Morgunblaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 22
Íbyrjun júní fóru starfsmennÁrbæjarskóla til Boston aðkynna sér einstaklingsmiðaðnám. Snemma síðasta vetur
var farið af stað með fjáröflun til að
afla tekna í ferðasjóð. Meðal annars
var gefin út uppskriftabókin Eldað
við árbakkann þar sem eru saman
komnar uppáhalds matar- og köku-
uppskriftir starfsmannanna.
„Við báðum alla starfsmenn skól-
ans um að skila inn tveimur upp-
skriftum í bókina, sumir skiluðu inn
miklu fleiri en aðrir engum. Svo
völdum við úr bunkanum,“ segir
Ragnheiður Júníusdóttir, heimilis-
fræðikennari í Árbæjarskóla, en hún
sá um útgáfu uppskriftabókarinnar
ásamt Önnu Margréti Þorsteins-
dóttur sem er hinn heimilisfræði-
kennari skólans. „Í bókinni eru sam-
an komnar um 160 uppskriftir sem
eru frá því að vera að einföldum kök-
um og upp í flókna hátíðarrétti, bók-
in er því afar fjölbreytt.“
Ragnheiður segir að reynt hafi
verið að gera bókina þægilega og að-
gengilega. „Við pössuðum að halda
karakter fólks í uppskriftunum og
ekki breyta þeim mikið.“
Myndlistakennari skólans, Sóley
Ragnarsdóttir, var fengin til að
myndskreyta bókina og Sigurborg
Ragnarsdóttir kennari gerði forsíð-
una. „Eiginmaður minn, Ævar
Ágústsson, var svo góður að setja
alla bókina upp í tölvu fyrir okkur,
þannig að það voru margir sem
komu að þessu verki.“
Mikið um kökuuppskriftir
Aðspurð segir Ragnheiður að það
hafi komið ótrúlega lítið inn af sömu
uppskriftunum. „Rice krispies kak-
an og skúffukökur eru alltaf vinsæl-
ar svo þær voru helst að koma aftur
og aftur fyrir. Það kom mikið inn af
tertu- og kökuuppskriftum og at-
hyglisvert var, frá þeim bókum sem
við höfum skoðað áður, að kjúklinga-
réttum hefur fjölgað mjög mikið en
pastaréttum fækkað. Þannig að
maður sér mikið tískustraumana í
matargerð með svona uppskrifta-
söfnun.“
Hver og einn starfsmaður fékk
fimm bækur til sölu og gekk vel að
selja bókina sem kostaði 1.500 kr.
Ásamt því að setja saman upp-
skriftabók var ýmsum öðrum fjáröfl-
unaraðferðum beitt. Ragnheiður
segir þau hafi m.a verið með köku-
sölu, selt svokallaða hreinlætispakka
og svo hafi nokkrir starfsmenn selt
hrísgrjónapúða fyrir þreyttar axlir.
„Það hafa ekki margir hópar farið út
í að setja saman svona uppskrifta-
bók til fjáröflunar en ég veit um ann-
an skóla og kvenfélag sem hafa gert
það. Ég hef reyndar heyrt að kostn-
aðarsöm prentun stoppi hópa oft í
því að fara út í þetta.“
Á um 300 uppskriftabækur
Spurð hvort það sé mikill matar-
áhugi meðal starfsfólks Árbæjar-
skóla svarar Ragnheiður því játandi.
„Við erum t.d. með starfsmannakaffi
einu sinni í mánuði og koma fyr-
irframskipaðir hópar með veiting-
arnar. Þá er alltaf hlaðborð af kök-
um, tertum og brauðréttum svo það
er eins og að vera í ferming-
arveislu.“
Þegar Eldað við árbakkann er
skoðuð koma uppskriftir á erlendum
tungumálum í ljós. „Við fengum
nokkrar útlenskar uppskriftir sem
við þýddum lauslega en létum þær
halda sér í erlendri útgáfu líka. Til
dæmis er eftirréttur frá Kaldbak í
Færeyjum bæði á færeysku og ís-
lensku í bókinni.“
Það skal engan undra að Ragn-
heiður skuli hafa verið fengin sem
umsjónarmaður yfir uppskriftabók-
inni því hún safnar slíkum bókum.
„Ég á orðið um þrjú hundruð upp-
skriftabækur og er alltaf að rekast á
eitthverjar sniðugar, t.d. kom ég
klyfjuð uppskriftabókum heim frá
Bandaríkjunum.“
Ragnheiður gefur hér lesendum
tvær uppskriftir sem eru í Eldað við
árbakkann. „Önnur er kaka sem
mér er sagt að sé alltaf bökuð þegar
eitthvað er að gerast í Árbænum en
það er Fylkistertan. Þetta er víst
bráðnauðsynleg kaka þegar Fylkir
er að keppa í fótbolta. Svo er upp-
skrift að Marokkósku flatbrauði sem
er rosalega gott með öllum grillmat
og pottréttum, það er svipað og
naanbrauð en með kjúklingabaunum
sem eru marðar í mortéli eða mat-
vinnsluvél.“
BÆKUR | Starfsmenn Árbæjarskóla gáfu út uppskriftabók
Eldað við árbakkann
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Ragnheiður Júníusdóttir býr í Kópavoginum en bakaði þó Fylkistertuna.
