Morgunblaðið - 10.03.2006, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
GESTIR franska kappakstursins í
Formúlu-1 í ár fá óvæntan glaðning í ár
því breska sveitin Pink Floyd mun
troða þar upp. Tilefnið er m.a. að þess
verður minnst að 100 ár eru liðin frá
því fyrsti Grand Prix-kappakstur
heims var haldinn en mót það fór fram
í Sarthe-brautinni í Frakklandi 1906.
Til að minnast tímamótanna – og
um leið vekja athygli á kappakstrinum
í Magny Cours mánuði seinna – efnir
franska akstursíþróttasambandið
(FFSA) til aksturs sögufrægra bíla um
götur Parísar snemma í júní og sýn-
ingar á þeim. Pink Floyd treður upp á
föstudegi kappaksturshelgarinnar í
Magny Cours. Þar mun Roger Waters
með aðstoð trommarans Nick Mason,
sem er annálaður áhugamaður um
kappakstur, flytja tónverkið „Dark Side
of the Moon“.
Pink Floyd rokkar
í Magny Cours
Í BÍLAÞÆTTINUM Top Gear á Skjá
einum á sunnudag verður sýnt innslag
frá Íslandi. Breskir sjónvarpsmenn
komu til landsins í annað sinn með þau
fyrirmæli í farteskinu að gera eitthvað
skemmtilegra en síðast. Og útkoman
varð óvenjuleg; sýnt verður frá akstri
torfærujeppa á Kleifarvatni – já, á
vatninu sjálfu! – og spyrnukeppni
torfærujeppans og vélsleða á sama
vatni. Þá er í þættinum einnig fjallað
um BMW-bifreið með dísilvél sem
framleiðandinn segir vera bæði hag-
kvæmari og kraftmeiri en bensínvél.
Þátturinn er á dagskrá kl. 19 á sunnu-
dag.
Top Gear aftur á Íslandi
andi fyrir aðra vegfarendur. Í sumum
tilfellum jafnast það á við þá truflun
sem notkun háu ljósanna veldur um-
ferð úr gagnstæðri átt. Ef ökumaður
verður var við það að verið er að
blikka hann með þokuljósum þá er
það líklegast merki um það að hann sé
UMFERÐARSTOFA bendir á að
mjög mikið beri á ofnotkun þokuljósa
meðal ökumanna. „Umferðarstofa vill
minna á að þokuljós skal aðeins nota
þegar það er þoka og þá aðeins í dreif-
býli. Ef þokuljós eru notuð þegar eng-
in þoka er geta þau verið mjög trufl-
að nota þokuljósin að óþörfu – við að-
stæður þar sem notkun þeirra er
truflandi fyrir aðra umferð.Umferð-
arstofa vill hvetja ökumenn til að
blikka þokuljósum á þá ökumenn sem
nota þokuljósin þar sem og þegar það
á ekki við.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þokuljós á ekki að nota nema skyggni sé verulega slæmt.
Ber á ofnotkun þokuljósa
NOKKRIR af stærstu bíla- og elds-
neytisframleiðendum í Evrópu
bundust nýlega samtökum um að
auka notkun óhefðbundinna elds-
neytis á kostnað hefðbundins. Nýju
samtökin nefnast Alliance for
Synthetic Fuels í Europe (ASFE)
og koma að stofnun þeirra m.a.
Renault, Volkswagen, Daimler-
Chrysler, Royal Dutch Shell og
Sasol Chevron. Á ráðstefnu, sem
frumkvöðlarnir héldu í tilefni af
stofnun samtakanna, kom fram að
eitt brýnasta verkefni þeirra væri
að hraða þróun brennisteinslauss
eldsneytis sem unnið er úr m.a.
gasi eða lífrænum efnum með svo-
nefndri Fischer Tropsch-aðferð.
Lífrænir og þar með endurnýjan-
legir orkugjafar myndu enn fremur
draga mest úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda eða um allt að 90% og
bæri því að leggja mesta áherslu á
þróun þeirra. Samhliða þyrfti að
huga að öðrum þáttum s.s. mark-
aðssetningu og dreifingu þessara
nýju eldsneytisgerða.
Bíla- og
bensínfram-
leiðendur
vilja grænt
eldsneyti
SVO virðist sem gæðaátak Opel sé farið að skila árangri ef marka má nýlegar niðurstöður í þýskum
fjölmiðlum. Þannig eru bílarnir frá Opel taldir vera með mestu gæðin meðal þýskra bíla, samkvæmt
gæðakönnun þýska bílatímaritsins Auto Bild árið 2006. Í skýrslunni er lagt mat á áreiðanleika, lang-
tímagæði, þjónustu og ánægju viðskiptavina.
