Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 46

Morgunblaðið - 21.07.2006, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hvað er það sem gerir hrútinn einstakan um þessar mundir? Þú hefur skoðanir og lætur þær í ljós. Láttu í þér heyra. Þú aflar þér fylgismanna og með þeim tekst þér loksins að klára ótilgreint verkefni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nútímaútgáfan af riddara í fullum her- klæðum eða falleg hefðarkona í klípu kemur við sögu. Þó að nautið hafi yf- irleitt ekki mjög mikinn áhuga á því að bjarga einhverjum eða láta bjarga sér, gæti þessi freisting verið því um megn. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ný manneskja sem verður á vegi þínum, kannski hrútur eða ljón, opnar leiðina að frábærum parti af sjálfum þér sem yf- irleitt liggur í láginni undir venjubund- inni rútínu. Þegar búið er að svipta hul- unni af honum verður ekki aftur snúið. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Allir hafa hæfileika til heilunar. Ein af þínum stjarnfræðilegu vöggugjöfum er vitundin um þessa hæfileika, vissan innra með þér og innsæi til þess að þróa þá frekar. Þessir hæfileikar koma að góðum notum í dag. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Stórkostlegir hlutir verða til þegar þú kemur saman með vinum þínum. Þú upplifir skyndilegt frelsi án þess að hafa ætlað þér það. Einhverjir myndu vilja kalla það efnahvörf. Það eina sem þú ert viss um er löngunin til þess að upplifa það aftur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þvert á vísbendingarnar sem meyjan telur sig hafa, skilur fjölskyldan hana fyllilega. Reyndu að komast í samband við hinn ósýnilega ástarþráð sem liggur til þín frá þínum nánustu. Þeir taka þér eins og þú ert og samþykkja þig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ögrun af þinni hálfu gæti komið þér í klandur. Reyndu að mýkja skoðanir þín- ar þegar þú ert innan um viðkvæma. Það er ekki til marks um óheiðarleika. Svona er betri og mýkri útgáfan af sjálfri þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Nú er kominn tími á eina af þínum frægu endurholdgunum. Sporðdrekinn er svo flinkur í hárfínum en markvissum breyt- ingum að ekki er víst að eftir breyting- unum sé tekið, nema ef vera kynni í hinni mikilvægu undirvitund. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Gefðu svigrúm fyrir mistök í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur og finndu hvernig frelsið hríslast um þig. Það hjálpar þér til að mynda til þess að mæta á fundi á réttum tíma. Engar afsakanir – ekki einu sinni að það hafi verið mikil umferð. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Nú er heppilegt að skipuleggja fundi. Varla nokkur maður skorast undan sím- tali frá þér. Ef þú gefur kost á þér í verk- efni á síðustu stundu færðu annaðhvort meira borgað eða uppskerð athygli þeirra sem hafa áhrif. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Sumir þrífast á missætti. Ekki vatnsber- inn. Forðastu dramadrottningar sem verða á vegi þínum. Bjánaleg rifrildi eru tímasóun og sóun á andardrætti og lífs- krafti. Segðu stopp og labbaðu í burtu. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Himintunglin leiða í ljós áhuga fisksins á öllu sem á einhvern hátt er klikkað eða dulrænt. Getur verið að þú sért eins og draugur í heimi annarra? Þú verður að minnsta kosti léttur og spaugsamur í dag, hvað sem því líður. Stjörnuspá Holiday Mathis Himintunglin eru í sam- stöðu um helgina sem gef- ur fyrirheit um yndislega og kunnuglega nánd. Venus, pláneta ást- ar og fegurðar, verður í hagstæðri afstöðu við hinn ríkulega Júpíter. Hjörtu sem eru að gróa taka miklum framförum með því að meðtaka ást, virðingu og umhyggju annarra. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 höfuðfatið, 8 stórir menn, 9 merkja, 10 ekki marga, 11 landa- bréfa, 13 horaðan, 15 iðja, 18 herbergi, 21 far- eind, 22 hugleysingi, 23 ásýnd, 24 bæklingar. Lóðrétt | 2 verkar, 3 landareign, 4 framar, 5 ástundar, 6 lin, 7 hafði upp á, 12 guð, 14 fiskur, 15 vers, 16 gamli, 17 af- rétt, 18 undin, 19 sofa, 20 satt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 girnd, 4 kutar, 7 tóman, 8 regns, 9 díl, 11 runa, 13 hrun, 14 gettu, 15 forn, 17 gróa, 20 bak, 22 telja, 23 remma, 24 kenna, 25 terta. Lóðrétt: 1 gítar, 2 rúmin, 3 dund, 4 kurl, 5 tugur, 6 rósin, 10 ístra, 12 agn, 13 hug, 15 fátæk, 16 rolan, 18 rómur, 19 apana, 20 bana, 21 Krít.  Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Reykholtskirkja | Þriðju tónleikarnir af sjö í röð orgeltónleika í Reykholtskirkju sem haldnir eru á vegum kirkjunnar og FÍO verða haldnir laugardaginn 22. júlí kl. 17. Douglas A. Brotchie leikur á orgelið verk eftir Menelssohn, Buxtehude, Zsolt Gár- donyi og C-M Widor Aðgangseyrir er 1.500 kr. Myndlist 101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir til 22. júlí. Opið fimmtudaga, föstudaga, laugardaga frá 14–17. Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason og Maríó Múskat (Halldór Örn Ragn- arsson). Á sýningunni, sem er þeirra fyrsta sýning saman, eru málverk sem þeir hafa unnið saman að síðan sumarið 2005. Sýn- ingin stendur til 12. ágúst. Opið fim. fös. og lau. kl. 13–17. Aurum | Helena Ragnarsdóttir sýnir ónefnt akrílverk unnið á pappír. Helena lærði myndlist við myndlistardeild Fjöl- brautaskólans í Breiðholti og tók þátt í samsýningu í Gallerí Tukt árið 2005. Sýn- ingin stendur yfir í 2 vikur, opið er á opn- unartíma verslunar mán.