Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Grunnskólinn
á Þórshöfn auglýsir
Sundkennari - íþróttakennari
Sem stendur vantar íþróttakennara til að kenna
á sundnámskeiði fyrir nemendur í 4., 7. og
10. bekk. Þá vantar til starfa íþróttakennara við
skólann næsta skólaár 2006-2007 auk grunn-
skólakennara til almennrar kennslu á öllum
stigum grunnskólans.
Allar upplýsingar veitir Arnar Einarsson skóla-
stjóri í símum 468 1164 og 468 1465.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru til umsóknar stöður hjúkrunarfræð-
inga til sumarafleysinga á lyflækningadeild,
barnadeild, slysadeild og gjörgæsludeild.
Umsækjendur þurfa að hafa starfsleyfi hjúkrun-
arfræðinga en auk fagþekkingar er lögð áhersla
á góða hæfileika á sviði samskipta og sam-
vinnu.
Umsóknarfrestur er til 11. apríl nk.
Umsóknir, á þar til gerðum eyðublöðum sem
fást á skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar,
sendist til Þóru Ákadóttur, starfsmannastjóra
hjúkrunar, Eyrarlandsvegi, 600 Akureyri og
gefur hún jafnframt nánari upplýsingar í síma
463 0273, netfang thora@fsa.is .
Starfshlutfall og starfstími eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum
viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Öllum umsóknum verður svarað.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins
sem hefur það að markmiði að veita sjúklingum og aðstandendum
þeirra áreiðanlega, markvissa og fjölskylduvæna heilbrigðisþjónustu.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur nána samvinnu við háskólana
í landinu og lögð er áhersla á símenntun á sviði heilbrigðismála
og rannsóknir á sviði heilbrigðisvísinda.
Fasteignasala óskar eftir
að ráða 2 til 3
fasteignamiðlara
Við leitum að konum og karlmönnum með
frumkvæði og áhuga og ekki síst brennandi
löngun til að ná árangri í spennandi samkeppn-
isumhverfi. Við viljum einungis einstaklinga
sem geta unnið sjálfstætt, skapað sín eigin
tækifæri og tekið þátt í uppbyggingu á ungu
fyrirtæki. Góð laun í boði fyrir rétta einstak-
linga.
Ef þú telur að við séum að leita að þér skaltu
senda okkur upplýsingar um þig til auglýsinga-
deildar Morgunblaðsins fyrir 1. apríl, merktar:
„Fasteignamiðlari 2006“.
Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
BM VALLÁ EHF
óskar eftir starfsmönnum
í einingaverksmiðju Garðabæ
Starfið felst í úttekt á einingum fyrir og
eftir steypu ásamt stjórnun á lager og
afhendingu eininga.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af verkstjórn og/eða einingaframleiðslu.
Nánari upplýsingar gefur Hólmsteinn
Hólmsteinsson í síma 896 3222 eða
holmsteinn@bmvalla.is