Morgunblaðið - 30.04.2006, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.04.2006, Qupperneq 16
16 | 30.4.2006 Frá því að leikstjórinn Robert Altman og rithöfundurinn Joan Tewkesburyhristu upp í kvikmyndaheiminum fyrir þremur áratugum með meist-arverkinu Nashville hafa kvikmyndagerðarmenn verið að reyna við svip- aða hluti. Það sem gerði þessa margverðlaunuðu og vinsælu mynd að freistandi fyrirmynd er nýstárleg uppbygging, framvinda og gnótt stórra hlutverka. Nas- hville rekur samhliða sögur af fjölmörgum persónum sem tengjast ekki en eru viðriðnar tvö hundruð ára afmælishátíð Bandaríkjanna. Flestar tilheyra tónlistargeiranum og skemmta í veisluhöldunum í Nashville. Í sameiningu mynda þær þver- skurð af íbúum landsins og þó að þátttakendurnir þekkist ekki innbyrðis krossast leiðir í háborg kántrítónlistarinnar. Síðan þá hefur Altman margoft fengist við fléttuþem- að og með minnisstæðum ár- angri, ekki síst í Short Cuts (’93), í samvinnu við rithöf- undinn Raymond Carver. Hún fjallar um á annan tug Los Angelesbúa sem þekkjast lítið sem ekkert en tilviljanir eða örlögin leiða þá saman á einn eða annan hátt þeg- ar líða tekur á, en myndin spannar nokkra daga í Englaborginni. Altman byggir fleiri verk á slíkri framvindu og meðal þekktra kvikmynda annarra leik- stjóra frá síðustu árum og gerðar eru undir áhrifum frá Altman, má nefna Pulp Fiction (’94), Magnolia (’99), Amores Perros (’00), Traffic (’00), og 21 Grams (’03). Tvær af fimm tilnefndum | Frásagnar- mátinn er þó eldri en verkin hans Alt- mans, því nákvæmlega sextíu ár eru liðin síðan The Best Years of Our Lives var frumsýnd í Bandaríkjunum. Hún fjallar um þrjá hermenn (Harold Russell, Fride- rich March og Dana Andrews), sem snúa heim að seinna stríði loknu. Segir myndin frá því hvernig líf hermannanna og þeirra nánustu hefur tekið stakkaskiptum af ýmsum ástæðum á ekki lengri tíma, en bakgrunnur hermannanna og allar ytri sem innri aðstæður eru gjörólíkar. Sögu- stíllinn tókst einstaklega vel og myndin, sem er fyrir margt löngu komin í hóp sí- gildra, hlaut fjölda Óskarsverðlauna. M.a. sem besta mynd ársins 1946; William Wyler fyrir leikstjórnina og Russell (sem missti báða handleggi í stríðinu) fyrir bestan leik í aukahlutverki. Af fimm tilnefndum verkum sem besta mynd ársins sem var að líða voru hvorki fleiri né færri en tvær þessarar gerðar, Crash og Syriana. Sú fyrrnefnda var frumsýnd í maí sl., og vakti furðu takmarkaða athygli hérlendis en nú er þessi gæðamynd fáanleg á DVD Crash, sem var nokkuð á óvart, kjörin besta mynd ársins, færði leikstjóranum, Paul Haggis, auk þess Óskarsverðlaunin fyrir besta frumsamda handritið, þá hlaut myndin Óskar fyrir klippingu. Viðfangsefni Crash er hópur fólks sem á fátt annað sameiginlegt en að búa í Los Angeles og segir einar sjö sögur sem all- ar fléttast saman á hálmstrái. Fjöldi sagnanna og persónanna er nýttur til að dramatísera hinar ólíku þjóðir, kynþætti og trúarbrögð sem skapa suðupott lit- skrúðugs mannlífs borgarinnar. Olía, vopn, spilling og ofstækistrúarmenn eru meginþættir hringiðunnar Syr- iana, sem er gerð og skrifuð af Stephen Gaghan, Óskarsverðlaunuðum handrits- höfundi Traffic. Að þessu sinni reynir hann að fanga