Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 10
10 B FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
ELLEFTA árið í röð senda Umferð-
arstofa og Slysavarnafélagið Lands-
björg frá sér könnun á öryggi barna í
bílum. Könnunin, sem gerð var í apr-
íl síðastliðnum við 68 leikskóla víða
um land, sýnir að mikill árangur hef-
ur náðst síðan kannanir hófust, en
þrátt fyrir það finnast enn þá alvar-
legir misbrestir á öryggi barna í bíl-
um.
Niðurstöður fyrstu kannana voru
ekki góðar. 1997 sýndu niðurstöð-
urnar að 32% barna voru án nokk-
urs öryggisbúnaðar í bílum en nú er
þessi tala komin í 3,2% og því ljóst
að foreldrar eru mun meðvitaðri
um mikilvægi þess að nota réttan
öryggisútbúnað fyrir börnin sín en
áður.
19 börn í lífshættu í
framsæti bíls með öryggispúða
Könnunin sýnir að 85,1% foreldra
notuðu réttan öryggisbúnað fyrir
börnin sín, 11,5% notuðu ekki full-
nægjandi búnað, t.d. eingöngu bíl-
belti á barn sem þarf að sitja á sessu
eða í barnabílstól, og 3,2% voru al-
gerlega óvarin og því í lífshættu.
Enn ber á því að börn sitji í fram-
sæti fyrir framan öryggispúða en
þeir geta verið banvænir börnum
sem ekki hafa náð 150 cm hæð.
Jafnframt kom fram að meiri líkur
væru á að foreldrar sem ekki nota
sjálfir bílbelti létu börnin sín vera
laus í bílnum.
Í samtali við Einar Magnús Magn-
ússon, upplýsingafulltrúa Umferðar-
stofu, kom fram að ömmur og afar
eru almennt ekki nógu meðvituð um
þann öryggisbúnað sem ætlast er til
að börn noti.
Skýringin á þessu er eflaust sú að
eldri kynslóðin er ekki alin upp við
þær kröfur sem nú eru gerðar til ör-
yggisbúnaðar barna og þar af leið-
andi ekki eins meðvituð um þær
reglur sem nú gilda í þessum efnum.
Í ljósi þessa ættu ökumenn að hafa í
huga að það varðar sektum, 10 þús-
und krónum á hvert barn, að nota
ekki réttan öryggisbúnað.
Þátttakendur í könnuninni voru
2.132 í ár. Starfsmenn könnunarinn-
ar voru nemendur á leikskólabraut
Kennaraháskóla Íslands, félagar í
deildum Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og starfsfólk Umferðar-
stofu.
Fleiri nota réttan öryggis-
búnað fyrir börn í bílum
!"#$
#$
% %"
&
'
()
&"*
* "
)
"
+
&
) "
,
'
)
-
)
%%
%%"
%)# #% %#
% %"
%
%.% %* %/001
! "! #! $! %! &!!'
( )* "!
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ og
Orkustofnun stofnuðu snemma á
árinu Orkusetur, sem er ætlað að
miðla upplýsingum um orkumál til
almennings og stjórnvalda og
hvetja til skilvirkrar orkunotkun-
ar. Orkusetrið hefur nýlokið við
tvær forvitnilegar reiknivélar, þar
sem ökumenn geta reiknað út
annars vegar rekstrarkostnað
tveggja mismunandi bifreiða og
hins vegar kostnað tiltekinnar
ferðar, innanbæjar sem utan.
Gagnagrunnurinn innheldur
um 400 bíla og eru upplýsingarnar
mest megnis byggðar á eyðslutöl-
um frá neytendasamtökum ná-
grannalandanna.
Sigurður Friðleifsson, fram-
kvæmdastjóri Orkuseturs, telur
að ýmislegt sé hægt að gera til að
draga úr rekstrarkostnaði fjöl-
skyldubílsins, en mikilvægast sé
að þoka bílaeign landsmanna
meira í átt að hagkvæmari bílum.