–föst. kl. 10–18 og laug. kl. 11–16. Til 21. júlí. Café Karólína | Sýningin „Hlynur sterkur Hlynur“ (portrett af Hlyni Hallssyni mynd- listarmanni) er þriðja sýningin í röðinni af stjörnumerkjaportrettum unnin sem inn- setning í rými. Til 4. ágúst. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey- nomatic-myndir, nærmyndir af náttúrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Út júl- ímánuð. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk til 26. ágúst eða fram yfir menning- arvöku. Opið virka daga og laugardaga kl. 14–18 í sumar. Gallerí BOX | Þórarinn Blöndal, Finnur Arnar og Jón Garðar með sýninguna „Far- angur“. Á sýningunni getur að líta hugleið- ingar um drauma, galdra, harðviðargólf, eldhúsgólf og ástarævintýri. Til 27. júlí. Gallerí Humar eða frægð! | Sýning um diskó og pönk í samstarfi við Árbæjarsafn. Myndir og munir frá árunum 1975–1985. Til 31. júlí. Gallerí Úlfur | Eiríkur Árni Sigtryggsson sýnir í júlí. Opið kl. 14–18 alla daga. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og með henni beinir Hafnarborg sjónum að hrauninu í Hafnarfirði. Listamennirnir tólf sem að sýningunni koma hafa allir sýnt víða og lagt drjúgan skerf til listalífsins undanfarin ár. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður er frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og hafa verk hennar ætíð haft sterka skír- skotun til landsins og náttúrunnar. Sýn- ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Íslands. Til 26. ágúst. Handverk og hönnun | Á sumarsýningu er til sýnis bæði hefðbundinn íslenskur list- iðnaður og nútíma hönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýningin stendur til 27. ágúst. Að- gangur er ókeypis. Hrafnista, Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menning- arsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning- unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákonar Magnússonar. Meðal lista- manna má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dagverðará, Stórval og Kötu sauma- konu. Til 31. júlí. Jónas Viðar Gallerí | Snorri Ásmundsson sýnir hjá Jónasi Viðar galleríi í Kaupvangs- stræti 12, Akureyri. Snorri hefur komið víða við í listsköpun sinni og á að baki sér- kennilegan feril sem listamaður. Sýningin mun standa til 30. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson, (iló) Berja- landi, Kjós, með málverkasýningu. Opið í sumar, alla daga kl. 12–20. Karólína Restaurant | Joris Rademaker sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines. Til 6. okt. Kirkjuhvoll, Akranesi | Listsýning á verk- um eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listahá- skóla Íslands. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15–18. Til 13. ágúst. Kling og Bang gallerí | Hinn heimsþekkti myndlistarhópur Gelitin frá Austurríki sýn- ir í Kling & Bang gallerí, en hópurinn hefur m.a. tekið þátt í Feneyjatvíæringnum og Gjörningatvíæringnum í New York. Sjá: http://this.is/klingogbang.Opið fim.–sun. kl. 14–18. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafsteinn Austmann og Kristín Þorkelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning – Louisa Matthíasdóttir. Umfangsmesta sýn- ing sem haldin hefur verið á verkum Lo- uisu og rekur allan hennar listamannsferil í sex áratugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri landslagslist frá upphafi 20. aldar og túlk- un þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí. Opið í safnbúð og í Kaffitári í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Listasafn Íslands | Sýning á íslenskri landslagslist frá upphafi 20. aldar og túlk- un þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Leiðsögn á ensku þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 í júlí. Kaffitár í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Op- ið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits- sýning á verkum Guðmundar Einarssonar frá Miðdal. Í samvinnu við Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safn- búð og kaffistofa. Kjarval – Kraftur heillar þjóðar. Verk í eigu Landsbanka Íslands. Í tilefni af 100 ára af- mæli bankans. Til 30. júlí. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spannar sviðið frá tvívíðum hlutum í skúlptúra og innsetningar. Í hópn- um eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann Chuchvara, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Jaeha Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero Baker og Tsehai Johnson. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna út- hlutunar listaverka– verðlaunanna Carne- gie Art Award árið 2006. Sýningin endurspeglar brot af því helsta í norrænni samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir ís- lenskir listamenn, meðal annars listmál- arinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfærði er höfð að leiðarljósi við val verkanna og hefðbundin listasöguleg við- mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.