Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Skólastjóri óskast við Grunnskóla Snæfellsbæjar Grunnskóli Snæfellsbæjar er nýlega sameinað- ur skóli með um 250 nemendur og 60 starfs- menn. Skólinn er aldursskiptur og eru starfs- stöðvar þrjár. Á Hellissandi er 1.-4. bekkur, í Ólafsvík er 5.-10. bekkur og í Lýsuhólsskóla, sem er samkennsluskóli, er 1.-10. bekkur. Hér er um að ræða skólastarf í mótun og því einstaklega spennandi tækifæri fyrir kraftmik- inn og metnaðarfullan einstakling. Hæfniskröfur eru:  Kennaramenntun.  Hæfni og reynsla af stjórnunarstörfum - framhaldsmenntun í stjórnun æski- leg.  Færni í mannlegum samskiptum, metnaður, frumkvæði og skipulags- hæfni. Skólinn er virkur þátttakandi í Olweusverkefn- inu gegn einelti og býður upp á Davis-nám- stækni og -leiðréttingar. Einnig tekur skólinn þátt í tveimur Comeniusarverkefnum með sam- starfsskólum í Evrópu. Deild skólans í Lýsu- hólsskóla tekur þátt í III. hluta Grænfána-verk- efnisins og hampar auk þess farsælu þróunar- starfi í umhverfismennt og nýsköpun. Einkunnarorð og sýn skólans eru: Virðing - Viska - Víðsýni Nánari upplýsingar fást hjá Guðnýju H. Jakobs- dóttur, formanni skólanefndar, í símum 435 6769 og 866 6993. Óskað er eftir því að umsækjendur geri skrif- lega grein fyrir menntun sinni og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsóknarfrestur rennur út 7. maí 2006. Skrif- legum umsóknum ber að skila til Guðnýjar H. Jakobsdóttur, formanns skólanefndar, Syðri- Knarrartungu, 356 Snæfellsbæ Snæfellsbær býður upp á góða þjónustu við íbúana, m.a. 2 leikskólar, skóladagvistun og tónlistarskóli. Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjóbretti, gönguferðir, golf, hesta- mennska og sund, einnig er líkamsræktarstöð á staðnum. Glæsilegt íþróttahús er í Ólafsvík. Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst, enda býður bæjarfélagið upp á alla flóru landsins þegar kemur að landslagi, fugla- og dýralífi. Í Snæfellsbæ býr gott fólk sem alltaf er tilbúið að bjóða nýja Snæ- fellsbæinga velkomna. Sjúkraliðar, félagsliðar og umönnunarstörf Á fallegum stað í Grafarvogi er Eir hjúkrunar- heimili sem rekur fjölbreytta þjónustu við aldraða. Þar eru 8 hjúkrunardeildir, dagdeild, skammtímadvöl, sjúkraþjálfun, dægradvöl og einnig heimahjúkrun og þjónusta við íbúa í Eirarhúsum þar sem eru 37 öryggisíbúðir. Fastar stöður Lausar eru stöður sjúkraliða, félagsliða og starfsmanna í ummönnunarstörf á hinum ýmsu deildum hjúkrunarheimilisins. Starfshlut- fall er samkomulag. Sumarvinnna Núna er tíminn til að sækja um sumarvinnu. Um er að ræða vinnu í umönnun. Að vinna með öldruðum er einstök lífsreynsla sem við- komandi býr að alla tíð. Upplýsingar veita: Hjúkrunarforstjóri, Birna Kr. Svavarsdóttir, eða hjúkrunarfræðslustjóri, Jóna H. Magnúsdóttir, í síma 522 5700. Umsóknir er einnig hægt að senda á fraedsla@eir.is. Sími 522 5700. www.eir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.