Morgunblaðið - 16.06.2006, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Halldór Ásgrímsson, frá-farandi forsætisráð-herra, afhenti í gær GeirH. Haarde forsætisráð-
herra lyklavöldin að stjórnarráðinu
eftir að hafa gegnt embætti for-
sætisráðherra í 21 mánuð. Auk þessi
afhenti hann Geir lyklana af ráð-
herrabústaðnum á Þingvöllum og
sagðist hann vonast til að Geir gæti
dvalið meira í bústaðnum en hann
hefði gert í forsætisráðherratíð
sinni. Halldór sagðist bera mikið
traust til Geirs: „Ég treysti engum
betur en þér til að halda því verki
áfram sem við höfum verið í í rík-
isstjórninni og er alveg viss um að
þér mun farnast vel í því.“
Hafa unnið mikið saman
Geir H. Haarde sagði þegar hann
tók við lyklunum að það væru mikil
tímamót fólgin í því að Halldór Ás-
grímsson hætti í stjórnmálum: „Ég
minnist þess mjög vel þegar hann
varð fyrst ráðherra 26. maí 1983, þá
varð ég aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra í kjölfarið og síðan þá
höfum við unnið mikið saman, líka
þegar hann var í stjórnarandstöðu.“
Bætti Geir því við að hann hefði
setið marga kvöldfundi með Halldóri
í upphafi ráðherratíðar hans þegar
reynt hefði verið að leysa ýmis mál.
Geir sagði margt hafa breyst á þess-
um tíma, efnahagsumhverfið væri
allt annað og hann tæki við góðu búi
úr hendi Halldórs hvað það varðaði.
Viðburðaríkt og skemmtilegt
Stuttu áður en Geir tók við lykla-
völdunum að stjórnarráðinu afhenti
hann Valgerði Sverrisdóttur utan-
ríkisráðherra lyklavöldin að utanrík-
isráðuneytinu við Rauðarárstig.
Geir sagði margt hafa gerst á þeim
stutta tíma sem hann hefði staldrað
við í ráðuneytinu, hann hefði fundað
með utanríkisráðherrum stórvelda á
borð við Bandaríkin, Rússland,
Frakkland, Bretland og Þýskaland,
auk ráðherra Norðurlandanna. Síð-
an hefðu óvænt tíðindi orðið í varn-
armálunum og sagði Geir að þetta
tímabil hefði verið lærdómsríkt.
Hann bætti því við að þrátt fyrir að
þetta hefðu ekki verið margir mán-
uðir þá hefði þetta verið viðburð-
arríkur og skemmtilegur tími að
flestu leyti. Ráðuneytið væri komið í
góðar hendur og Valgerður væri
komin í hóp öflugra starfsmanna
þess.
Strax að loknum ríkisráðsfundi á
Bessastöðum og áður en Valgerður
tók við lyklavöldunum í utanrík-
isráðuneytinu komu Valgerður
Sverrisdóttir og Jón Sigurðsson í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið þar
sem Jón tók við lyklavöldunum af
Valgerði. Valgerður sagði að það
vera þægilegt að afhenda Jóni lykl-
ana en margt væri eftir ógert: „Ég
hef verið hér í sex ár og hér hefur
ýmislegt gerst á þeim tíma. Mörgum
málum hefur verið komið í höfn en
engu að síður að þá eru mjög mörg
verk óunnin.“
Jón Sigurðsson sagði að þeim
verkum sem Valgerður hefði staðið
fyrir hefði verið framfylgt að mikl-
um myndarskap. Hann sagðist ætla
að halda áfram þeim verkum sem
unnið væri að nú. Hann taldi mik-
ilvægt að vinna af alefli að því að
halda jafnvægi og stöðugleika í hag-
kerfinu, mjög stórar ákvarðarnir
væru framundan en þær væru allar í
samræmi við þá stefnu sem hefði
verið framfylgt.
„Ég er sáttur við að hætta núna,“
sagði Jón Kristjánsson í gær eftir að
hann hafði afhent lyklavöldin í fé-
lagsmálaráðuneytinu Magnúsi Stef-
ánssyni, flokksbróður sínum í Fram-
sóknarflokki.
Jón sagði að því fylgdi alltaf sökn-
uður að kveðja gott ráðuneyti, „en
ég treysti eftirmanni mínum vel til
þess að halda þeim verkefnum áfram
sem við vorum að fást við í félags-
málaráðuneytinu.“
Orðinn vörslumaður
íslenskrar náttúru
Magnús sagði að mörg stór verk-
efni biðu hans í ráðuneytinu. Eitt af
þeim tengdist húsnæðismálum og
breytingum á Íbúðalánasjóði.
Sigríður Anna Þórðardóttir, Sjálf-
stæðisflokki, afhenti Jónínu Bjarm-
arz, Framsóknarflokki, lyklavöldin í
umhverfisráðuneytinu. Sigríður
kvaðst mjög sátt við störf sín hjá
ráðuneytinu. Hún kvaðst auk þess
hafa fundið fyrir miklum velvilja í
sinn garð í starfinu. „Ég er stolt af
því að vera fyrsti umhverfisráðherra
Sjálfstæðisflokksins,“ sagði hún
ennfremur.
Hún afhenti Jónínu lyklana í ráðu-
neytinu með þeim orðum að um-
hverfisráðherra væri vörslumaður
íslenskrar náttúru.
Jónína sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hún væri mikill nátt-
úruverndarsinni og náttúruunnandi.
Mörg verkefni biðu hennar, m.a.
vinna tengd Vatnajökulsþjóðgarð-
inum. „Sigríður Anna skilar góðu
verki í ráðuneytinu og hefur unnið
vel og samviskusamlega,“ sagði hún.
Þrír nýir ráðherrar komu inn í ríkisstjórn á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í gær
Morgunblaðið/ÞÖKMorgunblaðið/Kristinn
Margar tegundir
af lyklum
EFTIR að hafa afhent Jóni
Sigurðssyni venjulegan
ASSA lykil sem gengur að
iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytinu (e.t.v.) gekk Val-
gerður Sverrisdóttir á fund
Geirs H. Haarde sem af-
henti henni nýtísku að-
gangskort að utanrík-
isráðuneytinu (n.t.v.). Á
meðan var Magnús Stef-
ánsson að taka við lykla-
völdum í félagsmálaráðu-
neytinu af Jóni
Kristjánssyni. Kveðjurnar
voru þó innilegri þegar Sig-
ríður Anna Þórðardóttir
faðmaði Jónínu Bjartmarz
þegar sú síðarnefnda tók
við lyklavöldum á umhverf-
isráðuneytinu (n.t.h.).Morgunblaðið/Brynjar GautiMorgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Geir H. Haarde tekinn við lykla-
völdunum í forsætisráðuneytinu