Morgunblaðið - 24.07.2006, Page 1

Morgunblaðið - 24.07.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 199. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 21Km 42Km Km10 Km3 MARAÞON REYKJAVÍKUR GL 19. Með mótor á bakinu Björn Ragnarsson hefur haft áhuga á flugi frá unga aldri | 17 Íþróttir og Fasteignir í dag Íþróttir | Víkingar slógu bikarmeistarana út  Tiger vann Opna breska meistarmótið  Floyd Landis vann Tour de France , Fasteignir | Innflytjendur í Breiðholti Náttúruleg loftræsing Skjólgróður KARLMAÐUR á þrítugsaldri lést í mót- orhjólaslysi á Suðurlandsvegi við Eystri-Rangá á sjöunda tímanum í gær. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli missti maðurinn hjólið sitt út í veg- kant og lenti á rörstokki vestan megin við brúna. Við það kastaðist hjólið út af veginum og hafnaði í ánni. Maðurinn lenti á árbakkanum og var lát- inn þegar lögreglu og læknalið bar að garði. Telur lögregla að maðurinn hafi látist sam- stundis. Engin ummerki sem benda til hraðakst- urs fundust á slysstað. Þetta er ellefta banaslysið í umferðinni á árinu en þar af hafa þrír bifhjólamenn látið lífið. Tíunda banaslysið varð á laugardaginn er karlmaður á níræðisaldri lést eftir að hafa orðið fyrir bíl í nágrenni Hólmavíkur. Ökumaður bif- reiðarinnar er ekki grunaður um að hafa ekið of hratt eða um aðra gáleysislega hegðun. | 2 Ljósmynd/Marteinn S Sigurðsson Tvö banaslys í umferðinni um helgina Eftir Bryndísi Sveinsdóttur bryndis@mbl.is EHUD Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagðist í gær sætta sig við að friðargæsluliðar frá aðildar- löndum Evrópusambandsins yrðu sendir til Líbanons. Hann sagði að friðargæsluliðið yrði að vera þjálf- að til bardaga og vera staðsett í suðurhluta Líbanons. Ekki væri þó búið að taka lokaákvörðun í mál- inu. Fyrr um daginn sagði Olmert á ríkisstjórnarfundi að átök Ísraela og Hizbollah í Líbanon ættu eftir að standa yfir í langan tíma, að því er AFP-fréttastofan hafði eftir háttsettum ísraelskum embættis- manni eftir fundinn. Sagði Olmert að eyðileggja þyrfti „innviði hryðjuverkasamtakanna“ og það myndi taka mjög langan tíma. Ísraelar væru tilbúnir til að ræða við líbönsk stjórnvöld en það yrði þegar rétti tíminn væri kominn. Þá sagði yfirmaður ísraelska herliðsins í Norður-Líbanon að hann byggist við því að átökin myndu halda áfram í nokkrar vik- ur og ísraelskir hermenn sem voru að koma yfir landamærin frá Líb- anon, eftir bardaga við Hizbollah- liða, sögðu að þeir veittu mun meiri mótspyrnu en búist hefði verið við, erfitt væri að berjast við þá því þeir hræddust ekkert. „Hrikaleg“ eyðilegging Jan Egeland, yfirmaður neyð- arhjálpar Sameinuðu þjóðanna, SÞ, fordæmdi í gær árásir Ísraela á Líbanon og sagði þær mannrétt- indabrot. Egeland, sem kom til Beirút, höfuðborgar Líbanons, í gær, sagði eyðilegginguna „hrika- lega“ eftir að hafa farið um borg- ina. Sagði hann „hverja bygg- inguna á fætur annarri“ hafa verið jafnaða við jörðu, aðallega á íbúð- arsvæðum. Hann sagði að neyð- arhjálp SÞ ætti að berast á svæðið á næstu dögum, en til þess að það gæti gerst þyrftu starfsmenn stofnunarinnar að geta ferðast hættulaust sem ekki væri raunin nú. Réðust á borg þar sem flóttamenn dvelja Ísraelar héldu áfram árásum á Líbanon í gær, á Berút og svæði í suður- og austurhluta landsins. Meðal annars gerðu þeir í fyrsta skipti árásir á hafnarborgina Sidon þar sem tugþúsundir flótta- manna höfðu leitað skjóls. Þá létu tveir Ísraelar lífið og 15 særðust í flugskeytaárásum Hizbollah á hafnarborgina Haifa í Ísrael í gær. Að minnsta kosti 364 Líbanar og 36 Ísraelar hafa látið lífið í átök- unum síðan þau hófust 12. júlí. Ísraelar styðja hugmyndir um friðargæslu í Líbanon Yfirmaður neyð- arhjálpar SÞ segir aðgerðir Ísraela mannréttindabrot Reuters Ísraelskur hermaður situr ofan á skriðdreka í Rosh Hanikra í norðvest- urhluta Ísraels, nálægt landamærunum við Líbanon, í gær. Aðstoðar við flutning Svía frá Beirút ÞÓRARINN Guðmundsson, íslensk- ur læknir sem býr og starfar í Sví- þjóð, hefur unnið að því und- anfarna viku að flytja sænska ríkisborgara sjóleiðina frá Beirút til Kýpur á vegum sænska utanrík- isráðuneytisins. Þórarinn var staddur á Kýpur þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær- kvöldi en hann flýgur til Svíþjóðar í dag. „Þetta hefur gengið nokkuð vel og sennilega er búið að flytja á sjö- unda þúsund sænskra ríkisborgara hingað yfir,“ segir Þórarinn en hann telur að í heildina hafi um átta þúsund sænskir ríkisborgarar verið í Líbanon þegar átökin hófust. Þórarinn segir að ástandið á fólk- inu hafi verið þokkalegt við kom- una til Kýpur og lítið um slasaða. „Þetta hefur þó verið erfitt ferðalag fyrir suma. Sérstaklega þá sem eru að koma frá Suður- Líbanon og hafa orðið vitni að átök- um og jafnvel misst ættingja.“ Að sögn Þórarins munu starfs- menn í Beirút á vegum sænskra yf- irvalda taka á móti þeim Svíum sem eftir eru í Líbanon. „Á síðustu dögum hafa komið hundrað til tvö hundruð manns á dag en á meðan fólk kemur verður þessu haldið áfram.“ Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.