Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 10.03.2006, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MARS 2006 B 9 bílar Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 FJAÐRIR OG GORMAR Í FLESTAR GERÐIR JEPPA Japan/U.S.A. ÞAÐ kemst enginn Íslendingur með tærnar þar sem Þórður Tómasson fisk- verkandi hefur hælana þegar kraftmikl- ir bílar eru annars vegar. Í þessu tilviki má segja að um það bil ein kvartmíla sé á milli hæla hans og tánna á hinum. Þórður hefur síðastliðin ár keypt til landsins þrjú öflug keppnistæki fyrir kvartmílukeppni. Núna hefur hann far- ið alla leið og látið smíða fyrir sig í Bandaríkjunum þetta ógnvænlega keppnistæki sem hér sést á myndum. Yfirbygging tækisins er úr plasti og ber svip af Pontiac TransAm, en lengra nær samlíkingin við TransAm bíla ekki. Vélin er 8,6 lítra Hemi, sem skilar 3.800 hestöflum og brennir alkóhóli. Til þess að mega stýra tækinu í kvartmílu- keppni þarf Þórður að fara í ökuskóla og bera skírteini upp á vasann. Ætlar að reyna að slá Evrópumetið í kvartmílu Þórður ætlar að prófa tækið á næst- unni í Bandaríkjunum, en ætlar svo að flytja bílinn til Evrópu og keppa í Sví- þjóð eða Englandi í sumar. Evrópumet- ið í kvartmílu fyrir „Top Alcohol Funny Car-flokknum“, eins og þessi bíll telst tilheyra, er 5,66 sekúndur á 422 km endahraða á klst. og ætlar Þórður að reyna að slá það. Hann spáir því að nýi bíllinn muni ná rúmlega 430 kílómetra endahraða, sem eitt og sér er ofsahraði, en þegar sú staðreynd er tekin með í reikninginn að bíllinn fer aðeins rúma 402 metra (kvartmíla) til að ná þessum hraða, þá skilur maður betur þá ógn- arkrafta sem leysast úr læðingi þegar Þórður „stígur alkóhólið í botn“. Kvartmílubrautin í Kapelluhrauni er of stutt og mjó til að hægt sé að taka eina alvöru bunu á tækinu hér heima, en Þórður útilokar samt ekki að hann komi með bílinn hingað síðar og fari smá sýningarferð. Það er því tilvalið fyrir áhugasama að fylgjast vel með komandi keppnistímabili í kvartmílu, því auk ofurtækisins sem hér er um rætt hafa fleiri öflug keppnistæki verið flutt til landsins í vetur. Keppnisdagar kvartmílunnar í sumar verða 20. maí, 10. og 21. júní, 8. og 22. júlí og 13. og 26. ágúst. Þórður kveðst kæra sig koll- óttann um skoðanir þeirra sem telja hann ekki vera alveg í lagi. „Ég safna bílum en aðrir safna hinu og þessu. Ef maður getur þetta því þá ekki að leyfa sér það.“ Þórður stefnir að keppni og afrekum á nýja ofurbílnum. Viltu koma í stórfiskaleik? Vélin er engin smásmíði þegar hún er komin í grindina. Skrápnum lyft þannig að innyflin blasa við í Stórfiskinum. Furðufiskurinn hans Þórðar er oftenntur en vissulega ógnvænlegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.