Morgunblaðið - 16.06.2006, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ORÐSPOR Toyota og Lexus hefur
styrkst enn frekar við síðustu
gæðakönnun J.D. Powers, en þessir
tveir framleiðendur röðuðu sér í 11
af 19 efstu sætunum í könnuninni.
Niðurstöðurnar koma ekki á
óvart þar sem Corolla hefur til
dæmis iðulega verið í topp sæti og
er í fyrsta sæti í sínum flokk nú.
Lexus hefur sömuleiðis gengið vel í
lúxusbílaflokknum frá því sú tegund
kom á markað.
Porsche skipar efsta
sætið yfir heildina
Markverðustu fréttirnir eru
kannski þær, að Lexus LS430 og
Porsche Cayman deila fyrsta sæt-
inu yfir þær einstöku bílgerðir sem
hafa minnst gæðavandamál. Ef litið
er á heildarútkomu efstu sæta, rað-
ast Porsche í fyrsta sæti, Lexus í
annað sætið, Hyundai, Toyota og
Jagúar í þriðja til fimmta sæti.
Góða útkomu Hyundai má þakka
Elantra og Tucson, en jepplingur-
inn náði fyrsta sæti í flokki smærri
sportjeppa og er þetta í fyrsta
skiptið sem Hyundai nær í eitt af
þremur efstu sætunum í gæðakönn-
un J.D. Powers, þegar tekið er tillit
til heildar frammistöðu framleið-
anda.
Framleiðendurnir Chevrolet,
Chrysler, Ford, Kia, Mazda, Ponti-
ac og Suzuki fengu sömuleiðis allir
verðlaun í einhverjum af flokkum
könnunarinnar.
Asíubílar ráðandi í gæðakönnun J.D. Powers
Porsche Cayman er efstur í gæðakönnun J.D. Powers og deilir sætinu með Lexus LS 430.
UM HELGINA verða haldnir bíladagar hjá
Bílaklúbbi Akureyrar. Síðustu árin hefur þessi
viðburður notið vaxandi vinsælda, en margir
leggja leið sína norður um þjóðhátíðarhelgina
til að upplifa þá sérstöku stemmningu sem
hópur bílaáhugafólks skapar þegar sameinast
er um áhugamálið.
Hinir ýmsu bílaklúbbar landsins aka gjarn-
an á staðinn í halarófu, slá upp tjöldum, grilla
og njóta þess sem boðið er uppá um helgina.
Fastir dagskrárliðir og jafnframt þeir, sem
hafa notið hvað mestra vinsælda, eru Olís
götuspyrna Bílaklúbbs Akureyrar sem haldin
er á föstudeginum 16. júní og hefst með
tímatökum klukkan 19.30, bílasýningin sem
er opin frá 10 til 18 á laugardeginum og
„Burnout" keppnin síðar um kvöldið klukkan
20.00.
Alla jafna vekur götuspyrnan mesta eft-
irvæntingu, en þar fá landsmenn tækifæri til
að sjá marga af mest spennandi bílum lands-
ins gefa hrossunum lausan tauminn, nokkuð
sem að öllu jöfnu er sjaldgæf sjón.
Það kostar 500 krónur inn á götuspyrn-
una og „Burnout" keppnina en 1.000 krónur
á bílasýninguna. Upplýsingar um Bíladaga
2006 og skráningu í götuspyrnuna, „Burn-
out" og bílasýningu finnast á heimasíðu Bíla-
klúbbs Akureyrar.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
„Burnout" á Bíladögum í fyrra, keppnin er fastur liður í hátíðarhöldunum.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Olís götuspyrnan 2004, en götuspyrnan vekur jafnan mesta eftirvæntingu.
Bíladagar Bílaklúbbs Akureyrar
TENGLAR
...........................................................
www.ba.is
Ný bílasala B&L var opnuð á Selfossi
á þriðjudaginn síðasta eftir að B&L
festu kaup um helgina á Betri bílasöl-
unni sem hefur starfað á Selfossi frá
árinu 1991. Bílasalan er til húsa í ný-
legu húsnæði með 300 fermetra sýn-
ingarsal í Hrísmýri 2a.
Íris B. Ansnes segir að aðstaðan sé
björt og rúmgóð með plássi fyrir um
eitt hundrað bíla og sömuleiðis sé
þjónustuverkstæði þeirra, Bíltak,
undir sama þaki en það sé mikill kost-
ur að geta sameinað alla þjónustu á
einum stað.
Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn
sölustjóri B&L Selfoss sem verður
rekið sem sjálfstæð eining innan B&L
og munu öll vörumerki B&L í nýjum
og notuðum bílum verða þar til sölu
auk umboðssölu fyrir einstaklinga.
Karl Sigurðarson sölustjóri í húsakynnum B&L á Selfossi.
B&L opna bílasölu á Selfossi
HERTZ bílaleigan á Íslandi ætlar að
mæta aukinni eftirspurn eftir lúxus-
bílum með því að bjóða upp á tvær
gerðir Lexus til leigu í sumar í Pre-
stige Collection flokknum. Bílarnir
sem um er að ræða eru Lexus GS300
og Lexus LS430 sem hvor um sig
nálgast fullkomin þægindi á mis-
munandi hátt.
Arnar Már hjá Lexus segir Hertz
vera að mæta breyttum neysluvenj-
um en mikið sé af efnuðum útlend-
ingum sem Íslendingum sem eru til í
að eyða í lúxus.
Verð á GS300 er frá 28.900 krón-
um á dag í júní miðað við ótakmark-
aðan akstur og innifaldar trygging-
ar. Til samanburðar má nefna að
einn algengasti bíllinn sem útlend-
ingar leigja, RAV4, er um 50% ódýr-
ari í útleigu.
Nýverið festi Bílaleigan einnig
kaup á umtalsverðum fjölda af vega-
leiðsögutækjum hjá R. Sigmunds-
syni. Þessi tæki af Garmin gerð
munu auðvelda viðskiptavinum
Hertz að ferðast um Ísland. Tækin
eru búinn korti af öllum vegum
landsins, gefa ökumanni uplýsingar
um vegalengd í ákvörðunarstað og
leiðbeina um styðstu og hentugustu
leið. Um nýjung er að ræða fyrir
leigutaka bílaleigubíla á Íslandi og
hefur R. Sigmundsson staðið fyrir
gerð og þróun þessa búnaðar hér á
landi.
Meiri lúxus og GPS í bílaflotann hjá Hertz
TENGLAR
..............................................
www.hertz.is
Morgunblaðið/RAX
Arnar Jónsson, flotastjóri Hertz, tekur við vegaleiðsögutækjunum af Ríkharði
Sigmundssyni, sviðsstjóra lífsstílssviðs hjá R. Sigmundssyni ehf.