Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Það liggur nokkuð ljóst fyrir hver verður í Adamshlutverkinu í hinni nýju Paradís Fram-
sóknarflokksins, en enn er óráðið hver fær Evurulluna.
Aðgerðir til aðfækka sílamávi áhöfuðborgar-
svæðinu hafa verið hertar
í kjölfar þess að umhverf-
isráð Reykjavíkur sam-
þykkti tillögu þess efnis.
Að sögn Gísla Marteins
Baldurssonar, formanns
umhverfisráðs, er ekki
stefnt að því að skjóta
ákveðinn fjölda máva til
viðbótar við það sem
venjulega hefur verið gert
á ári hverju.
„Í sjálfu sér er ekki hægt að
nefna neinar ákveðnar tölur í
þessu samhengi. Markmiðið er
einfaldlega að ráðast af auknum
krafti í aðgerðir til að fækka máv-
inum því að stofninn er orðinn
stærri, að minnsta kosti sækir
hann meira inn til Reykjavíkur,“
segir Gísli Marteinn.
Mávastofninn hefur verið grisj-
aður á ári hverju um nokkur þús-
und fugla og ætlunin er að fækka
enn frekar í stofninum á þessu ári.
„Við erum ekki með neitt loka-
takmark í þessum efnum, eins og
að útrýma mávinum. Mávurinn er
hluti af okkar lífríki en borgaryf-
irvöld bregðast auðvitað við þegar
stofninn hefur stækkað eins mikið
og hann hefur gert að undanförnu
því þá er hann farinn að raska líf-
ríkinu sem við höfum hérna og
valda fólki verulegum óþægind-
um,“ segir Gísli Marteinn. Kvört-
unum vegna máva í hverfum borg-
arinnar hefur fjölgað verulega á
undanförnum mánuðum.
Hvenær lýkur átakinu?
„Átakið stendur yfir í sumar og
því lýkur við sumarlok en við er-
um þegar farin að sjá árangur. Við
þurfum að sjá til með það næsta
vor hvort við þurfum að taka upp
þráðinn aftur,“ segir Gísli Mar-
teinn. Mávarnir koma hingað til
lands um mánaðamótin febrúar og
mars og halda til Miðjarðarhafs-
ins og Norðvestur-Afríku á haust-
in. „Stundum er farið í aðgerðir í
hreiðrum, en það var ekki gert
núna, nú er fyrst og fremst verið
að skjóta mávinn. Samtök sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu eru
að velta þessu vandamáli fyrir sér
og hvað sé hægt að gera til lengri
tíma til þess að sporna við þessu.
Þau hafa meðal annars verið að
skoða aðgerðir í hreiðrum og
hugsanlegt er að gripið verði til
þeirra á næsta ári.“
Gísli Marteinn bendir á að ár-
angur aðgerðanna nú, þar sem
fuglinn sé skotinn, sé tvíþættur.
Það fækki í stofninum í heild auk
þess sem fælingarmáttur aðgerð-
anna sé ótvíræður þar sem máv-
arnir séu skynsemisskepnur og
sæki síður á þá staði þar sem skot-
ið hefur verið á þá áður. Erfitt sé
að meta hve miklu fleiri fugla
þurfi að skjóta en í venjulegu ári
til að losna við mávinn úr borginni
og fælingarmátturinn hafi meðal
annarra þátta áhrif á stefnumót-
unina í þessum efnum. Hugsan-
lega hafi hertar aðgerðir slíkan
fælingarmátt að mávarnir fari
einfaldlega og þá sé markmiðinu
náð í sjálfu sér og óþarft að skjóta
fleiri fugla.
Mávaveiðarnar ólöglegar
Dýraverndarsamband Íslands
hefur sent borgarráði Reykjavík-
ur bréf og óskað eindregið eftir
því að borgarstarfsmenn hætti að
skjóta máva innan borgarmark-
anna og á almannafæri eins og nú
sé gert. Vísar sambandið til
vopnalaga nr. 16/1998 en þar segir
m.a. í 21. gr. að sá sem fari með
eða noti skotvopn skuli ætíð gæta
fyllstu varúðar. Segir enn fremur í
lagagreininni að óheimilt sé að
bera skotvopn á almannafæri og
að ekki megi hleypa af skoti á
vegi, yfir veg, úr ökutæki, á al-
mannafæri eða annars staðar þar
sem hætta geti stafað af, nema
nauðsyn krefji.
