Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 10
10 B SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Verkefnastjóri
Kerfisþjónustu
Íkon óskar eftir kerfistjóra í fullt starf sem fyrst
eða í síðasta lagi 2. maí 2006.
Starfssvið:
Starf kerfisstjóra er bæði fjölbreytt og krefjandi
á sviði upplýsingatækni. Starfið felst í kerfis-
stjórn og notendaaðstoð við viðskiptavini Íkon
ásamt þátttöku í frekari uppbyggingu og þróun
kerfisþjónustu og vefhýsingar.
Vinsamlegast lesið nánar um starfið á vefsvæði
okkar: www.ikon.is
Við erum að opna
annað vöruhús
og því óskum við eftir starfsmönnum í almenn
lagerstörf í mjög fullkomnum vöruhúsum í
Skútuvogi og Draghálsi þar sem mikið er lagt
í aðbúnað starfsmanna.
Unnið er á vöktum sem skiptast þannig:
Vika 1: mán.-fim. 7-14 og föstudag 7-19.
Vika 2: mán.-fim. 14-24 og frí á föstudegi.
Við óskum eftir starfsfólki á aldrinum 20-45 ára.
Reynsla af lagerstörfum og lyftarapróf
er mikill kostur.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Kr. Þorgrímsson
í síma 580 6600 eða petur@danol.is
sem jafnframt tekur við umsóknum.
Umsóknarfrestur er til 31. mars.
Danól er fram-
sækið fyrirtæki,
leiðandi í inn-
flutningi, mark-
aðssetningu og
dreifingu á mat-
og sérvöru fyrir
verslanir, bakarí
og veitingahús.
Danól er til húsa
við Skútuvog 3,
þar sem 4.500
palla vörulager
okkar er stað-
settur.
Orkuveita Reykjavíkur
framsækið þjónustufyrirtæki sem
aflar og dreifir vistvænni orku á sem
hagkvæmastan hátt og í sátt við
umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins
býr meira en helmingur íslensku
þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita
viðskiptavinum sínum bestu
mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir
ódýrri orku sem framleidd er úr
endurnýjanlegum íslenskum
orkulindum. Þannig stuðlar
fyrirtækið að aukinni notkun
hreinnar innlendrar orku og leggur
um leið sitt af mörkum til nýsköp-
unar og framfara í landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi
vinnustaður fólks með mikla
þekkingu. Fyrirtækið leitast við að
vera í fremstu röð hvað snertir
öryggi og vinnuumhverfi og
möguleika starfsfólks við að
samræma vinnu og fjölskyldu-
ábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur
að auka hlut kvenna
í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
innan fyrirtækisins.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
31
96
2
03
/2
00
6
Dreifing er eitt grunnsviða Orkuveitunnar og annast uppbyggingu, þróun og
rekstur dreifikerfisins. Meðal starfssemi sviðsins er fjárhagsáætlanagerð, gang-
setning verkefna og mótun stefnu í átt að hagkvæmari og betri rekstri, auk
þjónustu við viðskiptavini.
Byggingaverkfræðingur / byggingatæknifræðingur
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Gerð kostnaðar - og framkvæmdaáætlana
• Hagkvæmnirannsóknir og bestun kerfa
• Forsendugerð og gangsetning verkefna
• Eigendahlutverk í verkefnum sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í byggingaverkfræði eða -tæknifræði
• Menntun á umhverfissviði og/eða reynsla af fráveitumálum er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði, metnaður og áhugi í starfi
• Góð tölvukunnátta
Rafmagnsverkfræðingur / rafmagnstæknifræðingur
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Gerð kostnaðar - og framkvæmdaáætlana
• Umsjón með þróun, skipulagningu og rekstri aðveitukerfisins
• Innleiðing viðhaldskerfis fyrir aðveitukerfið
• Eigendahlutverk í verkefnum sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í rafmagnsverkfræði eða -tæknifræði.
