Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 23
19.3.2006 | 23
Fyrir fáeinum árum var haldin kvikmyndahátíð í Reykja-vík. Meðal mynda þar var umtöluð heimildarmyndum líf og starf klámmyndaleikkonu sem vildi hefja sig
upp yfir metnaðarleysi starfs síns og freista þess að setja
heimsmet í linnulausum samförum. Annabelle Chong, eins
og hún hét, ætlaði að freista þess að leggja 300 menn í síbylju
en varð að snúa frá af heilsufarsástæðum eftir mann númer
251.
Austurbæjarbíó var þéttsetið þetta síðdegi og ég man að
áhorfendur voru almennt ungt fólk u.þ.b. 16–18 ára. Þegar
átakanlegt líf Annabelle hafði gengið í um það bil þriðjung
kom til sögunnar þekktur klámmyndaleikari af karlkyni og
þegar andlit hans birtist á tjaldinu án kynningar í fyrstu brut-
ust út innileg fagnaðarlæti í salnum, fólk klappaði og æpti
upp yfir sig.
Sem snöggvast vakti það undrun mína að þetta unga fólk
skyldi vera svo vel heima í veröld klámmyndanna að þau
þekktu í sjónhending andlit frægustu
stjarnanna en svo rann það upp fyrir
mér að ég var staddur í bíói með klám-
kynslóðinni.
Sagt er að á sjötta áratugnum hafi
markaðsöfl í samvinnu við fjölmiðla
fundið upp unglinginn og rokkararnir
hafi verið fyrsta unga kynslóðin sem
fann til samkenndar gegnum mjög út-
breidda neyslu á sömu tónlist og tísku.
Svo kom bítlakynslóðin, þá hipparnir,
diskókynslóðin, pönkararnir og „eitís
kynslóðin“ eða X-kynslóðin eins og mér skilst að hún sé
stundum kölluð. Svo var það krúttkynslóðin og nú skilst mér
að yngstu vaxtarsprotarnir séu klámkynslóðin.
Hún verður þá væntanlega fyrsta kynslóðin sem skilgreinir
sig sem hóp með athöfnum frekar en neyslu. Eins og sést af
upptalningunni hér á undan hefur það oftast verið tónlist og
tíska samofin sem hefur sett hinn sameiginlega stimpil á heilar
kynslóðir. Eitt árið eru allir í Millet dúnúlpum með sítt að aft-
an að hlusta á Duran Duran en hitt árið með lopahúfu í not-
uðum fötum og dreyminn svip yfir nýrri plötu með Sigur Rós.
Það eru fjölmiðlar sérstaklega ljósvakafjölmiðlar sem gerðu
þetta mögulegt. Í upphafi 20. aldar var sagt að allar ungar
stúlkur á Íslandi hefðu sofið með ljóðabókina Svartar fjaðrir
eftir Davíð Stefánsson undir koddanum. En þær urðu ekki að
Svörtufjaðrakynslóðinni því hver og ein taldi sig einstakling
sem vissi ekki af hinum.
Útvarpið og sjónvarpið rufu einangrun okkar og gerðu
okkur að einsleitum hópum sem flokkast eftir aldri, stöðu,
búsetu og innkaupum en framleiðendur og sölumenn með
góðri hjálp fjölmiðla kenndu okkur að skilgreina okkur gegn-
um neyslu.
Ég er svona Cocoa Puffs týpa en þú ert meira svona músl.
Þau eru svona fólk sem á húsbíl en hún fer samt aldrei í
Kringluna og þau eiga þrjá stóla eftir Arne Jacobsen.
Kannski er fólk sem vill láta skilgreina sig út frá því sem
það gerir frekar en því sem það kaupir að brjótast til einshvers
konar sjálfstæðis undan oki hópsálar neyslusamfélagsins.
Maður spyr sig.
Ég veit ekkert um klámkynslóðina því ég hitti hana aldrei.
Ég sé þessu safnheiti stundum flaggað í blöðunum þegar heill
bekkur í MR lætur taka af sér nektarmyndir eða þegar stúlka
fær fullnægingu í beinni útsendingu í útvarpinu.
Við vitum ekkert hvaða spor þessi kynslóð á eftir að marka
í samfélagið. Kannski breytir hún samlífsmynstri heillar þjóð-
ar, afnemur hjónabandið, lætur sjúkrasamlagið greiða sleipi-
efni og titrara handa öllum og Þjóðleikhúsið setja upp Debbie
does Dallas.
En kannski verða þau bara eins og við hin. | lysandi@inter-
net.is
Kynslóð skilgreinir sig
Pistill
Páll Ásgeir
Ásgeirsson
Framleiðendur og
sölumenn með góðri
hjálp fjölmiðla kenndu
okkur að skilgreina
okkur gegnum neyslu.
SMÁMUNIR…
Ljómandi sumarstúlkur
Í ys og þys stórborganna er eins og Yves Saint Laurent konan
beinlínis baði sig í geislum sólarinnar. Svo herma að minnsta
kosti fregnir frá samnefndu tískuhúsi, sem sett hefur á mark-
aðinn nýjustu vor- og sumarförðunarvörurnar. Áherslan er á
náttúrulegt, en þó forvitnilegt og fágað útlit, frelsi og léttleika.
Allt er þetta í fyllsta samræmi við sumarfatatískuna; víð pils,
þunnar blússur, djarfa liti og – brjálað aðdráttarafl eins og það
er orðað í kynningarefni.
Listrænn ráðgjafi YSL er sagður hafa sótt innblástur sinn til
Provence : himnesks heims hlýrra og geislandi lita, þar sem
andstæðir litir tóna vel saman. Kinnaliturinn, varaglossið og
augnskuggarnir á myndinni eru aðeins brot af litadýrðinni, sem
sólskinsstúlkur geta valið úr í viðleitni til að ljóma í sólinni í
sumar.
Áhrif nýja tískuilmsins frá Escada er
líkt við brimgusu á húðina, endalaus-
an bláma og orku Kyrrahafsins og
mildan og hrífandi keim af framandi
ávöxtum. Stærsta strandveisla ársins
árið 2006 segja framleiðendur. Ef
rétt reynist þarf ekki að fara langt yfir
skammt því umræddur ilmur fæst nú
í helstu snyrtivöruverslunum í 30 og
50 ml ilmúðaglösum, rakagefandi
húðmjólk og bað- og sturtugeli. Eins
og vera ber dregur ilmglasið dám af
öllum litum hafsins þar sem aðaltón-
arnir eru bleikir og blágrænir.
Allir litir hafsins