Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 14
14 | 19.3.2006 gera Ísland að stærstu álbræðslu í heimi er um fimmtíu ára gömul. Iðnaðarráðu- neytið hefur stefnt að þessu marki allan þennan tíma. Það er aðeins tilviljun að hér á Íslandi eru ekki 4000 starfsmenn hjá „versta fyrirtæki í heimi“. Þjóðin skapaði sér önnur tækifæri. En markmiðið er enn til staðar og áfram unnið að því.“ En víkjum að titli bókarinnar, Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, er þjóðin hrædd? „Bókin hét þetta mjög fljótlega í tölvunni hjá mér. Kannski stuðar þetta suma en akkúrat núna held ég að þjóðin sé orðin skíthrædd. Einn daginn segir fyrirsögn að við séum ríkasta þjóð í heimi, næsta dag erum við sú skuldugasta, tilfinningalíf okkar sveiflast eftir dægursveiflum greiningardeilda, samt breytist ekki það sem mestu máli skiptir,“ segir Andri og vísar til umræðunnar um efnahagsmál sem hef- ur verið hávær undanfarið. „Stórar ákvarðanir á síðustu árum hafa oftar en ekki verið byggðar á ótta við framtíðina fremur en að menn séu að fylgja ákveðnum markmiðum. Í staðinn fyrir að vera með lang- tímamarkmið um hvað við ætlum að verða eða viljum standa fyrir er eins og við séum alltaf að bjarga okkur fyrir horn.“ Heróínhagkerfi – annars drukknum við öll! Andri segir að oft sé litið á veruleikann sem þunnan ís fremur en að hann sé lagskiptur. Bresti ísinn þá drukknum við öll. Með lag- skiptingu á hann hins vegar við að þótt eitt lagið hverfi þá taki annað við, t.d. ef stóriðjan hætti þá sköpum við okkur líf í öðrum veru- leika. „Össur er stoð atvinnulífsins, en stoð Össurar er einfætlingar. Væri slæmt ef fólk hætti að missa útlimi? Það er augljóst að allir myndu finna sér eitthvað annað að gera,“ segir Andri. Í bókinni vísar Andri m.a. til orða Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, í viðtali við RÚV fyrr á þessu ári þegar hann sagði: „… það liggur alveg ljóst fyrir að ef við nýtum ekki orkulindir landsins mun hagvöxtur drag- ast verulega saman strax á árinu 2007 og þá mun atvinuleysi aukast.“ Andri segir að veru- leikanum sé sífellt stillt upp á einfaldaðan hátt. „Þetta er nákvæmlega sama mynstur og kom upp fyrir Kárahnjúkavirkjun. Hún átti að gera okkur rík en svo kemur í ljós að ef ekki er haldið áfram, kemur atvinnuleysi. Sífelld yf- irvofandi kreppa hefur verið notuð til að stýra fólki,“ segir Andri og bætir við að ráðherrann sé í raun að segja að við þurfum að halda áfram að virkja og byggja fleiri álver því annars verðum við atvinnulaus; við drukknum öll. „Kreppuhugsunin er til staðar, meira að segja þegar það er mínusatvinnuleysi. Þetta er vegna þess að leiðtogar ákveða að leiða ekki þjóðina heldur stjórna. Þeir hafa tekið að sér að fá hugmyndirnar og skilgreina framtíðina. Afleiðing af þessu er eins og öfug sjálfstæð- isbarátta, eða ósjálfstæðisbarátta. Það er ekki gengið út frá því að þú getir gert allt og að þjóðin geti orðið það sem hún vill heldur að hún verði að fylgja einum mögu- leika. Við stefnum í framtíð sem er ekki það sem viljum verða heldur það sem við teljum okkur neyðast til að verða.“ Þú fjallar mikið um tungumálið í bókinni þinni, hvernig hefur það áhrif á skynjun okkar á veruleikanum? „Ég held að það hafi heilmikil áhrif. Eins og t.d. þetta með hagvöxtinn. Hag- vöxtur getur komið frá stríði, rányrkju, eyðileggingu eða slysum en orðið gerir eng- an greinarmun á hvort hann er góður eða vondur. Orðið er frumstætt og gróft. Þetta er svolítið eins og líffræðingar notuðu bara orðið lífmassi en gæfu fjölbreyti- leika lífsins eða einstökum tegundum ekki gildi. Lífmassi hefði t.d. aukist í janúar og það væri þá talið gott en ekkert fjallað um að allar súlurnar í Eldey hafi dáið út og lífmassinn sé þörungablómi í Þingvallavatni og rottuplága í Grindavík,“ tekur Andri sem dæmi. „Þá má velta fyrir sér hversu mikill hagvöxtur undanfarinna ára hafi verið illkynja hagvöxtur. Var þetta frekar heróín- hagvöxtur þar sem það þarf alltaf stöðugt nýja og nýja sprautu? Er það frjálst val okkar að færa allar þessar fórnir til að verða stærsti ál- framleiðandi í heimi eða er þetta ótti við fram- tíðina?“ Fimm ára áætlun Stalíns Andri segir að æðstu leiðtogar hafi veruleg áhrif á umræðuna í samfélaginu. Þeir setji tón- inn fyrir það sem er rætt á kaffistofum lands- ins. „Ef ráðherra spyr í ræðustóli á Alþingi: „Hvað annað?