Samanburður á eldsneytiseyðslu
og útblæstri bíla
Sigurður nefnir sem dæmi að
fróðlegt geti verið að bera saman
stóra og litla bíla, dísel, bensín,
sjálfskipta og beinskipta í reikni-
vélinni á www.orkusetur.is.
Til dæmis má nefna að munur í
rekstrarkostnaði á 4.4. lítra
Range Rover með bensínvél og
Skoda Octavia með díselvél er
rúmlega 300 þúsund krónur á ári
miðað við 20 þúsund kílómetra
akstur.
Þá er ótalinn rúmlega tvisvar
sinnum meiri koltvíoxíðmengun
sem enn sem komið er hefur ekki
verið skattlögð.
Hvað kostar ferðin?
Ekki síður áhugaverð er reikni-
vélin þar sem hægt er að reikna út
hvað einstök ferð kostar. Í ljósi
þess að bíladagar Bílaklúbbs Ak-
ureyrar verða haldnir um næstu
helgi má benda á, að mismunurinn
á því að fara á viðeigandi sportbíl
á bíladaga, til dæmis Porsche 911
með 3.6 lítra vél eða Dodge Ram
með 8 lítra vél eru 10.500 krónur
fram og til baka, Porsche 911 í
hag.
Ef farskjótinn er hinsvegar VW
Golf TDi þá er kostnaðurinn að-
eins um 4 þúsund krónur, eða
tæplega helmingur af því sem
ferðin kostar á Porsche 911. Lík-
legt má telja að þessar tölur séu
vanmetnar fyrir íslenskar aðstæð-
ur segir Sigurður, hér er bæði
kaldara, vegalengdir styttri og
sömuleiðis hafa allar breytingar á
bílum áhrif á eyðsluna, oftast til
verri vegar.
Hækkandi eldsneytiskostnaður
er ekki lögmál
Sigurður telur að ökumenn geti
gert ýmislegt til að draga úr sí-
felldri aukningu eldsneytiskostn-
aðar. Auðveldast er að sjálfsögðu
að velja sparneytnari bíl og þarf
það ekki að þýða niðurskurð á
þægindum. Nýir díselbílar eru til
að mynda bæði öflugir og spar-
neytnir.
Í ljósi þess að sala stórra fjór-
hjóladrifsbíla hefur aukist veru-
lega á síðustu árum, er ljóst að
reiknivélar sem þessar eru gott
innlegg í samgöngu umfjöllun á
Íslandi og gætu varpað skýrara
ljósi á valkostina sem í boði eru, til
dæmis þegar fjölskylda velur nýj-
an bíl.
Samanburðarreiknivél Orkuseturs.
Orkusetur kynnir
reiknivélar fyrir
bíleigendur
Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
FORSVARSMENN Toyota svöruðu
á dögunum gagnrýnendum sem sagt
hafa tvinnbíla ekki jafn umhverfis-
væna og hingað til hefur verið haldið
fram.
Að sögn Toyota eru fullyrðingar
bandaríska markaðsrannsóknarfyr-
irtækisins CNW, um að borgarjepp-
ar og farartæki á borð við Hummer-
jeppa séu umhverfisvænni en tvinn-
bílar eins og Toyota Prius, mjög svo
misvísandi.
„Við tökum þessa rannsókn með
miklum fyrirvara,“ hefur Daily Tele-
graph eftir Graham Smith hjá
Toyota. „Sérstaklega veltum við fyr-
ir okkur af hverju rannsóknin skjóti
upp kollinum á þessum tíma og eins
hvernig þeir hafi komist að þessari
niðurstöðu.
Við erum vantrúuð og viljum vita
meira.“
Rannsóknir Toyota benda til að
Priusinn sé eyðslugrennri en bens-
ínbílar af svipaðri stærð auk þess
sem bíllinn losi um 43% minna af
koltvísýringi út í andrúmsloftið.
Toyota í umhverfisdeilu