Morgunblaðið - 30.04.2006, Side 18

Morgunblaðið - 30.04.2006, Side 18
18 | 30.4.2006 Árgangurinn 2000 sló mörg met, vissulegavegna gæða en óneitanlega einnig vegna ár-þúsundamótanna, sem sumir vilja halda fram að hafi ekki átt sér stað fyrr en um áramótin 2000 og 2001, sem þýðir að samkvæmt þeim (stærð- fræðilega en ekki fagurfræðilega rétta skilningi) er árgangurinn 2001 fyrsti árgangur nýs árþúsunds. Þrátt fyrir að góðir og jafnvel frábærir (2003 og jafnvel 2002) árgangar hafi siglt í kjölfarið á 2000 og að 2001 og 2004 hafi verið langt í frá slæmir árgangar virðist nú ljóst að árgangurinn sem mun sigla alla aðra árganga í kaf sé kominn í ljós. Fyrir hinn almenna lesanda er líklega rétt að taka fram á þessu stigi að hér er verið að fjalla um Bor- deaux. Þetta víngerðarhérað í suðvesturhluta Frakk- lands er nefnilega það hérað heimsins er vekur mesta athygli og umtal allra vínhéraða í heiminum. Stund- um liggur við að það veki meira umtal en öll önnur víngerðarhéruð heimsins samtals. En er nokkuð að því? Ef til eru „fullkomnar“ flöskur af víni koma þær líklega frá Bordeaux og höndlað er með þær líkt og um dýrmæt verðbréf væri að ræða fremur en matvöru. Auðvitað á þetta einungis við um nokkra tugi framleiðanda, þá er hafa haldið sínu allt frá hinni frægu flokkun ársins 1855 (Grand Cru Classé) er náði til Médoc-svæðisins (plús nokkrar undantekn- ingar) auk bestu framleiðenda annarra svæða. Stóridómur fallinn | Árlega um þetta leyti árs er mönnum safnað saman til að bragða tunnusýni á uppskeru síðasta árs og fella stóradóm um vínið. Hann er nú fall- inn og flestir virðast nokkuð sammála: Árgangurinn 2005 er stórkostlegasti, mesti, besti, frábærasti og þar að auki geggjaðasti árgangur síðustu áratuga ef ekki síðustu aldar. Yfirboðin í lýsingarorðum til að ná utan um árganginn eru yfirgengileg en segj- ast verður eins og er, skoðanir eru ekki skiptar. Hvort sem litið er til Médoc-skagans, hægribakkans, Péssac-Leognan eða sæt- vínanna í Sauternes, menn halda einfaldlega ekki vatni. Yfirleitt eru framleiðendur sjálfir uppteknir við það að tala upp árganginn en þó stundum með fyr- irvörum á borð við að þetta sé „árgangur til að geyma“ eða „dæmigerður árgangur“. Nú er engu slíku fyrir að fara. Það var einn af sérfræðingum bresku vínmiðlar- anna hjá Berry Brothers í London sem rauf þagn- arbindindið sem yfirleitt ríkir fram að fyrstu opinberu smökkunninni og lýsti því yfir að hann væri orðlaus. Sumir þekktir álitsgjafar brugðust illa við því og töldu að hann hefði átt að taka sjálfan sig á orðinu og vera þá orðlaus þar til að „tímabil“ umfjöllunar um ár- ganginn hæfist. En kannski er bara svona erfitt að sitja á sér. Jafnvel Robert Parker, bandaríski ofurvínálitsgjafinn, slær sjálfum sér við í notkun á lýsingarorðum. Skuggahliðar og sögusagnir | En auðvitað eru á þessu skuggahliðar. Flest bendir til að bestu vín ár- gangsins verði vart aðgengileg venjulegum vínáhuga- mönnum. Rætt er um að verð frægustu vínanna gæti hækkað um allt að 300% á milli ára og voru þau þó ekki ódýr fyrir. Sögusagnir eru um asíska kaupendur sem lýsa því yfir að þeir muni greiða uppsett verð – al- gjörlega óháð því hversu hátt það kunni að vera. Þeir ætli sér að ná sem mestu til sín af tilteknum vínum. Það kann hins vegar að bjarga hinum almenna vín- neytanda að þetta á einungis við um handfylli víngerðarhúsa. Bordeaux dælir út meira magni af vínum árlega en t.d. Ástralía og það í öllum flokkum. Margir vín- framleiðendur eiga í gífurlegum fjárhagsvandræðum og það eru einungis eigendur bestu húsanna sem sjá fram á að endurnýja Rollsinn eða Bensinn í ár. Það ættu því vonandi allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi – ef 2005 stendur þá undir vænt- ingum. Það eru nefnilega um 2 ár þar til góðu vínin koma á markað í almenna sölu. | sts@mbl.is VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON MUN 2005 RJÚFA ALLA MÚRA? Gagnrýnendur halda ekki vatni – verð bestu vínanna gæti hækkað um allt að 300%! Ef til eru „fullkomnar“ flöskur af víni þá koma þær líklega frá Bordeaux í Frakklandi. A P Þeir eru stöðugt fleiri sem átta sig á þvílíkar vínger- semar er að finna í Austurríki. Því mið- ur hefur úrvalið hér á landi verið mjög takmarkað til þessa en einn og einn góð- ur framleiðandi hefur sem betur fer slæðst af og til í hillur vínbúðanna. Það er því mikið fagnaðarefni að sjá mjög breiða línu frá einum af betri framleið- endum Burgenland í Austurríki koma sér þar fyrir. Weingut Anton Kollwentz hefur bækistöðvar sínar í Grosshöflein skammt frá Eisenstadt suður af Vín en helstu ekrur hans eru í hlíðum Leithagebirge. Aust- urríki hefur löngum verið þekkt fyrir hvítvínin sem eru ræktuð í Wachau, Kremstal og Kampstal við Dóná en á þessu svæði í grennd við Bodensee fóru nokkrir rauðvíns- framleiðendur að vekja alþjóðlega athygli fyrir um tveimur áratugum og var Anton Kollwentz í þeim hópi. Þeir blésu á þær raddir er héldu því fram að í Austurríki væri einungis hægt að rækta hágæða hvítvín og sýndu fram á að í hinu heita loftslagi við Bodensee væru svo sannarlega forsendur fyrir rauðvínsrækt. Meginþrúgurnar eru þrjár: St. Laurent, Blaufränkisch og Zweigelt en sú síðastnefnda er blendingur úr hinum tveimur fyrr- nefndu. Kollwentz var sá fyrsti til að gróðursetja Zweigelt á þessum slóðum árið 1958, þá átján ára gamall. Hann vakti snemma landsathygli og síðar heimsathygli, ekki ein- ungis fyrir rauðvínin sín heldur einnig hvítvínin en hann var t.d. frumkvöðull í ræktun Sauvignon Blanc á sínum heimaslóðum en sú þrúga er algengust suður í Steiermark. Nokkur vínanna eru frá 2003 en það sumar var einstaklega heitt í Austurríki og vínin því meiri um sig og sýruminni en alla jafna er raunin. Kollwentz Welschriesling er léttog ljúft hvítvín, peruávöxtur, grænn og þroskaður í nefi, ferskt með nokkurri sýru, ávöxtur þykkur og þéttur. Þægi- legt og aðlaðandi. 1.390 krónur. 17/20 Kollwentz Sauvignon Blanc Stein- muhle er feitur og nokkuð grösugur og kryddaður Sauvignon, þykkt og langt í munni. 2.270 krónur. 17/20 Kollwentz Chardonnay von Leithag- ebirge er aðlaðandi og þægilegt hvítvín. Laust við eikaráhrif og ávöxturinn fær að njóta sín. 1.780 krónur. 18/20 Kollwentz Chardonnay Tatschler 2003 er Chardonnay-vín í alþjóðlegum og sígild- um stíl, reykur og vanilla, smjör og sætur, þroskaður ávöxtur, epli og sítrus, í bland við hnetur. Pottþétt í allri uppbyggingu, stílhreint glæsilegt en alls ekki austurrískt. 3.260 krónur. 19/20 Kollwentz Blaufränkisch von Leithagebirge 2003 er um flest klassískur Blaufränk- isch, þroskaður og dökkur berjaávöxtur, með smá tannínbiti og laust við eikaráhrif. 1.930 krónur 18/20 Kollwentz Sonnenberg 2003 er blanda úr Blaufränkisch og Zweigelt. Bláberjasafi og sulta í nefi með dökku súkkulaði og vott af myntu og öðrum kryddjurtum ásamt möndlum. Í munni tannískt og sýruríkt sem gerir vínið matvænt. Mjög góð kaup. 1.490 krónur. 19/20 Kollwentz Eichkogel 2002 er sömuleiðis blanda af Blaufränkisch og Zweigelt, stórt, samþjappað og mikið vín. Dökk og þroskuð ber og súkkulaði eru ríkjandi í nefinu í bland við sæta eik, ilmur vínsins djúpur og margslunginn. Þétt og feitt í munni, vel gert vín með öflugum tannínum og góðri lengd. Vín sem sem sýnir vel hvers austurrískir rauðvínsgerðarmenn eru megnugir. Má geyma í nokkur ár. 2.490 krónur. 20/20 VÍN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.