Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 B 21
Framkvæmdastjóri
barnaverndarnefndar.
Fjölskyldudeild Akureyrabæjar óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra
barnaverndarnefndar. Um nýtt starf er að ræða.
Starfssvið framkvæmdastjóra er eftirfarandi:
• Stjórnar og ber ábyrgð á vinnslu barnaverndarmála á
Fjölskyldudeild og er yfirmaður sérhæfðs starfsliðs
barnaverndar.
• Vinnur fyrir barnaverndarnefnd Eyjafjarðar og ber ábyrgð
gagnvart henni á því að framkvæma þær ákvarðanir sem
nefndin tekur.
• Ber ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlanagerð að því er
viðkemur barnavernd, í samvinnu við deildarstjóra
Fjölskyldudeildar.
• Sér um ársskýrslugerð fyrir barnavernd og vinnur að ýmsum
forvarnar- og þróunarverkefnum.
• Tekur auk stjórnunar þátt í vinnslu barnaverndarmála.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í félagsráðgjöf eða sálfræði og
viðeigandi starfsleyfi á Íslandi. Önnur menntun getur komið til
greina, svo sem embættispróf í lögfræði.
Starfið krefst góðrar hæfni til stjórnunar og innleiðslu nýrra
vinnubragða. Það krefst mikils sveigjanleika og góðrar hæfni í
mannlegum samskiptum. Reynsla af stjórnun er æskileg og reynsla
af vinnu í barnaverndarmálum er skilyrði.
Sálfræðingur.
Fjölskyldudeild óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa.
Um er að ræða starf á sviði einstaklingsþjónustu við leik- og
grunnskóla.
Á verksviði sálfræðings við sérfræðiþjónustu skóla á Fjölskyldudeild
eru greiningar einstakra nemenda ásamt ráðgjöf/meðferð.
Gerð er krafa um að viðkomandi hafi réttindi til að starfa sem
sálfræðingur á Íslandi.
Auk þess er gerð krafa um haldgóða þekkingu og reynslu á
greiningu, ráðgjöf og meðferð barna. Reynsla af starfi
skólasálfræðings er nauðsynleg. Æskilegur ráðningartími er frá 1.
ágúst 2006.
Launakjör vegna starfs sálfræðings eru samkvæmt kjarasamningi
Sálfræðingafélags Íslands og Launanefndar sveitarfélaga.
Félagsráðgjafi.
Laus er staða félagsráðgjafa í félagsþjónustu.
Um er að ræða afleysingu í eitt ár frá 1. maí 2006.
Starfið felst í þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga
nr. 40/1991. Um er að ræða annars vegar félagslega ráðgjöf og
hins vegar vinnu við fjárhagsaðstoð, þ.e. móttöku og vinnslu
fjárhagserinda.
Leitað er eftir félagsráðgjafa en til greina kemur að ráða starfsmann
með annarskonar háskólapróf. Reynsla af félagsþjónustu eða
þjónustu skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992 er æskileg.
Launakjör vegna starfs félagsráðgjafa eru samkvæmt kjarasamningi
SÍF og Launanefndar sveitarfélaga.
Akureyrarbær hefur sameinað hefðbundna félagsþjónustu,
barnavernd, þjónustu við fatlaða og þjónustu við leik- og
grunnskóla í einni deild. Unnið er markvisst þróunarstarf og
þátttaka í þverfaglegu starfi er mikilvæg. Tekið verður tillit til
samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við
ráðningu í störfin.
Upplýsingar um störfin veita Karl Guðmundsson, sviðsstjóri
félagssviðs í síma 460 1488 og netfang: karlg@akureyri.is og
Guðrún Sigurðardóttir, deildarstjóri fjölskyldudeildar í síma
4601420 og netfang: gudruns@akureyri.is
Umsóknareyðublöð fást í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9 og á heimasíðu Akureyrarbæjar www.akureyri.is,
umsóknarfrestur er til 20. apríl 2005.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Stærðfræðikennari
Verzlunarskóli Íslands óskar að ráða stærð-
fræðikennara fyrir næsta skólaár. Um er að
ræða framtíðarstarf og einnig tímabundna
ráðningu.
Hæfniskröfur:
Háskólapróf í stærðfræði eða tengdum
greinum.
Reynsla af kennslu á framhaldsskólastigi
æskileg.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Við bjóðum:
Góða vinnuaðstöðu.
Góðan starfsanda á framsæknum vinnustað.
Möguleika á endurmenntun.
Nánari upplýsingar gefur Ingi Ólafsson aðstoð-
arskólastjóri, ingi@verslo.is, og Þórður Möller
deildarstjóri í stærðfræði, thordurm@verslo.is,
eða í síma 590 0600.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl og skal senda
umsóknir ásamt ferilskrá til Verzlunarskóla
Íslands, Ofanleiti 1, 103 Reykjavík eða á net-
fangið ingi@verslo.is.
Verzlunarskóli Íslands er framhaldsskóli með um 1.150 nemendur.
