Morgunblaðið - 21.07.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 19
MINNSTAÐUR
AKUREYRI 20%
Sætúni 4
Sérhönnuð málning
fyrir íslenskar aðstæður.
ÍSLANDS
MÁLNING
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
Sími 517 1500
4
Húsin í Innbænum | Stefán Hall-
grímsson hefur opnað sýningu á
vatnslitamyndum í Læknastofum
Akureyrar, Hofsbót 4. Alls eru þar
til sýnis 20 myndir, en að auki er þar
að finna möppu með teikningum af
húsum í Innbænum. Stefán byrjaði
að mála fyrir fimm árum, „ég vissi
ekki að ég gæti þetta,“ segir hann,
en hann sótti vatnslitanámskeið á
Reykjalundi og komst þá að hinu
gagnstæða; að hann gæti málað.
Stefán kveðst dunda sér við mynd-
list yfir vetrarmánuðina, en að
sumrinu á garðurinn hug hans allan.
Sýningin stendur yfir fram á haust,
eða til mánaðamóta ágúst og sept-
ember.
„VIÐ viljum gjarnan skoða það
gaumgæfilega hvað er að gerast í
þessum landshluta,“ segir Sigrún
Björk Jakobsdóttir starfandi bæjar-
stjóri á Akureyri.
Á fundi bæjarráðs í gær var fjallað
um erindi frá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, en það hafði óskað eft-
ir upplýsingum um stærstu fram-
kvæmdir á vegum Akureyrarbæjar.
Fram kemur í bókun ráðsins að ljóst
sé að framkvæmdir á vegum bæjar-
ins haldist í hendur við ört vaxandi
bæjarfélag og þá nauðsynlegu og öfl-
ugu grunngerð sem íbúar í nútíma-
samfélagi gera.
„Bæjarráð tekur undir þau skila-
boð ríkisstjórnarinnar að það þurfi
allir að leggjast á eitt til að sporna við
þensluáhrifum og því vill bæjarráð
sýna aðhald í verki. Bæjarráð leggur
áherslu á að aðgerðir til að draga úr
þenslu í hagkerfinu eru nauðsynleg-
ar en verða að beinast að þeim svæð-
um sem búa við þenslu,“ segir í bók-
un bæjarráðs Akureyrar. Sigrún
Björk segir að niðurskurður á fram-
kvæmdum ríkisins, sem nú hefur
verið gripið til svo sporna megi við
þenslu, bitni hart á Norðlendingum,
sem og einnig Vestfirðingum. Lang-
mesti niðurskurðurinn sé á þessum
landsvæðum. Hún bendir á að ástæð-
ur þenslu í hagkerfinu sé fráleitt að
finna á Norðurlandi, „við finnum
ekki fyrir þessum þensluáhrifum hér
í þessum landshluta,“ segir hún.
Ákvörðun um frestun bráð-
nauðsynlegra framkvæmda
verði endurskoðuð
Sigrún Björk telur nauðsynlegt að
nú þegar ríkið frestar framkvæmd-
um verði hlutirnir metnir í heild og
sú ákvörðun að fresta bráðnauðsyn-
legum aðgerðum, samgöngubótum
sem og endurbótum á fangelsi verði
endurskoðuð.
Þær framkvæmdir sem fyrirhugað
var að fara í nú í sumar eða ár á Ak-
ureyri eru m.a. endurbætur á fang-
elsinu sem kosta um 200 milljónir
króna og eins lagfæringar á Akur-
eyrarflugvelli, malbikun og endur-
nýjun flughlaðs. Áætlaður kostnaður
vegna þess nemur um 55 milljónum
króna. Að auki var fyrirhugð vega-
gerð, einkum á norðausturhorni
landsins.
Framkvæmdir fyrir um
einn milljarð á ári
Í þriggja ára áætlun er gert ráð
fyrir framkvæmdum hjá Aðalsjóði
sem nema um það bil einum milljarði
króna á ári. Fara þarf yfir fram-
kvæmdaáætlun á þessu ári og á árinu
2007 og meta hvaða verkefnum kæmi
til greina að fresta.
Í bókun bæjarráðs er þess getið að
við opnun tilboða í menningarhús ný-
verið var ákveðið að taka frávikstil-
boði sem mun lengja verktímann um
fjóra mánuði og þegar hefur verið
tekin ákvörðun af Fasteignum Ak-
ureyrarbæjar um frestun viðhalds-
verkefna hjá Oddeyrarskóla.
Bæjarstjórar hittast í ágúst
Sigrún Björk segir að verið sé að
fara yfir málin í heild hvað fram-
kvæmdir á vegum bæjarins varðar
og þá vilji menn einnig sjá viðbrögð
fulltrúa stærstu sveitarfélaganna á
suðvesturhorni landsins. Bæjar-
stjórar munu að sögn Sigrúnar
Bjarkar hittast á fundi um miðjan
ágúst, fara yfir stöðu mála og ráða
ráðum sínum.
Bæjarráð vill að allir leggist á eitt við að sporna gegn þensluáhrifum
Aðgerðir verða að beinast að
svæðum sem búa við þenslu
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Eyjafjarðarsveit | Bræðurnir í
Garði í Eyjafjarðarsveit, þeir Að-
alsteinn og Garðar Hallgrímssynir
hafa byrjað framkvæmdir við bygg-
ingu á einu stærsta fjósi landsins.
Gert er ráð fyrir 136 básum fyrir
mjólkandi kýr og 105 básum fyrir
geldneyti og geldar kýr eða samtals
241 bás. Þá er gert ráð fyrir stíum
fyrir allt að 68 gripi í uppeldi, þann-
ig að alls verða yfir 300 gripir í fjós-
inu. Í því verða tveir mjaltaþjónar.
Alls er byggingin um 2.050 fer-
metrar.
Þeir bræður sýna mikinn stórhug
með þessum framkvæmdum og
finnst þetta mjög spennandi verk-
efni.
„Við förum út í þetta í fyrsta lagi
af því gamla fjósið er orðið gamalt,
úrelt og of lítið fyrir tvær fjöl-
skyldur, en í nýja fjósinu verður öll
nýjasta tækni sem er mjög vinnu-
sparandi og vinnan verður miklu
léttari á öllum sviðum,“ segir Að-
alsteinn og leggur áherslu á að svo
stórt sé byggt vegna þess að tvær
fjölskyldur komi að búrekstrinum.
„Svo finnst mér slæmt hvað margir
hafa hætt og búskapurinn dregist
saman í þessu leyfi ég mér að segja
blómlegasta landbúnaðarhéraði
landsins og við viljum reyna að
sporna við þeirri þróun af fremsta
megni. Þá ætti stærðarhag-
kvæmnin að gera okkur betur í
stakk búna að takast á við innflutn-
ing og lækkandi verð á afurðum,“
bætir hann við. Stefnt er að því að
taka bygginguna í notkun fyrir jól.
Framleiðslugeta slíkrar einingar
gæti orðið um ein milljón lítrar
mjólkur á ári.
Byggja eitt
stærsta fjós
landsins
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Stórhuga Bræðurnir í Garði í Eyjafjarðarsveit, Aðalsteinn og Garðar Hall-
grímssynir, eru byrjaðir á að reisa eitt stærsta fjós landsins á jörð sinni.
Nýtt útboð | Ekkert tilboð barst
fyrir auglýstan opnunartíma útboðs í
smíði fjölnotahúss í Hrísey. Eftir að
útboðstíminn var liðinn hafa nokkrir
aðilar sýnt áhuga á verkinu. Í ljósi
aðstæðna beinir bæjarráð því til
Fasteigna Akureyrarbæjar að verkið
verði boðið út að nýju sem fyrst.
Fréttir
í tölvupósti