórum ströngum og að meðaltali er hægt að gera um 1.000 rúllur úr hverjum stranga. Þegar búið er að sníða stærðirnar er efnið saumað saman og því síðan snúið við í þar til gerðri vél. Efnið er síðan sett upp á plasthólk og lokað fyrir á endunum með sérstakri vél. Enn ein vélin er síðan notuð til að taka ló úr rúll- unum. „Þetta er eins og fönd- urstofa,“ segir Guðfinna Agnars- dóttir, eiginkona Sigurðar Sævars. Björg Sigurðardóttir, systir Sig- urðar Sævars, segir að mikið hafi breyst frá því faðir þeirra byrjaði í rúllugerðinni. „Hann lét sér ekki nægja að setja hina ýmsu hluti sam- an heldur skrapp niður í búð á kvöld- in til þess að mála rúllusköftin. Þá var líka notað lím til að halda efninu á hólkunum,“ segir hún og bendir á fyrstu rúlluna máli sínu til stuðn- ings. Sex manns starfa við Rúllugerð- ina, Sigurður Sævar, Guðfinna, Björg, Þorkell Helgason, eig- inmaður hennar, Ásta Jónsdóttir og Arnbjörn Ásgrímsson. Sigurður Sævar segir að áður fyrr hafi salan verið mest á vorin og sumrin en í seinni tíð hafi salan verið jafnari allt árið. „Nú er málað meira jöfnum höndum allt árið, byggingar rísa hratt og þörfin fyrir málningarrúllur er því meiri en áður.“ Um 100 vörunúmer Sigurður Sigurðsson var mikill íþróttamaður og keppti meðal ann- ars í þrístökki, langstökki og há- stökki á Ólympíuleikunum í Berlín 1936. Í íþróttunum þarf sérstaka skó fyrir ákveðnar íþróttagreinar og það er eins í málningunni – sérstakar rúllur þarf fyrir mismunandi fleti og hinar ýmsu tegundir af málningu. Rúllugerðin er með um 100 vöru- númer og þar á meðal má til dæmis sjá perlonmálningarrúllur fyrir plast- og olíumálningu, gljámálning- arrúllur fyrir hálfmatta og glansandi plastmálningu og vatnsþynnt park- etlakk, gæða málningarrúllur fyrir ójafna fleti, lakkmálningarrúllur fyr- ir hálfmatta og glansandi olíu- málningu, hraunmálningarrúllur með svampundirlagi fyrir grófa og ójafna fleti, svampmynsturrúllur fyrir mynstur- og hraunmálningu og ekta glansmálningarrúllur fyrir plastmálningu með miklum gljáa á gifsplötur og aðra slétta fleti. „Rúllurnar hafa í eðli sínu ekki breyst mikið en þegar plastið kom til sögunnar og leysti járnið í hólkunum og handföngunum af hólmi varð gjörbylting í framleiðslunni,“ segir Sigurður Sævar. „Við höfum ætíð vandað vel til verka og lagt metnað okkar í að vera með góða vöru sem við getum afgreitt samdægurs. Þess vegna erum við enn að.“ Hafa framleitt málning- arrúllur í hálfa öld Plasttappar eru settir á rúllurnar með þar til gerðri vél. Guðfinna við vélina sem tekur ló úr rúllunum. Systkinin Björg og Sigurður Sævar við stranga sem eftir á að sníða. Sigurður Sævar á lager Rúllugerðarinnar þar sem eru rúllur af mismunandi stærðum ætlaðar fyrir mismunandi fleti og hinar ýmsar tegundir málningar. Björg Sigurðardóttir „matar“ vélina sem snýr efninu við á hólkunum. Guðfinna Agnarsdóttir pakkar málningarsetti; málningarbakka og rúllu. Sigurður Sævar Sigurðsson með fyrstu rúlluna, tæplega 50 ára gamla, í vinstri hendi og nýja rúllu í þeirri hægri. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.