Morgunblaðið - 24.07.2006, Side 7

Morgunblaðið - 24.07.2006, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. JÚLÍ 2006 7 FRÉTTIR E N N E M M / S ÍA / N M 2 2 7 5 4 Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði. Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 464 7942 NISSAN PATHFINDER Nissan Pathfinder SE sjálfskiptur Verð aðeins 4.590.000 kr. Verð áður 5.090.000 kr. Það hefur líklega aldrei verið hagstæðara að kaupa sér alvöru jeppa. Nissan Pathfinder blandar skemmtilega saman krafti fjallajeppa eins og þeir gerast bestir og lipurð flottustu götubíla. Útkoman hefur slegið eftirminnilega í gegn enda er sama hvaða samanburð þú gerir, Pathfinder hefur vinninginn! Líttu inn og berðu hetjuna augum! VERÐLÆKKUN! 500.000 KR. BORGAÐU MINNA FYRIR MEIRI LÚXUS SUMARTILBOÐ NISSAN LOFTORKA í Borgar- nesi hefur hafið út- flutning á forsteyptum einingum. Um er að ræða forspenntar hol- plötur, 400 millimetrar þykkar, sem eru gjarnan notaðar í milliloft í stærri bygg- ingum. Á vefsíðu fyrir- tækisins kemur fram að fyrir helgi hafi verið gengið frá fyrstu send- ingunni frá verksmiðj- unni við Engjaás í Borgarnesi. Einingar Loftorku á markað Lagt af stað með fyrstu plötusendinguna frá höfuðstöðvum Loftorku í Borgarnesi, sem fer á erlendan markað. AÐFARANÓTT laugardagsins lagði lögreglan á Siglufirði hald á 15 grömm af hassi, 8 grömm af ætluðu amfetamíni og 10 e-pillur. Þrír menn voru handteknir í tengslum við málið og gengust tveir þeirra við því að vera eig- endur efnanna. Lögreglan á Siglufirði gerði hús- leit á tveimur stöðum í bænum í tengslum við málið og naut hún lið- sinnis lögreglumanna frá sérsveit ríkislögreglustjóra og leitarhunds tollstjórans í Reykjavík. Telst mál- ið upplýst af hálfu lögreglu. Fíkniefni fundust á Siglufirði MIKIÐ af fólki safnaðist saman í miðbænum aðfaranótt sunnudags- ins, enda ágætisveður í bænum. Að sögn lögreglu fór þó allt friðsam- lega fram og lítið var um slagsmál og óspektir. För þriggja ökumanna var stöðvuð og þeir grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis. Lögreglan í Kópavogi og Hafnar- firði hafði svipaða sögu að segja, aðfaranótt sunnudagsins var róleg. Einn var þó tekinn í Kópavogi með minniháttar magn af amfetamíni í fórum sínum. Talsverður mannfjöldi í miðbænum LÖGREGLAN í Keflavík fékk til- kynningu á fjórða tímanum í fyrri- nótt um að yfir stæði innbrot í verslun Bræðranna Ormsson við Hafnargötu. Innbrotsþjófurinn var farinn af staðnum þegar lögreglu bar að garði en hann hafði spennt upp hurð og brotið rúðu til þess að komast inn í verslunina. Engu virð- ist hafa verið stolið. Þjófurinn er enn ófundinn og er málið í rann- sókn. Að sögn lögreglunnar í Keflavík var nokkuð um útköll í fyrrinótt vegna ölvunar, enda mikið af fólki í bænum og blíðskaparveður. Einn gisti fangageymslur vegna ölvunar og óspekta á almannafæri. Reyndi að brjótast inn í verslun í Keflavík SAMFYLKINGIN lagði til í borgar- ráði fyrir helgi að gengið yrði til viðræðna við ríkisstjórnina um þátttöku í kostnaði við almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Afgreiðslu tillög- unnar var frest- að en Dagur B. Eggertsson, odd- viti Samfylking- arinnar, telur ástæðulaust að ætla annað en að samstaða verði um það í borg- arstjórn að „hinn nýi áhugi ríkis- stjórnarinnar“ verði virkjaður. Annað eins hafi verið virkjað. Dagur segir nýjar áherslur Jón- ínu Bjartmarz umhverfisráðherra á almenningssamgöngur vera já- kvæðar, þær hafi m.a. birst í grein í Morgunblaðinu sl. föstudag. Hing- að til hafi Reykjavíkurborg sótt það fyrir daufum eyrum að ríkið kæmi að rekstri og stofnfjárfestingum í almenningssamgöngum, þó ekki væri með öðru en að leggja af skatta á Strætó. Veittur sé skatta- afsláttur af almenningssamgöngum um land allt, auk þess sem ferjur og ákveðnar flugleiðir séu nið- urgreiddar. Í tillögu Samfylkingarinnar í borgarráði var lagt til að viðræðun- um við ríkið yrði lokið fyrir 1. októ- ber á þessu ári. Rætt verði við ríkið um almenn- ingssamgöngur Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.