Þetta staðfestir jákvæðar niðurstöður annarra nýlegra gæðakannana. Samkvæmt háskólanum í
Bamberg er Opel sú bílategund sem söluaðilar eru ánægðastir með hvað gæðin varðar og samkvæmt
neytendakönnuninni „Car Check“ í Stuttgart er Opel með lægstu bilanatíðnina af öllum evrópskum
bílaframleiðendum.
Skúli Sigurðsson, þjónustustjóri Ingvars Helgasonar, segir að átak Opel í gæðamálum undanfarin
ár sé að skila sér. Auto Bild notar margar mismunandi leiðir til að finna bestu bíltegundina í árlegri
gæðakönnun sinni og má þar nefna skoðanakönnun sem nær til 24.000 bílaeigenda, TÜV-skýrsluna
svonefndu og niðurstöður langtíma prófana á bílum.
Opel hefur tekið stórstígum framförum í gæðum, ef marka má niðurstöður Auto Bild.
Opel bestur samkvæmt Auto Bild
JHM sport opnar í dag nýja og endurbætta verslun
og verkstæði. Af því tilefni verður slegið upp léttri
skemmtun fyrir utan verslunina á Stórhöfða 35 þar
sem trialsíþróttin verður kynnt auk þess sem 2006-
árgerðirnar af GasGas- og TM-hjólum verða til sýnis.
Hjólalyftur sem ráða við hjól í öllum stærðarflokk-
um, allt frá klifurhjólum upp í fullvaxta Gold-
wing-hlunka, verða kynntar en æ fleiri festa kaup á
slíkum tækjum til að hafa í bílskúrnum. Trialsstjarn-
an Steve Colley sýnir kúnstir sínar og jafnvægisæf-
ingar á trialshjólinu sínu fyrir utan JHM, en lögð
hefur verið lítil trialsbraut fyrir kappann. Þarna
verður því boðið upp á klifur, stökk, reykspólskeppni
á „pittbike“, trialsklúbburinn Palli mætir á svæðið og
margt fleira. Hefst dagskráin klukkan 18:30 og
stendur til 20:30. Menn geta lagt bílum sínum á plan-
inu við JHM Sport meðan pláss leyfir en eftir það er
mönnum bent á að nóg er af bílastæðum í kring. Boð-
ið verður upp á léttar veitingar.
Trialsstjarnan Steve Colley sýnir listir sínar í kvöld.
Klifurhjólasýning
á Stórhöfða
CITROËN er að setja nýjan bíl á markað í Kína sem byggður er á
C4, sem selst hefur í yfir 280.000 eintökum um allan heim frá því
hann kom á markað í fyrra. Í Kína heitir billinn C-Triomphe.
Þetta er nútímalegur bíll með öllum þeim eiginleikum sem ein-
kenna C4 en er blanda af stallbak og hlaðbak að aftan. C-
Triomphe er framleiddur í Wuhan á grunni C4 en er með lengra
hjólhaf. Hann var frumkynntur í Kína 18. febrúar sl. en kemur
ámarkað á öðrum árshluta 2006. Með markaðssetningu C-
Triomphe er Citroën að tryggja enn frekar stöðu sína á kínversk-
um bílamarkaði, sem er einn sá álitlegasti í heimi um þessar
mundir. Á síðustu 14 árum hefur Citroën selt 600.000 bíla í Kína.
Citroën naut sérstakrar velgengni í Kína á síðasta ári þegar
söluaukningin varð 34%. Alls seldust á árinu 100.000 bílar.
C-Triomphe fyrir Kína
BMW í Bandaríkjunum framleiddi í
vikunni 1.000.000. BMW-inn, aðeins 12
árum eftir að verksmiðja BMW Manu-
facturing Co. var reist í Spartanburg í
Suður-Karólínu. Það fylgir jafnframt
sögunni, að hann hafi verið af gerðinni
Z4 M Roadster, sem er einn hrað-
skreiðasti blæjubíllinn frá BMW, eins
og sjá má á því, að hann fer 0–100 km/
klst. á einungis 4,9 sekúndum. Sem sá
milljónasti í röðinni, hefur bíllinn sögu-
legt gildi fyrir BMW og hefur honum
því verið fundinn staður í BMW safninu
Zentrum Museum í Spartanburg. Í ár
eru enn fremur 10 ár liðin frá því BMW
endurvakti blæjuhefðina í flokki úrvals-
bíla með Z3 blæjubílnum. Z4, næsta
kynslóð Z línunnar, leit dagsins ljós ár-
ið 2002 og naut ekki síðri vinsælda en
forverinn.
BMW Z4 Roadster.
Meira en milljón BMW