Skólinn er bekkjarskóli en nemendur ljúka prófum í viðkomandi
námsáfanga um jól og vor. Nemendur geta valið á milli fjögurra
mismunandi brauta og útskrifast með stúdentspróf af öllum brautum.
Hægt er að taka stúdentspróf eftir þrjú ár af tveimur brautum. Einnig
býður Verzlunarskólinn upp á fjarnám. Verzlunarskólinn er mjög
tæknivæddur og er aðstaða til náms og kennslu öll hin besta. Við
skólann starfa um 80 kennarar og annað starfsfólk.
Lundarskóli
Staða skólastjóra
Staða skólastjóra við Lundarskóla á Akureyri er laus til
umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa kennaramenntun. Æskilegt er að
hann hafi framhaldsmenntun í stjórnun og reynslu af
skólastjórnun. Nauðsynlegt er að hann hafi góða
stjórnunar- og skipulagshæfileika, geti starfað sjálfstætt
og hafi gott vald á mannlegum samskiptum.
Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað og vilja til að
leiða öflugt þróunar- og nýbreytnistarf.
Lundarskóli er heildstæður, einsetinn grunnskóli, nemend-
ur verða um 520 á næsta skólaári. Í skólanum er sérdeild
fyrir heyrnarskerta eða heyrnarlausa nemendur.
Fjöldi starfsmanna er um 80 og hlutfall fagmenntaðra
starfsmanna er yfir 97%.
Nánari upplýsingar er að hafa á heimasíðu skólans:
http://www.lundarskoli.akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir deildarstjóri Skóladeildar,
Gunnar Gíslason, í síma 460 1456 eða 892 1453,
netfang: gunnarg@akureyri.is, og skólastjóri, Þórunn
Bergsdóttir, í síma 462 4888, netfang: thbergs@akureyri.is.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar-
bæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitar-
félaga.
Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar í starfsmanna-
þjónustu Akureyrarbæjar í síma 460 1060.
Umsóknum skal skilað í þjónustuanddyri í Geislagötu 9, á
eyðublöðum sem þar fást. Einnig er hægt að sækja um á
heimasíðu Akureyrarbæjar - www.akureyri.is.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl 2006.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
AKUREYRARBÆR
Skóladeild
Hæstiréttur Íslands
Dómvörður
Við Hæstarétt Íslands er laust til umsóknar starf
dómvarðar. Hlutverk dómvarðar er að sinna
dómvörslu í dómsölum, auk þess að annast
húsvörslu og ýmis önnur viðvik fyrir réttinn.
Um er að ræða fullt starf. Ekki er gerður áskil-
naður um sérstaka menntun. Ráðið verður í
starfið frá og með 1. júní nk. Laun eru sam-
kvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist Hæstarétti, dóm-
húsinu v/Arnarhól, 150 Reykjavík. Umsóknar-
frestur hefur verið framlengdur til 4. apríl nk.
Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upp-
lýsingar veitir Sigvaldi Guðmundsson, dóm-
vörður, í síma 510 3030.
Reykjavík, 23. mars 2006.
Hæstiréttur Íslands
Starfsmenn
óskast til sumarstarfa í Upplýsingamiðstöð
Suðurlands. Kröfur um sjálfstæð vinnubrögð,
tungumálaþekkingu, góða kunnáttu á landinu
okkar fagra og þó sérstaklega á Suðurlandi.
Vinsamlega sendið umsókn um menntun og
fyrri störf á: Tourinfo@hveragerdi.is eða
Upplýsingamiðstöð Suðurlands, Sunnu-
mörk 2, 810 Hveragerði, fyrir 4. apríl 2006.
Aðstoðarmaður
tannsmiðs
Tannsmiðjan Króna sf. óskar eftir laghentum
starfskrafti í 50-100% starf. Reynsla eða mennt-
un ekki nauðsynleg.
Umsóknir óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. eða á box@mbl.is merktar:
„Tannsmiður — 17664“ fyrir 10. apríl 2006.
TERMA ehf
óskar eftir snyrtifræðingum til starfa:
Í fullt starf
Hæfniskröfur:
Reynsla af sölu æskileg.
Hafa gaman af mannlegum samskiptum.
Haldgóð tölvuþekking.
Góð íslensku og enskukunnátta.
Vinnutími frá 9 til 17 og önnur hver helgi.
Í hlutastarf
Hæfniskröfur:
Reynsla af sölu æskileg.
Hafa gaman af mannlegum samskiptum.
Vinnutími eftir hádegi og um helgar.
TERMA óskar eftir ritara til ýmissa starfa
Hæfniskröfur:
Góð tölvukunnátta.
Góð ensku og íslenskukunnátta.
Frönskukunnátta er kostur.
Góð þjónustulund.
Vinnutími 9-17.
Helena Rubinstein – Lancôme - Giorgio Armani
Cacharel – Biotherm - Ralph Lauren
Þeir sem hafa áhuga vinsamlega sendi umsókn
á Gudbjorg@terma.is, eða sendi póst á Terma,
Smiðjuvegi 11a, 200 Kópavogur. Spurningum
er ekki svarað í síma eða á skrifstofunni.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100