Síðan segir orðrétt: „Ekki hef-
ur verið sýnt fram á að það sé
nauðsyn á því að grípa til slíkra
óyndisúrræða að stunda máva-
veiðar á almannafæri og fugla-
fræðingar hafa eindregið mót-
mælt þessari aðför að mávunum.
Formaður Fuglaverndarfélags Ís-
lands, Jóhann Óli Hilmarsson,
hefur harðlega gagnrýnt þá
ákvörðun borgaryfirvalda að fara
í hertar aðgerðir gegn sílamávum
bara af því þeir valdi ónæði. Krist-
inn H. Skarphéðinsson, dýravist-
fræðingur hjá Náttúrufræðistofn-
un, tekur undir þá gagnrýni og
segir að ekkert hafi verið rann-
sakað hversu skaðleg áhrif síla-
mávurinn hafi á líf andanna í
borginni né heldur hvort hann
beri smitsjúkdóma.
Auk þess má benda á að fyrir 15
árum fór fram rannsókn á vegum
veiðistjóraembættisins á því
hvernig fækka mætti sílamávum
og var niðurstaðan sú að stofninn
væri svo stór að skjóta þyrfti tugi
þúsunda um ókomin ár ef fækka
ætti í stofninum með þeim hætti
og var fallið frá þeirri ákvörðun að
reyna að útrýma sílamávum með
skotárásum.“
Í bréfinu segir að það athæfi
starfsmanna á vegum Reykjavík-
urborgar að bera skotvopn á al-
mannafæri og hleypa skotum úr
þeim án þess að nauðsyn krefji
hljóti að teljast gróft brot á
ákvæðum vopnalaga. Jafnframt
setji óhug að mönnum að slíkt
skuli eiga sér stað innan um al-
menning í borginni.
Fréttaskýring | Grisjun sílamávastofnsins
heldur áfram á höfuðborgarsvæðinu
Aðgerðir gegn
mávi hertar
Dýraverndarsamband segir aðgerðir
ónauðsynlegar og þar með ólöglegar
Ætlunin er að fækka enn
frekar í sílamávastofninum
„Við erum ekki með neitt loka-
takmark í þessum efnum, eins og
að útrýma mávinum. Mávurinn
er hluti af okkar lífríki en borg-
aryfirvöld bregðast auðvitað við
þegar stofninn hefur stækkað
eins mikið og hann hefur gert að
undanförnu því þá er hann far-
inn að raska lífríkinu sem við
höfum hérna og valda fólki veru-
legum óþægindum,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, formaður
umhverfisráðs Reykjavíkur.
Eftir Jóhann M. Jóhannsson
johaj@mbl.is
Aukahlutapakki fylgir með í júlí á meðan birgðir
endast. Upphækkun, heilsársdekk og 16” álfelgur.
Júlípakki: 180.000 kr.
STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 lítra - 158 hestöfl,
fjórhjóladrif, hiti í speglum, hraðastillir (PLUS), hiti
í sætum (PLUS), hiti í framrúðu (PLUS), sjálfvirk
loftkæling (PLUS), kastarar í stuðara (PLUS), sóllúga
(LUX), aðgerðastýri (LUX) og leðurinnrétting (LUX).
Þrír bílar í einum.
2.590.000 kr.
www.subaru.is
Forester2.590.000,- Forester PLUS2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,-
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
Akureyri
461-2960
Njarðvík
421-8808
Höfn í Hornafirði
478-1990
Reyðarfirði
474-1453
Subaru Forester er mun öflugri en margir stærri jeppar
en samt lipur og léttur í akstri líkt og fólksbíll. Forester var
valinn dráttarbíll ársins í Hollandi og hentar því vel fyrir fellihýsi
og tjaldvagna. Í Rússlandi var hann valinn jepplingur ársins
og bíllinn með minnstu bilanatíðnina í Þýskalandi. Á Íslandi er
hann ódýrasti sjálfskipti jepplingurinn á markaðnum í dag.
Umboðsmenn
um land allt
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn