Morgunblaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.07.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 17 ERLENT Heilsuvörur á 15% afslætti í júlí Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Opið virka daga frá kl. 10-18 Lokað á laugardögum í júlí w w w .d es ig n. is © 20 06 Original HeilsukOddi 61cm -15% verð kr. 8.075,- millenium HeilsukOddi 64cm -15% verð kr. 7.990,- classic HeilsukOddi 55cm -15% verð kr. 7.565,- cOmfOrt HeilsukOddi 70cm -15% verð kr. 7.820,- ferðasett kOddi Og dýna í tösku -15% verð kr. 29.900,- Original ferðakOddi í tösku -15% verð kr. 3.968,- sessa 40x42x5 cm -15% verð kr. 6.301,- BakstOð 36x36x7 cm -15% verð kr. 5.987,- Hálskragi -15% verð kr. 4.847,- svefngríma -15% verð kr. 1.713,- Bakstuðningur 68x40x7 cm -15% verð kr. 7.900,- alHiða-HeilsukOddi 50cm -15% verð kr. 5.367,- BÚDDAMUNKAR báðu fyrir heilsu Bhumibol Adulya- dej Taílandskonungs í Suthet-musterinu í Bangkok í gær. Bhumibol konungur er 78 ára gamall, en hann hefur árum saman þjáðst vegna þrengingar í mænu- göngum, eða sjúkdóms sem gengur undir nafninu mænuþröng. Því hugðust skurðlæknar freista þess í gær að losa um þrýsting í göngunum, en Bhumibol hef- ur setið lengst allra núlifandi krýndra þjóðhöfðingja í heiminum, eða samfellt í yfir 60 ár. Konungurinn nýtur mikilla vinsælda í Taílandi og hyllti mikill mannfjöldi hann fyrir utan sjúkrahúsið þar sem aðgerðin verður framkvæmd. AP Biðja fyrir konungi Taílands MEIRA en helming vefsíðna sem til- kynnt er um að innihaldi barnaklám má rekja til Bandaríkjanna, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Internet Watch Foundation, IWF, breskrar stofnunar sem sérhæfir sig í eftirliti með vefsíðum. Ástæðan fyrir fjölda slíkra vefsíðna í Bandaríkjunum er fyrst og fremst sú að þar er mest netumferð í heiminum, að því er fram kemur á vef breska ríkisút- varpsins, BBC. Þannig fundu eftirlitsaðilar IWF um 2.500 vefsíður sem hýstar voru í Bandaríkjunum sem innihéldu ólög- legar myndir af börnum. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs tilkynnti IWF um 14.000 tilvik þar sem grun- ur lék á að um slíkar síður væri að ræða, sem er 24 prósent aukning frá árinu á undan. Um 5.000 þessara síða innihéldu barnaklám og voru 730 hýstar í Rússlandi. Skýrsla IWF vekur spurningar um eftirlit með ólöglegum vefsíðum, en í henni kemur meðal annars fram að sumar síður sem innihalda barna- klám hafi verið aðgengilegar í allt að fimm ár, þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um þær til yfirvalda. Frumvarp gegn barnaklámi Þar er einnig tiltekið dæmi af síðu með barnaklámi sem tilkynnt hefur verið um 96 sinnum frá árinu 1999. Aðstandendur síðunnar hafa hins vegar komið í veg fyrir að henni væri lokað með því að skipta um hýsing- araðila í Bandaríkjunum og Rúss- landi á tveggja daga fresti. Alberto Gonzales, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, tilkynnti í apr- íl frumvarp sem á að skylda hýsing- araðila til að tilkynna um vefsíður með barnaklámi, en að auki hafa nokkrar stærstu fjölmiðlasamsteyp- ur landsins tekið höndum saman gegn slíkum síðum. Um 5.000 síður með barnaklám Mogadishu. AP. | Eþíópískar hersveit- ir fóru til bæjarins Badoia í Sómalíu í gær og settu þar upp búðir, nálægt heimili bráðabirgðaforseta landsins. Talsmaður stjórnvalda í Eþíópíu sagði að tilgangurinn væri að verja bráðabirgðastjórn Sómalíu gegn ísl- amistum sem höfðu náð smábæ ná- lægt Badoia á sitt vald. Vonast er til að aðgerðir Eþíópíu- manna greiði fyrir friðarviðræðum sem vonast er til að hefjist á morgun. Sumir óttast hins vegar að bardagar blossi upp milli uppreisnarmanna og eþíópískra hersveita. Íslamistar sögðust í gær ætla að færa herlið sitt frá Badoia og að ekki stæði til að ráð- ast á bæinn. Suðurhluti Sómalíu er að mestu á valdi íslamista. Eþíópískt herlið sent til Sómalíu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.