Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.07.2006, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING HOFFMANNSGALLERÍ er staðsett á gangi Reykjavíkur Akademíunnar á fjórðu hæð í fyrrum JL-húsinu og er starfrækt í samvinnu við Myndlist- arskóla Reykjavíkur. Rými gallerísins, hinn langi gangur milli skrifstofa Reykjavíkur Akademíunn- ar, er sérlega áhugaverð umgjörð um samtíma- listina sem algengast er að setja fram í hlutlausu rými. Sýningin „Kennd við tilfinningar“ inniheldur verk 12 nafnkunnra listamanna og sýningarstjóri er Haraldur Jónsson myndlistarmaður. Verkin skírskota mismikið til tilfinninga um leið og segja má að öll list hljóti að tengjast tilfinningum á ein- hvern hátt. Hin skarpa aðgreining sem gerð var áð- ur milli tilfinninga og rökhugsunar hefur fyrir löngu verið véfengd og jafnvel afnumin í mörgum greinum hugvísinda. Með tilliti til verkanna á sýn- ingunni má segja að yfirskriftin nái ekki að vera þar konsept sem slíkt, til þess er það bæði of þröngt og of vítt. Hins vegar má vera að áhorfandinn verði meðvitaðari um að leita eftir tilfinningatengdum þáttum í verkunum og einnig meðvitaðari um eigin tilfinningar gagnvart verkunum. Áhorfendum lista í dag er leynt og ljóst ætlað að vera partur af list- sýningum og vera sérstaklega meðvitaðir um eigið áhorf og viðbrögð. Verk Elsu Dórótheu Gísladóttur „Ókennd“ var einna áhugaverðast í því samhengi sem sýningin lagði upp með þótt áhugi og væntingar undirrit- aðrar hafi í byrjun verið hvers konar verk Elke Krystufek myndi bjóða uppá á sýningunni. Verk Krystufek skilaði sér aldrei á sýninguna og þegar í annarri heimsókn minni í Hoffmannsgallerí hafði verk Elsu Dóróteu verið fjarlægt vegna kvartana frá fólki sem vinnur í húsinu um mörlykt. Verkið var einmitt búið til úr netju, hluta af innyflum kinda og vísaði í þá kennd sem við öll finnum fyrir þegar okkur líður illa, kennd sem á oft engar röklegar ástæður. Þetta beinir athyglinni óneitanlega að þeim vandamálum sem koma iðulega upp þegar samtímalistin ætlar að finna sér stað í opinberu rými. Önnur verk á sýningunni vísa mismikið til þem- ans en ljósmynd af styttu Birgis Snæbjörns Birg- issonar virtist eiga þar sérstakt erindi ásamt teikn- ingum Kristínar Ómarsdóttur. Verk Steingríms Eyfjörð þar sem hann sýnir síðu úr DV frá árinu 1977 vísar með beinum hætti til hugmynda um til- finningar og kynjamun en þar má lesa um konur í hryðjuverkasamtökum í Þýskalandi. Steingrímur hefur einnig stækkað upp myndir af kvenmorðingj- anum og fórnarlambinu sem var karlkyns banka- stjóri. Í texta DV kemur fram að afbrotafræðingar undrist að þegar konur séu komnar í hryðjuverka- hópa þá séu það þær sem væru grimmastar og miklu harðari en nokkurn tímann karlmenn. Sýningin er vel þess virði að gera sér ferð en ástæða er til að kvarta yfir því hve galleríið er illa merkt en einfaldur miði í anddyri hússins gæti þar bætt um betur. Tilfinningar og tjáning MYNDLIST Hoffmannsgallerí Hringbraut 121 (JL-húsið) Sýningin stendur út sumarið Opið virka daga kl. 9–17 Kennd við tilfinningar Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá sýningunni í Hoffmannsgalleríi. Þóra Þórisdóttir DANSVERKIÐ „IBM 1401, a user’s manual“ verður sýnt á listahátíð í borginni Drodesera á Ítalíu á miðvikudaginn. Er þetta sextugasta sýningin á þessu víð- förla og jafnframt vinsæla verki, en Erla og Jóhann hafa sýnt það í yfir fjörutíu borgum