Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 40

Morgunblaðið - 24.07.2006, Síða 40
Ljósmynd/Krisján Ólafsson Pallbíllinn sem festist í Krossá og fór á kaf. Þótt áin virðist meinlaus í fjarska hefur hún verið steinn í götu margra sem leggja leið sína til Þórsmerkur. Festust í Krossá og fóru á kaf PALLBIFREIÐ með fimm farþega innanborðs festist í Krossá í Þórsmörk og fór á kaf í gær- dag. Farþegunum tókst að forða sér úr bif- reiðinni áður en hún fór á kaf og koma sér upp á þak hennar þaðan sem þeir syntu í land. Eftir að fólkið hafði látið Neyðarlínuna vita af sér kom flugbjörgunarsveit Hellu því til að- stoðar og dró bifreiðina upp úr ánni með tveimur vörubílum. Að sögn skálavarðar í Húsadal hefur verið nokkuð um að fólk festi bifreiðar í ánni í sumar. Þótt lítið hafi verið í ánni að undanförnu er hún búin að grafa sig svolítið og er vaðið síbreytilegt í henni. Sigurður Viðarsson á björgunarsviði Lands- bjargar segir aldrei of varlega farið þegar ekið sé yfir óbrúaðar ár. Hann leggur áherslu á að fólk kanni aðstæður vel og vandlega áð- ur en lagt sé af stað yfir ár og ekki sé verra að hafa vöðlur með í för og vaða fyrst í vatn- ið til að kanna dýpt. ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alladaga í Lágmúla og Smáratorgi HEYANNIR hafa verið í Ár- bæjarsafni með fjölbreyttri dagskrá. Þurrkurinn undan- farna daga hefur auðvitað ver- ið nýttur til hins ýtrasta þótt vinnufólk af báðum kynjum hafi stöku sinnum brugðið á leik. Vélar sjást hvergi og allt er gert með gamla laginu: Yng- ismeyjar sneru heyinu með hrífum, rökuðu í garða og söfnuðu í sátur í sólskinsblíðu. Og auðvitað var þarfasti þjónninn notaður líkt og forð- um daga og ilmandi taðan flutt heim í hlöðu á klökkum. Heyjað í Árbæj- arsafni Morgunblaðið/ Jim Smart VEIÐIÞJÓFNAÐUR hefur aukist til muna í Elliðaánum síðastliðin þrjú ár, að sögn Magnúsar Sigurðssonar og Jóns Þ. Einarssonar, veiðivarða við árnar. Þannig hafi ætíð verið eitt- hvað um að menn hafi stundað veiðar við árnar án þess að hafa til þess til- skilin leyfi en undanfarin ár hafi fjöldi veiðiþjófa keyrt um þverbak. Vandamálið sé ekki fólgið í því að börn stelist í árnar heldur sé hér um stálpaða menn að ræða. „Það er fyrst og fremst fólk af er- lendu bergi brotið sem stundar þessa iðju,“ segir Magnús og bendir á að oftar en ekki beri fólkið við mis- skilningi eða vanþekkingu á þeim reglum sem um veiðarnar gildi. Þá sé oft erfitt að koma viðkomandi í skilning um ólögmæti veiðanna vegna tungumálaerfiðleika. „Menn hafa sumir hverjir framvís- að Veiðikortinu og talið það gefa þeim leyfi til þess að veiða í ánum,“ segir Jón en Veiðikortið veitir ótak- markaðan aðgang að veiði í vötnum víðs vegar um landið – ekki í ám. „Þá hafa menn talið að þeir væru að veiða í Elliðavatni en ég hef bent þeim á að vatnið hættir að vera Ell- iðavatn þegar það rennur niður í árnar. Menn eiga nú að þekkja mun- inn á á og vatni,“ segir Magnús. Veiðiþjófarnir beita flestir maðki eða spún en þeir Magnús og Jón segjast ekki hafa orðið varir við að menn hafi gerst svo stórtækir að leggja net í árnar. „Hér er ekki leyfilegt að veiða á spún og þegar menn nota hann þá er hann eðlilega nýmæli fyrir fiskinn sem verður í kjölfarið auðveld bráð. Í síðustu viku kom ég til dæmis að sex mönnum sem mynduðu röð á bakk- anum við einn hylinn og köstuðu spún. Þá reynist mönnum auðvelt að veiða fisk á maðk á þeim stöðum þar sem hann er bannaður,“ segir Magn- ús og tekur undir að slík iðja veiði- þjófa skemmi fyrir þeim veiðimönn- um sem á eftir þeim komi. Aukinn veiði- þjófnaður í Elliðaánum Eftir Þóri Júlíusson thorirj@mbl.is ÖKUMAÐUR sendiferðabifreiðar slasaðist þegar hann ók bifreiðinni á staur og velti henni á Vest- urlandsvegi á hringtorginu gegnt Korpúlfsstöðum síðdegis í gær. Í fyrstu var talið að maðurinn væri fastur í bílnum en þegar lögreglu bar að garði var hann búinn að losa sig úr brakinu og var með með- vitund. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspít- alans þar sem gert var að meiðslum hans. Mikil umferð var um Suðurlandsveg og Vest- urlandsveg þegar ferðalangar sneru aftur til höf- uðborgarinnar. Í gærkvöldi var bíll við bíl frá Esju- melum að Mosfellsbæ. Að öðru leyti gekk umferðin ágætlega í umdæminu að sögn lögreglu Ók á staur og velti í kjölfarið Morgunblaðið/ Jim Smart Lögregla á slysstað við Korpúlfsstaði í gær. ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti fjórhjólamann á laugardag sem velt hafði hjóli sínu við fjöruna í Látra- vík, norður af Látrabjargi. Að sögn lögreglu á Patreksfirði kvartaði maðurinn undan miklum verkjum í baki og fótum og var ákveðið að flytja hann með þyrlu frekar en að fara landleiðina með hann. Þegar á slysadeild Landspítalans var komið reyndist maðurinn hryggbrotinn. Þyrla sótti hryggbrot- inn mann SLÖKKVILIÐ Borgarfjarðardala var kallað út að Hrísum í Flókadal í nótt en þar hafði kviknað í. Kona á fimmtugsaldri var ein í húsinu og komst hún út af sjálfsdáðum. Húsið er mikið skemmt að sögn lögreglu í Borgarnesi, einkum í risi og á jarðhæð. Talsverðar reyk- og vatnsskemmdir urðu jafnframt á húsinu. Lögregla telur að eld- urinn hafi komið upp í rafmagns- töflu. Slapp úr brennandi húsi í Flókadal ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.