HELLNAR á Snæfellsnesi njóta æ
meiri hylli ferðamanna enda nátt-
úrufegurðin mikil og ekki spillir
vinalegt andrúmsloftið fyrir. Niðri í
fjörukambi á Hellnum má finna
kaffihús sem nefnist Fjöruhúsið og
reist var í kringum 1930 og notað
sem veiðarfærageymsla. Upp úr
1997 datt þeim hjónunum Kristjáni
Gunnlaugssyni og konu hans Sigríði
Einarsdóttir hins vegar í hug að
sniðugt væri að opna kaffihús í þess-
ari gömlu veiðarfærageymslu, og
hrintu hugdettunni í framkvæmd.
Að sögn þeirra hjóna er nóg að
gera frá að þau opna um páskana og
fram í október og hafa myndlist-
armenn m.a. sóst eftir að halda sýn-
ingar á verkum sínum þar og er ný
sýning sett upp í hverjum mánuði.
Í Fjöruhúsinu er boðið upp á létt-
an matseðil, t.d. vöfflur og súkku-
laðikökur, auk þess sem þar er að
finna fiskisúpu sem Sigríður hefur
þróað og nýtur mikilla vinsælda
meðal gesta og raunar hefur hún
varla undan að elda súpuna. Hún gaf
sér engu að síður tíma til að deila
uppskriftinni með lesendum Morg-
unblaðsins.
Fiskisúpa Fjöruhússins
1 laukur
1 gulrót
1 sellerístöngull
1–2 msk. smjör
timjan
1–2 dl hvítvín
1 ltr. fiskisoð
smásletta af rjóma
salt og pipar
Snöggsteikið grænmetið í smjör-
inu ásamt timjaninu. Hellið því næst
hvítvíninu yfir og sjóðið í smá stund
áður en fisksoðinu er bætt saman
við.
Saltið súpuna og piprið eftir
smekk og hellið að því loknu rjóman-
um út í og leyfið suðunni að koma
upp. Súpan á þó ekki að sjóða. Gott
er líka að bragðbæta súpuna með
púrtvíni áður en 500–600 g af þeim
fisktegundum sem kokkinum þykja
bestar, eða ferskastar eru hverju
sinni, er bætt saman við. Súpan er
því næst látin sjóða í nokkrar mín-
útur áður en hún er borin fram.
Gott er að hafa nýbakað brauð
sem meðlæti með súpunni.
Fiskisúpa Sigríðar í Fjöruhúsinu
SOÐNINGIN
Fiskisúpan góða nýtur vinsælda meðal gesta
og hefur Sigríður vart undan að elda hana.
Morgunblaðið/Alfons
Eigendur Fjöruhússins, þau Kristján Gunn-
laugsson og Sigríður Einarsdóttir.
Staðsetning kaffihússins alveg niðri í fjörukambinum
er óneitanlega skemmtileg.
Fylkisterta
100 g smjörlíki
100 g sykur
1 egg og 2 eggjarauður
100 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
Hrærið saman smjör og sykur
þar til blandan verður ljós og létt.
Eggin eru sett í eitt og eitt og
hrært vel í á meðan. Hveiti og
lyftiduft er sigtað saman og
blandað gætilega saman við. Sett í
eitt smurt og hveitistráð form og
bakað neðarlega í ofni við 200°C í
20–30 mín. Kakan er kæld áður en
kremið er sett á.
Krem
2 eggjahvítur
85 g sykur
85 g kókosmjöl
100 g súkkulaði
Eggjahvítur og sykur eru þeytt
vel saman. Súkkulaðið er brætt
og sett varlega saman við. Að síð-
ustu er kókosmjölinu hrært út í.
Kremið er sett ofan á kökuna.
Marokkóskt flatbrauð
1 kg hveiti
400 g kjúklingabaunir, soðnar
30 g salt
30 g sykur
3 tsk. þurrger
5 dl volgt vatn (tæplega)
1 tsk. cumin
1 msk. kóríanderfræ
Setjið hveitið í skál og gerið
holu í miðjuna. Hellið vatninu í
holuna og hrærið vatninu smátt
og smátt saman við. Hnoðið örlít-
ið. Setjið kóríanderfræ og cumin í
mortél og vinnið. Gerið holu í
deigið og komið kjúklingabaunum
og kryddi fyrir þar. Kremjið
baunirnar og kryddið og hnoðið
saman við deigið þar til það verð-
ur slétt. Rúllið deiginu út í lengju
og skerið það í 12–14 bita. Stráið
hveiti yfir hleifana og fletjið þá
þunnt út með kökukefli. Bakið
brauðin á grind í ofninum við
240°–250°C í 3–4 mínútur. Brauð-
ið er líka hægt að baka á grilli.
Brauðunum má stafla útflöttum
með plastfilmu á milli og frysta.
Þau eru svo bökuð beint úr frysti
við 200°C í 7 mín.
Morgunblaðið/ÞÖK
Fylkistertan með rifnum kókos
er einstaklega ljúffeng.
júlí
Daglegtlíf