Morgunblaðið - 16.06.2006, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 B 7
bílar
Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur svarar
fyrirspurnum um bíla og tækni sem sendar
eru á leoemm@simnet.is
(Ath. Bréf geta verið stytt)
Spurt: Ég á 1993 árgerð af Ford Explorer. Mér
finnast ökuljósin daufari en eðlilegt er, a.m.k. lýsa
þau ekki vel fram á veginn í myrkri og virka gulleit.
Engin athugasemd var gerð vegna stillingar ljós-
anna í síðustu skoðun. Rafgeymirinn er nýlegur og
hleðslumælir sýnir eðlilega hleðslu/spennu. Væri
hægt að setja sterkari perur í ljósin eða perur af
annarri gerð?
Svar: Í ökuljósunum eru halógen-perur af sér-
stakri gerð (Ford) sem auðvelt er að skipta um.
Lýsi lági og hái geislinn á báðum ljóskerjum og séu
engar sjáanlegar skemmdir á speglunum myndu
nýjar halógen-perur varla leysa vandann svo vel sé.
Yfirleitt er afl pera í ökuljósum tiltekið samkvæmt
reglum og ekki leyfilegt að nota öflugri perur (t.d.
er 12 volta H4-halógen-pera 60/55 vött). Á mark-
aðnum eru halógen-perur sem hafa 20–40% meiri
ljósstyrk (,,gullperur“). En áður en þú ræðst í að
endurnýja perurnar, sem kosta talsvert, skaltu
skoða ljóskerin. Þau eru úr plasti og sé gegnsæja
hlífin orðin gráleit (mött) er það líklegri orsök lakr-
ar lýsingar; – matt pólýkarbonat-plast rýrir ljós-
styrk verulega. Með slípimassa, eins og notaður er
til að endurgljáa bílalakk, má gera ljóskerin glærari
og auka þannig ljósstyrkinn.
Stýrisvél sem lekur
Spurt: Vökvastýrisvélin í rosknum fólksbíl lekur.
Á verkstæði er mér sagt að stýrisvélin sé ónýt og
ekki sé hægt að skipta um þéttingar í henni heldur
þurfi að fá nýja eða endurbyggða stýrisvél. Vandinn
er sá að jafnvel þótt ég fyndi nothæfa stýrisvél á
partasölu yrði heildarkostnaðurinn meiri en gang-
verð bílsins. Er ekki til efni sem stöðvar svona
leka?
Svar: Til eru efni í bílabúðum og á bensínstöðvum
sem eiga að geta stöðvað leka í stýrisvél. Ég mæli
ekki með notkun þeirra nema stýrisvélin hafi verið
metin ónýt. Kemísk innihaldsefni virka á þann hátt
að þéttingar bólgna upp. Hvort þinn vandi verður
leystur tímabundið með slíku efni fer eftir því hve
lekinn er mikill, þ.e. hve mikið slitnar þéttingarnar
eru í stýrisvélinni. Þessi efni eru yfirleitt ertandi, ef
ekki eitruð og geta því verið hættuleg. Því skyldi
nota hlífðarhanska og geyma efnið ekki á glámbekk.
Óreglulegur lausagangur í Skoda
Spurt: Skoda Favorit 1300 1995 gengur óreglu-
legan lausagang eins og vélin sleppi úr, en sé gefið
inn virðist allt vera í lagi. Kerti eru ný og búið að
mæla upp kveikjukerfið sem virðist vera í lagi og
eyðslan er ekki óeðlileg. Hvað getur valdið svona
gangtruflun?
Svar: Þessi vél er með háspennukefli fyrir hvert
kerti og án kveikju og því án kertaþráða. Líklegasta
skýringin á gangtrufluninni í lausagangi er lek
pakkning á soggreininni (soggreinin laus og pakkn-
ingin þá ónýt). Þú getur fundið út á hvaða sílindra
pakkningin er lek með því að aftengja einn og einn
spíss með vélina í lausagangi. Sá spíssinn sem
minnst munar um við aftengingu er á þeim sílindra
sem dregur falskt loft. Annað næstum óbrigðult ráð
til að staðfesta sogleka við óreglulegan lausagang er
að hafa bensín í dælubrúsa og úða yfir soggreinina.
Breytist lausagangurinn við það dregur vélin falskt
loft. Ath. Fleiri tilfelli þar sem gangtruflanir koma
við sögu er að finna á www.leoemm.com/gagna-
banki.htm.
Spurt er …
Dauf ökuljós
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
… bara gaman!
Lyngháls 4 – s: 517 7727 – www.nora.is
SJÁLFVIRK
6v / 12v / 24v 0,8A - 25A
Fyrir allar gerðir rafgeyma
Mega vera í sambandi allt árið.
Bíldshöfða 12 - 110 Reykjavík - Sími 577 1515 - www.skorri.is
Hleðslutæki