frá því það var frumsýnt í Marseille í Frakk- landi í september 2002. Erna er eini dansari verksins en auk hennar er Jóhann á sviðinu og annast hljóðfæraleik. „Þetta er svona danstónlistarverk sem segir litla sögu á milli okkar,“ segir Erna sem þrátt fyrir að hafa sýnt verkið fimmtíu og níu sinnum kveðst hreint ekki vera orðin þreytt á því. „Ótrúlegt en satt. Af því þetta er sólódans, eða réttara sagt dúett, er svo auðvelt að halda áfram með hann. Hann breytist með mér og ef eitthvað er orðið úr- elt held ég bara áfram að þróa dansinn eftir því sem er að gerast hjá mér.“ Hún upplýsir einnig glaðbeitt að fleiri sýningar séu framundan. „Við höldum alltaf að þetta sé að verða búið en þá koma bara endalausar fyrirspurnir. Ég hef reyndar gert þetta einu sinni áður, að sýna eitt stykki svona oft. Ég sýndi verkið „My Movements are alone like Street Dogs“, sem ég vann fyrir Ian Fabre, yfir hundrað sinnum.“ Frumsýning á nýju verki Á hátíðinni verður einnig nýtt verk eftir Ernu og Jóhann og heit- ir það „The Mysteries of Love“. Í því verki vinna þau Erna og Jó- hann með Margréti Söru Guðjóns- dóttur dansara og tónlistarmönn- unum Valdimari Jóhannssyni og Flosa Þorgeirssyni, en um þátt Valdimars og Flosa upplýsir Erna leyndardómsfull að það sé „svona dauðarokkskafli í lokin“. Hún segir að farið hafi verið af stað með þá hugmynd að gera danstónlistarverk þar sem röddin væri mikið notuð. „Fyrst ætluðum við að gera tíu lög og myndskreyta þau með dansi en svo þróaðist þetta þannig að nú er kominn smá söguþráður, þó hann sé svolítið ljóðrænn. Þetta byrjaði allt á því að við Jóhann vorum að tala um uppáhalds bíómyndina okkar á unglingsárunum og í kjölfarið fór- um við að vinna með unglingsárin og unglingaveikina. Eftir á held ég svo að það megi sjá áhrif frá David Lynch og hryllingsmyndapakk- anum. Þegar við sömdum verkið vorum við að hugsa um vinkonuþemað og svona dekkri hlið á unglingaklíku. Við vinnum mikið með tilfinningar og tilfinningasveiflur og horm- ónasveiflur og allan þann pakka. Þetta er samt póetískt og alls ekki literal.“ Góð byrjun Þrátt fyrir að verkið verði form- lega frumsýnt á miðvikudaginn var það sýnt á Avignion-danshátíðinni í fyrra og þá sem „verk í vinnslu“. Í kjölfarið hefur „slatti af sýningum“ verið bókaður. Erna kveðst vera mjög sátt við þá byrjun enda sé mjög góður árangur að fá bókanir fyrir frumsýningu. Venjulega sé það ekki fyrr en eftir frumsýningu sem sýningar fara að seljast. Því er óhætt að taka undir orð Ernu um „að þetta byrjar allavega vel“. Að síðustu sýnir Erna verkið „Ófætt“ í Drodesera en um nýlegt verk er að ræða sem hún hefur samið í samstarfi við dansfélaga sinn Damien Jalet, auk þess sem Gabríela Friðriksdóttir og Raven koma við sögu í útfærslu þess. Verkið skilgreinir Erna sem „sóló fyrir tvo líkama“ en hún og Jalet dansa saman. Hún segir einnig að unnið hafi verið með „upphaf sið- menningarinnar“ og fullyrðir hlæj- andi að það sýni „amöbur og drasl að fæðast útúr hvort öðru“. Það verk hefur ekki enn verið sýnt á Íslandi en Erna stefnir á að sýna bæði „Ófætt“ og „The Mysteries of Love“ hérlendis á næsta ári. Í október mun svo Jóhann gefa út plötu sem byggist á tónlistinni úr „IBM 1401, a user’s manual“ en hann hefur endurútsett tónlistina og bætt við köflum til að skapa sjálfstætt verk. Verkið er útsett fyrir 60 manna strengjasveit sem tekin var upp í Prag á síðasta ári. Dans | Erna Ómarsdóttir og Jóhann Jóhannsson á listahátíð á Ítalíu Sextíu sýningar í fjörutíu borgum Morgunblaðið/Jim Smart Erna Ómarsdóttir dansari hefur farið víða með dansverkið „IBM 1401, a user’s manual“. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is LANGT er um liðið frá því er ég heyrði síðast í Þorbirni Björnssyni. Það var fyrir sex árum, í aðal- hlutverki í Rakara Rossinis í upp- færslu Óperustúdíós Austurlands á Eiðum þegar hann átti ekki nema tvö ár um tvítugt og kom mér þá fyrir sem sprækur Fígaró með „spengilega barýtonrödd er lofaði góðu“, ef rétt er í rámað. En fyr- irferðarleysi hans á söngpöllum eft- ir það á sér sjálfsagt þá aðalskýr- ingu að Þorbjörn hóf framhaldsnám í Berlín 2002 sem enn er ólokið. Dagskráin fyrir troðfullum högggmyndasal Sigurjóns Ólafs- sonar sl. þriðjudagskvöld var mjög fjölbreytt og hófst á alkunnu lagi eftir enska lútusöngsmeistarann John Dowland. „Come again“ skartar í næstsíðustu línu hvers er- indis stígandi er minnir mann alltaf á kviðlinginn „Langar, þegir, hjal- ar, hlær …“ Kannski ekki sízt þar eð lokaorðin „to die“ voru skraut- hvörf endurreisnarmanna fyrir holdlega fullnægingu. Sum sé gullið tækifæri til samskonar stígandi í túlkun sem t.a.m. Julianne Baird fer snilldarlega með á diski sínum Greensleeves (1989). Því miður fór hvorki hér né síðar mikið fyrir heyranlegri textainn- lifun af sambærilegum toga hjá Þorbirni, þó að vottaði stundum fyrir henni á alvarlegustu og dramatískustu stöðum hjá t.d. Brit- ten – og stöku sinni þá sjaldan textinn gaf tilefni til kómískra til- þrifa eins og í seinna lagi Charles Ives. Almennt má segja að einbeit- ingin hafi snúizt um að fremja mik- il hljóð á kostnað merkingar- inntaks, eins og algengt er um yngri söngvara. Fyrir vikið varð túlkunin fremur einsleit. Röddin virtist oft einkennilega hol líkt og hún væri ekki endanlega staðsett, og jafnvel andstutt, sem ásamt fá- breyttri titurtíðni gerði að verkum að mér fór á köflum að leiðast – jafnvel þótt undirtektir flestra áheyrenda væru með hlýlegasta móti. En trúlega kann tauga- óstyrkur að hafa spillt fyrir, ef marka má nokkuð tíð yfirskot í tón- stöðu er virtust algengari en eig- inlegt tónlaf. Skyggðu þau hvað mest á Vögguvísu Jóns Leifs, er verður að vísu að telja meðal kröfu- harðari smálaga hvað inntónun varðar. Það var í því sambandi lærdóms- ríkt að lesa nýverið ráð ungs sig- urvegara í klassískri spilarakeppni til félaga sinna um að slaka á og skemmta sér þegar mest á ríður, því ofvöndun er sennilega örugg- asta leiðin til að fara á taugum. Þetta hefði átt prýðisvel við Mu- sensohn Schuberts þar sem vantaði áþreifanlega meiri gleði í sönginn. Eins hefði mátt vænta meiri og heyranlegri dulúðar í Purcell-lögin Mystery og Secrecy. Þó gutlaði sem fyrr segir á smá húmor í a- hluta The things our fathers loved eftir Ives, og þó að Britten-arían Look through the port væri ekki nógu hrein, skiluðu karlmennsk viðbrögð Billys Budd við örlögum sínum sér samt furðuvel í túlkun Þorbjarnar. Flagaraserenaða Don Zhuana (Tsjækovskíj) kom og snöf- urlega út, þó að Mozart-aríurnar tvær úr Così og Figaro væru held- ur viðvaningslegar í heyrn þrátt fyrir ágætan sjónleik í Si vuol ball- are. Hvergi sá högg á vatni í fislétt- um og dúnmjúkum píanóundirleik Jans Czajkowskis, er var í alla staði hið mesta eyrnayndi. Að slaka á og skemmta sér TÓNLIST Sigurjónssafn Söngvar og aríur eftir Dowland, Purcell, Schubert, Fauré, Ives, Jón