Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 7

Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 B 7 800 7000 - siminn.is Gildi Símans eru fimm: traust, heilindi, lipurð, einfaldleiki og eldmóður. Starfsmenn Símans hafa þessi gildi að leiðarljósi í öllum störfum sínum. Tekið er við umsóknum á siminn.is. Upplýsingar um laun og önnur starfskjör eru eingöngu veittar í viðtali. Í umsókn skal koma fram ítarleg lýsing á náms- og starfsferli, einnig nöfn og símanúmer þeirra sem geta veitt umsögn um störf umsækjanda. Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir, fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar. Öllum umsóknum á tölvutæku formi verður svarað. Upplýsingar í síma 550 6470 frá kl. 14-16 alla virka daga. Við leitum að hugmyndaríkum og vel ritfærum einstaklingi sem getur sameinað tæknilega þekkingu og færni í mannlegum samskiptum. Háskólamenntun á sviði viðskipta, verk-, tækni- eða sálfræði er æskileg en ekki nauðsynleg ef mikil reynsla af vefmálum er fyrir hendi. Um er að ræða síbreytilegt og krefjandi starf þar sem vænst er sjálfstæðra vinnubragða, metnaðar og atorkusemi. Vefdeild Símans ber ábyrgð á ytra og innra vefumhverfi félagsins. Verkefni deildarinnar felast aðallega í ritstjórn vefja, daglegum rekstri, kröfugerð og stýringu vefverkefna. Umsóknarfrestur er til 7. apríl. Síminn óskar eftir kraftmiklu og framtaks- sömu sölufólki í kvöldverkefni hjá Söluveri félagsins í Reykjavík og á Akureyri. Starfið felst í úthringingum vegna átaksverkefna og kannana af ýmsu tagi. Við leitum að einstaklingum til að vinna kl. 17.30-22.00 tvo til fjóra daga í viku. Viðkomandi þurfa að hafa viðmótsþýða framkomu og vera vel máli farnir. Tölvukunnátta er nauðsynleg og reynsla af sölustörfum er æskileg. Í boði er skemmtilegt og krefjandi starf þar sem góð laun fást fyrir góðan árangur. Ertugóðursölumaður? Umsóknarfrestur er til 7. apríl. Vefstjóri Fært fólk Síminn óskar eftir öflugum einstaklingi með góða samskiptahæfileika til að starfa sem ritstjóri eins vinsælasta vefjar landsins en einnig sem partur af öflugri heild við rekstur og þróun á vefjum Símans. Skeiða- og Gnúpverjahreppur Þjórsárskóli Íþróttakennara vantar skólaárið 2006-2007. Um er að ræða ½ stöðu. Þjórsárskóli er í fallegri sveit á Suðurlandi. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Upplýsingar veita Rut Guðmundsdóttir skóla- stjóri í síma 486 6051 og 898 6439, netfang rut@ismennt.is, og Jóhanna Lilja Arnardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 486 5505. Heimasíða: http://thjorsarskoli.ismennt.is Framkvæmdastýra landsnefndar UNIFEM á Íslandi UNIFEM er þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna og er aðalskrifstofa sjóðsins í höfuðstöðvum SÞ í New York. UNIFEM á Íslandi var stofnað árið 1989 og er ein af 16 landsnefnd- um sjóðsins. UNIFEM á Íslandi styður og styrkir starfsemi SÞ fyrir jafnrétti og bættri stöðu kvenna víða um heim, sérstaklega á sviði þróun- arsamvinnu. Helstu verkefni framkvæmdastýru felast í dag- legum rekstri félagsins, samskiptum við stjórn, samstarfs- og styrktaraðila ásamt kynningar- störfum og umsjón með viðburðum og fjáröfl- un. Einnig starfar hún að sameiginlegri upp- byggingu starfsemi Miðstöðvar SÞ fyrir hönd UNIFEM. Nánari lýsingu á starfinu má nálgast á www.unifem.is. Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf í byrjun júlí. Hæfniskröfur: Háskólapróf í fagi sem nýtist í starfi. Haldgóð þekking og einlægur áhugi á stöðu kvenna í þróunar- og alþjóðamálum. Gott vald á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli. Góð tölvukunnátta. Hæfni í mannlegum sam- skiptum og frumkvæði eru mikilvægir eiginleik- ar ásamt hugmyndaauðgi og metnaði í starfi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Birna Þórarinsdóttir í síma 552 6200, netfang: unifem@unifem.is. Umsóknir skulu sendar til UNIFEM á Íslandi, Miðstöð SÞ, Laugavegi 42, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðstöfun starfsins. Titill framkvæmdastýru einskorðar stöðuna ekki við eitt kyn, hæfir einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Leitað er að öflugum og jákvæðum einstaklingum með skapandi og frjóa hugsun, til framtíðarstarfa hjá upplýsingatæknideild ríkisskattstjóra. Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í tölvunarfræði eða kerfisfræði eða búa yfir staðgóðri þekkingu og starfs- reynslu sem nýtist vel í starfsemi upplýsingatæknideildar. Viðkomandi þarf að vera lipur í samskiptum og geta skipu- lagt verk sín vel og eiga auðvelt með að vinna undir álagi. Umsókn ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til ríkisskattstjóra á netfangið umsoknir@rsk.is eða með bréfi til RSK Laugavegi 166, 150 Reykjavík, merkt starfsmannastjóra, eigi síðar en 10. apríl 2006. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar er að finna í starfaauglýsingu á www.starfatorg.is og einnig má hafa samband við Jón H. Steingrímsson, forstöðumann Þjónustusviðs, Braga L. Hauksson, deildarstjóra upplýsingatæknideildar og Ara Ísberg, starfsmannastjóra, í síma 563-1100. RÍK ISSKATTSTJÓRI LAUGAVEGI 166 | 150 REYKJAVÍK rsk.is Upplýsingatækni rafræn stjórnsýsla Sveitarfélagið Álftanes auglýsir eftir fólki á öllum aldri Spennandi og gefandi störf með ungu fólki og stuðningur við fjölskyldur. Sveitarfélagið Álftanes óskar eftir áhugasömu og ábyrgu fólki til að taka að sér ráðgjöf og stuðning með ungu fólki og fjölskyldum þeirra, undir leiðsögn félagsráðgjafa. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri. Um er að ræða störf við tilsjón og persónulega ráðgjöf skv. barnaverndarlögum. Einnig er óskað eftir lið- veitendum skv. lögum um málefni fatlaðra. Vinnutími er sveigjanlegur og er u.þ.b. 16-40 klst. á mánuði. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Greidd eru laun skv. kjarasamn- ingi BSRB. Nánari upplýsingar gefa Ásta Kristín Bene- diktsdóttir félagsmálastjóri og Soffía Ólafsdótt- ir félagsráðgjafi í síma 550 2300.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.