• Æskileg er sérþekking eða menntun á sterkstraums- eða orkusviði
• Færni í mannlegum samskiptum og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði, metnaður og áhugi í starfi
• Góð tölvukunnátta
Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga@img.is)
og Sigrún Ýr Árnadóttir (sigrun@img.is) hjá Mannafli-Liðsauka.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að leggja inn umsókn á heimasíðu Mannafls-
Liðsauka: www.mannafl.is og sendið jafnframt ferilskrá.
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum svarað.
Byggingaverkfræðing eða -tæknifræðing og
Rafmagnsverkfræðing eða -tæknifræðing
Svið Dreifingar hjá Orkuveitu Reykjavíkur óskar að ráða:
Kaplahrauni 14-16
Járniðnaðar-
menn
Óskum eftir að ráða nú þegar vana
járniðnaðarmenn með eftirfarandi rétt-
indi.
Við erum að leita að mönnum sem geta
unnið sjálfstætt, sem og í stærri hópum.
Plötusmiðir
Stálskipasmiðir
Vélvirkji
Rafsuðumenn
Einnig óskum við eftir að ráða
aðstoðarmenn
sem hefðu áhuga á að komast á samn-
ing hjá okkur.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
skrifstofu okkar í Kaplahrauni 17.
Upplýsingar veita Eiríkur, í síma 660 9660,
og Guðmundur, síma 660 9670, á milli
kl. 9.00 og 17.00 virka daga.
Vélsmiðja Orms og Víglundar var stofnuð árið 1973. Hún
hefur sérhæft sig í nýsmíði á tækjum og vélbúnaði fyrir
iðnað og virkjanir. Fyrirtækið er einnig í viðhaldi og þjónustu
á skipum og bátum þar sem lögð er rík áhersla á vönduð
vinnubrögð. Grunneiningar þess eru plötuverkstæði, renni-
verkstæði, trésmíðaverkstæði, slippur og flotkvíar.
Jarðýtumaður
Klæðning ehf. óskar að ráða vanan jarðýtu-
mann til framtíðarstarfa.
Um er að ræða nýja CAT D6N jarðýtu með GPS
stýringu.
Klæðning ehf. er verktakafyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í jarðvinnu.
Fyrirtækið leggur metnað í öryggismál og
góðan aðbúnað starfsmanna sinna. Hjá Klæðn-
ingu ehf. starfa nú 60 manns.
Upplýsingar um starfið veitir Sigþór Ari
í síma 664 5075.
Starfsmaður
óskast á
þjónustuborð
Kringlunnar
Kringlan er verslunar- og þjónustumiðstöð sem verið hefur leiðandi verslunarstaður á Íslandi í nær
tvo áratugi. Í Kringlunni er að finna yfir 150 verslanir, veitingastaði og þjónustuaðila og nemur
heimsóknafjöldi 5,5 milljónum heimsókna árlega. Rekstrarfélag Kringlunnar sinnir daglegum rekstri
verslunarmiðstöðvarinnar svo sem viðhaldi, öryggisgæslu, ræstingum, rekstri þjónustuborðs,
rekstri Ævintýralands, viðburðastjórnun og sameiginlegri markaðssetningu Kringlunnar. Hjá
Rekstrarfélagi Kringlunnar starfa uþb. 30 manns auk verktaka í öryggisgæslu og ræstingum.
Rekstrarfélag Kringlunnar óskar eftir starfsmanni á
þjónustuborð. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Vinnutími frá kl. 9.30–14.00 aðra vikuna
(til kl. 15.30 á fimmtudögum) og kl. 14.00–19.00 hina vikuna
(til kl. 21.30 á fimmtudögum).
Unnið er annan hvern laugardag frá klukkan 9.30-18.00.
Hæfniskröfur:
Stúdentspróf eða sambærileg menntun
Grunnþekking í Excel
Enskukunnátta
Þjónustulund
Nánari upplýsingar gefur Hólmfríður Petersen, þjónustustjóri
Kringlunnar í síma 820 3304 eða á netfanginu
holmfridur@kringlan.is
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100