margflókna aðild Banda- ríkjamanna að atburða- rásinni í Mið-Austurlönd- um, með því að vefa saman fjórar, ólíkar sögur. Ein snýst um leyniþjón- ustumanninn George Clooney, önnur um banka- manninn Matt Damon, fjármálaráðgjafa arabísks ríkisarfa. Þriðji þátturinn fjallar um Jeffrey Wright, lögfræðing sem rannsakar samruna tveggja olíurisa fyrir ríkisstjórnina í Wash- ington, og fjórða sagan er með arabískan hryðju- verkamanna í brennidepli. Gaghan fannst umfang viðfangsefnisins alltof stórt og mikilvægt til að sjóða það sam- an í venjulega afþreyingarmynd með Clooney í aðalhlutverkinu. Það hefði létt honum störfin (og á heilabúi áhorfandans), en í ljósi ástandsins í þessum óróasama heimshluta þótti honum slík lausn ekki boðleg. Ávinningur bíógesta | Allnokkrir leikstjórar eru að feta í sporin þeirra Haggis og Gagh- ans, einn þeirra er Alejandro González Iñ- árritu (21 Grams), nýjasta myndin hans, Bab- el, verður frumsýnd í haust og segir þrjár, sjálfstæðar sögur sem gerast í Bandaríkjun- um, Mexíkó, Marokkó og Japan og tala per- sónurnar á tungum þessara þjóða. Myndin hefst á harmleik sem hendir hjón í sumarfríi og eru leikin af Brad Pitt og Cate Blanchett. Mexíkaninn Gael García Bernal (LaMala educación), og Japaninn Kôji Yakusho (Memoirs of a Geisha), fara einnig með stór hlutverk. Nine Lives er önnur, forvitnileg mynd af þessum toga og segir, einsog nafnið bendir til, níu mannlífssögur sem hver er 10–15 mínútur að lengd. Slíkur sögufjöldi krefst vel mannaðs leikhóps og fer hátt á annan tug sterkra skapgerðarleikara með hlutverk- in, þ. á m.: Glenn Close, William Fichtner, Sissy Spacek og Holly Hunter. Leikstjórn og handrit er eftir Rodrigo García, kólomb- ískan kvikmyndagerðarmann sem er að festa sig í sessi í Bandaríkjunum og leikstýrði m.a. mörgum hinna bráðsnjöllu Carnivale þátta, sem sýndir voru í Sjónvarpinu. Myndin hefur fengið mjög góða dóma og unnið til verðlauna vítt og breitt. Sögurnar níu skarast þar sem þær eru allar byggðar á sama þema; um ein- staklinga, fasta í samböndum sem þeir geta ekki slitið. Sjálfsagt dregur fyrr en síðar úr margfléttustefnunni, en hún er skemmtileg til- breyting í annars hefðbundnum frásagnarmáta í kvikmyndum samtímans. Hún gefur ferska sýn og býður upp á óvænt sjónarhorn og niðurstöður. Annar ávinn- ingur bíógesta er oftast breiður og áhugaverður hópur gæðaleikara. | saebjorn@heimsnet.is KVIKMYNDIR | SÆBJÖRN VALDIMARSSON FLÓKNAR FLÉTTUR Nýjasta bólan í handritsgerð er nokkrar sjálfstæðar sögur sem skarast aðeins lítillega eða ekkert í heildarmyndinni George Clooney leykur leyniþjón- ustumann í Syriana. Nýjasta mynd leikstjórans Alejandro González Iñárritu (21 Grams) hefst á harmleik sem hendir hjón, sem Cate Blanchett og Brad Pitt leika, og er þrjár sjálfstæðar sögur. R eu te rs Stephen Gaghan reyndi að fanga flókna aðild Bandaríkjamanna að at- burðarásinni í Mið-Austurlöndum. Margfléttustefnan gefur ferska sýn og býður upp á óvænt sjónarhorn og niðurstöður. Þrjátíu ár eru síðan Robert Altman leikstýrði Nashville, sem rekur sam- hliða sögur fjölmargra persóna. Paul Haggis, leikstjóri Crash, fékk Óskarsverðlaun fyrir besta, frum- samda handritið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.