“ þá endurómar það um allt þjóðfélagið,“ segir Andri og vísar til þeirrar spurningar sem er oft borin upp í umræðu um stóriðju: Hvað annað á fólkið að gera? „Mér finnst þetta eiginlega ólögleg spurning. Ef Stalín kemur með fimm ára áætlun og þú ert ekki mjög hrifinn af henni er eins og krafan sé að þú eigir að koma með aðra fimm ára áætl- un. Ef hann segir ál þurfi ég að segja stál eða magnesíum til að vera marktækur í um- ræðunni. Nútímasamfélög vaxa ekki á þennan hátt. Spurningin, en hvað á að gera í staðinn, er órökleg eins og að spyrja tónlistarmann: En hvaða lag ætlar þú að semja næst?“ Andri bendir á að fólk sé uppfullt af hug- myndum. Meðan við séum að vinna að einni hugmynd séum við hins vegar ekki að vinna að annarri. „Þetta er einhvers konar þjóðardá- leiðsla í kringum þetta „hvað annað?“ Stjórn- völd í öðrum löndum skipuleggja ekki hag- vöxt fram í tímann. Þau breyta kannski lagaumhverfi en ætla ekki að búa til hagvöxt eins og þau reyna að gera hér. Á hverju eiga Danir að lifa? Hvað eiga þeir að gera? Hvað eiga Svíar að gera?“ spyr Andri. Þú fjallar talsvert um stóriðjustefnu stjórn- valda og fyrirtækin sem hefur verið boðið að FRÁ FANTASÍU TIL RAUNSÆIS Þegar nýr forsætisráðherra tók við embætti var það hans fyrsta verk að breyta grundvallarstærð sem var stimpluð í huga þjóð- arinnar. Hann lækkaði Hvannadalshnjúk úr 2119 metrum í … ég man það ekki. Ég veit ekki lengur hvað fjallið er hátt. Fastur punkt- ur í tilverunni kallar núna á heila umræðu um hæð tindsins. En hæðin vísar ekki á nein grundvallaratriði, enga vísindalega byltingu, enga hugarfarsbreytingu. Næst þegar ég ætla að tala um Vatna- jökul mun samtalið ropþrúgast ofan í þetta holræsi sem ráðherrann bjó til: Umræðuna um hæð Hvannadalshnjúks. Þetta ristir hugs- anlega dýpra. Hjá stórum hluta þjóðarinnar gekk barnaskólalær- dómurinn einmitt út á að leggja á minnið tölur eins og 2119. Hæðin á Hvannadalshnjúk var notuð til að mæla greind barna. Sá sem mundi töluna 2119 sýndi að hann gæti líklega orðið læknir eða lög- fræðingur í framtíðinni. Óli tossi skrifaði 2112 á prófi og féll og fór að lokum í hundana. Í því ljósi er þetta óþægilegt. Hafði Óli rétt fyrir sér? Var hann efnilegur eftir allt saman Ég velti samt fyrir mér hversu meðvituð þessi þróun gat verið. Hverjum hentaði að setja viðmiðin á flot svo fólk geti ekki lengur talað saman? Ég get ekki talað um unglingsárin án þess að segja að 7. bekkur heiti reyndar 8. bekkur og 9. bekkur heiti núna 10. bekk- ur sem er sami bekkur og gamli landsprófsbekkurinn. VIÐMIÐIN Á FLOT Draumalandið – sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð Andri Snær ásamt vini sínum Árna Heiðari Karlssyni píanóleikara við mót Kringilsár og Jöklu um 15 km frá Kárahnjúkum. Útrétt hönd Andra Snæs við Kringilsá en það svæði fer undir vatn þegar Kárahnjúkastíflan verður tilbúin. „Kannski stuðar þetta suma en akkúrat núna held ég að þjóðin sé orðin skíthrædd.“ Hvað gerist ef herinn fer? Hann yfirgefur samtals 400.000 fermetra af húsnæði. Það samsvarar sjö Smáralindum. Íslenska þjóðin myndi öll rúmast inni í þessum húsum ef haldið væri eitt allsherjar kokteil- boð. Þarna losna skrifstofur, verslunarhúsnæði, veitingastaðir, mötu- neyti, barir, sjúkrahús, skólar, leikskólar, hafnaboltavellir, sparkvellir, skautahöll, keilubrautir, íþróttahús, flugskýli, bílskúrar. Þarna er heilt þorp tilbúið til afhendingar, malbikað og tyrft. Herinn yfirgefur 900 íbúðir sem eru byggðar eftir íslenskum stöðlum. Þarna eru götur, gangstéttir og leiksvæði. Herinn yfirgefur svæði sem ekki er til í huga flestra Íslendinga. Við sjáum húsin en samt ekki, staðurinn er ímynd- un, heilt þorp utan landamæra okkar, annar heimur, huldubyggð. Hverfið er aðskilið frá Keflavík með Berlínarmúr en gæti auðveldlega runnið saman við bæinn. Í 400.000 fermetrum hljóta að felast tæki- færi. Eitthvað er illa farið en margt er nýlegt. Húsin eru í hálftíma fjarlægð frá vaxandi höfuðborg og steinsnar frá alþjóðaflugvelli, mitt á milli Evrópu og Ameríku, en einhvernveginn þykir mönnum erfitt að sjá augljósa möguleika. HVAÐ ÞEGAR HERINN FER?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.