Morgunblaðið - 15.05.2006, Síða 1
STOFNAÐ 1913 131 . TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Kynngimáttur
sögumanns
María Kristjánsdóttir skrifar um
Mr. Skallagrímsson | Menning 17
Fasteignir og Íþróttir
Fasteignir | Víkingaþorpið stækkar enn Miðpunkturinn er
í Kringlunni Íþróttir | Ólöf sátt við árangurinn Sigurður
Jónsson segir ,,Núma" vera fljótari en Thierry Henry
ÞÓTT fuglaflensan hafi stungið sér niður í
Evrópu og Afríku, þá virðist sem hún sé í
mikilli rénun í Suðaustur-Asíu. Á það eink-
um við um Taíland og Víetnam og margt
bendir til þess sama í Kína en dálítið erfitt
er þó að meta stöðuna þar.
Þetta kom fram hjá dr. David Nabarro,
sem sér um að skipuleggja varnir gegn
fuglaflensunni á vegum Sameinuðu þjóð-
anna, en hann segir, að í Víetnam hafi ekki
komið upp neitt tilfelli um banvæna veiru-
afbrigðið, H5N1, í mönnum eða kjúkling-
um á þessu ári. Fram að því var helmingur
þeirra manna, sem sýkst hafa, Víetnamar.
Í Taílandi hefur ekkert tilfelli fundist í
mönnum í tæpt ár og ekki í kjúklingum í
hálft ár. Þá þykir það líka góðs viti, að ekki
er vitað til, að farfuglar frá Afríku hafi bor-
ið smit til Evrópu, þvert á það, sem menn
óttuðust.
Gæti breyst
skyndilega
Dr. Nabarro varaði samt við því að
fagna of snemma en sagði þó ljóst, að þær
aðgerðir, sem gripið hefði verið til, hefðu
borið árangur. Hann minnti hins vegar á,
að enn geisaði pestin í Myanmar og í
Indónesíu þar sem þrír menn létust úr
fuglaflensu í síðustu viku.
Stjórnvöld í Kína segja, að þar hafi
fuglaflensan brotist út í 16 héruðum 2004
en í 12 héruðum 2005. Í einu var hún svo
skæð, að slátra varð 2,5 millj. kjúklinga.
Síðan hefur tilfellunum fækkað og þau ver-
ið miklu minni.
Dr. Nabarro sagði þetta ánægjulegt en
hafa skyldi í huga, að þessi mynd gæti
breyst mjög skyndilega.
Fugla-
flensa í
rénun í
SA-Asíu
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ÞRETTÁN mörk voru skoruð í leikjunum fjór-
um í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar í
knattspyrnu sem hófst í gær. Íslandsmeistarar
FH-inga hófu titilvörnina með því að leggja KR-
inga að velli, 3:0, í Frostaskjóli þar sem marka-
fjörugum leik. Í Eyjum vann ÍBV góðan sigur á
Keflavík, 2:1, og í Víkinni töpuðu nýliðar Víkings
fyrir Fylki, 2:0.
Í kvöld lýkur svo fyrstu umferðinni með við-
ureign nýliða Breiðabliks og Vals.
hrókurinn Tryggvi Guðmundsson skoraði tvö
mörk en Hafnfirðingarnir hafa haft gríðarlegt
tak á vesturbæjarliðinu undanfarin ár. Aðsókn-
armet var sett í Grindavík þar sem heimamenn
höfðu betur gegn Skagamönnum, 3:2, í mjög
Morgunblaðið/ÞÖK
FH hóf meistaravörnina með sigri í Frostaskjóli
ÁRLEGA deyr margt gamalt fólk í
Danmörku af völdum vannæringar
og nú kemur það fram í rannsókn,
að venjulegur hamborgari er miklu
næringarríkari en sá kostur, sem
stendur til boða á hjúkrunarheim-
ilum fyrir aldraða. Ætlar Eva Kjer
Hansen félagsmálaráðherra að
boða til sérstaks fundar með
fulltrúum sveitarfélaganna vegna
þessa máls.
Hansen vísaði til þess í vetur er
leið, að rannsóknir sýndu, að allt að
60% aldraðra fengju ekki næga
næringu og í framhaldi af því sam-
þykkti danska þingið sérstaka
rannsókn á þeim kosti, sem öldr-
uðum væri boðið upp á. Verður nið-
urstaðan kynnt innan skamms en
dagblaðið BT efndi hins vegar til
sinnar eigin athugunar og fékk
danskar rannsóknastofur, Steins
Laboratorium, til að meta næring-
argildið í mat frá sex hjúkr-
unarheimilum og síðan í venjuleg-
um hamborgara.
Niðurstaðan var sú, að hamborg-
arinn stóðst prófið sem nægilega
næringarríkur fyrir aldrað fólk en
enginn hinna matarskammtanna.
Þeir voru allir of orkusnauðir. Kom
þetta fram í BT og öðrum dönskum
fjölmiðlum í gær.
Hamborgari
fyrir
aldraða?
„MÉR þykir líklegt, að hér sé fyrst og
fremst um að ræða árstíðabundna
sveiflu,“ sagði Haraldur Briem sótt-
varnalæknir er fréttin
um rénandi fuglaflen-
sufaraldur í Suð-
austur-Asíu var borin
undir hann.
Haraldur sagði, að
fuglaflensuveira af
H5N1-stofni hefði
fyrst fundist í Kína
1997 og líklega verið
komin upp þar áður.
Hún hefði því verið á kreiki í um tíu ár
og tilfellin mismörg eftir árstíðum.
Héldi hún hins vegar áfram að koma
upp ár eftir ár ykjust um leið líkurnar á
því, að hún breyttist og yrði smitandi á
milli manna.
Haraldur sagði, að menn hefðu vitað
um flensu í fuglum allt frá 19. öld en
svo virtist sem sýkingar af þessu tagi
hefðu magnast upp í lífríkinu á síðustu
áratugum. Það væri því ekki ólíklegt,
að flensan ætti eftir að aukast á ný, til
dæmis í haust.
Líklega nátt-
úruleg sveifla
LOKADRÖG að nýjum stofnana-
samningi milli Stéttarfélags í al-
mannaþjónustu (SFR) og Svæðis-
skrifstofa fatlaðra voru handsöluð í
gærkvöldi. Samningurinn verður
lagður fyrir trúnaðarmenn stuðn-
ingsfulltrúa í hádeginu í dag og
verður hann kynntur fram-
kvæmdastjórum svæðisskrifstofa
málefna fatlaðra, sem eru sex tals-
ins. Ef fundur trúnaðarmanna
stuðningsfulltrúa samþykkir samn-
inginn kemur ekki til boðaðs setu-
verkfalls í kvöld, að sögn Árna Stef-
áns Jónssonar, formanns SFR og
samninganefndar stéttarfélagsins.
Samþykki báðir aðilar samninginn
verður hann undirritaður kl. 15.00 í
dag.
Jón Heiðar Ríkharðsson, fram-
kvæmdastjóri Svæðisskrifstofu um
málefni fatlaðra í Reykjavík, sagði
fyrst og fremst ánægjulegt að náðst
hefði að stíga þetta skref til að lyfta
upp virði þessara starfa. „Ég vona
að þetta sé fyrsta skrefið til þess að
meta þessi störf að verðleikum,“
gegna 800–900 stöðugildum á sam-
býlum og öðrum starfsstöðvum fyr-
ir fatlaða víða um land.
Endurskoðun stofnanasamn-
ingsins átti að ljúka fyrir 1. maí síð-
astliðinn. „Það slitnaði upp úr þessu
á sínum tíma vegna þess að svo lítið
var í spilunum,“ sagði Árni Stefán.
„Þessi samningur gildir frá 1. maí
síðastliðnum og verður formlega
tekinn upp aftur 1. maí 2007 í sam-
ræmi við aðalkjarasamning SFR.“
sagði Jón Heiðar. Hann sagði að
samningsgerðin hefði verið tíma-
frek og margþætt. Vinnumarkaðs-
aðstæður og ástandið í þjóðarbú-
skapnum hefðu haft sín áhrif á
endurskoðun stofnanasamningsins.
Að sögn Árna Stefáns náðist það
markmið að störf stuðningsfulltrúa
og félagsliða í SFR yrðu launuð
með svipuðum hætti og hjá sveit-
arfélögunum. Samningurinn nær til
um þúsund félagsmanna í SFR sem
Ákveða í dag hvort verður af setuverkfalli stuðningsfulltrúa
Nýr stofnanasamning-
ur handsalaður í gær
Morgunblaðið/Kristinn
Árni Stefán Jónsson, formaður SFR, og Jón Heiðar Ríkharðsson hjá
Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík handsala samninginn.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is