Leifs, Britten, Mozart og Tsjækovskíj. Þorbjörn Björns- son barýton og Jan Czajkowski píanó. Þriðjudaginn 18. júlí kl. 20:30. Einsöngstónleikar Ríkarður Ö. Pálsson OFANGREINDIR listamenn eru þjóðinni vel kunnir, þeir eiga það sameiginlegt að hafa áratug- um saman heillast af vatnslitalistinni. Þegar sýn- ingin er skoðuð kemur einkar vel fram hvers vegna, hér eru möguleikarnir margir og mynd- verkin búa yfir sönnum töfrum. Þessir listamenn hafa farið nokkuð ólíkar leiðir í listsköpun sinni og það má segja að hver um sig sé barn síns tíma. Í þeim verkum Svavars Guðna- sonar sem hér má sjá í Arinstofu og Ásta Eiríks- dóttir hefur gefið Listasafninu er ljóðræn, óhlut- bundin framsetning í aðalhlutverki og birtist í óheftu flæði þeirra sterku lita sem löngum ein- kenndu list Svavars. Hér er það innra líf, hughrif og tilfinningar sem öðlast líf á myndfletinum, í anda þeirra strauma sem einkenndu listina á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Vatnslitir eru líka einkar vel til þess fallnir að tjá tilfinningar og hughrif, þeir eru listform augnabliksins og lítið hægt að leiðrétta pens- ildrætti eftir á. Gegnsæi þeirra býður einnig upp á bæði léttleika og dýpt. Myndir Kristínar Þorkels- dóttur eru unnar af léttleika og hún lætur pens- ilskriftina leika stórt hlutverk í þeim, að því marki að stundum minnir á austurlenskt letur og skap- ast þá skemmtilegt samtal íslenskra fjalla og fjar- lægrar hefðar. Hvítur litur pappírsins fær að njóta sín í myndum hennar. Letrið er einnig til staðar í sumum verkum Haf- steins Austmanns þó aldrei fari hann mjög nálægt því. Í myndum hans er mikil dýpt og andstæðir litir sem við þekkjum úr náttúrunni er spilað sam- an, á borð við dökkbláan og rauðgulan, líkt og blámi og glóð. Hjá honum eru formin ákveðin og ferningurinn áberandi, svo minnir jafnt á glugga- op eða óhlutbundin form. Ferningur, láréttar og lóðréttar línur eru einn- ig áberandi í myndum Eiríks Smith sem eru þó alls ólíkar myndum Hafsteins, hér hefur áhorf- andinn á tilfinningunni að myndefnið gæti verið komið úr hinu ytra umhverfi en vísi inn á við. Hjá Hafsteini virðist myndefnið vera sprottið úr innra lífi, þótt einnig megi finna skírskotanir til þekkj- anlegra forma eins og glugga. Yngstur í hópnum er Daði Guðbjörnsson en hann hefur einnig í áratugi helgað sig vatnslit- unum. Hann sýnir myndir þar sem saman spila skýrt afmarkaðir drættir og flæðandi litir, mynst- ur sem minna á bróderí, óhlutbundin form eða þekkjanleg á borð við öldutoppa. Léttleikinn er alltaf til staðar í myndum hans, eins og sjá má í litlu andlitunum sem standast ekki mátið að brosa til áhorfandans. Daði sýnir hér, eins og í Ný- listasafninu ekki fyrir löngu, að hann er sífellt vaxandi í list sinni og nær æ betri tökum á þeirri sérstöku stefnu sem hefur haldið honum hug- föngnum frá upphafi. Það er óhætt að segja að sýningin í ASÍ sé heimsóknar virði, hér skiptist á ljóðræna, dýpt, léttleiki og húmor og allt unnið af krafti og ástríðu. Öguð ástríða Morgunblaðið/Eggert Daði Guðbjörnsson, Hafsteinn Austmann, Eirík- ur Smith og Kristín Þorkelsdóttir í listasafni ASÍ MYNDLIST Listasafn ASÍ Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafsteinn Austmann, Kristín Þorkelsdóttir og Svavar Guðnason. Til 13. ágúst. Opið alla daga nema mánud. frá kl. 13– 17. AkvarellASÍReykjavík Ragna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.